Fréttir
Dýpkað í Landeyjahöfn út janúarmánuð
Stefnt að öflugra og stærra skipi í marsdýpkun
Vegagerðin og Björgun hf. hafa gert með sér samkomulag um dýpkun í Landeyjahöfn frá því haustdýpkun lýkur 15. nóvember og út janúar næstkomandi. Skrifað var undir samninginn í dag 12. nóvember. Dýpkað verður flesta daga meðan fært er. Dýpkað hefur verið samkvæmt samningi vor og haust og er þetta veruleg viðbót við þá dýpkun. Með þessu vill Vegagerðin leitast við að halda höfninni opinni fram yfir áramót sé þess nokkur kostur.
Dýpkunarskipið Dísa ásamt áhöfn mun liggja við í
Vestmannaeyjahöfn og nýta þau tækifæri er gefst til dýpkunar í samræmi við efni
samningsins. Samkomulagið felur einnig í sér breytingar á fyrri samningi að því
leyti að ekki er gert ráð fyrir aðkomu Björgunar að dýpkun í marsmánuði eins og
núverandi samningar gerðu ráð fyrir.
Leitað verður eftir því að fá til starfa stærra skip með
öflugri búnað til þess að opna höfnina en Björgun mun svo taka við og ljúka
frekari hreinsun.