Fréttir

20.8.2012 : Umferðartoppur á Kjalvegi 2011 gengur til baka í ár

Kjalvegur 2000-2012

Umferðin um umferðarteljara Vegagerðarinnar á Kjalvegi sýnir að umferðin í ár stefnir í það að vera svipuð og hún hefur verið frá árinu 2001 eða um 70 bílar á sólarhring á sumrin en 25 - 30 bílar á dag allt árið. Árið 2011 er undantekning frá þessu.

 

Umferðin í fyrrasumar var mun meiri en áður og jókst um 26 prósent en mestu munaði um meiri umferð í lok júní og fyrri hluta júlí. Nú bregður hinsvegar svo við að umferðin minnkar í ár um 22 prósent.

Lesa meira

17.8.2012 : Upplýsingaskilti við Múlakvísl

Upplýsingaskilti við Múlakvísl

Upplýsingaskilti um flóðið í Múlakvísl í júlí í fyrra og hvernig brú var byggð á sjö dögum var sett upp við ána fyrr í sumar. Vegfarendur eru hvattir til að koma við og kynna sér hvað á skiltunum stendur og líta í leiðinni yfir farveg hamfaranna.

 

Skiltin lýsa flóðinu, sagt er frá Kötlu og viðbúnaði vegna goss. Þá er því lýst hvernig brúarvinnuflokkar Vegagerðarinnar og aðrir starfsmenn unnu það afrek að byggja 156 m langa bráðabrigðabrú yfir jökulfljótið á sléttum sjö dögum.

Lesa meira

17.8.2012 : Reynir á Múlagöng

Múlagöng

Á tíu daga tímabili um verslunarmannahelgi og á Fiskideginum mikla gerðist það 49 sinnum að meira en 100 bílar fóru um Múlagöng á einni klukkustund. Oftast gerðist þetta á Fiskidagshelginni eða 27 sinnum. Stærsta klukkustundin var þann laugardag milli fjögur og fimm þegar 234 bílar fóru um göngin.

 

Sé tekið mið af norskum stöðlum um einbreið göng anna þau allt að 1000 bílum á sólarhring sem merkir að stærsta klukkustundin gæti verið um 100 bílar. Með stýringu, handstýringu einsog var á Fiskideginum mikla anna göngin fleiri bílum.

Lesa meira

14.8.2012 : Margir á Fiskideginum mikla

Fiskidagurinn mikli 2012

Með mjög grófum útreikningum og öllum fyrirvörum má gefa sér að allt að 25 þúsund manns hafi heimsótt Dalvík á Fiskideginum mikla í ár. Vegagerðin er með umferðarteljara á Hámundarstaðarhálsi sunnan Dalvíkur og annan teljara hinu megin bæjarins.

 

 Ef tekið er meðaltal á fjölda í bíl og reynt að draga frá aðra umferð þá má áætla að allt að 25 þúsund manns hafi komið á Fiskidaginn mikla þessa daga. Flestir voru gestirnir árin 2009 og 2012 eða líklega um 30 þúsund hvort  ár.

Lesa meira

13.8.2012 : Umferðin fyrir norðan minni

Héðinsfjarðargöng

Umferðin síðastliðinn hálfan mánuð í kringum Dalvík og um Héðinsfjarðargöng var nokkuð minni í ár en í fyrra. Umferðin er þetta 5 - 12 prósentum minni. Athygli vekur að umferðin í kringum Dalvík er álíka mikil um Fiskidaginn mikla en hún er minni dagana fyrr í vikunni. Umferðin er líka minni um Héðinsfjarðargöng en mest vikudagana fyrir helgarnar. Nema umferðin um göngin er töluvert minni Fiskidagshelgina.

 

Þetta gæti bent til þess að vegfarendur hafi farið fyrr af stað fyrir þessar helgar í fyrra til að skoða hin nýju Héðinsfjarðargöng. En ekki hafi verið jafn mikill áhugi á því núna í ár að renna í gegnum göngin. 

Lesa meira

8.8.2012 : Lokað fyrir hluta Hringbrautar

Teikning af vinnusvæðinu

Víða eru framkvæmdir í gangi, líkt og sjá má hér í tilkynningum fyrir neðan þessa frétt. Í kvöld verður til dæmis unnið við að færa gangbrautarljós á Hringbraut við Þjóðminjasafnið og hefjast framkvæmdir klukkan 20:00 í kvöld 8. ágúst. Unnið verður í nótt og ef þarf næstu nótt lika.

