Vegagerðin fyrirhugar að koma upp snjóflóðavörnum á Ólafsfjarðarvegi við Sauðanes.
Gerðir verða þrír svokallaðir snjóflóðaskápar ofan við veginn og sett upp stálþil framan við skápana. Verður þetta gert í þremur giljum þar sem snjóflóð eru mjög algeng.
Lesa meira
Norrænu brúarverðlaunin eru veitt fjórða hvert ár og eru kynnt af Norræna vegasambandinu (NVF) og brúatækninefndum NVF. Þau eru veitt fyrir framúrskarandi framlag á sviði brúarverkfræði, með sérstöku tilliti til notagildis þeirra á Norðurlöndum.
Verðlaunin eru veitt eiganda brúarinnar, eða fulltrúa hans við hátíðlega athöfn á Via Nordica 2012 ráðstefnunni, sem haldin verður í Reykjavík 11. – 13. júní 2012.
Lesa meira
Þann 1. júní næstkomandi verða tvær hraðamyndavélar á Hringvegi á Kjalarnesi við Árvelli teknar í notkun.
Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og er tilgangurinn sá að draga úr ökuhraða á þjóðvegum og fækka umferðarslysum. Umferðaröryggisáætlun er hluti samgönguáætlunar.
Lesa meira
Hæstiréttur sýknaði þann 26. maí Vegagerðina af kröfu Ístaks hf sem krafðist ríflega 234 milljóna króna þar sem kostnaður við vinnslu í bergi hefði reynst mum meiri en vænta mátti af útboðsgögnum við vegagerð á Tjörnesi. Vegagerðin hélt því fram alls ekki hefði mátt gera ráð fyrir því að berg væri í öllum skeringum auðsprengjanlegt með venjulegum aðferðum. Þvert á móti mátti hann ráða af lestri útboðsgagna að búast mætti við erfiðleikum við sprengingar eins og raunin varð.
Sýknað var á grundvelli þess hversu seint Ístak hf gerði fyrirvara um þetta og hefði því fyrirgert rétti sínum til frekari greiðslna.
Lesa meiraVegamálastjóri ákvað nýlega að veita aukalega 30 milljónum króna til viðhalds á malarvegum á sunnanverðum Vestfjörðum. Með því er vænst að vegirnir verði í heldur betra ástandi í sumar en verið hefur undanfarin ár þótt rétt sé að taka fram að þetta veldur engri byltingu en bætir ástandið nokkuð.
Féð verður notað á Dynjandisheiði, Vestfjarðavegi, Ketildalavegi, Örlygshafnarvegi og víðar.
Lesa meira
Samgönguþing sem haldið var 19. maí sl. fjallaði meðal annars um drög Samgönguráðs að stefnumótun fyrir samgönguáætlun 2011 - 2022. Unnið verður áfram með áætlunina í sumar er ráðgert er að leggja hana fyrir Alþingi í haust.
Í stefnumótuninni er að finna markmið um helstu þætti samgöngáætlunar þ.e.a.s. um greiðar samgöngur, um umhverfislega sjálfbærar samgöngur, um hagkvæmar samgöngur, um öryggi í samgöngum og um jákvæða byggðaþróun.
Lesa meira
Vegagerðin hefur gefið út viðbótarreglur varðandi lagningu bundins slitlangs á umferðarlitla tengi- og héraðsvegi. Um er að ræða breytingu á stefnu um notkun nýrra veghönnunarreglna.
Markmiðið er að nota reglurnar við lágmarksaðgerðir við styrkingu vega og lagningu bundins slitlags þegar ekki er unnt að endurgera veginn samkvæmt fyllstu reglum um fyrirsjáanlega framtíð. Alls eru 380 milljónir króna settar í þetta verkefni á fjárlögum 2011. Ef vel gengur hefur Vegagerðin hug á að halda þessu áfram og auka á næstu árum.
Lesa meira
Markmið átaksins "Áratugur aðgerða - herferð um umferðaröryggismál" er að draga úr banaslysum og alvarlegum slysum í umferðinni á heimsvísu næstu 10 árin og er hvert og eitt aðildarland Sameinuðu þjóðanna hvatt til að setja fram áætlun um aðgerðir í þeim efnum.
