Umferð um Bolungarvíkurgöng hefur aukist um 2 prósent, það sem af er ári, borin saman við sama tímabil um Óshlíð árið 2010.
Eins og staðan er nú á aukningin sér fyrst og fremst stað í umferð um helgar þ.e.a.s. aðeins dregur úr umferð á virkum dögum eða um 0,2% meðan umferðin um helgar eykst um 9%, sem er glöggt merki um að atvinnutengd umferð standi í stað og hafi ekki breyst meðan umferð ferðamanna og umferð fólks í einkaerindum eykst talsvert.
Lesa meira
Samgönguráð hefur lokið við drög að tillögu að samgönguáætlun 2011 til 2022 ásamt greinargerð og jafnframt látið vinna mat á umhverfisáhrifum tillögunnar. Umhverfismatsskýrslan er auglýst til kynningar og umsagnar og er unnt að senda ráðuneytinu skriflegar athugasemdir til 4. nóvember næstkomandi
Umhverfismat samgönguáætlunar liggur frammi til kynningar meðal annars hjá Vegagerðinni, Borgartúni 5-7.
Lesa meiraHeldur hefur dregið úr umferð um Víkurskarðið það sem af er árinu 2011, borin saman við sama tímabil árið 2010, eða um 7 prósent.
Meðalumferð á dag árið 2010 var 1256 bílar/sólarhring en stefnir nú í að vera um 1170 bílar/sólarhring fyrir árið 2011.
Lesa meira
Innanríkisráðherra, fjármálaráðherra, formaður Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og fulltrúi Vegagerðarinnar skrifuðu í dag, 22. september, undir viljayfirlýsingu um að vinna að samningi um 10 ára tilraunaverkefni um almenningssamgöngur.
Samningurinn á að liggja fyrir í haust og munu byggja á samningsdrögum samgönguráðs vegna samgönguáætlunar sem lögð verður fyrir Alþingi í haust. Þar er miðað við að verja aukalega einum milljarði króna á ári í tíu ár til eflingar almenningssamgangna á svæðinu.
Lesa meiraÖgmundur Jónasson innanríkisráðherra var á tveimur fundum með heimamönnum á sunnanverðum Vestfjörðum í vikunni. Í Bjarkarlundi og á Patreksfirði. Rætt var um leiðaval á Vestfjarðavegi (60) og lausnir varðandi veginn í Gufudalssveit.
Ögmundur lagði áherslu að taka þyrfti tillit til þriggja þátta, kostnaðar, öryggis og hraða (mögulegs framkvæmdahraða). Hann hefði hafið samráðsferli með heimamönnum og hagsmunaaðilum um bestu leiðina eftir að Hæstiréttur dæmdi úrskurð umhverfisráðherra um svokallaða B-leið ógildan.
Lesa meira
Fyrirhugað er að koma fyrir víravegriðum á um 740 m kafla meðfram núverandi vegi þar sem hann liggur yfir Helluvaðsá og á bökkum Laxár og Helluvaðsár. Breikka þarf vegaxlir, lagfæra kanta og rekstrarleið sauðfjár og færa bílastæði við veginn.
Innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, ásamt Hreini Haraldssyni vegamálastjóra klippti á borða á hinni nýju brú yfir Hvítá í dag 9. september og tók þar með formlega í notkun brúna og nýjan Bræðratunguveg. Vegurinn og brúin stytta leiðina á milli Reykholts og Flúða í uppsveitum Árnessýslu um 20 km og mun skapa nýja möguleika í ferðaþjónustu á svæðinu.
Við þetta tækifæri minnti ráðherra á að í raun væri Vegagerðin menningarstofnun sem ekki einungis byggði brýr sem hluta af vegi heldur líka brýr á milli fólks, milli samfélaga og jafnvel milli mismunandi menningarheima.
Lesa meiraUmferðin á höfuðborgarsvæðinu í ágústmánuði reyndist 0,1 prósenti meiri en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt þremur mælisniðum á svæðinu. Umferðin reyndist því svipuð í ágúst í ár og í fyrra.
Í heild spáir Vegagerðin því að umferðin á höfuðborgarsvæðinu, á þessum þremur mælipunktum, muni dragast sama um 2,8 prósent.
Lesa meira
Ekkert lát er á því að umferðin dragist saman á Hringveginum. Sé tekið mið af 16 lykilteljurum þá dregst umferðin í ágúst saman um 3,2 prósent frá sama mánuði í fyrra. Það sem af er ári mælist uppsafnaður samdráttur 5,7 prósent og hefur ekki verið meiri síðan að minnsta kosti árið 1975.
Miðað við spá Vegagerðarinnar má reikna með að umferðin í ár liggi á milli þess í magni að vera á milli áranna 2005 og 2006. En í ár stefnir í milli fimm og sex prósenta samdrátt.
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember