Fréttir
  • Suðurstrandarvegur skemmdir mars 2021
  • Suðurstrandarvegur skemmdir mars 2021
  • Suðurstrandarvegur skemmdir mars 2021
  • Suðurstrandarvegur skemmdir mars 2021 - kort
  • Suðurstrandarvegur skemmdir mars 2021 kort
  • Suðurstrandarvegur skemmdir mars 2021
  • Suðurstrandarvegur skemmdir mars 2021
  • Suðurstrandarvegur skemmdir mars 2021

Frekari skemmdir á Suðurstrandarvegi vegna jarðhræringanna

Vegur þrengdur, þungatakmarkanir settar á og hraði dreginn niður

16.3.2021

Frekari skemmdir urðu á Suðurstrandarvegi í gær nálægt Festarfjalli. Sprungur hafa myndast við axlir og í fyllingu þannig að vegrið hefur ekki allsstaðar fullan stuðning. Svæðið er merkt, akreinar eru þrengdar, þungatakmarkanir hafa verið settar á og hámarkshraði lækkaður. Unnið er að lausnum varðandi lagfæringar á þessum skemmdum. 

Vegagerðin hefur eftir frumskoðun og uppsetningu gátskjalda í gær skoðað ástand vegarins í morgun. Í ljós kom að það er töluvert sig á fyllingu utan á öxlum vegarins, vegriðið hefur ekki lengur fullan stuðning á nokkrum köflum. Vegurinn hefur einnig sprungið þvert á nokkrum stöðum.  Það er ekki að sjá að það sé komið í sig í veginn sjálfan en svæðið sem er mest sprungið er þarf að skoðast betur og þar verður þrengt að umferðinni svo ekki reyni á þá kafla. 

Einnig hefur verið tekin ákvörðun um að setja þungatakmarkanir á veginn og miða við 7 tonna öxulþunga.  Vegurinn verður þrengdur þannig að umferðin færist frá ytri brún, færslan verður stærri en sett var upp í gær.  Hámarkshraði verður áfram tekin niður í 50 km/klst. Vegfarendur eru beðnir um að fara varlega á veginum og svæðinu öllu. Ljóst er að breytingar geta átt sér stað enda skjálftavirknin áframhaldandi.

Unnið er að frekari úrlausn. 


Athugið - myndirnar voru teknar í gær áður en vegur var þrengdur og merkingar auknar.