Fréttir

30.12.2011 : Þjónusta Vegagerðarinnar um áramótin

Kveðja frá Vegerðinni

Allar leiðir sem hafa 7 daga þjónustu verða þjónustaðar á nýársdag. Á leiðum með minna en 7 daga mokstri, en með fastan mokstursdag á sunnudegi (nýársdegi), verður þjónustan flutt af sunnudegi yfir á laugardag (gamlársdag). Færð á vegum er ekki könnuð á vettvangi nema á umferðarþyngstu vegum. Upplýsingar um færð og veður taka annars mið af gögnum frá veðurstöðvum og myndavélum.

 

Vegagerðin óskar vegfarendum og landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og þakkar fyrir samskiptin á árinum sem er að líða.

Lesa meira
 

29.12.2011 : Snjóruðningstæki fóru tíu sinnum umhverfis jörðina í desember

Snjómokstur á Sandskeiði

Árið 2011 hefur verið erfitt í vetrarþjónustunni hjá Vegagerðinni. Ekki nóg með að síðustu vikur hafi verið erfiðar heldur þurfti að hálkuverja fram í miðjan júní í sumar eða einum og hálfum mánuði lengur en venjulega.

 

Nú stefnir í að heildarútgjöld vegna vetrarþjónustunnar verði um 1900 milljónir króna en heildarfjárveitingar til þjónustunnar fyrir árið 2011 eru 1630 milljónir króna.

Lesa meira
 

27.12.2011 : Aðeins meiri umferð um Víkurskarð í nóvember

Víkurskarð umferðin í nóvember

Umferðin um Víkurskarð austan Akureyrar jókst um 1,4 prósent í nóvember miðað við nóvember árið 2010. Á tímabili leit út fyrir að umferðin væri að aukast mun meira en ófærð og almennt slæm færð í lok mánaðarins dró nokkuð úr umferð.

 

Meðalumferðin reyndist 724 bílar á sólarhring (ÁDU) samaborið við 714 bíla árið áður. Heildarumferð þar sem af er ári er að meðaltali 1210 bílar á sólarhring. Gert er ráð fyrir að í lok árs verði meðalumferðin um 1173 bílar á sólarhring.

Lesa meira
 

22.12.2011 : Hálka og flughálka víða á landinu

Það verður víða hált næstu daga

Margir verða á ferðinni fram til jóla á vegum landsins. Vegagerðin hvetur ökumenn til að fara að ítrustu gát því víða er annaðhvort hált eða flughált. Það má sá í tilkynningum um færð og ástand hér fyrir neðan þessa frétt.

 

Sé tekið mið af veðurspá, sjá neðar í fréttinni, og þeirri staðreynd að þjónustu Vegagerðarinnar lýkur með fyrra fallinu á aðfangadag úti á landi þá er álitlegra fyrir þá vegfarendur sem á því hafa tök að ferðast frekar á Þorláksmessu en aðfangadag, þá er full þjónusta og skaplegra veður.

 

Vegagerðin óskar vegfarendum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla.

Lesa meira
 

22.12.2011 : Göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaár - samkeppni

Göngu- og hjólabrýrnar

Til að fá fram frjóar og áhugaverðar hugmyndir um nýja göngu- og hjólaleið yfir Elliðaárósa efna Reykjavíkurborg og Vegagerðin til opinnar hugmyndasamkeppni. Gert er ráð fyrir að samið verði við höfunda fyrstu verðlaunatillögu um áframhaldandi hönnun á verkefninu.

 

Nýi göngu- og hjólastígurinn mun stytta leiðina milli Grafarvogs og miðborgar umtalsvert eða um  0,7 km.  Gert er ráð fyrir aðskilnaði gangandi og hjólandi umferðar með það í huga að stuðla að bættu umferðaröryggi og gera leiðina greiðari.

Lesa meira
 

21.12.2011 : Skýrsla um umferðaröryggisáætlun 2010

Umferðaröryggisáætlun - skýrsla 2010

Umferðaröryggisáætlun er hluti samgönguáætlunar. Nú er komin út skýrsla um framkvæmd áætlunarinnar árið 2010. Lýst er aðgerðum og verkefnum, eftirliti, áróðri og fræðslu vegna hraðaksturs og bílbeltanotkunar. eyðingu svartbletta og bætingu á umhverfi vega, um hvíldarsvæði, um ölvunarakstur og forvarnir erlendra ökumanna svo nokkuð sé nefnt.

 

Athygli má vekja á viðaukum í skýrslunni, til dæmis um eyðingu svartbletta, lagfæringu á umhverfi vega og uppsetningu vegriða. Í þeim viðauka er listaðar upp allar þær fjörlmörgu aðgerðir sem farið var í á árinu 2010 til að bæta vegakerfið í umferðaröryggistilliti.

Lesa meira
 

16.12.2011 : Ekki grjót sem hrundi úr göngunum

Myndirnar á Facebook

Í dag 16. desember hefur gengið á Facebook mynd af grjóti í Oddsskarðsgöngum og látið að því liggja að grjótið hafi hrunið úr göngunum. Það er ekki rétt, grjótið hrundi ekki. Svæðið var merkt vinnusvæði og verktakinn sem var að hreinsa þar var á leið út með annað efni sem hafði losnað úr gangaveggnum.

 

Verktakinn varaði vegfarandann á myndinni við steininum, en verktakinn hafði skilið hann eftir í vegkantinum.  Steininn hafði verið tekin niður á öðrum stað úr gangavegg og hafði því alls ekki hrunið út göngunum. Sjá nánar yfirlit í fréttinni.

Lesa meira
 

15.12.2011 : Tólf ára og fjögurra ára samgönguáætlanir

Samgönguáætlanir kynntar á blaðamannafundi

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra lagði fram á Alþingi þann 14. desember þings- ályktunartillögur um bæði fjögurra ára og tólf ára samgönguáætlun. Sú lengri hefur að geyma stefnumótum en styttri áætlunin er verkefnaáætlun.

 

Áherslur innanríkisráðherra við gerð samgönguáætlananna voru félagshagfræðileg greining við forgangsröðun verkefna, efling almenningssamgangna, mælanleg markmið, núllsýn í umferðar- öryggismálum, loftslagsmál, hlutverk samgangna við tengingu landsvæða og landsins alls, samþætting við aðrar áætlanir ríkisins, samgöngukostnaður heimilanna, greiðfærni og áreiðanleiki samgangna og jákvæð byggðaþróun.

Lesa meira
 

7.12.2011 : Heldur minni samdráttur í nóvember á höfuðborgarsvæðinu

Höfuðborgarsvæðið samanlagt nóvember 2011

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu, þremur mælisniðum, dróst saman um 0,9 prósent í nóvember miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta er minni samdráttur en varð í umferðinni í október en næstum sá sami og á 16 talningarstöðum á Hringveginum í sama mánuði.

 

Reikna má með að samdrátturinn í ár á höfuðborgarsvæðinu verði um 2,5 prósent og að umferðin verði heldur meiri en hún var árið 2006. Samdrátturinn er því minni á höfuðborgarsvæðinu en á Hringveginum þar sem stefnir í að umferðin verði nokkru minni en hún var árið 2006.

Lesa meira
 

6.12.2011 : Umferðin dregst minna saman

Umferðin uppsafnað nóvember 2011

Umferðin á 16 völdum talningarstöðum á Hringveginum dróst sama um 1 prósent í nóvember miðað við sama mánuð fyrir ári síðan. Í október dróst umferðin hinsvegar saman um 7 prósent. Þetta er minnsti samdráttur umferðar í ár fyrir utan júnímánuð.

 

Vegagerðin spáir því að umferðin í ár dragist saman um 4,9 prósent. Uppsafnaður samdráttur í umferð fór mest í 9,6 prósent í lok mars en dregið hefur úr því þegar liðið hefur á árið og var hann 5 prósent slétt í lok nóvember. Umferðin í ár stefnir því í það að vera nokkuð minni en hún var árið 2006 en heldur meiri en hún var 2005.

Lesa meira
 

6.12.2011 : Vestfjarðavegur (60) milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði - Álit Skipulagsstofnunar

Vestfjarðarvegur, Eiði - Þverá

Skipulagsstofnun telur að helstu neikvæðu áhrif fyrirhugaðra framkvæmda verði áhrif á landslag og sjónræn áhrif og þá einkum vegna veglagningar um Litlanes og vegna þverunar Kjálkafjarðar og Mjóafjarðar.

Fyrirhugaðar þveranir Kjálkafjarðar og Mjóafjarðar munu verða mjög áberandi mannvirki og munu skipta upp landslagsheildum fjarðanna. Þá er ljóst að þveranirnar eru á svæði sem nýtur verndar samkvæmt sérlögum um vernd Breiðafjarðar, m.a. vegna landslags, en einnig fjörur og leirur.

Lesa meira
 

1.12.2011 : Ný tegund vegamóta

Vegamót á Suðurlandsvegi

Vegfarendur á Suðurlandsvegi hafa tekið eftir því að vegamótin á nýja veginum eru nokkuð öðruvísi en þeir eiga að venjast. Vegamótin eru hönnuð með tilliti til umferðaröryggis og því verður 2+2 vegurinn í raun 1+1 vegur við vegamótin. Mun öruggara verður fyrir vegfarendur en áður að taka vinstri beygjur við vegamót Bláfjallavegar og sama á við um tengingu að Litlu kaffistofunni.

 

Vegna tafa sem urðu vegna kærumála hófust framkvæmdir seinna en áætlað var. Þetta veldur því að vegagerð er ekki að fullu lokið við vegamótin og hafa því verið sett upp skilti sem vara ökumenn við því að vegamótin séu ekki fullgerð.

Lesa meira
 

15.11.2011 : Snyrtilegasta umhverfi stofnunar í Skagafirði

Vegagerðin Sauðárkróki

Á dögunum fékk Vegagerðin á Sauðárkróki umhverfisviðurkenningu Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir snyrtilegasta umhverfi stofnunar. Um er að ræða samstarfsverkefni sveitarfélagsins og Soroptimistaklúbbs Skagafjarðar.

 

Þetta var í sjöunda sinn sem viðurkenningar voru veittar en öll framkvæmdin hvílir á herðum kvenna í klúbbnum. Vegagerðarmenn á Sauðárkróki þakka kærlega viðurkenninguna en þetta er í annað sinn í ár sem Vegagerðin hlýtur viðurkenningu. Nýlega fékk Vegagerðin í Borgarnesi viðurkenningu fyrir snyrtilegustu lóð við atvinnuhúsnæði.

Lesa meira
 

14.11.2011 : Vestfjarðavegur, Eiði-Þverá, Matsskýrsla

Vestfjarðarvegur, Eiði - Þverá


Vegagerðin hefur lagt fram matsskýrslu fyrir Vestfjarðaveg milli Eiðis og Þverár, sem unnin er á grundvelli frummatsskýrslu. Framkvæmdin ber heitið Vestfjarðavegur (60), milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði í Reykhólahreppi og Vesturbyggð.

Í skýrslunni er gerð grein fyrir framkomnum athugasemdum og umsögnum við frummatsskýrslu og tekin afstaða til þeirra.

Lesa meira
 

11.11.2011 : Vegagerðarrannsóknir í Hörpu

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2011

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar var haldin í tíunda sinn föstudaginn 4. nóvember. Góður rómur var gerður að ráðstefnunni að vanda en líkt og undanfarin ár sóttu ríflega 150 manns ráðstefnuna. Erindin voru alls 20 talsins hvert öðru áhugaverðara. Flest erindin er að finna í þessari frétt.

 

Erindin eru kynning á rannsóknarverkefnum sem eru styrkt af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar en samkæmt vegalögum skal 1,5 prósent af mörkuðum tekjum til vegamála renna til rannsóknar- og þróunarstarfs.

Lesa meira
 

10.11.2011 : Undirgöng við Grænás tekin í notkun

Grænás undirgöng formlega tekin í notkun

Ný undirgöng við Grænás í Reykjanesbæ og hringtorg sem byggt var í fyrra á sama stað voru formlega tekin í notkun 9. nóvember. Undirgöngin tengja Ásbrú við við Innri-Njarðvík og eykur umferðaröryggið. Sama á við um hringtorgið. Undirgöngin nýtast gangandi, hjólandi og ríðandi vegfarendum.

 

Vegamálastjóri Hreinn Haraldsson og Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjanesbæ skiptust á borðfánum af þessu tilefni við undirgöngin.

Lesa meira
 

9.11.2011 : Héðinsfjarðargöng fóru um 17% fram yfir áætlun en Bolungarvíkurgöng ekkert

Héðinsfjarðargöng, í Héðinsfirði

Kostnaður vegna Héðinsfjarðarganga reyndist 17,2 prósentum meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Það skýrist fyrst og fremst vegna aukins kostnaðar vegna gríðarlegs vatnsaga í Ólafsfjarðarhluta ganganna. Efnahagshrunið sem varð hér árið 2008 hjálpaði heldur ekki til.

 

Kostnaður við Bolungarvíkurgöng stóðst áætlun nokkuð nákvæmlega.

Lesa meira
 

8.11.2011 : Taktu þátt í að bæta umferðarmenninguna á höfuðborgarsvæðinu

Umferð í Reykjavík

Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar, Vegagerðin og önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu standa um þessar mundir fyrir könnun á ferðavenjum íbúa höfuðborgarsvæðisins.

 

Niðurstöður könnunarinnar munu m.a. nýtast við endurbætur umferðarskipulags, stuðla að bættu umferðaröryggi og bættu aðgengi vegfarenda. Góð svörun skiptir höfuðmáli til að fá sem nákvæmastar niðurstöður.

Lesa meira
 

3.11.2011 : Minni umferð á höfuðborgarsvæðinu

Samanlagður akstur á höfuðborgarsvæðinu

Umferðin á þremur mælipunktum Vegagerðarinnar innan höfuðborgarsvæðisins dróst saman um ríflega 3 prósent í október. Það stefnir í að samdrátturinn verði um 2,6 prósent í heild í ár. Það er minni samdráttur en á 16 mælipunktum á Hringveginum. Sjá frétt hér við hliðina.

 

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu yrði þannig nokkuð minni en í fyrra en eigi að síður meiri en árið 2006. Á Hringvegi stefnir hinsvegar í að umferðin verði aðeins minni en árið 2006 en nokkuð meiri en árið 2005.

Lesa meira
 

2.11.2011 : Samdráttur í umferð í október

Uppsafnað umferðin í október

Umferðin í október á 16 lykilteljurum Vegagerðarinnar reyndist sjö prósentum minni en í október 2010. Þetta er fjórði mesti samdráttur umferðar í einum mánuði í ár.

 

Nú stefnir í að umferðin árið 2011 verði 4,5 - 5,0 prósentum minni en árið 2010. Útlit er fyrir að umferðin á Hringiveginum í ár verði þannig nokkuð minni en hún var árið 2006 en eigi að síður nokkuð meiri en árið 2005. Sjá mynd með þessari frétt um uppsafnaða umferði í ár.

Lesa meira
 

26.10.2011 : Bræður færa Vegagerðinni bók

Grein um Kristleif Jónsson - Bókin skoðuð

Þeir bræður Jens S. og Björn Kristleifssynir heimsóttu vegamálastjóra á dögunum og færðu honum bókina "Frá Bjargtöngum að Djúpi" sem er um mannlíf og sögu fyrir vestan. Í bókinni er að finna skrif Jens um föður þeirra sem vann hjá Vegagerðinni (þá Vegagerð ríkisins) alla sína starfstíð.

 

Hann byrjaði sem kúskur 13 ára gamall árið 1911, flokkstjóri varð hann 1920 og verkstjóri 1930, hann lét af störfum árið 1968 sjötugur.

Lesa meira
 

21.10.2011 : Vegagerðin í Borgarnesi fær umhverfisviðurkenningu

Umhverfisviðurkenning Borgarness

Umverfisviðurkenning Borgarbyggðar 2011 fyrir snyrtilegustu lóð við atvinnuhúsnæði féll í skaut Vegagerðarinnar í Borgarnesi að þessu sinni. Viðurkenningin var afhent við hátíðlega athöfn í Skallágrímsgarði 15. október þótt athöfnin hafi borið þess mark að þá stóð yfir hin árlega Sauðamessa í Borgarnesi.

 

Það var formaður umhverfis- og skipulagsnefndar Borgarbyggðar sem afhenti verðlaunin en þau eru veitt árlega. Nefndin fer yfir innkomnar tilnefningar sem voru 13 í ár og ákveður hver stendur upp úr.

 

Lesa meira
 

19.10.2011 : Íslenskir ferðmannavegir

Ferðamannavegur á Snæfellsnesi

Undanfarin ár hefur Vegagerðin og VSÓ Ráðgjöf ásamt fleiri aðilum unnið að þróunarverkefnum um ferðamannavegi. Til þess að kynna hugmyndafræðina og verkefni um íslenska ferðamannavegi hefur VSÓ sett upp sérstaka heimasíðu. http://www.vso.is/islandsvegir.html

 

Nú á haustdögum kynnti VSÓ Ráðgjöf í samstarfi við Vegagerðina, Ferðamálastofu, Þjóðgarðinn Snæfellsjökul og Snæfellsbæ undirbúningsverkefni um ferðamannaveg á Snæfellsnesi. Þar er gerð  grein fyrir forsendum ferðamannavegar á Snæfellsnesi og nauðsynlegum framkvæmdum og verkefnum sem slíkur vegur kallar á.

Lesa meira
 

19.10.2011 : Illfær vegur, ófært eða lokað

Lokað - hálendisskilti

Unnið er að því að setja upp nýjar og meira áberandi merkingar við allar innkomuleiðir á hálendi Íslands sem taka mið af ástandinu hverju sinni. Þrennskonar merkingar er um að ræða og má sjá myndir af þeim öllum með fréttinni.

 

Vegirnir geta þannig verið illfærir, ófærir eða hreinlega lokaðir allri umferð vegna til dæmis þíðu í vegi.

 

Merkin er stór og áberandi, búin miklu endurskini.

 

Lesa meira
 

18.10.2011 : 50 ára aldursmunur

Volvó L485, árgerð 1961

Volvó L485 vörubíll, árgerð 1961, var í heiðurssæti þegar Brimborg kynnti á dögunum nýjasta Volvó vörubílinn sem heitir FMX 8x4RT en það er 50 ára aldursmundur á þeim. Vegminjasafn Vegagerðarinnar hefur látið gera gamla bílinn upp og hefur vel tekist til hjá Erlendi Egilssyni við endurgerðina.

