Fréttir
  • Dýpkunarskipið Dísa að störfum í Landeyjahöfn

Dýpi í Landeyjahöfn mjög gott

Lægðagangur dýpkar

25.11.2019

Dýpið í Landeyjahöfn er óhemju gott miðað við árstíma. Lægðirnar sem hafa komið að undanförnu hafa í raun hjálpað til við dýpkunina og fjarlægt sand af siglingasvæði Herjólfs í stað þess að bæta í sandinn.

Því er svo komið núna að ekki er þörf fyrir dýpkunarskipið Dísu, í bili a.m.k., en hún hefði annars verið við dýpkunarstörf þessa dagana.

Veðurspáin er síðan þannig að það má reikna með að ekki komi neitt nýtt efni inn í höfnina næstu 7 daga og því þarf ekki að dýpka næstu 10 daga a.m.k.

Þetta er frekar óvenjuleg staða en hefur eigi að síður komið upp áður. Nú munar reyndar um að ekki er við að etja gosefni úr Eyjafjallagosinu sem barst út í sjó með Markarfljóti.