Fréttir
  • Umferðin hlutfallsleg breyting
  • Umferðin uppsafnað
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin eftir vikudögum

Áframhaldandi samdráttur í umferð á höfuðborgarsvæðinu

sjö prósenta samdráttur í ágúst

11.9.2020

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst dróst saman um rúmlega sjö prósent í ágúst síðastliðnum. Umferð í ágúst hefur ekki áður dregist jafnmikið saman á svæðinu. Frá áramótum hefur umferðin dregist saman um nærri níu prósent og er það met, reyndar er þetta þrefalt meiri samdráttur en áður hefur mælst. 

Milli mánaða 2019 og 2020
Umferðin dróst saman um rúmlega 7% milli ágúst mánaða, sem er metsamdráttur í ágúst á milli ára.  Mest dróst umferðin saman um snið á Hafnarfjarðarvegi eða um tæp 13% en minnst í sniði á Reykjanesbraut eða um rúmlega 3%.  Fara þarf aftur til ársins 2016 til að finna minni umferð í ágúst.

Frá áramótum
Núna hefur umferðin dregist saman um tæp 9%, frá áramótum, miðað við sama tímabil á síðasta ári.  Þetta er einnig metsamdráttur miðað við árstíma, frá upphafi þessarar samantektar, og um þrisvar sinnum stærri en áður hafði mest mælst en það var milli áranna 2008 og 2009.

Umferð eftir vikudögum
Umferð dróst saman í öllum vikudögum, nú í ágúst miðað við sama mánuð á síðasta ári, en hlutfallslega mest á laugardögum eða um 8,6% en minnst á mánudögum eða um 2,5%.

Mest var ekið á föstudögum en minnst á sunnudögum.

Horfur út árið
Nú stefnir í að samdráttur í umferð á höfuðborgarsvæðinu, í mælisniðunum þremur, verði um 8,5%. Gangi þessi spá eftir yrði það langmesti samdráttur í umferð um mælisniðin þrjú.  Mestur mældur samdráttur milli ára, hingað til, varð milli áranna 2009 og 2010 eða 2,4% samdráttur.  Þannig hér er framundan langstærsti samdráttur sem mælst hefur, frá upphafi þessarar samantektar.