Aukning en minni en undanfarin ár
umferðin á höfuðborgarsvæðinu
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í nóvember jókst um 4,4 prósent um þrjú mælisnið Vegagerðarinnar. Umferðin í ár hefur aukist um 3 prósent sem er þrisvar sinnum minni aukning en í fyrra á sama tíma. Þannig hægir verulega á aukningunni í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu.
Milli mánaða 2017 og 2018
Umferðin í
þremur mælisniðum Vegagerðarinnar í nóvember sl. jókst um 4,4% miðað við sama mánuð á
síðasta ári. Mest jókst umferðin yfir mælisnið á Vesturlandsvegi ofan
Ártúnsbrekku eða um 5,8% en minnst um mælisnið á Hafnarfjarðarvegi, sunnan
Kópavogslækjar eða um 2,9%.
Núna hefur umferðin í nóvember aukist að jafnaði um rétt tæp 3% á ári að meðaltali frá árinu 2005, að telja. Þessi aukning er rétt yfir meðalaukningu allra mánuða sem er 2,8% á sama tímabili.
Frá áramótum milli áranna 2017 og 2018
Núna hefur
umferðin aukist um 3%, frá áramótum og er þetta tæplega þrisvar sinnum minni
aukning en á sama tíma fyrir ári síðan.
Umferð
vikudaga
Umferðin í
nýliðnum mánuði jókst hlutfallslega mest á sunnudögum eða um 13,6% en
engu að síður var minnst ekið þá daga. Minnst jókst umferðin á
laugardögum eða um 1,1%. Mest var ekið á föstudögum en minnst á mánudögum,
virka daga.
Horfur
út árið
Núna er
búist við því að umferðin í desember nk. muni geta aukist um 3,5% miðað við sama mánuð
á síðasta ári. Gangi það eftir mun umferðin nú í ár aukast um rétt
rúmlega 3% miðað við árið á undan. Þó að þessi vöxtur sé lítill í samanburði við
síðustu ár er hann rétt rúmlega yfir meðalvexti frá árinu 2005 og mun viðráðanlegri að stærð en undanfarin tvö ár.