Fréttir
  • Bráðbirgðabrúin yfir Steinavötn, fyrstu vegfarendur fara yfir brúna
  • Bráðbirgðabrúin yfir Steinavötn
  • Bráðbirgðabrúin yfir Steinavötn
  • Bráðbirgðabrúin yfir Steinavötn, Ingunn Loftsdóttir og Reynir Gunnarsson
  • Bráðbirgðabrúin yfir Steinavötn
  • Bráðbirgðabrúin yfir Steinavötn
  • Bráðbirgðabrúin yfir Steinavötn
  • Bráðbirgðabrúin yfir Steinavötn
  • Bráðbirgðabrúin yfir Steinavötn
  • Bráðbirgðabrúin yfir Steinavötn
  • Bráðbirgðabrúin yfir Steinavötn
  • Bráðbirgðabrúin yfir Steinavötn

Hringvegurinn allur opinn á ný

Búið að hleypa umferð á nýju bráðabirgðabrúna yfir Steinavötn

4.10.2017

Klukkan tólf á hádegi var umferð hleypt á nýja bráðabirgðabrú yfir Steinavötn og er þá Hringvegurinn allur opinn á ný. Brúin yfir Steinavötn laskaðist í miklum vatnavöxtum á fimmtudag í síðustu viku þegar grófst undan einum stöplinum. Þegar var hafist handa við smíði bráðbirgðarbrúar sem nú er opnuð allri umferð sex dögum síðar.

Smíði brúarinnar gekk vonum framar en bráðabirgðabrúin er um 104 m löng einbreið brú. Sú gamla var einnig einbreið. Byggð verður ný tvíbreið brú á sama stað og sú gamla er. Nýja brúin verður tvíbreið. Reikna má með að það líði 2-3 ár áður en hægt verður að aka yfir nýja varanlega brú. Reikna má einnig með að sú brú geti kostað allt að 700 milljónir króna.

Smíði bráðabirgðabrúarinnar gekk vel enda samhentur hópur Vegagerðarmanna að verki þar sem margir búa enn að reynslunni þegar svipuð, en heldur lengri brú, var byggð yfir Múlakvísl árið 2011. Vegagerðin á alla jafna efni í að minnsta kosti 300 m af brúm af þessu tagi. Rarik á til reiðu staurana til að reka niður. Vegagerðin er alltaf með tilbúna stálbita, sem eru bitar úr aflögðum brúm, þar á meðal bráðabirgðabrúnni yfir Múlakvísl. Og til reiðu er alla jafna efni í brúargólf, vegrið og annað sem þarf til að smíða slíkt mannvirki.  

Hitann og þungann af verkinu báru brúarvinnuflokkar Vegagerðarinnar í Vík og á Hvammstanga en það eru einu vinnuflokkar Vegagerðarinnar, og einmitt haldnir úti í þeim tilgangi að hægt sé að bregðast hratt og örugglega við náttúruhamförum þar sem þekking þeirra og reynsla leiðir af sér að ekkert hik verður á framkvæmdum. Fjölmargir aðrir starfsmenn Vegagerðarinnar komu að þessu verki auk fleiri aðila utanfrá.

Í gær og dag hafa menn verið að leggja lokahönd á verkið sem hefur líka gengið vel, síðast voru menn að festa slitgólf á trébrúargólfi og jafna veginn að brúnni. Áfram verður unnið að lokafrágangi eftir opnun.

Síðan er fyrirhuguð samkoma á Smyrlabjörgum kl 15:00 fyrir þá fjölmörgu sem að verkinu komu.


Myndirnar tóku Guðmundur Valur Guðmundsson, Óskar Örn Jónsson og Ingunn Loftsdóttir