Fréttir
  • Malbikun á Hringvegi (1) í Kömbunum sumarið 2021.

Bundin slitlög - betri vegir

Vegagerðin heldur ráðstefnu í Hörpu 14. sept. um klæðingar og malbik.

13.9.2021

Vegagerðin gengst fyrir heilsdags ráðstefnu um bundin slitlög þann 14. september 2021 í Hörpu. Fjallað verður um malbik og klæðingar frá mörgum sjónarhornum og kynnt saga bundinna slitlaga og verklag Vegagerðarinnar. Erlendir fyrirlesarar munu auk þess varpa ljósi á notkun bundinna slitlaga í sínum heimalöndum en þeir koma frá Bretlandi, Hollandi og Svíþjóð. Sjá dagskrána neðar á síðunni.

Þátttakendur skrá sig á ráðstefnuna með því að smella á hlekkinn. 

Ráðstefnan er haldin í Hörpu og boðið upp á kaffi og hádegisverð. Ráðstefnugjaldinu er mjög stillt í hóf en auk þess verður ráðstefnunni streymt. Öllum sóttvarnarreglum verður fylgt út í ystu æsar en Harpa hefur mikla þekkingu og reynslu á því sviði.

Beint streymi verður frá ráðstefnunni. Hlekkur á streymi er neðst á síðunni. Streymið er opið öllum.

Dagskráin gæti tekið einhverjum breytingum.

Dagskrá ráðstefnunnar:

 

8:00 Skráning
9:00 Ráðstefnan opnuð.
Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar
9:05 Ávarp samgönguráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
9:10 Af mölinni á bundna slitlagið. 
Magnús Valur Jóhannsson, framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs Vegagerðarinnar 
9:30 Common praxis and experiences of bitumen bound surface layers.
Kenneth Lind, sérfræðingur í vegtækni og bundnum slitlögum, Trafikverket í Svíþjóð 
10:00 Auknar kröfur - breyttar reglur.
Birkir Hrafn Jóakimsson, forstöðumaður stoðdeildar Vegagerðarinnar
10:20 Kaffi
10:35 Yfirborð bikbundinna vega - rýni
Sigurður Erlingsson, prófessor umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands
10:55 Umræður
11:05 Ending malbikaðra slitlaga – samanburður á helstu stofnvegum á höfuðborgarsvæðinu.
Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir, byggingatæknifræðingur, Eflu
11:25 Advanced asphalt surface treatment - technologies using bio-based materials
Bert Jan Lommerts, framkvæmdastjóri og eigandi Reddy Solutions, Hollandi  
11:55 The importance of friction for motocyclist - experiences from Sweden

Maria Nordqvist, Sveriges MotorCyklister

12:15 Umræður
12:25  Matur
13:10 Endurvinnsla í vegagerð. 
Guðrún Fjóla Guðmundsdóttir hjá ReSource
13:30 Endurvinnsla í malbik - tækifæri til framtíðar.
Björk Úlfarsdóttir rannsóknarstjóri og Harpa Þrastardóttir umhverfis-, öryggis-, og gæðastjóri, Colas Ísland
13:50 Frá vöggu til grafar - meðhöndlun efna við slitlagnir.
Páll Kolka, umhverfissérfræðingur Vegagerðarinnar
14:10 Umræður
14:20 Kaffi
14:35 Viðhald bundinna slitlaga - mat á viðhaldsþörf.
Jón Magnússon sérfræðingur framkvæmdadeild Vegagerðarinnar
14:55 An overview of skid resistance in the UK.
David Woodward, verkfræði innviða, Ulster háskólanum Norður-Írlandi
15:25 Efnisgæðarit Vegagerðarinnar - fróðleikur og kröfur til vegagerðarefna.
Pétur Pétursson sérfræðingur stoðdeild Vegagerðarinnar
15:45 Ódýrara malbik - færanlegar malbiksstöðvar.
Sigþór Sigurðsson, forstjóri Colas Ísland
16:05 Nýsköpun og þróun innan og utan Vegagerðarinnar.
Ólafur Sveinn Haraldsson, forstöðumaður rannsóknadeildar Vegagerðarinnar
16:25 Umræður
16:35 Ráðstefnuslit

Beint streymi frá ráðstefnunni. Hlekkurinn verður virkur um leið og ráðstefnan hefst klukkan 9 þann 14. september.

Hægt er að spyrja spurninga í gegnum vefsíðuna sli.do með kóðanum #malbik