 

Nauðsynlegt verður að loka fyrir hluta umferðar um Hringbraut og verður henni vísað um hjáleiðir, um Suðurgötu, Skothúsveg, Sóleyjargötu og Bjarkargötu.

Lesa meira

7.8.2012 : Aukin umferð um Hellisheiði þessa verslunarmannahelgi

Umferðin um verslunarmannahelgi 2005---2012

Umferðin um verslunarmannahelgina í ár var mun meiri um Hellisheiði en í fyrra eða um 10 prósentum meiri umferð. Umferðin um Hvalfjarðargöngin þessa helgi dróst hinsvegar saman um 2,6 prósent.

 

Aukningin um Hellisheiði í heila viku, fyrir og um helgina, nemur 11,5 prósentum. Því virðast fleiri en áður hafa verið fyrr á ferðinni fyrir verslunarmannahelgi og farið af stað á miðvikudegi eða fimmtudegi. Áberandi mikill samdráttur er í umferðinni um Hvalfjarðargöng á laugardegi eða sem nemur 12,6 prósentum frá þvi árið 2011.

Lesa meira

2.8.2012 : Umferðin um næstu helgar

Umferð getur verið mikil um næstu helgar

Að vanda má búast við mikilli umferð um næstu helgi, Verslunarmannahelgina, og einnig næstu helgar, til dæmis helgina á eftir í nágrenni Dalvíkur vegna Fiskidagsins mikla. Vegfarendur eru hvattir til að sýna tillitssemi, þolinmæði og kurteisi á för sinni um þjóðvegi landsins.

 

Hugsanlega má búast við einhverjum töfum á mestu álagstímum og eru ökumenn beðnir um að taka tillit til þess til dæmis í einbreiðum jarðgöngum. Þar þarf að nýta útskot á réttan hátt til að greiða fyrir flæði umferðar.

Lesa meira

2.8.2012 : Umferð eykst mikið í höfuðborginni í júlí

Umferðin í höfuðborginni með spá út árið

Mikil aukning varð á umferð innan höfuðborgarinnar í júlí mánuði. Hafa ber í huga að umferðin á höfuðborgarsvæðinu í júlí er alla jafna með minnsta móti, öfugt á við það sem gerist á Hringveginum. Umferðin jókst um tæp sjö prósent frá því sem hún var í júlí í fyrra.

 

Í ár hefur umferðin í þremur mælipunktum Vegagerðarinnar aukist um 1,6 prósent og Vegagerðin spáir því að umferðin muni í ár aukast um 1-2 prósent. En það yrði þá í fyrsta sinn sem umferðin eykst á heilu ári síðan árið 2008.

Lesa meira

1.8.2012 : Íbúar á Laugum ánægðir með hraðaskiltin

Hraðaskilti við Lauga í Reykjadal

Íbúar á Laugum í Reykjadal eru ánægðir með hraðaskiltin sem Vegagerðin setti upp til að hvetja vegfarendur til að virða lægri hámarkshraða þar sem Hringvegurinn liggur í gegnum Lauga. Að mati heimamanna er ekki annað að sjá en að skiltin geri sitt gagn þar sem ökumenn hægi á sér og öll umferð er hægari en hingað til.

 

Svo segir í skeyti sveitarstjóra Þingeyjasveitar til Vegagerðarinnar.

Lesa meira

1.8.2012 : Minni umferð í júlí

Umferðin í júlí með spá út árið

Mun minni umferð var á Hringveginum í nýliðnum júlí en undanfarin ár og hefur minni umferð ekki mælst síðan árið 2006 í 16 mælisniðum Vegagerðarinnar á Hringveginum. Umferðin í júlí reyndist 2,4 prósentum minni í júlí í ár en í sama mánuði í fyrra. Mestu munar um samdrátt á Norðurlandi.

 

Hluti skýringarinnar á því kann að vera sú að samkvæmt. fyrstu tölum frá höfuðborgarsvæðinu er talsvert meiri umferð innan borgarmarkana í júlí en undanfarin ár. Vegagerðin spáir nú innan við prósents samdrætti í ár á Hringveginum og að umferðin þar verði á milli þess sem hún var árin 2005 og 2006.

Lesa meira



Útlit síðu: