Fréttir

24.1.2011 : Skýrslan um Héðinsfjarðargöngin á vefnum

Héðinsfjarðargöng skýrsla

Bókin, eða skýrslan, Fjallabyggð fyrir Héðinsfjarðargöng: Samgöngur, samfélag og byggðaþróun, er nú aðgengileg hér á vef Vegagarðarinnar. Skýrslan var rædd á ráðstefnu í Fjallabyggð um síðustu helgi. Skýrslan er unnin með styrk frá Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.

 

Síðastliðin þrjú ár hefur hópur fræðimanna við Háskólann á Akureyri unnið að rannsókn á stöðu Fjallabyggðar fyrir göng og mun hópurinn fylgjast með samfélagsþróuninni næstu árin og er von á annari bók að því loknu.

Lesa meira

24.1.2011 : Krapaflóð í Fnjóská (Myndir)

Krapaflóð í Fnjóská

Mikið krapaflóð fór niður Fnjóská rétt fyrir hádegi 23. janúar, Fnjóskadalsvegur vestri lokaðist á að minnsta kosti tveimur stöðum, milli Böðvarsnes og Ytri Hóls einnig neðan við Skarð, þá var Nesvegur í Grýtubakkahrepp ófær eftir þetta krapaflóð.

 

Strax klukkan 14 .00 var búið að fá verktaka til að hreinsa vegina.

 

Lesa meira

21.1.2011 : Endanleg ákvörðun er skipstjórans

Herjólfur

Að gefnu tilefni ítrekar Vegagerðin, sem umsjónaraðili styrktra ferjusiglinga, að endanleg ákvörðun um hvort siglt sé til Landeyjahafnar eða Þorlákshafnar er alfarið í höndum skipstjóra Herjólfs hverju sinni.

 

Skipstjórinn ber ábyrgð á skipi, farþegum, áhöfn og farmi og það er ekki raunhæft að farið sé fram á að tekin sé nokkur áhætta vegna siglinga milli lands og Eyja þar sem öryggi farþega og áhafnar er mikilvægast.

 

 

Lesa meira

19.1.2011 : Áhrif Héðinsfjarðarganga á Fjallabyggð

Héðinsfjörður

Ráðstefna verður haldin í Menntaskólanum á Tröllaskaga 22. janúar í tilefni útgáfu bókarinnar "Fjallabyggð fyrir Héðinsfjarðargöng: Samgöngur, samfélag og byggðaþróun." Héðinsfjarðargöngin munu að líkindum gerbreyta samgöngum, búsetu, atvinnu, fasteignamarkaði, opinberri þjónustu og félagslegu lífi í Fjallabyggð.

 

Síðastliðin þrjú ár hefur hópur fræðimanna við Háskólann á Akureyri unnið að rannsókn á stöðu Fjallabyggðar fyrir göng með styrk frá Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.

 

Lesa meira

18.1.2011 : KNH með lægsta tilboð í veg um Skálanes

Tilboð opnuð í Skálanes

KNH ehf. á Ísafirði átti lægsta tilboðið í kaflann Kraká - Skálanes á Vestfjarðavegi (60). Tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni í Reykjavík og á Ísafirði 18. janúar. Næstlægsta boð kom frá Verktakafélaginu Glaumi í Garðabæ og þriðja lægsta frá Héraðsverki ehf. Egilsstöðum.

 

Um er að ræða 2,6 km kafla í Gufudalssveit í Reykhólahreppi, ný- og endurlögn. Verkinu á að vera að fullu lokið fyrir 1. nóvember 2011.

 

Lesa meira

10.1.2011 : Nú þegar stefnt á ódýrari lausnir

Framkvæmdir hefjast við breikkun Suðurlandsvegar

Þess misskilnings hefur gætt í umræðu um veggjöld á vegum útfrá höfuðborginni að val standi á milli þess að fara „dýra“ leið með vegtollum eða byggja ódýrari veg og sleppa vegtollum. Innanríkisráðherra hefur að undanförnu lagt áherslu á að valið stendur ekki á milli þess. Valið stendur á milli þess að fara í framkvæmdirnar og greiða með veggjöldum eða fara ekki í þær fyrr en þá eftir nokkur ár.

 

Nú þegar er unnið að því að notast við ódýrari lausnir, hluti vegarins milli Reykjavíkur og Selfoss verður 2+1 vegur, allur vegurinn að Hvalfjarðargöngum yrði þannig en sá hluti Reykjanesbrautar sem enn á eftir að ljúka yrði 2+2 vegur. Einnig er ráðgert að til að byrja með verði ekki byggð mislæg vegamót á Suðurlandsvegi en í því felst helsti verðmunurinn.

Lesa meira

7.1.2011 : Ekki framkvæmdir án veggjalda

Fundur um veggjöld

Skýrt kom fram hjá Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra í gær að ekki er mögulegt að fara í tugmilljarða króna framkvæmdir við breikkanir vega út frá höfuðborginni meðan ekkert fé er til í ríkissjóði, nema með veggjöldum. Þetta kom fram á fundi með sveitarstjórnarmönnum og þingmönnum vegna framkvæmda á suðvesturhorni landsins.

 

Ráðherra benti á að í heild myndu framkvæmdirnar kosta langleiðina í 30 milljarða króna sem væri mikið fé miðað við að ekki væru nema 6 milljarðar króna ætlaðir í nýframkvæmdir í vegagerð á landinu öllu í ár. Almenn andstaða var á fundinum við veggjöld en menn hinsvegar áfram um að farið yrði í framkvæmdirnar sem fyrst.

Lesa meira

6.1.2011 : 69 m/s í hviðum

Vindur mælingar

Á veðurmæli Vegagerðarinnar í Hamarsfirði sunnan Djúpavogs mældist mesti vindhraði í vindhviðu 69 metrar á sekúndu um kl 6 að morgni þriðjudagins 4. janúar. Í nokkra klukkutíma var vindhraðinn nálægt 30 m/s og lá þá umferð niðri. 69 m/s jafngildi vindhraðanum í fellibyl af fjórða styrkleika af fimm.

 

Veðurstöðin var sett upp í haust og hefur sannað gildi sitt en það var heimamaðurinn og Vegagerðarmaðurinn Reynir Gunnarsson sem valdi staðsetninguna í ljós þess hvar veður væru verst við þjóðveginn.

Lesa meira

5.1.2011 : Auglýst er eftir umsóknum um styrki til rannsóknaverkefna fyrir árið 2011

Fánaborg Vegagerðar

Vegagerðin veitir árlega styrki til rannsóknaverkefna, sem fjármagnaðir eru að mestu af svonefndu tilraunafé, en samkvæmt vegalögum er það 1,5% af mörkuðum tekjum stofnunarinnar.  Nú er auglýst eftir umsóknum um styrki og/eða fjármögnun einstakra verkefna fyrir árið 2011 og er umsóknarfrestur til 2. febrúar 2011.

 

Lesa meira



Útlit síðu: