Fréttir
  • Íbúafundur Reykhólahreppi 9. janúar 2019
  • Íbúafundur Reykhólahreppi 9. janúar 2019 - Guðmundur Valur Guðmundsson og Bergþóra Þorkelsdóttir
  • Íbúafundur Reykhólahreppi 9. janúar 2019
  • Íbúafundur Reykhólahreppi 9. janúar 2019 - Guðmundur Valur Guðmundsson
  • Íbúafundur Reykhólahreppi 9. janúar 2019
  • Íbúafundur Reykhólahreppi 9. janúar 2019
  • Íbúafundur Reykhólahreppi 9. janúar 2019 - Guðmundur Valur Guðmundsson
  • Íbúafundur Reykhólahreppi 9. janúar 2019
  • Íbúafundur Reykhólahreppi 9. janúar 2019
  • Íbúafundur Reykhólahreppi 9. janúar 2019
  • Íbúafundur Reykhólahreppi 9. janúar 2019

Fjölsóttur fundur á Reykhólum

Um 150-160 manns sóttu íbúafund Vegagerðarinnar

10.1.2019

Íbúafundur Vegagerðarinnar í Reykhólahreppi var mjög fjölsóttur og almenn ánægja með fundinn. Boðað var til hans til að upplýsa íbúa fjær og nær betur um hvað liggur að baki því mati Vegagerðarinnar að Þ-H leið sé besti kosturinn við val á veglínu á Vestfjarðavegi (60) á kaflanum Bjarkarlundur - Skálanes.

Fundurinn var ákaflega vel sóttur en um 150-160 manns mættu í skólann á Reykhólum og var ekki sæti fyrir alla fundarmenn, sem létu það þó ekki á sig fá. Eftir að Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar hafði boðið fólk velkomið kynnti Guðmundur Valur Guðmundsson forstöðumaður hönnunardeildar, þær forsendur og þau vinnubrögð, sem leitt hafa til niðurstöðu Vegagerðarinnar. Hann fór yfir langa sögu málsins, aðferðafræði Vegagerðarinnar við mat á hinum ýmsu þáttum sem snúa að vali á veglínum. Fór yfir hönnunarforsendur, umferðaröryggismat, slysatíðni, umferðarspár, kostnaðaráætlanir og hvernig þær eru unnar o.s.frv. 

Þetta var gert til að kynna íbúum og öðrum áhugasömum fundargestum hvernig Vegagerðin hefur komist að þeirri niðurstöðu að Þ-H leiðin sé betri kostur en það felst í því að hún er öruggari, greiðfærari, styttri og ódýrari auk þess að vera samkvæmt þeirri samgönguáætlun sem liggur fyrir Alþingi full fjármögnuð. Þá er það mat Vegagerðarinnar framkvæmdir við Þ-H leið gæti hafist fyrst og verið lokið árum á undan öðrum kostum. Enda er vinna við aðalskipulag og veitun framkvæmdaleyfis mjög langt komin og verkið svo gott sem tilbúið til útboðs. 

Á fundinum var einnig kynnt nýtt umferðaröryggismat þar sem niðurstaðan er að leið Þ-H kemur best út en leið A-3 nokkuð svipað vel út, leið D síður og leið R kemur langverst út úr þessari óháðu úttekt á umferðaröryggi leiðanna.

Almenn ánægja var með fundinn sem hugsaður var til upplýsingar fyrst og fremst en sveitarstjórn Reykhólahrepps hefur aðalskipulag sveitarfélagsins til meðferðar og mun fljótlega ákveða hvaða línu sveitarstjórnin vill hafa í aðalskipulaginu. Það er forsenda þess að hægt sé að gefa út framkvæmdaleyfi. Tryggvi Harðarson sveitarstjóri þakkaði Vegagerðinni fyrir fundinn og einnig fund sem haldinn var fyrr um daginn með sveitarstjórninni - báðir fundir hefðu verið mjög upplýsandi og gagnlegir.

Glærur til kynningar

Skýrsla um umferðaröryggismat