Fréttir
  • Bikblæðing í Svíþjóð 2020
  • Bikblæðing í Svíþjóð 2020
  • Bikblæðing í Svíþjóð 2020
  • Bikblæðing í Svíþjóð 2020

Bikblæðingarnar minnka verulega

ástandið mun betra í gærkvöldi og í morgun

16.12.2020

Bikblæðingar eru mun minni á leiðinni Borgarnes - Akureyri í dag miðvikudag en þær hafa verið. Ástandið fór strax að lagast í gær, síðdegis, og er mun betra nú fyrir hádegi. Vegagerðin hefur þó áhyggjur af að ástandið gæti versnað með hækkandi hitastigi þegar líður á daginn og fylgist grannt með ástandinu.

Vegfarendur eru áfram hvattir til að vera ekki á ferðinni að óþörfu og að fylgjast með fréttum frá Vegagerðinni, tilkynningum sem koma á heimasíðunni eða á Twitter-síðu Vegagerðarinnar og einnig má nálgast nýjustu upplýsingar með því að hringa í síma 1777.

Vegurinn var hreinsaður í gær og hefur verið yfirfarinn aftur í morgun, síðan er von á því að hitastig fari lækkandi í kvöld og á morgun sem mun hjálpa til við að stöðva þessar bikblæðingar.

Myndirnar sem fylgja þessari frétt eru ekki frá Íslandi, þær eru teknar af Facebook síðu Fagersta Nyheter og sýna bikblæðingar í klæðingu á þjóðvegi 66 fyrir norðvestan Stokkhólm á milli Fagersta og Surahammar. Þetta átti sér stað þann 7. nóvember og er rakið til yfirlagnar frá því í ágúst í ár.