Fréttir

17.2.2012 : Breytingar á umferð við álverið í Straumsvík

Undirskrift samninga milli Vegagerðarinnar og Suðurverks

Bráðbrigðavegur vegna byggingar undirganga undir Reykjanesbraut við álverið í Straumsvík verður tekinn í notkun laugardaginn 18. febrúar kl. 10:00 um morgunin.

 

Þessa dagana er verið að hefja vinnu við byggingu undirganganna líkt og vegfareendur hafa tekið eftir. Undirgöngin eiga að auka öryggi vegfarenda og draga úr slyshættu. Vegagerðin stendur fyrir verkinu og verktaki við framkvæmdirnar er Suðurverk hf. Framkvæmdum á að ljúka í júlí 2012.

 

Lesa meira

15.2.2012 : Vegáætlun og umferðaröryggi

Banaslys 1970-2010

Vegagerðin hóf árið 1976 að safna kerfis-bundið öllum upplýsingum um umferðarslys á þjóðvegum. Slysunum er raðað á vegarkafla, að jafnaði um 10–12 km að lengd, þau flokkuð eftir alvarleika og eðli.

 

Síðustu 15 ár hefur einnig verið lögð mikil áhersla á að teikna slysakort fyrir þjóðvegi.  Slysastaðir eru síðan greindir til að finna út hvað hægt sé að gera til úrbóta. Þegar horft er til baka síðustu áratugina er augljóst að verulegur árangur hefur orðið af umferðaröryggisstarfinu á Íslandi.

 

Nokkrar umræður hafa að undanförnu spunnist um öryggi vega og hvaða vegir væru hættulegir og hvernig forgangsröðun framkvæmda væri í því samhengi. Fréttinni er ætlað að varpa nokkru ljósi á vinnu Vegagerðarinnar í tengslum við öryggismál vega.

Lesa meira

13.2.2012 : Um einkaframkvæmd og Vaðlaheiðargöng

Frá opnun tilboða í Vaðlaheiðargöng í október 2011

Það er algengur misskilningur að Vaðlaheiðargöng hafi verið boðin út í einkaframkvæmd. Nú síðast var greint frá niðurstöðum skoðanakönnunar í Fréttablaðinu þar sem spurt var hvort landsmenn styddu gerð Vaðlaheiðarganga í einkaframkvæmd. Göngin voru hins vegar ekki boðin út í einkaframkvæmd heldur eiginframkvæmd félagsins Vaðlaheiðargöng hf.

 

Einkaframkvæmd felst í því í sinni ýtrustu mynd að verktaki tekur að sér eftir útboð að hanna, fjármagna, byggja og reka mannvirki í tiltekinn tíma fyrir verkkaupa.

Lesa meira

7.2.2012 : Ferðavenjur á höfuðborgarsvæðinu

Umferðin í Reykjavík

Ríflega helmingur aðspurðra fer aldrei með strætisvagni, en um 14 prósent fara einu sinni til tvisvar í viku í strætisvagni, aðrir sjaldnar. Rúm 12 prósent hjóla að staðaldri og nærri 49 prósent hluta úr ári. En 39 prónsent hjóla aldrei, færri en þeir sem aldrei fara í strætó.

 

Þetta kemur fram í ferðavenjukönnun sem sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og Vegagerðin létu gera í október til desember á síðasta ári. Niðurstöðurnar má finna í fréttinni, heildarniðurstöður og svo eftir sveitarfélögum og hverfum.

 

Lesa meira

7.2.2012 : Óvirk ljós, Hafnarfjarðavegur við Álftanesveg

Óvir ljós - Engidalur

Aðfararnótt miðvikudags 8. febrúar, er áætlað að ljúka breytingum á umferðarljósum á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar við Álftanesveg og Fjarðarhrauns í Engidal, Hafnarfirði.

 

Á meðan þessi vinna fer fram verða umferðarljósin óvirk, það er frá miðnætti til um kl. 5:30 á miðvikudagsmorgni. Umferð verður heimiluð um gatnamótin en hámarkshraði lækkaður í 30 km/klst á meðan. Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á óþægindum og beðnir að fylgja þeim merkingum sem uppi eru á vinnusvæðinu.

Lesa meira

6.2.2012 : Borgarfjarðarvegur (94), í Njarðvík, frá Hríshöfða og að Njarðvíkurvegi - Kynning

Borgarfjarðarvegur(94) - Yfirlitsmynd

Vegagerðin fyrirhugar endurbætur á Borgarfjarðarvegi (94), í Njarðvík, frá Hríshöfða og að Njarðvíkurvegi. Framkvæmdin er í Borgarfjarðarhreppi í N.-Múlasýslu.

Um er að ræða lagfæringu á núverandi vegi og lagningu bundins slitlags á um 4 km löngum kafla. Á kafla verður veglínunni breytt til að lagfæra beygjur og sett verður ræsi í Njarðvíkurá og lögð af einbreið brú yfir hana.

Áætlað er að framkvæmdir hefjist vorið 2012 og þeim verði að fullu lokið fyrir haustið 2012.

Lesa meira

3.2.2012 : Umferðin stendur í stað á höfuðborgarsvæðinu

Umferðin samanlagt á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2012 og spá út árið

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu, í þremur mælisniðum, stendur í stað í janúar í ár miðað við sama mánuð í fyrra, þrátt fyrir þó nokkra ófærð á svæðinu í mánuðinum.

 

Leiða má líkur að því að vont veður og slæm færð hafi meiri áhrif á umferð á Hringveginum en á höfuðborgarsvæðinu. En likt og fram hefur komið dróst umferðin mikið saman í janúar á Hringveginum, á 16 lykilteljurum Vegagerðarinnar eða um ríflega 10 prósent. 

 

Lesa meira

2.2.2012 : Miklu minni umferð í janúar á Hringveginum

Umferðin 2005 - 2011

Umferðin í nýliðnum janúar dróst saman um ríflega 10 prósent miðað við sama mánuð fyrir ári síðan. Er þetta mesti samdráttur milli janúarmánaða frá því að þessi samanburður hófst.

 

Búast mátti við samdrætti í umferðinni vegna þess að veðurfar og færð voru slæm í mánuðinum. En þessi mikli samdráttur er hins vegar óvæntur þrátt fyrir það og einnig sérstaklega þegar horft er til þess að milli janúarmánaða 2010 og 2011 dróst umferð saman um 7,6 prósent, á þessum sömu 16 mælipunktum á Hringveginum, sem á þeim tíma var mesti samdráttur sem Vegagerðin hafði mælt.

Lesa meira



Útlit síðu: