Fréttir
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin uppsafnað
  • Umferðin eftir vikudögum

Dregur úr umferðaraukningunni í ár

Minnsta aukning síðan árið 2012

1.8.2019

Umferðin í nýliðnum júlí á Hringvegi jókst um 1,4 prósent. Þetta er minnsta aukning í umferðinni í þessum mánuði síðan árið 2012. Útlit er fyrir að aukning umferðar í ár í heild gæti numið 2,7 prósentum sem að sama skapi væri minnsta aukning síðan árið 2012. Samdráttur í umferð mælist á Austurlandi. 

Milli mánaða 2018 og 2019
1,4% aukning varð í umferð yfir 16 lykil mælisnið Vegagerðarinnar á Hringvegi í nýliðnum júlí, borið saman við sama mánuð á síðasta ári.  Þetta er minnsta aukning í júlí mánuði síðan árið 2012.

Af 5 skilgreindum svæðum Vegagerðarinnar, varð einungis aukning um tvö þeirra eða á Vesturlandi um 6,1% og yfir lykilteljara á og í grennd við höfuðborgarsvæðið eða um 3,3%.  Um önnur svæði varð samdráttur og mestur varð hann á Austurlandi þar sem varð 6,9% samdráttur, sjá nánar meðfylgjandi töflu. Malbikunarframkvæmdir á Hellisheiði hafa leitt til þess að líklega hafi fleiri farið Þrengslin en um heiðina sjálfa og þá Hringveginn.

Umferð jókst mest um lykilteljara í Hvalfjarðargöngum eða um 9,5% en mestur samdráttur mældist um lykilteljara á Mývatnsheiði eða 10,9%.

Samanburður







Frá áramótum milli áranna 2018 og 2019
Nú hefur umferðin aukist um 4,2% frá áramótum sem er nákvæmlega sama staða og var uppi á síðasta ári.   Mest hefur umferð aukist um Vesturland og minnst um Austurland en þar mælist 3,1% samdráttur og er það eina svæðið þar sem umferð hefur dregist saman frá áramótum.

Umferð vikudaga
Frá ármótum hefur umferð aukist í öllum vikudögum og þá mest á sunnudögum eða um 8,5% en minnsta aukningin hefur orðið í umferð á þriðjudögum eða 2,5% aukning.  

Mest er ekið á föstudögum og minnst á þriðjudögum. 

Horfur út árið 2019
Nú stefnir í að umferðin geti aukist um 2,7%, hegði hún sér líkt og venja er til.  Gangi þessi spá eftir þarf að leita þarf aftur til ársins 2012 til að finna minni aukningu í umferð milli ára á Hringveginum.

Talnaefni - athugið að um grófrýndar tölur er að ræða og gætu þær því eitthvað breyst.