Fréttir
  • Starfsmenn Vegagerðarinnar sinntu almennu viðhaldi á vitanum í morgun. Mynd/Guðmundur Jón Björgvinsson
  • Gjögurtáarviti hallar lítilsháttar og hefur gert undanfarin ár. Mynd/Guðmundur Jón Björgvinsson
  • Gjögurtáarviti er fjögurra metra hár, byggður árið 1970, og stendur tæpt á mjóum klettarana. Mynd/Guðmundur Jón Björgvinsson

Gjögurtáarviti stendur af sér skjálfta

Árlegu viðhaldi sinnt af starfsmönnum Vegagerðarinnar

16.9.2020

Vitinn á Gjögurtá, austan Eyjafjarðar, virðist hafa staðið af sér miklar jarðskjálftahrinur sem gengið hafa yfir svæðið undanfarnar vikur og mánuði. Í sumar var sögð af því frétt að óttast væri um að vitinn hefði orðið fyrir skemmdum í jarðskjálftahrinum en mikil skriðuföll urðu í fjallshlíðinni ofan vitans í júní. Landhelgisgæslan flaug þá yfir vitann til að skoða aðstæður úr lofti og einnig fékkst staðfesting frá bátum að vitinn lýsti enn.

Gjögurtáarviti er fjögurra metra hár, byggður árið 1970, og stendur tæpt á mjóum klettarana. Hann hallar lítilsháttar á stallinum þar sem hann stendur og hefur gert undanfarin ár.

Starfsmenn Vegagerðarinnar, sem eru í árlegri viðhaldsferð um landið með Landhelgisgæslunni á varðskipinu Þór komu í Gjögurtáarvita í morgun. Að þeirra sögn er allt í stakasta lagi ennþá þó vissulega halli vitinn eins og undanfarin ár, hann hafi þó lítið hreyfst í skjálftunum undanfarið.

Sinnt var hefðbundnu viðhaldi á vitanum og vonandi stendur hann áfram af sér komandi jarðhræringar.