Hreinn Haraldsson vegamálastjóri og Dagur B. Eggertsson formaður borgarráðs undirrituðu í dag samkomulag sem leggur grunninn að áframhaldandi uppbyggingu hjólreiða- og göngustíga í Reykjavík. Kostnaður við framkvæmdir sem tengjast samningnum er áætlaður um 2 milljarðar króna.
Samkomulagið felur í sér að Vegagerðin greiði helming kostnaðar við ákveðna hjólreiða- og göngustíga og byggir það á vegalögum og nýsamþykktum samgönguáætlunum. Gengið var frá samkomulagi um verkefni ársins 2012 sem eru Suðurlandsbraut (Hlemmur - Elliðaárósar) og á Vesturlandsvegi.
Lesa meiraUmferðin í júlí út úr höfuðborginni (1. - 29.7.) jókst um tæp fjögur prósent um Hellisheiði frá fyrra ári en dróst saman um nokkuð meira um Hvalfjarðargöng eða um 5,7 prósent. Samdrátturinn um Hvalfjarðargöng nú er nokkuð meiri en í júnímánuði.
Í júní og júli hefur umferðin austur aukist um tvö prósent en dregist saman um rúm þrjú prósent um Hvalfjarðargöng.
Lesa meira
Vegagerðin hefur ákveðið að umferðareyjar í tveimur þéttbýlishliðum inn í þjóðgarðinn á Þingvöllum verði teknar niður. Yfirborðsmerkingar munu halda sér en þær verða bættar. Til frekara öryggis og til að freista þess að ná því markmiði að hægja á umferðinni verða fræstar vegrifflur í merkta svæðið.
Þéttbýlishlið eru samkvæmt orðanna hljóðan sett upp á þjóðvegum sem liggja í gegnum þéttbýli og hefur það tekist mjög vel víða um land. Ljóst er nú að sama útfærsla á leið inn í þjóðgarðinn, þar sem ekki er þéttbýli, er óheppileg og voru mistök að sjá það ekki fyrir. Auk þess krefst slíkt veglýsingar sem ekki er fyrir hendi.
Lesa meiraÞéttbýlishlið sem svo eru kölluð hafa verið sett upp við tvo innganga í þjóðgarðinn á Þingvöllum. Tilgangurinn er að ná niður hraðanum áður en menn koma inn í þjóðgarðinn en þar er hámarkshraðinn mun minni en almennt á þjóðvegum eða 50 km/klst.
Spurningar hafa vaknað um þessa framkvæmd vegna þess að þau mistök áttu sér stað að eyja var sett upp áður en yfirborðsmerkingar voru komnar á veginn. Að minnsta kosti hefði þetta þurft að gerast samtímis. Yfirborðsmerkingar voru að mestu málaðar fyrir nokkru síðan en lokið verður við þær í dag með því m.a. að hylja heila kantlínu. Svæðið verður merkt sérstaklega þar til framkvæmdum er að fullu lokið.
Lesa meiraUmferðin um hinn nýja Lyngdalsheiðarveg er að aukast. Umferðin hefur aukist um átta prósent í ár og lítur úr fyrir að umferðin í ár verði að meðaltali 700 bílar á sólarhring allt árið, en umferðin var 647 bílar í fyrra.
Miðað við umferðina það sem af er sumri á Suðurstrandarvegi má reikna með að meðalumferðin í ár verði ríflega 400 bílar á sólarhring eða á bilinu 375-435 bílar.
Lesa meiraFyrstu dagana í júlí eykst umferðin austur fyrir og yfir Hellisheiði mikið eða um 4,3 prósent miðað við sama tíma í fyrra. Hins vegar dregst umferðin enn meira saman um Hvalfjarðargöngin eða um heil sjö prósent. Meðalumferðin þessa fyrstu daga í júlí er um 1,1 prósenti minni en í fyrra.
Um Hellisheiði eykst umferðin mest á sunnudögum eða um 22 prósent en dregst saman um Hvalfjörðinn á sama vikudegi eða um 13 prósent.
Lesa meira
Óvenju mikið er um stórar og miklar viðhaldsframkvæmdir í höfðuborginni í dag (9. júlí) mánudag og á morgun þriðjudag. Í dag er unnið að malbikun á Kringlumýrarbraur á einni akrein og má búast við töfum þess vegna. Einnig er unnið við fræsingar á mislægu gatnamótunum í Mjódd. Þeim gatnamótum verður síðan lokað kl. 21:00 fram eftir nóttu meðan makbikað verður, hjáleiðir verðar vel merktar.
Í kvöld verður svo unnið við fræsingar á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar og má búast við töluverðum töfum, þær framkvæmdir hefjast kl. 21:00. Frekari upplýsingar er að finna hér neðar á vef Vegagerðarinnar og í síma 1777.
Lesa meiraUmferðin um þrjú mælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu jókst um 4,3 pósent í júní sem er langamesta aukningin sem sést hefur í einum mánuði á þessu ári. Frá áramótum hefur aksturinn á höfuðborgarsvæðinu aukist um tæpt prósent.
Vegagerðin reiknar nú með að umferðin á svæðinu aukist um ríflega eitt prósent árið 2012, samkvæmt spálíkani. Aukin umferð í júní bendir til þess að fjölgun hafi orðið á styttri ferðum höfuðborgabúa út á land, dagsferða eða tveggja daga ferða á kostnaði lengri ferða.
Lesa meiraUmferðin á Hringveginum, á 16 lykilteljurum, jókst um 0,7 prósent í júni síðastliðnum miðað við júní mánuð í fyrra. Þetta var svipað magn umferðar og árin 2006, 2010 og 2011. Frá áramótum hefur umferðin aukist lítillega eða um 0,2 prósent. Aukning er í öllum mánuðum nema janúar.
Aukningin er fyrst og fremst í nágrenni höfuðborgarinnar og bendir til fjölgunar styttri ferða landans eða höfuðborgarbúa. Vegagerðin spáir eigi að síður að í heild gæti umferðin dregist lítillega saman í ár. En hugsanlegt er að umferðarmynstrið sé að breytast þannig að umferðin gæti minnkað eða aukist í ár um eitt prósent.
Lesa meira
Undir flipanum Upplýsingar og útgáfa er að finna hnapp sem heitir Samgönguáætlun/Vegáætlun, þar er að finna nýsamþykktar þingsályktanir um samgönguáætlun. Annarsvegar um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2011-2014 og hinsvegar þingsályktun um samgönguáætlun fyrir árin 2011 til 2022.
Á sömu síðu er einnig að finna skýrslur ráðherra og síðar skýrslu Vegagerðarinnar en þar er að finna yfirlit yfir það sem framkvæmt hefur verið. Einnig má sjá skiptingu vegafjár eftir kjördæmum og eftir svæðum Vegagerðarinnar 2009 - 2012.
Lesa meiraVegagerðin áætlar að umferðin í júní mánuði um Hellisheiði og um Hvalfjörð hafi verið sú sama og í fyrra en hinsvegar er aukning á umferðinni á föstudögum og laugardögum. Umferðin tók mikinn kipp um þar síðustu helgi en færri bílar fóru um þessa tvo teljara um síðustu helgi.
Aukningin á föstudögum og laugardögum og samsvarandi samdráttur virku dagana gæti bent til þess að vegfarendur fari í fleiri styttri ferðir út frá höfuðborginni en í fyrra á kostnað lengri ferða og almennrar umferðar.
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember