Fréttir
  • Fjarðarheiðargöng - teikning

Fjarðarheiðargöng - Tillaga að matsáætlun

athugasemdafrestur til 10. nóvember

26.10.2020

Vegagerðin hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum Fjarðarheiðarganga. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir. Tilgangur framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur á Austurlandi og hafa þar med jákvæð áhrif á samfélagið. Með jarðgöngum undir Fjarðarheiði verða samgöngur áreiðanlegri og öruggari.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 10. nóvember 2020 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is

Eftirtaldir aðilar hafa fengið erindið sent með beiðni um umsögn: Múlaþing, Fiskistofa, Hafrannsóknastofnun, Heilbrigðiseftirlit Austurlands, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Landgræðslan, Landsnet, Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Samgöngustofa, Skógræktin, Umhverfisstofnun og Veðurstofa Íslands.

Ákvörðunar Skipulagsstofnunar um tillöguna er að vænta 23. nóvember 2020. 

Sjá frekar hér á heimasíðunni.