Innanríkisráðherra hleypti verkefninu af stokkunum, að viðstöddum forseta Íslands og velferðarráðherra í dag miðvikudaginn 11. maí, að því loknu sleppti nemendahópur úr Laugarnesskóla 201 blöðru í loftið sem táknræna minningu um þá sem létust í umferðarslysum árin 2001 til 2010.
Lesa meira
Um mánaðamótin apríl/maí hófst vinna við tvöföldun Suðurlandsvegar að nýju eftir vetrarhlé. Verktaki vinnur nú að því að fjarlægja farg sem sett var á hluta vegarins.
Fljótlega verður einnig hafist handa við gerð reiðganga við Litlu Kaffistofuna og einnig verður hafist handa við breikkun brúar yfir Fóelluvötn.
Lesa meira
Verkið felst í byggingu undirganga norðan hringtorgsins við Grænás, gerð framhjáhlaups í Reykjanesbraut vegna framkvæmdarinnar ásamt lagningu aðliggjandi göngu-, hjól- og reiðstíga.
Framkvæmdin innifelur einnig að annast flutning / endurnýjun kaldavatnslagnar austan Reykjanesbrautar næst undirgöngunum í samráði við HS Veitur.
Lesa meiraAlls hafa sex aðilar skilað inn gögnum vegna forvals Vaðlaheiðarganga, hugsanlega berast gögn frá fleiri þátttakendum þar sem gögn með póststimpli fyrir klukkan 16:00 3. maí eru gild.
Þeir sem hafa óskað eftir að fá að gera tilboð í Vaðlaheiðargöng eru IAV/Marti, Ístak hf., Metrostav-Suðurverk, Norðurverk, Per Aarsleff-JPK JV og Leonhard Nilsen & Sønner AS.
Lesa meira
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum á Ísafirði 5. apríl að ráðast í verkefni í vegagerð á Vestfjörðum fyrir 350 milljónir króna til viðbótar við verkefni á samgönguáætlun.
Vegagerðin hefur gert tillögu um að fjórar einbreiðar brýr á Djúpvegi og Barðastrandavegi verði breikkaðar þ.e.a.s. byggðar verði nýjar brýr á Seljalandsós og Seljalandsá á Djúpvegi (61), ný brú verði byggð á Raknadalsá á Barðastrandarvegi (62) og að ræsi komi í stað einbreiðrar brúar á Hrísnesá sem einnig er á Barðastrandarvegi (62)
Lesa meiraUmferð jókst um 0,5% á milli aprílmánaða 2011 og 2010 í þremur mælisniðum innan höfuðborgarsvæðisins. Er þetta í fyrst sinn á þessu ári sem umferð eykst á milli samanburðarmánaða 2011 og 2010.
Ástæða aukningar nú kann að vera sú að borgarbúar hafi farið minna út á land yfir páskana nú en oft áður, sem skýrir að hluta til mikinn samdrátt á Hringvegi og þessa aukningu innan borgarmarka, í apríl.
Lesa meiraÍ apríl reyndist umferðin á 16 völdum talningarstöðum á Hringvegi tæpum sex prósentum minni en í sama mánuði í fyrra. Eldgosin í Fimmvörðuhálsi og Eyjafjallajökli hafa áhrif í þá veru að umferð dregst verulega saman í apríl mánuði 2011 á Suðurlandi. Hinsvegar eykst umferð í apríl á Norðurlandi og Austurlandi.
Eigi að síður litur út fyrir með sama áframhaldi að samdráttur verði mjög miikill í umferðinni í ár og gæti orðið ríflega átta prósenta samdráttur. Umferðin í sumar mun þó mestu ráða um það.
Lesa meiraLangflestir aðspurðra vilja breikka vegi í nýrri viðhorfskönnun sem Maskína vann fyrir Vegagerðina um þjóðvegi landsins. Þetta er mikil breyting frá sambærilegri könnun fyrir ári síðan þegar langflestir vildu auka hálkuvarnir sem nú er í þriðja sæti. Næst helst vill fólk bæta vegina eða slitlagið.
Um 52 prósent eru mjög eða frekar jákvæð í garð Vegagerðarinnar, um 37 prósent hvorki né en ríflega tíundi hver er frekar eða mjög neikvæður í garð Vegagerðarinnar. Fjölgar örlítið í þeim hópi frá síðustu könnun.
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember