Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra klippti tvívegis á borða í dag 28. júní til að opna formlega göngubrú við Krikahverfi í Mosfellsbæ og samgöngustíg meðfram Vesturlandsvegi. Hann naut aðstoðar Hreins Haraldssonar vegamálastjóra og Haraldar Sverrissonar bæjarstjóra í Mosfellsbæ.
Vegamálastjóri minnti og á að göngubrúin væri umferðaröryggismál og þótt stundum mætti heyra annað þá væri Vegagerðin stöðugt að sinna umferðaröryggi, það væri ekki bara eitt af helstu markmiðum Vegagerðarinnar heldur líka keppikefli að vinna vel í þeim málaflokki.
Lesa meiraUmferðin um Héðinsfjarðargöng er nánast sú sama í ár og hún var í fyrra. Einungis munar tveimur bílum að meðaltali á dag það sem af er ári. Þrír stærstu umferðarmánuðirnir eru framundan.
Það lítur út fyrir að meðalumferðin á dag árið 2012 verði um 550 bílar (ÁDU). Það þýðir að reikna má með að rúmlega 200 þúsund ökutæki fari um göngin í ár og um 520 þúsund manns verði þróun umferðar með svipuðum hætti og árið 2011.
Lesa meiraVegagerðin fékk í einn dag að aka rafbíl iðnaðarráðuneytisins og var almenn ánægja með bílinn. Iðnaðarráðuneytið hefur frá því í vor lánað bílinn ýmslum stofnunum til kynningar og almenningur getur fengið að prófa líka.
Vegamálastjóri fór nokkra rúnta á bílnum og bar honum vel söguna. Bíllinn er snarpur og að sjálfsögðu afar hljóðlátur. Ekki koma að sök að stýrið er hægra megin. Þetta er Mitshubitshi bíll sem kemst 50 - 80 km á einni hleðslu af rafmagni.
Lesa meiraSuðurstrandarvegur var formlega opnaður síðdegis í dag. Vegurinn er 57 km langur og tengir saman Suðurland og Reykjanesskagann. Vegurinn nýtist íbúum, atvinnustarfsemi og opnar mikla möguleika í ferðaþjónustu. Ekki síður opnar vegurinn möguleika fyrir til dæmis íbúa höfuðborgarsvæðisins til nýs hringaksturs auk þess að nýta má fjölmarga göngumöguleika svæðisins.
Þetta var eitt af því sem fram kom í ræðum nær allra þeirra sem til máls tóku við þessa formlegu opnun. Sjá myndir með þessari frétt og frétt um veginn frá því fyrr í dag.
Lesa meiraÍ dag fimmtudaginn 21. júní verður Suðurstrandarvegur formlega opnaður með hefðbundinni borðaklippingu sem innanríkisráðherra Ögmundur Jónasson sinnir ásamt Hreini Haraldssyni vegamálastjóra. Athöfnin fer fram kl. 14:00 rétt austan vegamótanna við Krýsuvíkurveg.
Vegurinn er 57 km langur frá Grindavík í vestri að Þorlákshöfn í austri. Liggur hann um þrjú sveitarfélög en þau eru Grindavík, Hafnarfjarðarbær og sveitarfélagið Ölfus. Nú þegar er áætluð svokölluð árdagsumferð (ÁDU) 325 bílar. Þannig að að jafnaði fara á hverjum degi allt árið 325 bílar um veginn.
Lesa meiraEkki verður annað séð af tölum um umferðina út frá Reykjavík, um Hvalfjörð og um Hellisheiði, en að umferðin gæti almennt verið að aukast. Umferðin fyrstu tvær vikurnar í júni eykst þannig um 1,8 prósent um Hellisheiði og um 2,6 prósent um Hvalfjörð. Þetta gæti verið vísbending um að aukning verði á sumarumferðinni.
Framsetning Vegagerðarinnar á umferðinni í sumar er breytt frá fyrri árum svo sem boðað var í sumarlok í fyrra. Þannig verða bornar saman vikurnar heilar, en ekki helgar likt og áður var gert. Og einnig miðað við umferðina úr og á höfuðborgarsvæðið með því að miða við þessa tvo talningarstaði.
Lesa meiraÞann 1. júní sl. var haldin hátíðleg samkoma við flóðgátt Flóaáveitunnar á Brúnastaðaflötum. Þar var fagnað 85 ára afmæli áveitunnar, en ekki síður var hátíðin haldin til að opna formlega og taka í notkun vegslóða sem liggur frá Ölvisholtsvegi að flóðgáttinni.
Flóahreppur og Áveitufélagið stóðu að vegagerðinni, með stuðningi Vegagerðarinnar.
Lesa meiraSamkvæmt nýju fasteignamati sem Þjóðskrá Íslands birti 14. júni hækkar mar fasteigna í landinu um 7,4 prósent. Athygli vekur hvað matið hækkar mismikið og ekki annað hægt en að álykta að bættar samböngur leiði til þess að fasteignamatið hækkar enn frekar á stöðum sem þeirra hafa notið.
Fréttablaðið fjallar um þetta í dag 15. júni og er rætt við Gunnlaug Júlíusson sviðsstjóra hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga sem bendir á samband hærri fasteignamats í sveitarfélögum nærri nýjum umferðarmannvirkjum.
Lesa meira
Stóra vegaráðstefnan sem Vegagerðin stóð að fyrir hönd Norræna vegasambandsins, NVF, lauk í gær miðvikudag og fóru þátttakendur ánægðir heim. Það var mikið um lofsyrði þegar hinir norrænu og annarra þjóða gestir lögðu af stað til síns heima og einnig frá fulltrúum Eystrasaltsríkjanna sem halda sína vegaráðstefnu á næsta ári.
Framkvæmd ráðstefnunnar tókst vel og var til sóma. Eldborgarsalurinn og kröftug byrjun ráðstefnunanr á mánudagsmorgun með trommuleik, kórsöng og fegurð íslenskrar náttúru, ásamt syngjandi kynni, Þórunni Lárusdóttur, settu tóninn.
Lesa meira
Via Nordica 2012 -- Á krossgötum var opnuð með miklu opnunaratriði; með söng og karlakór og myndum frá Íslandi sem gestir kunnu vel að meta. Það var Hreinn Haraldsson vegamálastjóri sem opnaði ráðstefnuna en hana ávöpuðu einnig innanríkisráðherra, framkvæmdastjóri Heimsvegasambandsins og formaður Vegasambands Eystrasaltsríkjanna. Sjá allt um ráðstefnuna á http://www.vianordica.is/ en þar er að finna fjölda mynda frá opnuninni og fleiri fréttir á dönsku, sænsku, norsku og ensku.
Lesa meiraTakmarkanir hafa verið settar á umferð þungra ökutækja um þjóðgarðinn á Þingvöllum. Umferð vöruflutningabíla sem eru þyngri en 8 tonn er óheimil, en umferð allra hópferðabifreiða og áætlunarbíla verður áfram heimil um þjóðgarðinn. Umferð allra ökutækja með vatnsspillandi farm og hættulegan farm er bönnuð.
Vegfarendur eru beðnir um að fylgja þessum reglum og bæta þannig umgegni um þjóðgarðinn á Þingvöllum.
Lesa meiraÁ Via Nordica 2012 ráðstefnunni sem ber yfirskriftina Á krossgötum verða sagðar fréttir jafnóðuim af því sem er að gerast á ráðstefnunni. Opnuð hefur verið ný útgáfa af vefsíður ráðstefnunnar http://www.vianordica.is/ og þar munu 8-9 blaðamenn frá öllum ríkjum Norðurlanda skrifa fréttir.
Ráðstefnan verður haldin dagana 11. til 13. júní eða í næstu viku. Efnisskráin er mjög viðamikil auk þess sem alls verða 54 sýnendur með bás á sýningu ráðstefnunnar. Það verður því mikið um að vera í Hörpu þessa dagana. Plenum-hluti ráðstefnunnar fer fram í Eldborg en hana sækja rúmlega 800 manns.
Lesa meiraStemmingin fyrir samgönguráðstefnunni Via Nordica 2012 - Á krossgötum fer vaxandi þessa dagana. Nú eru þátttakendurnir 800 sem hafa þegar skráð sig að undirbúa sig fyrir komuna til Íslands. Flestir koma frá Norðurlöndunum.
Undirbúningur gengur nokkuð vel en það er í mörg horn að líta þegar svo viðamikil ráðstefna er undirbúiin. Til dæmis eru sýnendur alls 54 talsins. Sýningin verður opin almenningi einn eftirmiðdag, eða eftir hádegi þriðjudaginn 12. júní. Enn er hægt að skrá sig á ráðstefnuna á http://www.vianordica.is/
Lesa meiraUmferðin á höfuðborgarsvæðinu í nýliðnum maí mánuði reyndist 1,3 prósentum minni en í sama mánuði í fyrra. Umferðin minnkar því jafnmikið og hún jókst á Hringveginum og má leiða líkur að því að höfuðborgarbúar hafi farið meira út á land í maí í ár en í fyrra.
Samkvæmt spálíkani Vegagerðarinnar stefnir þó í að umferðin á höfuðborgarsvæðinu aukist á ár, en ekki mikið eða um 0,5 prósent, næstu mánuðir ráða þó miklu um það. Umferðin fyrstu fimm mánuðina er nánast sú sama og í fyrra eða 0,1 prósenti meiri.
Lesa meiraUmferðin í nýliðnum maí-mánuði reyndist 1,3 prósenti meiri en í maí-mánuði í fyrra og hefur umferðin ekki aukist meira í einum mánuði það sem af er ári fyrir utan mars-mánuð. Í reynd hefur umferðin aukist í þrjá mánuði af fyrstu fimm mánuðum ársins. Eigi að síður er samdrátturinn þessa mánuði eitt prósent. Það skýrist af mjög miklum samdrætti í janúar.
Miðað við þetta spáir Vegagerðin því að umferðin dragist saman um þrjú prósent í ár og verði sú sama og hún var árið 2005. Fyrirvara ber að hafa við það, sérstaklega í ljósi janúarmánuðar, en umferðamestu mánuðir ársins eru framundan.
Lesa meiraStór sýning verður haldin í tengslum við Via Nordica 2012, norrænu vegagerðarráðstefnuna sem haldin verður í Hörpu 11. - 13. júní. Alls munu 36 aðilar vera með bás á sýningunni og komast ekki fleiri að. Um er að ræða bæði íslenska og erlenda sýnendur. Þeir síðarnefndu eru í nokkrum meirihluta.
Meðal sýnenda verða verktakafyrirtæki, ráðgjafar, samtök, rannsóknaraðilar og fleiri. Nefna má Rambøll, Nynås, Colas, Vectura, Stark of Sweden og Nyx Hermera Technolities. Íslensku verkfræðistofurnar eru líka fyrirferðamiklar, Verkís, Mannvit, Almenna verkfærðistofan og Efla.
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember