Fréttir
Dregur úr samdrættinum í umferðinni
Umferðin í síðustu viku aðeins tveimur prósentum minni
Umferðin í síðustu viku reyndist einungis tveimur prósentum minni en í sömu viku fyrir ári síðan. Þannig dregur verulega úr samdrætti milli ára og virðist því sem umsvifin í þjóðfélaginu séu að verða svipuð og áður þrátt fyrir verulegar samkomutakmarkanir og fáa ferðamenn. Sé tekið mið af því hversu mikið er ekið.
Í fjórðu viku, innan ársins, reyndist umferðin yfir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, tæplega 2% minni en í sömu vikum á síðasta ári. Tilhneigingin, frá því í lok síðasta árs, hefur verið sú að neikvæður mismunur á umferð milli ára sé sífellt að verða minni, frá því að þriðja bylgja hófst og það hittist þannig á að í síðustu viku dróst umferð einungis saman í mælisniði á Hafnarfjarðarvegi, sjá hér fyrir neðan:
Breyting á milli ára í viku 4 eftir mælisniðum:
Hafnarfjarðarvegur
við Kópavogslæk -8,8%
Reykjanesbraut
við Dalveg í Kópavogi +1,4%
Vesturlandsvegur
ofan Ártúnsbrekku +0,5%