Beint í leiðarkerfi vefsins.
Tæplega þriðjungur aðspurðra vilja breikka vegi eða tvöfalda akreinar, samkvæmt nýrri viðhorfskönnun sem Maskína hefur unnið fyrir Vegagerðiina. Þá vilja um 17 prósent bæta vegina eða slitlagið, um 13 prósent bæta mokstur og 10 prósent auka hálkuvarnir. Fyrir tveimur árum vildu meira en 4 af hverjum tíu auka hálkuvarnirnar.
Svipað margir eru jákvæðir gagnvart Vegagerðinni og í síðustu könnunum eða tæp 60 prósent. Átta af hverjum tíu hefur á sl. tólf mánuðum leitað upplýsinga hjá Vegagerðinni.
Lesa meiraFramkvæmdir við Suðurlandsveg, frá Litlu kaffistofunni að Lögbergsbrekku eru hafnar á ný. Þetta er síðasti áfanginn í þessu verki þar sem aðallega verður unnið við að endurgera gamla veginn (akbrautina í austur).
Vegfarendur eru beðnir að aka varlega um framkvæmdasvæðið og virða merkingar um hámarkshraða. Framkæmdunum lýkur í lok júlí en fram að þeim tíma eiga akstursleiðir innan framkvæmdasvæðisins eftir að breytast og verður umferð flutt á milli akreina eftir því sem verkinu vindur fram.
Lesa meira
Fulltrúar Vegagerðarinnar og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu skrifuðu í dag 7. maí undir samkomulag um 10 ára tilraunaverkefni um eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.
Tilgangur verkefnisins er að tvöfalda hlutdeild almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu, lækka samgöngukostnað heimila og samfélagsins og stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda.
Lesa meiraÞrátt fyrir að umferð á höfðuborgarsvæðinu, í þremur mælipunktum, hafi minnkað um 1,5 prósent í apríl miðað við sama mánuð í fyrra, hefur umferðin fyrstu fjóra mánuðina aukist líltillega.
Áfram er reiknað með smávegis aukningu umferðar á höfuðborgarsvæðinu í ár öfugt við umferðina á Hringveginum þar sem reiknað er með samdrætti í ár, sjá þessa frétt.
Lesa meiraTillögur í hönnunarsamkeppni Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar um göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaárósa og hjólaleið um norðurenda Geirsnefs voru kynntar 3. mái að viðstöddum þátttakendum og dómnefnd.
Þegar nafnleynd var aflétt kom í ljós að höfundar vinningstillögunnar voru frá Teiknistofunni Tröð, þau Hans-Olav Andersen og Sigríður Magnúsdóttir, arkitektar. ,,Einfalt en jafnframt frumlegt og djarft form einkennir tillöguna," segir í áliti dómnefndar.
Lesa meiraFulltrúar Vegagerðarinnar og Suðurverks hf skrifuðu í dag undir samning um vegagerð á tæplega 16 km kafla af Vestfjarðavegi (60) Eiði - Þverá. Núverandi kafli er 24 km malarvegur, nýr vegur verður 16 km þarf af nýlögn 10 km en stytting kemur til vegna þverana tveggja fjarða, Kjálkafjarðar og Mjófjarðar.
Suðurverk hefst þegar handa og búast má við að þeirra sjáist strax á verkstað með tæki sín og tól eftir 10 - 14 daga. Nú þegar er prammi sem notaður verður við þveranirnar á leiðinni frá Noregi en Suðurverk hefur lánað hann út til verka þar.
Lesa meiraUmferðin í apríl reyndist um 1,6 prósentum minni í apríl en í sama mánuði í fyrra á 16 völdum talningarstöðum á Hringveginum. Frá áramótum hefur umferðin dregist svipað saman. ´
Umferðin í ár stefnir því í það að verða sú sama og árið 2005 samkvæmt spálíkani Vegagerðarinnar. Ekki er að sjá samdrátt á höfuðborgarsvæðinu árið 2012 (spáin fyrir þrjú mælisnið) en þær tölur verða birtar á morgun.
Lesa meiraVegagerðin vill koma því á framfæri vegna frétta af samningi við Eimskip um rekstur Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs 2012 – 2014 að kostnaður verður þó nokkuð minni með samningnum en hann var árið 2011.
Það ár var styrkur Vegagerðarinnar til rekstrar Herjólfs 740 milljónir króna en samningurinn við Eimskip gerir ráð fyrir styrk að fjárhæð 681 milljón króna á ári.
Lesa meiraÞrjár tillögur sem bárust í samkeppni um göngu- og hjólabrýr yfir Eilliðaárósa voru valdar áfram á annað þrep samkeppninnar. Dómnenfnd vann áfram með þessar þrjár tillögur og verður vinningstillagan kynnt 3. maí næstkomandi.
Vinningstillögunar verða svo teknar til sýningar í Ráðhúsinu 7. - 14. maí. En stígarnir munu stytta leið hjólandi og gangandi úr Grafarvogi í miðborgarinnar um 700 metra og auka gildi Geirsnefsins.
Lesa meira
Vegagerðin hefur tekið tilboði Eimskips um rekstur Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs 2012 - 2014. Tilboðið, við seinni opnun, hljóðaði upp á 681 milljón króna. Gengið verður frá samningi þessa efnis í næstu viku.
Siglingar Herjólfs verða því óbreyttar í höndum Eimskips til 1. júní 2014. Áætlaður verktakakostnaður nam um 832 milljónum króna og var tilboð Eimskips því um 18 prósentum undir því. Sjá um opnun tilboða hér.
Lesa meira
Það er ekkert áhlaupaverk á vorin að opna Hrafnseyrar- og Dyndjandisheiði. Enn er unnið að mokstri þegar þetta er ritað, en búiið er að opna Hrafnseyrarheiði. Dynjandisheiði opnar síðar í dag, 18. apríl og verður þá fær öllum.
Til að opna heiðarnar hefur þurft snjóblásara og veghefla. Auk þess þurfti aðstoð jarðýtu á Hrafnseyrarheiðinni. Líkt og sjá má á myndum er gríðarlegt fannfergi á heiðunum en myndirnar voru teknar á mánudag. Miklu meiri snjór var þarna þegar aðstæður voru skoðaðar fyrir um mánuði síðan.
Lesa meira
Vegagerðin vill vekja athygli flutningsaðila á því að ganga rétt og tryggilega frá farmi og virða þungatakmarkanir. Nú er hafinn tími áburðarflutninga um allt land. Á undanförnum árum hefur talsvert verið um þungabrot tengt þessum flutningum auk þess sem frágangur farms hefur í mjög mörgum tilfellum verið verulega áfátt.
Á sama tíma og þessir flutningar fara fram er vegakerfið sökum leysinga víða viðkvæmt og í mörgum tilfellum þörf á þungatakmörkunum til verndunar.
Lesa meiraEimskip Íslands ehf átti lægsta tilboðið í rekstur Vestamannaeyjaferju 2012-2014 við seinni opnun tilboða í dag. Samskip hf. var með næstlægsta boð og Sæferðir ehf með þriðja lægsta boð sem var frávikstilboð.
Sjá hér á vef Vegagerðarinnar. Við fyrra tilboð áttu Samskip lægsta boð en ekkert tilboðanna uppfyllti kröfur Vegagerðarinnar að fullu og því var efnt til seinni opnunar og tilboðsgjöfum gefið færi á að bæta úr formgöllum tilboðanna og þess vegna að breyta tilboðsupphæðinni sem nú er reyndin.
Lesa meiraViðhald vegakerfa þjóðríkjanna var eitt að helstu umræðuefnunum á fundi framkvæmdastjórnar PIARC, heimsvegasambandsins, sem haldinn er í Reykjavík 12. - 13. apríl. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri hélt erindi um viðhald íslenska vegakerfisins og lagði jafnfram áherslu á sérstöðu Íslendinga er varðar viðhald og forvarnir vegna náttúruhamfara svo sem eldgosa og flóða.
Fulltrúar 17 ríkja sitja fundinn og voru allir sammála um mikilvægi þess að sinna viðhaldi vega þannig að fjárfesting sem búið er að leggja í kerfin fari ekki forgörðum. Höfðu allar þjóðirnar af þessu nokkrar áhyggjur.
Lesa meiraFramkvæmdastjórn PIARC, alþjóða- eða heimsvegasambandsins, heldur árlegan fund sinn í Reykjavík dagana 12. og 13. apríl. Um 40 manns sitja fundinn þar sem línurnar eru lagðar fyrir starfið á næstunni. PIARC heldur úti fjölda tækninefnda sem sinna rannsóknavinnu í vegagerð um allan heim.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ávarpaði fundinn í morgun (12. apríl), bauð fundarmenn velkomna til Íslands og sagði sambandið vinna mikilvægt og faglegt starf. Hann sagði ráðstefnuna í Mexíkó síðastliðið haust vera gott dæmi um yfirgripsmikla og faglega ráðstefnu þar sem fjallað væri um allar hliðar vegagerðar.
Lesa meiraUmferðin um páskana í ár reyndist töluvert meiri en á páskum í fyrra. Um 12 prósent fleiri bílar fóru um Hellisheiðina þessa páskana en þá síðustu. Þá fóru um þrjú prósent fleiri um Hvalfjarðargöng núna samanborið við páskana 2011.
Páskar í ár voru fyrr á ferð en í fyrra en að öllu jöfnu er meiri umferð um páska eftir því hversu seint þeir eru á árinu. Greinilega var meiri umferð á sjálfum Páskadeginum miðað við fyrri páska og skýrist það líklega af slæmri veðurspá á annan.
Lesa meiraLíkt og á Hringveginum eykst umferðin á höfuðborgarsvæðinu í marsmánuði miðað við sama mánuði í fyrra. Umferðin jókst um meira en eitt prósent.
Umferðin hefur aukist um 1,2 prósent fyrstu þrjá mánuði ársins og er það mesta aukning á þessum tímabli ársins frá því árið 2008. Þá jókst umferðin reyndar um heil fimm prósent.
Lesa meiraUmferðin í mars á 16 lykilstöðum á Hringveginum jókst um fjögur prósent. Annan mánuðinn í röð eykst umferðin en þetta er svipuð aukning og á milli marsmánaða árin 2010 og 2011. Umferðin eykst á öllum landssvæðum.
Þrátt fyrir þetta hefur umferði fyrstu þrjá mánuðina dregist saman um 1,8 prósent vegna mikils samdráttar í janúar. Það er eigi að síður langt frá samdrættinum í fyrra sem nam tæpum tíu prósentum.
Lesa meira
Eitt grjótið sem féll á veginn við Fagradalshlíð á Skarðsströnd í nótt var gríðarstórt og olli töluverðum skemmdum á veginu. Vegagerðamenn hafa reiknað út að bjargið sé 20-30 tonn að þyngd. Vegurinn lokaðist en var opnaður fyrir klukkan níu í morgun. Bjargið er þó enn í vegkantinum.
Ekki er hægt að koma stórum tækjum til að koma grjótinu burt þar sem þungatakmarkanir eru í gildi og því verður að bregða á það ráð að sprengja bjargið. Það verður gert um kl 16:00 í dag og verður veginum lokað á meðan. Vegfarendur eru beðnir um að fara varlega.
Lesa meira
Mokstur á Hrafnseyrarheiði er ekki raunhæfur þessa dagana vegna mikilla og óstöðugra snjóalaga. Finna má einn skafl sem er að hluta til eftir snjóflóð þar sem stálið á veginum er á einum stað 5-6 metrar uppí 12 -15 metra stál. Vegagerðarmenn hafa skoðað snjóalög undanfarna daga. Síðastliðinn þriðjudag var mokað að norðaverðu í heiðinni upp að því svæði þar sem mikill snjór byrjar. Og niðurstaðan að mokstur er ekki raunhæfur.
Lesa meiraIngileifur Jónsson ehf. átti lægsta tilboðið í vegalagningu á Vestfjarðavegi (60), kaflanum Eiði - Þverá. Suðurverk hf. átti næstlægsta tilboðið. Einnig voru opnuð tilboð í rekstur Vestamannaeyjaferju 2012 - 2014 og átti Samskip hf. þar lægsta tilboðið.
Alls bárust fimm tilboð í vegagerðina og átta tilboð í ferjureksturinn frá þremur aðilum.
Lesa meiraTil hvers eru samgöngur? Þetta var til umræðu á fróðlegu og vel heppnuðu málþingi sem haldið var að frumkvæði innanríkisráðherra í samstarfi við Vegagerðina og Skipulagsfræðingafélag Íslands. Yfirskriftin var "Snúast samgöngur eingöngu um kostnað?"
Málþingið var velsótt. Erindin fróðleg og umræður nokkrar. Sjá frétt á vef innanríkisráðuneytisins og vef Skipulagsfræðingafélagsins.
Lesa meira
Norræna vegasambandið (NVF) stendur fyrir stórri vegaráðstefnu í Hörpu 11. - 13. júní næstkomandi. Via Nordica 2012 - Á krossgötum. Reikna má með að um 1000-1200 manns sæki ráðstefnuna. Nú þegar hafa um 350 manns skráð sig, mest útlendingar. Ísland hefur stýrt NVF síðustu fjögur ár og lýkur tímabili Íslands með ráðstefnunni. Undirbúningur hefur að miklu leiti verið á könnu Vegagerðarinnar.
Samhliða ráðstefnunni verður haldin sýning og hafa 19 sýnendur skráð sig til leiks, auk vegagerða norrænu ríkjanna og Eystrasaltsríkjanna. Flestar tækninefndir NVF taka einnig þátt í sýningunni.
Lesa meiraUmferðin eykst töluvert meira í febrúar á þremur mælisviðum Vegagerðarinnar á höfuborgarsvæðinu en hún gerði á 16 talningarstöðum á Hringveginum. Umferðin í febrúar reyndist 2,5 prósentum meiri í febrúar í ár en í sama mánuði í fyrra.
Umferðin stóð í stað í janúar en þessa tvo mánuði hefur umferðin aukist um 1,3 prósent miðað við sömu tvo mánuði í fyrra.
Lesa meiraNú er lokið úthlutun úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar fyrir árið 2012. Upplýsingar um afgreiðslu hafa verið sendar til umsækjenda.
Alls bárust 155 umsóknir og sótt var um samtals 394 milljón krónur.
Umferðin í febrúarmánuði á 16 lykilstöðum á Hringveginum reyndist 0,2 prósentum meiri en í sama mánuði árið 2011. Þetta er í fyrsta sinn síðan í október 2010 að aukning í umferðinni mælist á milli ára í sömu mánuðum.
Umferðin dróst mikið saman í janúar sem gæti verið vegna ótíðar að einhverju leiti, það er því enn óljóst, eftir þessa fyrstu tvö mánuði, hvert umferðin árið 2012 stefnir.
Lesa meira
Vegagerðinni er heimilt samkvæmt vegalögum að styrkja tilteknar samgönguleiðir sem ekki falla undir skilgreiningar vega samkvæmt sömu lögum, svo kallaða styrkvegi. Heimilt er að styrkja til dæmis vegi yfir fjöll og heiðar sem ekki teljast þjóðvegir, vegi að bryggjum, að skíðasvæðum, að leitarmannaskálum, ferðamannastöðum o.s.frv.
Rafrænt umsóknareyðublað er að finna hér í fréttinni en einnig á vefnum með því að fara í "Umsóknir og leyfi" flipann hér fyrir ofan, þar er síðan að finna annan flipa "Umsókn um styrkveg". Umsóknarfrestur er til 15. apríl n.k.
Lesa meiraBráðbrigðavegur vegna byggingar undirganga undir Reykjanesbraut við álverið í Straumsvík verður tekinn í notkun laugardaginn 18. febrúar kl. 10:00 um morgunin.
Þessa dagana er verið að hefja vinnu við byggingu undirganganna líkt og vegfareendur hafa tekið eftir. Undirgöngin eiga að auka öryggi vegfarenda og draga úr slyshættu. Vegagerðin stendur fyrir verkinu og verktaki við framkvæmdirnar er Suðurverk hf. Framkvæmdum á að ljúka í júlí 2012.
Lesa meira
Vegagerðin hóf árið 1976 að safna kerfis-bundið öllum upplýsingum um umferðarslys á þjóðvegum. Slysunum er raðað á vegarkafla, að jafnaði um 10–12 km að lengd, þau flokkuð eftir alvarleika og eðli.
Síðustu 15 ár hefur einnig verið lögð mikil áhersla á að teikna slysakort fyrir þjóðvegi. Slysastaðir eru síðan greindir til að finna út hvað hægt sé að gera til úrbóta. Þegar horft er til baka síðustu áratugina er augljóst að verulegur árangur hefur orðið af umferðaröryggisstarfinu á Íslandi.
Nokkrar umræður hafa að undanförnu spunnist um öryggi vega og hvaða vegir væru hættulegir og hvernig forgangsröðun framkvæmda væri í því samhengi. Fréttinni er ætlað að varpa nokkru ljósi á vinnu Vegagerðarinnar í tengslum við öryggismál vega.
Lesa meiraÞað er algengur misskilningur að Vaðlaheiðargöng hafi verið boðin út í einkaframkvæmd. Nú síðast var greint frá niðurstöðum skoðanakönnunar í Fréttablaðinu þar sem spurt var hvort landsmenn styddu gerð Vaðlaheiðarganga í einkaframkvæmd. Göngin voru hins vegar ekki boðin út í einkaframkvæmd heldur eiginframkvæmd félagsins Vaðlaheiðargöng hf.
Einkaframkvæmd felst í því í sinni ýtrustu mynd að verktaki tekur að sér eftir útboð að hanna, fjármagna, byggja og reka mannvirki í tiltekinn tíma fyrir verkkaupa.
Lesa meira
Ríflega helmingur aðspurðra fer aldrei með strætisvagni, en um 14 prósent fara einu sinni til tvisvar í viku í strætisvagni, aðrir sjaldnar. Rúm 12 prósent hjóla að staðaldri og nærri 49 prósent hluta úr ári. En 39 prónsent hjóla aldrei, færri en þeir sem aldrei fara í strætó.
Þetta kemur fram í ferðavenjukönnun sem sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og Vegagerðin létu gera í október til desember á síðasta ári. Niðurstöðurnar má finna í fréttinni, heildarniðurstöður og svo eftir sveitarfélögum og hverfum.
Lesa meira
Aðfararnótt miðvikudags 8. febrúar, er áætlað að ljúka breytingum á umferðarljósum á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar við Álftanesveg og Fjarðarhrauns í Engidal, Hafnarfirði.
Á meðan þessi vinna fer fram verða umferðarljósin óvirk, það er frá miðnætti til um kl. 5:30 á miðvikudagsmorgni. Umferð verður heimiluð um gatnamótin en hámarkshraði lækkaður í 30 km/klst á meðan. Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á óþægindum og beðnir að fylgja þeim merkingum sem uppi eru á vinnusvæðinu.
Lesa meira
Vegagerðin fyrirhugar endurbætur á Borgarfjarðarvegi (94), í Njarðvík, frá Hríshöfða og að Njarðvíkurvegi. Framkvæmdin er í Borgarfjarðarhreppi í N.-Múlasýslu.
Um er að ræða lagfæringu á núverandi vegi og lagningu bundins slitlags á um 4 km löngum kafla. Á kafla verður veglínunni breytt til að lagfæra beygjur og sett verður ræsi í Njarðvíkurá og lögð af einbreið brú yfir hana.
Áætlað er að framkvæmdir hefjist vorið 2012 og þeim verði að fullu lokið fyrir haustið 2012.
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu, í þremur mælisniðum, stendur í stað í janúar í ár miðað við sama mánuð í fyrra, þrátt fyrir þó nokkra ófærð á svæðinu í mánuðinum.
Leiða má líkur að því að vont veður og slæm færð hafi meiri áhrif á umferð á Hringveginum en á höfuðborgarsvæðinu. En likt og fram hefur komið dróst umferðin mikið saman í janúar á Hringveginum, á 16 lykilteljurum Vegagerðarinnar eða um ríflega 10 prósent.
Lesa meira
Umferðin í nýliðnum janúar dróst saman um ríflega 10 prósent miðað við sama mánuð fyrir ári síðan. Er þetta mesti samdráttur milli janúarmánaða frá því að þessi samanburður hófst.
Búast mátti við samdrætti í umferðinni vegna þess að veðurfar og færð voru slæm í mánuðinum. En þessi mikli samdráttur er hins vegar óvæntur þrátt fyrir það og einnig sérstaklega þegar horft er til þess að milli janúarmánaða 2010 og 2011 dróst umferð saman um 7,6 prósent, á þessum sömu 16 mælipunktum á Hringveginum, sem á þeim tíma var mesti samdráttur sem Vegagerðin hafði mælt.
Lesa meiraNú rennur upp tíð hálku með leysingunum í dag og því gott fyrir vegfarendur að kynna sér hálkuvarnir Vegagerðarinnar, hvar er hálkuvarið, hvar í hálku og hvar í flughálku. Nákvæmar upplýsingar um þetta er að finna hér á vef Vegagerðarinnar.
Með því að smella á "Umferð og færð" og þar undir á "Snjómokstur" má finna ítarlegar upplýsingar. Sjá dæmi inn í fréttinni.
Lesa meiraMjög sterk fylgni er á milli aksturs og vergar landsframleiðslu eða hagvaxtar á Íslandi. Miðað við þróun aksturs á Íslandi frá árinu 1975 er 96 prósent fylgni milli þeirrar þróunar og vaxtar landsframleiðslunnar til ársins 2010. Sjá línurit með fréttinni.
Víða erlendis eru tölur um heildarakstur og breytingar á akstri nýttar til að meta ástand hagkerfisins eða spá í það ástand. Það gæti því verið fróðlegt að sjá þróun umferðar á nýju ári en fyrstu tölur Vegagerðarinanr er að vænta í byrjun febrúar.
Lesa meira
Fjárveitingar til Vegagerðarinnar hafa á undanförnum árum minnkað einsog til annarra stofnana ríkisins. Fjárveitingar til nýframkvæmda hafa ekki verið þær einu sem hafa minnkað heldur hefur það gerst varðandi alla þætti í starfsemi Vegagerðarinnar. Þar er vetrarþjónustuna ekki undanskilin.
Strax árið 2009 var til að mynda snjómokstursreglum Vegagerðarinnar breytt í ljósi minni fjárveitinga. Þjónustudögum var víða fækkað og þjónustu hætt fyrr á daginn/kvöldin en áður var. Vegagerðin leitaði einnig allra leiða til að hagræða þannig að sem mest mætti þó gera fyrir það fé sem til ráðstöfunar er hverju sinni.
Lesa meiraUmferðin um Bolungarvíkurgöng árið 2011 var nærri þremur prósentum meiri en umferðin um Óshlíðina árið áður. Um göngin fóru 797 bílar að meðaltali á sólarhring (ÁDU) en voru 776 um Óshlíð 2010. Spá um umferð hefði gert ráð fyrir litlu fleiri bílum eða 810 ÁDU en taka verður með í reikninginn að umferðin eykst meðan hún dregst saman á landsvísu.
Umferðin í Bolungarvíkurgöngum er nokkuð jafnari en í Héðinsfjarðargöngum þar sem hærra hlutfall fór um síðarnefndu göngin að sumri til en um vetur.
Lesa meira
Vetrartíðin hefur ekki farið framhjá nokkrum manni þessa síðustu daga. Hjá Vegagerðinni verða starfsmenn áþreifanlega varir við veturinn þegar veðrið hamast sem mest. Og það gengur þá stundum mikið á.
Á þriðjudaginn 10. janúar var snjómoksturstækjum á vegum Vegagerðarinnar ekið næstum 18 þúsund kílómetra samanlagt. Svo dæmi sé tekið. Þrettán sinnum hringinn í kringum landið á einum sólarhring. Snjór var mokaður og á sama tíma var nærri 206 tonnum af salti dreift. Um 60 tonnum af pækli og um 64 tonnum af sandi.
Lesa meiraMeðalumferð um Héðinsfjarðargöng árið 2011 var 548 bílar á sólarhring (ÁDU). Það er talsvert meiri umferð en spár Vegagerðarinnar höfðu gert ráð fyrir áður en framkvæmdir hófust. Þá hljómaði spáin upp á um 350 bíla og í mesta lagi 500, líkt og fram hefur komið áður hér á vef Vegagerðarinnar.
Tæplega 200 þús. bílar fóru fram og til baka um göngin á síðasta ári, það samsvarar því að rúmlega 500 þús manns hafi farið um göngin, fram og til baka. Flestir óku um göngin í júlí eða tæplega 70 þúsund bílar, fram og til baka. Það samsvarar um 17% af umferð ársins. Umferðin um Múlagöng 2011 jókst um 15 prósent.
Lesa meiraUmferðin á höfuðborgarsvæðinu, þremur mælisviðum, reyndist 3,7 prósentum minni í desember 2011 en í sama mánuði árið áður. Allt árið 2011 dróst umferðin saman um 2,5 prósent sem er mun minni samdráttur en reyndin varð á Hringveginum. Þar dróst umferðin saman um 5,3 prósent.
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu, á þessum þremur mælisviðum, reyndist þannig meiri en árin 2005 og 2006 en minni en árin þar á eftir þ.e.a.s. 2007 - 2010. Sjá myndirnar með fréttinni.
Lesa meira
Laugardaginn 7 janúar, verður yfirbygging göngubrúar yfir Vesturlandsveg í Mosfellsbæ steypt. Meðan á verkinu stendur verða truflanir á umferð um Vesturlandsveginn og á tímabili þarf að loka fyrir umferð undir brúna.
Lokað verður annarsvegar við hringtorg að Lágafelli og hins vegar við hringtorg við Hafravatnsveg. Á meðan þessar lokanir vara er notast við hjáleið um Bjarkarholt - Háholt. Miðað er við að steypuframkvæmdin hefjist um kl. 10:00 og verði lokið um kl. 16:00 og þar með að truflanir á umferð verði innan þess tíma. Sjá kort með hjáleiðinni inn í fréttinni.
Lesa meiraUmferðin á 16 völdum talningarstöðum á Hringveginum dróst saman um 5,3 prósent árið 2011 frá árinu áður. Þetta er mesta samdráttarárið frá því að samantekt af þessu tagi var gerð eða síðan 2005. Til samanburðar dróst umferðin saman um 2,3% árið 2010 og um 1,7% árið 2008 en jókst um 6,8% árið 2007.
Fram til 2008 hafði aksturinn nánast aukist á hverju ári síðan 1975 a.m.k. Og samdrátturinn aldrei orðið þetta mikill. (Sjá skýringar á muninum á hugtökunum umferð og akstur inn í fréttinni) Samdráttur umferðarinnar í desember reyndist mikill frá sama mánuði árið 2010. Hann nam 9,5 prósentum. Umferðin í desember var minni en hún hefur verið síðan fyrir 2005.
Lesa meiraVegagerðin veitir árlega styrki til rannsóknaverkefna, sem fjármagnaðir eru að mestu af svonefndu tilraunafé, en samkvæmt vegalögum er það 1,5% af mörkuðum tekjum stofnunarinnar.
Nú er auglýst eftir umsóknum um styrki og/eða fjármögnun einstakra verkefna fyrir árið 2012. Umsóknir þurfa að berast á tilskildum eyðublöðum í seinasta lagi að kvöldi miðvikdagsins 1. febrúar 2012.
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember