Beint í leiðarkerfi vefsins.
Allar leiðir sem hafa 7 daga þjónustu verða þjónustaðar á nýársdag. Á leiðum með minna en 7 daga mokstri, en með fastan mokstursdag á sunnudegi (nýársdegi), verður þjónustan flutt af sunnudegi yfir á laugardag (gamlársdag). Færð á vegum er ekki könnuð á vettvangi nema á umferðarþyngstu vegum. Upplýsingar um færð og veður taka annars mið af gögnum frá veðurstöðvum og myndavélum.
Vegagerðin óskar vegfarendum og landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og þakkar fyrir samskiptin á árinum sem er að líða.
Lesa meiraÁrið 2011 hefur verið erfitt í vetrarþjónustunni hjá Vegagerðinni. Ekki nóg með að síðustu vikur hafi verið erfiðar heldur þurfti að hálkuverja fram í miðjan júní í sumar eða einum og hálfum mánuði lengur en venjulega.
Nú stefnir í að heildarútgjöld vegna vetrarþjónustunnar verði um 1900 milljónir króna en heildarfjárveitingar til þjónustunnar fyrir árið 2011 eru 1630 milljónir króna.
Lesa meiraUmferðin um Víkurskarð austan Akureyrar jókst um 1,4 prósent í nóvember miðað við nóvember árið 2010. Á tímabili leit út fyrir að umferðin væri að aukast mun meira en ófærð og almennt slæm færð í lok mánaðarins dró nokkuð úr umferð.
Meðalumferðin reyndist 724 bílar á sólarhring (ÁDU) samaborið við 714 bíla árið áður. Heildarumferð þar sem af er ári er að meðaltali 1210 bílar á sólarhring. Gert er ráð fyrir að í lok árs verði meðalumferðin um 1173 bílar á sólarhring.
Lesa meira
Margir verða á ferðinni fram til jóla á vegum landsins. Vegagerðin hvetur ökumenn til að fara að ítrustu gát því víða er annaðhvort hált eða flughált. Það má sá í tilkynningum um færð og ástand hér fyrir neðan þessa frétt.
Sé tekið mið af veðurspá, sjá neðar í fréttinni, og þeirri staðreynd að þjónustu Vegagerðarinnar lýkur með fyrra fallinu á aðfangadag úti á landi þá er álitlegra fyrir þá vegfarendur sem á því hafa tök að ferðast frekar á Þorláksmessu en aðfangadag, þá er full þjónusta og skaplegra veður.
Vegagerðin óskar vegfarendum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla.
Lesa meiraTil að fá fram frjóar og áhugaverðar hugmyndir um nýja göngu- og hjólaleið yfir Elliðaárósa efna Reykjavíkurborg og Vegagerðin til opinnar hugmyndasamkeppni. Gert er ráð fyrir að samið verði við höfunda fyrstu verðlaunatillögu um áframhaldandi hönnun á verkefninu.
Nýi göngu- og hjólastígurinn mun stytta leiðina milli Grafarvogs og miðborgar umtalsvert eða um 0,7 km. Gert er ráð fyrir aðskilnaði gangandi og hjólandi umferðar með það í huga að stuðla að bættu umferðaröryggi og gera leiðina greiðari.
Lesa meiraUmferðaröryggisáætlun er hluti samgönguáætlunar. Nú er komin út skýrsla um framkvæmd áætlunarinnar árið 2010. Lýst er aðgerðum og verkefnum, eftirliti, áróðri og fræðslu vegna hraðaksturs og bílbeltanotkunar. eyðingu svartbletta og bætingu á umhverfi vega, um hvíldarsvæði, um ölvunarakstur og forvarnir erlendra ökumanna svo nokkuð sé nefnt.
Athygli má vekja á viðaukum í skýrslunni, til dæmis um eyðingu svartbletta, lagfæringu á umhverfi vega og uppsetningu vegriða. Í þeim viðauka er listaðar upp allar þær fjörlmörgu aðgerðir sem farið var í á árinu 2010 til að bæta vegakerfið í umferðaröryggistilliti.
Lesa meiraÍ dag 16. desember hefur gengið á Facebook mynd af grjóti í Oddsskarðsgöngum og látið að því liggja að grjótið hafi hrunið úr göngunum. Það er ekki rétt, grjótið hrundi ekki. Svæðið var merkt vinnusvæði og verktakinn sem var að hreinsa þar var á leið út með annað efni sem hafði losnað úr gangaveggnum.
Verktakinn varaði vegfarandann á myndinni við steininum, en verktakinn hafði skilið hann eftir í vegkantinum. Steininn hafði verið tekin niður á öðrum stað úr gangavegg og hafði því alls ekki hrunið út göngunum. Sjá nánar yfirlit í fréttinni.
Lesa meira
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra lagði fram á Alþingi þann 14. desember þings- ályktunartillögur um bæði fjögurra ára og tólf ára samgönguáætlun. Sú lengri hefur að geyma stefnumótum en styttri áætlunin er verkefnaáætlun.
Áherslur innanríkisráðherra við gerð samgönguáætlananna voru félagshagfræðileg greining við forgangsröðun verkefna, efling almenningssamgangna, mælanleg markmið, núllsýn í umferðar- öryggismálum, loftslagsmál, hlutverk samgangna við tengingu landsvæða og landsins alls, samþætting við aðrar áætlanir ríkisins, samgöngukostnaður heimilanna, greiðfærni og áreiðanleiki samgangna og jákvæð byggðaþróun.
Lesa meiraUmferðin á höfuðborgarsvæðinu, þremur mælisniðum, dróst saman um 0,9 prósent í nóvember miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta er minni samdráttur en varð í umferðinni í október en næstum sá sami og á 16 talningarstöðum á Hringveginum í sama mánuði.
Reikna má með að samdrátturinn í ár á höfuðborgarsvæðinu verði um 2,5 prósent og að umferðin verði heldur meiri en hún var árið 2006. Samdrátturinn er því minni á höfuðborgarsvæðinu en á Hringveginum þar sem stefnir í að umferðin verði nokkru minni en hún var árið 2006.
Lesa meiraUmferðin á 16 völdum talningarstöðum á Hringveginum dróst sama um 1 prósent í nóvember miðað við sama mánuð fyrir ári síðan. Í október dróst umferðin hinsvegar saman um 7 prósent. Þetta er minnsti samdráttur umferðar í ár fyrir utan júnímánuð.
Vegagerðin spáir því að umferðin í ár dragist saman um 4,9 prósent. Uppsafnaður samdráttur í umferð fór mest í 9,6 prósent í lok mars en dregið hefur úr því þegar liðið hefur á árið og var hann 5 prósent slétt í lok nóvember. Umferðin í ár stefnir því í það að vera nokkuð minni en hún var árið 2006 en heldur meiri en hún var 2005.
Lesa meira
Skipulagsstofnun telur að helstu neikvæðu áhrif fyrirhugaðra framkvæmda verði áhrif á landslag og sjónræn áhrif og þá einkum vegna veglagningar um Litlanes og vegna þverunar Kjálkafjarðar og Mjóafjarðar.
Fyrirhugaðar þveranir Kjálkafjarðar og Mjóafjarðar munu verða mjög áberandi mannvirki og munu skipta upp landslagsheildum fjarðanna. Þá er ljóst að þveranirnar eru á svæði sem nýtur verndar samkvæmt sérlögum um vernd Breiðafjarðar, m.a. vegna landslags, en einnig fjörur og leirur.
Vegfarendur á Suðurlandsvegi hafa tekið eftir því að vegamótin á nýja veginum eru nokkuð öðruvísi en þeir eiga að venjast. Vegamótin eru hönnuð með tilliti til umferðaröryggis og því verður 2+2 vegurinn í raun 1+1 vegur við vegamótin. Mun öruggara verður fyrir vegfarendur en áður að taka vinstri beygjur við vegamót Bláfjallavegar og sama á við um tengingu að Litlu kaffistofunni.
Vegna tafa sem urðu vegna kærumála hófust framkvæmdir seinna en áætlað var. Þetta veldur því að vegagerð er ekki að fullu lokið við vegamótin og hafa því verið sett upp skilti sem vara ökumenn við því að vegamótin séu ekki fullgerð.
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember