Fréttir
  • Stór ferðahelgi er framundan. Vart hefur orðið við blæðingar í slitlögum, þá eru vegaframkvæmdir víða og því mikilvægt að fara varlega.

Blæðingar í slitlagi – förum varlega

Stór ferðahelgi fram undan

3.7.2020

Einmuna veðurblíða hefur verið síðustu daga og veðurspáin góð áfram. Því stefnir í stóra ferðahelgi.

Tími framkvæmda á vegakerfinu stendur sem hæst og víða er nýlögð klæðing. Vegna mikilla hita síðustu daga hefur orðið vart við blæðingar í slitlagi en af því getur skapast hætta. Til að bregðast við hafa verið settar upp viðvaranir víða um land. Starfsfólk Vegagerðarinnar í öllum landshlutum fylgist vel með aðstæðum og grípur til aðgerða ef þess gerist þörf.

Vegfarendur eru hvattir til að hafa varann á og virða merkingar og hraðatakmarkanir.