Fréttir
  • Morgunfundur Vegagerðarinnar um blæðingar í slitlögum verður haldinn í beinu streymi þriðjudaginn 16. mars 2021.

Blæðingar í bundnu slitlagi – hvað er til ráða?

Morgunfundur Vegagerðarinnar 16. mars 2021

15.3.2021

Á þessum morgunfundi verður fjallað um svokallaðar blæðingar sem geta orðið í vegklæðingu og malbiki. Rætt verður um mismunandi tegundir blæðinga,  ástæður þeirra og  viðbrögð Vegagerðarinnar  þegar þær koma upp. Þá verður tæpt á öðrum skemmdum í bikbundnum slitlögum. Við fáum einnig sjónarmið flutningageirans varðandi áhrif blæðinga á hann. Fundurinn verður haldinn í streymi þriðjudaginn 16. mars nk. kl. 09:00 – 10:15.

Dagskrá

  • Opnun fundar Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar.
  • Blæðingar um vetur og sumar. Birkir Hrafn Jóakimsson verkefnastjóri á framkvæmdadeild Vegagerðarinnar. 
  • Skemmdir í bikbundnum slitlögum. Pétur Pétursson hjá PP ráðgjöf.
  • Sjónarmið flutningageirans Ingi Þór Hermannsson, forstöðumaður Samskipa innanlands.
  • Hvaða úrræði höfum við? Magnús Valur Jóhannsson, framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs Vegagerðarinnar.
  • Spurningar og svör

Morgunfundurinn er hluti fundaraðar sem haldin er í vetur og lýkur í vor með ráðstefnu um yfirlagnir á Íslandi. Á fyrri fundum hefur verið fjallað um auknar kröfur í malbiksframkvæmdum og vetrarþjónustu Vegagerðarinnar. Á næsta fundi, sem fylgir í kjölfar þessa, verður fjallað um þjóðvegi á hálendi Íslands.

Streymi

Streymt verður á facebook og eftirfarandi slóð: https://livestream.com/accounts/15827392/events/9567466

Spurningar

Hægt er að spyrja spurninga í gegnum síðuna Sli.do með því að slá inn kóðanum: #vegagerd