 

Vegagerðin fékk á sínum tíma tvo samskonar bíla og voru þeir áberandi á vegum landsins í þrjá áratugi. Þessi bíll kom til landsins 25. maí 1961 og þjónaði Vegagerðinni vel og lengi eða í 20 ár, til 1981 og var ekið yfir 2 milljónir kílómetra.

Lesa meira
 

14.10.2011 : Betra viðhorf almennings til Vegagerðarinnar

Þjóðvegir landsins sumarkönnun

Það fjölgar nokkuð í hópi þeirra sem eru jákvæðir í garð Vegagerðarinnar samkvæmt viðhorfskönnun sem Maskína hefur unnið fyrir Vegagerðina. Könnun sem þessi er gerð tvisvar á ári, sumar og vetur. Þeim fjölgar sem eru jákvæðir og þeim neikvæðu fækkar og einnig þeim sem segjast vera hvorki jákvæðir né neikvæðir.

 

Sama á við um allar spurningarnar í sumarkönnuninni. Fleiri telja nú þjóðvegina mjög góða eða frekar góða. Töluvert fleiri eru nú ánægðir með kantstikur og yfirborðsmerkingar á þjóðvegunum. Og sama á við um merkingar vegna vegaframkvæmda.

Lesa meira
 

14.10.2011 : Mjög aukin umferð um Múlagöng

Meðalumferð um Héðinsfjörð

Heildarumferðin um Múlagöng hefur aukist um 24 prósent í ár frá því fyrir ári síðan miðað við teljara skammt sunnan ganganna. Meðalumferðin það sem af er ári er um 564 bílar á sólarhring. Meðalumferð ársins (ÁDU) stefnir í 520 - 560 bíla á sólarhring en umferðin (ÁDU) var 453 bílar á sólarhring árið 2010.

 

Meðalumferðin það sem af er ári um Héðinsfjarðargöng nemur 599 bílum á sólarhring. Arðsemismat Héðinsfjarðarganga miðaði við ÁDU 350 en háspá var áætluð um 500 bílar á sólarhring. Reikna má með að ÁDU í ár verði um 550 bílar á sólarhring.

Lesa meira
 

11.10.2011 : ÍAV og Marti með lægsta tilboð í gerð Vaðlaheiðarganga

Vaðlaheiðargöng opnun tilboða 1

Sameiginlegt tilboð ÍAV hf og Marti Contractors Lts frá Sviss í gerð Vaðlaheiðarganga var lægst en tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni í dag. Tilboð þeirra hljóðaði upp á ríflega 8,8 milljarða króna eða um 95 prósent af kostnaðaráætlun.

 

Önnur tilboð voru á bilinu 9,5 milljarðar upp í 10,8 frá íslenska samstarfshópnum Norðurverki, frá Ístaki hf og frá sameiginlegu boði Metrostav a.s. og Suðurverki hf.

Lesa meira
 

11.10.2011 : Örlítið aukin umferð á höfuðborgarsvæðinu

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu

Akstur á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt þremur mælipunktum reyndist 0,2 prósentum meiri í nýliðnum september en í sama mánuði í fyrra. Þetta er þriðji mánuðurinn í ár sem umferðin eykst milli ára.

 

Eigi að síður er útlit fyrir, samkvæmt spá Vegagerðarinnar, að akstur á höfuðborgarsvæðinu dragist saman um allt að 2,5 prósent. Gæti þó orðið minna því undanfarin ár hefur aksturinn síðustu mánuði ársins verið mjög breytilegur.

Lesa meira
 

7.10.2011 : Minni samdráttur á Hringvegi

Umferðin í ár, uppsafnað

Umferðin í september 2011 á 16. völdum talningastöðum á Hringvegi dróst einungis saman um 1,2% miðað við sama mánuð árið 2010. Þetta er næst minnsti samdráttur, sem mælst hefur það sem af er ári, en áður hafði hann minnstur mælst milli júní mánaða eða 0,4%.


Mest dróst umferð saman á Norðurlandi eða 3,9%.  Minnst dróst umferðin saman á Hringvegi við höfuðborgarsvæðið eða 0,7%.

Lesa meira
 

7.10.2011 : Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2011

Harpa

Þróunarsvið Vegagerðarinnar blæs nú í tíunda sinn til ráðstefnu um rannsóknir Vegagerðarinnar. Að þessu sinni verður ráðstefnan haldin á í nýja tónlistarhúsinu Hörpu (salur: Kaldalón), þann 4. nóvember næstkomandi.

 

Kveðið er á í vegalögum að 1,5% af mörkuðum tekjum til vegamála skuli renna til rannsókna- og þróunarstarfs og er ráðstefnunni ætlað að endurspegla afrakstur hluta þess starfs.

 

Lesa meira
 

6.10.2011 : Ný akbraut Suðurlandsvegar

Sudurlandsvegur-3.10.2011

Síðdegis í dag, fimmtudaginn 6. október, verður umferð hleypt á nýja akbraut Suðurlandsvegar.

Ökumenn eru beðnir að aka gætilega meðan þeir kynnast aðstæðum.

 

Lesa meira
 

4.10.2011 : Alþjóðleg ráðstefna um vegamál var haldin 26. - 30. september

Frá bás Vegagerðarinnar

Alþjóðleg ráðstefna um vegamál, á vegum PIARC (Permanent International Association of Road Congresses),  var haldin í 24. sinn í Mexíkóborg 26. - 30. september síðastliðinn.

Ráðstefnan er haldin á fjögurra ára fresti og sækja hana kringum þrjú þúsund manns. Dagskráin er mjög fjölþætt og er fjallað um hönnun vegaframkvæmda, fjármögnun og stjórnun verkefna, öryggismál vegakerfa, um öryggi í jarðgöngum, öryggi vegakerfa, viðhald og þjónustu á vegum, umferðarstjórnun, samgöngur og skipulag og umhverfismál í mjög víðu samhengi.

Lesa meira
 

26.9.2011 : Fleiri um Bolungarvíkurgöng í ár en Óshlíð í fyrra

Umferðin um Bolungarvíkurgöng og Óshlíð

Umferð um Bolungarvíkurgöng hefur aukist um 2 prósent, það sem af er ári, borin saman við sama tímabil um Óshlíð árið 2010.

 

Eins og staðan er nú á aukningin sér fyrst og fremst stað í umferð um helgar þ.e.a.s. aðeins dregur úr umferð á virkum dögum eða um 0,2% meðan umferðin um helgar eykst um 9%, sem er glöggt merki um að atvinnutengd umferð standi í stað og hafi ekki breyst meðan umferð ferðamanna og umferð fólks í einkaerindum eykst talsvert.

Lesa meira
 

26.9.2011 : Umhverfismatsskýrsla í tenglsum við samgönguáætlun

Fækkun einbreiðra brúa

Samgönguráð hefur lokið við drög að tillögu að samgönguáætlun 2011 til 2022 ásamt greinargerð og jafnframt látið vinna mat á umhverfisáhrifum tillögunnar. Umhverfismatsskýrslan er auglýst til kynningar og umsagnar og er unnt að senda ráðuneytinu skriflegar athugasemdir til 4. nóvember næstkomandi

 

Umhverfismat samgönguáætlunar liggur frammi til kynningar meðal annars hjá Vegagerðinni, Borgartúni 5-7.

Lesa meira
 

26.9.2011 : Minni umferð um Víkurskarð í ár

Umferðin um Víkurskarð

Heldur hefur dregið úr umferð um Víkurskarðið það sem af er árinu 2011, borin saman við sama tímabil árið 2010, eða um 7 prósent.

 

Meðalumferð á dag árið 2010 var 1256 bílar/sólarhring en stefnir nú í að vera um 1170 bílar/sólarhring fyrir árið 2011.

 

Lesa meira
 

22.9.2011 : Viljayfirlýsing um eflingu almenningssamgangna

Undirskrift viljayfirlýsingar 22. september 2011

Innanríkisráðherra, fjármálaráðherra, formaður Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og fulltrúi Vegagerðarinnar skrifuðu í dag, 22. september, undir viljayfirlýsingu um að vinna að samningi um 10 ára tilraunaverkefni um almenningssamgöngur.

 

Samningurinn á að liggja fyrir í haust og munu byggja á samningsdrögum samgönguráðs vegna samgönguáætlunar sem lögð verður fyrir Alþingi í haust. Þar er miðað við að verja aukalega einum milljarði króna á ári í tíu ár til eflingar almenningssamgangna á svæðinu.

Lesa meira
 

21.9.2011 : Ráðherra á sunnanverðum Vestfjörðum

Fundurinn Patreksfirði

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra var á tveimur fundum með heimamönnum á sunnanverðum Vestfjörðum í vikunni. Í Bjarkarlundi og á Patreksfirði. Rætt var um leiðaval á Vestfjarðavegi (60) og lausnir varðandi veginn í Gufudalssveit. 

 

Ögmundur lagði áherslu að taka þyrfti tillit til þriggja þátta, kostnaðar, öryggis og hraða (mögulegs framkvæmdahraða). Hann hefði hafið samráðsferli með heimamönnum og hagsmunaaðilum um bestu leiðina eftir að Hæstiréttur dæmdi úrskurð umhverfisráðherra um svokallaða B-leið ógildan.

Lesa meira
 

12.9.2011 : Öryggisaðgerðir við Helluvað, Skútustaðahreppi - Kynning

Öryggisaðgerðir við Helluvað


Fyrirhugað er að koma fyrir víravegriðum á um 740 m kafla meðfram núverandi vegi þar sem hann liggur yfir Helluvaðsá og á bökkum Laxár og Helluvaðsár. Breikka þarf vegaxlir, lagfæra kanta og rekstrarleið sauðfjár og færa bílastæði við veginn.

Lesa meira
 

9.9.2011 : Ný brú yfir Hvítá og Bræðratunguvegur

Hvítá og Bræðratunguvegur formleg opnun

Innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, ásamt Hreini Haraldssyni vegamálastjóra klippti á borða á hinni nýju brú yfir Hvítá í dag 9. september og tók þar með formlega í notkun brúna og nýjan Bræðratunguveg. Vegurinn og brúin stytta leiðina á milli Reykholts og Flúða í uppsveitum Árnessýslu um 20 km og mun skapa nýja möguleika í ferðaþjónustu á svæðinu.

 

Við þetta tækifæri minnti ráðherra á að í raun væri Vegagerðin menningarstofnun sem ekki einungis byggði brýr sem hluta af vegi heldur líka brýr á milli fólks, milli samfélaga og jafnvel milli mismunandi menningarheima.

Lesa meira
 

6.9.2011 : Svipuð umferð í ágúst á höfuðborgarsvæðinu

Samanlögð umferð á höfuðborgarsvæðinu

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í ágústmánuði reyndist 0,1 prósenti meiri en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt þremur mælisniðum á svæðinu. Umferðin reyndist því svipuð í ágúst í ár og í fyrra.

 

Í heild spáir Vegagerðin því að umferðin á höfuðborgarsvæðinu, á þessum þremur mælipunktum, muni dragast sama um 2,8 prósent.

 

Lesa meira
 

5.9.2011 : Samdráttur umferðar í ágúst

Uppsöfnuð umferð með spá út árið 2011

Ekkert lát er á því að umferðin dragist saman á Hringveginum. Sé tekið mið af 16 lykilteljurum þá dregst umferðin í ágúst saman um 3,2 prósent frá sama mánuði í fyrra. Það sem af er ári mælist uppsafnaður samdráttur 5,7 prósent og hefur ekki verið meiri síðan að minnsta kosti árið 1975.

 

Miðað við spá Vegagerðarinnar má reikna með að umferðin í ár liggi á milli þess í magni að vera á milli áranna 2005 og 2006. En í ár stefnir í milli fimm og sex prósenta samdrátt.

Lesa meira
 

29.8.2011 : Tæplega 5% minni helgarumferð í ár

Helgarumferðin 26. - 28. ágúst, meðaltal og samanburður

Um nýliðna helgi var umferðin á sex talningarstöðum við höfuðborgarsvæðið 4,3 prósentum minni en um sömu helgi í fyrra. Þetta er síðasta sumarhelgin í samanburði Vegagerðarinnar á helgarumferðinni á Hringveginum út frá höfuðborginni en í heild dróst sú umferð saman um 4,9 prósent á milli ára.

 

Af 13 samanburðarhelgum, helgunum í júní, júlí og ágúst, reyndist umferðin þrjár helgar meiri en um sömu helgar fyrir ári og þá tíu helgar minni.

Lesa meira
 

23.8.2011 : Aftur minni umferð um helgina

Helgarumferðin 19. 21. ágúst

Umferðin á sex mælipunktum á Hringvegi út frá höfuðborginni reyndist um síðustu helgi um níu prósentum minni en um sömu helgi fyrir ári síðan. Þetta er ekki umferðin á landinu öllu heldur helgarumferðin út frá Reykjavík.

 

Það sem af er sumri hefur helgarumferð á Hringvegi út frá höfuðborgarsvæðinu dregist saman um 5%. Þetta er minnsta umferð sem mælst hefur út frá höfuðborgarsvæðinu, fyrir samanburðartímabilið.

 

Lesa meira
 

19.8.2011 : Opið hús vegna mats á umhverfisáhrifum

Eiði - Þverá afstöðumynd

Vegagerðin mun á næstunni standa fyrir opnum húsum þar sem kynnt verður vegalagning á Vestfjarðavegi (60) á milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði. Mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar verður kynnt og tekið verður við ábendingum og athugasemdum.

 

Opin hús verða í :
Grunnskólanum á Reykhólum miðvikudaginn 24. ágúst kl. 17-21
Félagsheimilinu á Patreksfirði fimmtudaginn 25. ágúst kl. 17-21

Lesa meira
 

18.8.2011 : Verri reynsla af kvörtunum

Ánægja með vegakerfið - flutningsaðilar

Flutningsaðilar eru ánægðari í ár með vegakerfið en í fyrra og þeir hafa betri reynslu af leyfisveitingum. Verktakar hafa betri reynslu af samskiptum við starfsmenn Vegagerðarinnar í útboðsverkum en verri reynslu af útboðsgögnunum sjálfum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðhorfskönnun sem Lausnir unnu fyrir Vegagerðina.

 

Áhyggjuefni er fyrir Vegagerðina að báðir hópar hafa nú sýnu verri reynslu af viðbrögðum við kvörtunum en síðustu ár. Á móti eykst töluvert ánægjan með símsvörunina hjá Vegagerðinni sem var þó góð fyrir.

Lesa meira
 

15.8.2011 : Mun meiri umferð um nýliðna helgi - 12 % aukning

Helgarumferðin 12. - 14. ágúst. Meðaltal fyrri ára.

Umferðin um nýliðna helgi á Hringvegi útfrá höfuðborgarsvæðinu, reyndist tæplega tólf prósentum meiri en um sömu helgi í fyrra. Samdráttur hefur verið flestar helgar en þetta er metaukning, fjögurra prósenta aukning var um tvær helgar fyrr í sumar.

 

Það sem af er sumri hefur helgarumferði út frá höfuðborgarsvæðinu dregist saman um 4,6 prósent. Lengi fram eftir sumri stefndi í 6 prósenta samdrátt en þessi mikla og óvænta aukning um síðustu helgi hefur dregið aðeins úr þeirri þróun.

 

Lesa meira
 

12.8.2011 : Minni umferð á höfuðborgarsvæðinu í júlí

Spá um umferðina á höfuðborgarsvæðinu 2011

Á höfuðborgarsvæðinu, þremur mælisniðum, var umferðin í júlí minni en í sama mánuði í fyrra og nemur samdrátturinn um 4 prósentum. Fyrirvara verður að hafa á þessum tölum þar sem óvenju mikill samdráttur mældist á Hafnarfjarðarvegi, líkt og í janúar, en ekki hefur fundist haldbær skýring á þessu.

 

Frá áramótum hefur umferðin dregist saman um 3,2 prósent en útlit er fyrir að umferðin í ár dragist saman um 2-3 prósent og yrði umferðin þá svipuð eða heldur meiri en árið 2006.

Lesa meira
 

10.8.2011 : Svipuð umferð um helgina og um sömu helgi fyrir ári

Helgarumferðin 5.-7.ágúst 2011. Meðaltal fyrri ára

Helgarumferðin um nýliðna helgi var svipuð nú og fyrir ári síðan eða u.þ.b. 0,6 prósentum minni. Umferðin um síðustu helgi var einnig svipuð ef litið er til meðaltals áranna 2008 - 2010 eða rétt um 0,2 prósentum minni.

 

Heldur meiri umferð var þó nú um síðustu helgi, á Hringvegi út frá höfuðborgarsvæðinu, en um verslunarmannahelgina (föstudagur - sunnudags).

 

Lesa meira
 

9.8.2011 : Metumferð í Héðinsfjarðargöngum 

Héðinsfjörður metumferð 6.ágúst

Laugardaginn 6. ágúst sl. fóru 2107 bílar um Héðinsfjarðargöngin Siglufjarðarmegin en 2091 bíll um göngin Ólafsfjarðarmegin sem jafngildir því að 2099 bílar hafi farið um bæði göng.

 

Meðalumferðin yfir helgina var 1779 bílar/sólarhring, sem einnig er nýtt met yfir helgarumferð um Héðinsfjarðargöng. Meðalumferð það sem af er ári er komin í 601 bíla/sólarhring, sem gæti þýtt meðalumferð (ÁDU), rúmlega 500 bíla/sólarhring þegar árinu lýkur, sem yrði töluvert meira en búist var við.

 

Lesa meira
 

9.8.2011 : Gatnamót í Engidal á Hafnarfjarðarvegi - endurbætur

Engidalur - endurbætur á gatnamótum

Vegagerðin hefur boðið út breikkun og endurbætur á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar, Álftanesvegar og Fjarðarhrauns í Engidal ásamt breikkun syðri akreinar Fjarðarhrauns að beygjurein við Hólshraun. Í verkinu er einnig innifalin gerð fráreinar af Hafnarfjarðarvegi inn í Goðatún norðan við Vífilsstaðaveg.

 

Tilboð verða opnuð þann 23. ágúst nk. en verkinu á að vera lokið 15. desember í ár. Sjá kynningu á verkinu hér á vef Vegagerðarinnar. 

 

Lesa meira
 

8.8.2011 : Ekki matsskylda

Seljalandsós

Að mati Skipulagsstofnunar eru framkvæmdir við Seljalandsós og Seljalandsá á Djúpvegi (61) í Álftafirði ekki háðar mati á umhverfisáhrifum þar sem framkvæmdin er ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif.

 

Verkið er á leið í útboð en það er liður því að fækka einbreiðum brúm á þjóðvegum landsins. Ríkisstjórnin ákvað á fundi á Ísafirði í apríl fyrr á þessu ári að veita aukalega 350 milljónum króna til vegagerðar á Vestfjörðum. Fyrir það fé verða fimm einbreiðar brýr aflagðar og þar með þessar yfir Seljalandsós og Seljalandsá. 

Lesa meira
 

8.8.2011 : Endum rúntinn heima

Endum rúntinn heima

Sniglar í samstarfi við Vegagerðina og Umferðasrstofu hafa reist sex skilti við þjóðveginn með áletruninni „Endum rúntinn heima“.

 

Ætlunin er að ná til bifhjólafólks á ferðinni og hvetja til nærgætni og heilbrigðrar skynsemi við akstur bifhjóla um þjóðvegi landsins.

 

Lesa meira
 

4.8.2011 : Minni samdráttur í umferðinni í júli

Milli júlí mánaða 2010 og 2011 varð minni samdráttur í umferð, um 16 mælipunkta á Hringvegi en búist var við, en hann varð þó 2,7%.

Mest dregst umferð saman um Suðurland milli mánaða eða 7%, en um Norðurland varð aukning upp á tæp 2%.

 

Frá áramótum hefur umferðin, í þessum mælipunktum, dregist samtals saman um 6,1%

Um einstök landssvæði dregst umferðin mest saman um Suðurland eða 11,3% og minnst um Norðurland eða 4,5%.

 

Sé litið á meðf. töflu (tafla nr. 3), sést að þessi samdráttur það sem af er árinu 2011 er sögulegur þar sem umferðin hefur aldrei dregist jafn mikið saman frá árinu 2005.

Næst mesti samdráttur á þessu ára tímabili, fyrir þessa mælipunkta, er á milli áranna 2009 og 2010 eða 2,7%, sbr. töflu 3.

Lesa meira
 

3.8.2011 : Ekki hætta í Oddsskarðsgöngum

Oddsskarðsgöng

Vegagerðin telur að öryggi vegfarenda í Oddsskarðsgöngum sé ekki sérstaklega ógnað vegna hugsanlegs grjóthruns, og lítur þar til ástands bergsins og reynslu fyrri ára.

 

Þrátt fyrir að tveir stærri steinar hafi fallið úr lofti Oddskarðsganga í vor í net sem ætlað er að taka við þeim er ekki hætta af grjóthruni í göngunum.

 

Netið tók við steinunum og ultu þeir út að vegg ganganna, niður gangavegginn og þaðan út á akbrautina. Steinarnir féllu ekki beint á akbrautina.

 

Lesa meira
 

2.8.2011 : Helgarumferðin

Frá föstudegi til og með mánudags reyndist umferðin um síðustu helgi (verslunarmannahelgina) vera rúmlega 12% minni en um sömu helgi árið 2010, á 6 völdum talningastöðum á Hringvegi út frá Hringvegur_vid_Rvik_medaltal_2008-2010Höfuðborgarsvæðinu, sjá staðsetningu talningastaða í meðf. töflu.

 

Umferðin austur fyrir fjall reyndist 13,3% minni en um sömu helgi fyrir ári síðan. Norður fyrir varð samdrátturinn 10,5%.

 

Um Hellisheiði dróst umferðin saman um 13,3% en um Hvalfjarðargöng varð 9,1% samdráttur.

Umferðin á sjálfum frídegi verslunarmanna, eða á mánudeginum, reyndist 6,5% minni en í fyrra.

Lesa meira
 

28.7.2011 : Umferðin næstu tvær helgar

Héðinsfjarðargöng

Vegagerðin vill benda vegfarendum á að búast má við mikilli umferð um land allt um næstu helgar, eins og undanfarin ár. Vegfarendur eru því hvattir til að sýna tillitsemi, þolinmæði og kurteisi á för sinni um þjóðvegi landsins.

 

Á ýmsum stöðum má reikna með einhverjum töfum á mestu álagstímum, ekki síst í nánd við skipulagðar stórsamkomur. Til dæmis má reikna með mikilli umferð til og frá Siglufirði og líklegt að einhverjar tafir geti orðið við og í Stráka- og Múlagöngum, sem bæði eru einbreið með útskotum til mætinga.

 

Lesa meira
 

25.7.2011 : Minni umferð um helgina en í fyrra

Helgarumferdin-22-24-juli-2011

Umferðin um nýliðna helgi reyndist 7,7 prósentum minni en um sömu helgi í fyrra á sex talningastöðum út frá höfuðborginni. Það sem af er sumri hefur meðalumferð um helgar á Hringvegi á þessum 6 mælistöðum dregist saman um 5,8 prósent.

 

Reynslan sýnir að um næstu helgi (Verslunarmannahelgina, föstudagur - mánudags) verði heldur meiri umferð en um síðustu helgi þótt hún verði ekki sú stærsta, eins og sjá má á stöplariti sem sýnir meðaltölin.

 

Lesa meira
 

20.7.2011 : Vestfjarðavegur (60) milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði

Vestfjarðarvegur, Eiði - Þverá

Vegagerðinni hefur verið falið að endurbyggja og byggja nýjan Vestfjarðaveg við norðanverðan Breiðafjörð, á kaflanum frá Eiði í Vattarfirði, um Kerlingarfjörð og Mjóafjörð að Þverá í Kjálkafirði. Framkvæmdin er í tveimur sveitarfélögum, Reykhólahreppi í Austur-Barðastrandarsýslu og Vesturbyggð í Vestur-Barðastrandarsýslu.
Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur á Vestfjörðum. Stefnt er að því að undirbúningi framkvæmda verði lokið á árinu 2011 og að framkvæmdir geti hafist sama ár.

Lesa meira
 

19.7.2011 : Meiri og minni helgarumferð

Helgarumferðin 15.-17. júlí 2011

Um helgina 8 - 10 júlí, fór samanlögð umferð um sex mælisnið Vegagerðarinnar á Hringvegi í grennd við höfuðborgarsvæðið, í fyrsta sinn yfir meðaltal helganna 2008 - 2010, fyrir sömu helgar, sjá mynd af stöplariti. Umferðin reyndist 4,5 prósentum meiri um þá helgi en sömu helgi í fyrra.

 

Sömu sögu er ekki að segja af nýliðinni helgi, helgi en þá varð samdráttur í umferðinni, miðað við sömu helgi í fyrra eða sem nemur tæpum sjö prósentum.

 

Lesa meira
 

18.7.2011 : Myndasyrpa frá Múlakvísl

Múlakvísl 16. júlí opnunardaginn

Sólskinið skein skært daginn sem umferðinni var hleypt á nýju bráðabrigðabrúna yfir Múlakvísl. Það var líka stutt í brosið hjá mönnunum í brúarvinnuflokkum Vegagerðarinnar, verktökunum í jarðvinnunni, björgunarsveitarmönnunum, lögreglunni og öllum þeim öðrum sem höfðu komið að því að byggja brúna og tryggja ferjusamgöngur um Hringveginn.

 

Það sést á myndunum í meðfylgjandi myndasyrpu.

 

Lesa meira
 

16.7.2011 : Búið að opna fyrir umferð yfir brúna á Múlakvísl

Múlakvísl 15. júlí síðdegis

(Frétt kl. 12:45, 16. júlí) Brúarvinnuflokkar, verktakar sem komið hafa að verkinu, björgunarsveitarmenn og aðrir í ferjuflutningum gengu fylktu liði yfir hina nýju brú yfir Múlakvísl rétt yfir tólf í dag laugardag.

 

Einungis einni vikur frá því að hlaup hreif brúna frá 1990 með sér og einungis einni viku eftir að brúarsérftæðingar Vegagerðarinnar ákváðu með hvaða hætti yrði framkvæmt, og hvernig brúin yrði, hvar hún yrði o.s.frv. Það fór að nokkru eftir því efni sem til var í fórum Vegagerðarinnar.

 

Lesa meira
 

16.7.2011 : Umferð hleypt á nýju brúna á hádegi

Múlakvísl 15. júlí síðdegis

(Frétt kl. 11:20) Útlit er fyir að umferð verði hleypt á nýju bráðabrigðabrúna yfir Múlakvísl á hádegi í dag laugardag. Verkið hefur unnist ótrúlega vel og það hlýtur að teljast vel unnið verk að koma upp 156 metra langri brú yfir jökulfljót á sjö dögum, á einni viku frá hlaupi sem hreif með sér brúna sem byggð var 1990.

 

Báðir brúarvinnuflokkar Vegagerðarinnar hafa lagt við dag og nótt sem og verktakar í jarðvinnu Suðurverk og Framrás auk verktakanna Andrésar Pálmasonar og Vélsmiðju Suðurlands og fleiri sem hafa komið að verkinu á einn eða annan hátt. Allir þessir aðilar hafa lagt á sig ómælda vinnu við að takast mætti að opna Hringveginn.

Lesa meira
 

15.7.2011 : Umferð gæti komist á nýja brú á laugadag

Unnið við Múlakvísl 13. júlí

(Frétt kl. 13:00) Brúarsmíðin við Múlakvísl hefur gengið það vel að nú er reiknað með að hægt verði að hleypa umferð á brúna á laugardag eða sunnudag.

 

Eftir að búið verður að veita ánni undir nýju bráðabrigðabrúna, sem gert verður síðdegis í dag föstudag eða kl. 17:00, verður staðan metin með tilliti til þess hvenær hægt verður að hleypa umferð á brúna og opna þar með Hringveginn að nýju.

 

Tímasetningar á þessari opnun verða ekki endanlegar fyrr en á laugardagsmorgun.

 

For English click "Lesa meira".

 

Lesa meira
 

15.7.2011 : Aukinn gangur í brúarsmíðinni

Við Múlakvísl 13. júlí

(Frétt kl. 10:10) Brúarsmíði við Múlakvísl gengur mun hraðar fyrir sig en reikna mátti með. Brúin sem slík verður tilbúin í dag. Stefnt er að því að hleypa fljótinu undir nýju brúna kl. 17:00 í dag.

 

Ferjuflutningum verður því hætt tímabundið milli klukkan 17:00 og 20:00/21:00. Hvenær opnað verður aftur ræðst af því hvernig og hve fljótt áin sest aftur og hvað langan tíma tekur að útbúa öruggt vað.

 

For English click "Lesa meira".

 

Lesa meira
 

14.7.2011 : Múlakvísl í Framkvæmdafréttum

Forsíða Framkvæmdafrétta

(Frétt kl 16:30) Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar 14. tbl. er komið út í vefútgáfu en prentútgáfan kemur út á mánudag. Í þessu hefti fjallar ritstjórinn Viktor Arnar Ingólfsson um gerð bráðabrigðabrúarinnar á Múlakvísl, rekur upphafið og vinnubrögðin. Hann fer einnig yfir afhverju fjölmargar hugmyndir að öðrum lausnum ganga ekki upp.

 

Framkvæmdafréttir

 

Lesa meira
 

14.7.2011 : Hraðamyndavélar teknar í notkun í Bolungarvíkurgöngum og Héðinsfjarðargöngum.

Frá opnun Bolungarvíkurganga

Þann 15. júlí  næstkomandi verða hraðamyndavélar í Bolungarvíkurgöngum og Héðinsfjarðargöngum teknar í notkun.

 

Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og er tilgangurinn sá að draga úr ökuhraða á þjóðvegum og fækka umferðarslysum. Umferðaröryggisáætlun er hluti samgönguáætlunar.

 

Hámarkshraðinn er 70 km/klst.

 

Lesa meira
 

14.7.2011 : Miðar hratt og örugglega við Múlakvísl

Við Múlakvísl 14. júlí

(Frétt kl. 11:30) Brúarvinnuflokkar Vegagerðarinnar gefa ekkert eftir þessa dagana frekar en aðrir starfsmenn Vegagerðarinnar sem vinna hörðum höndum að því að koma upp bráðabrigðabrúnni yfir Múlakvísl og tengja Hringveginn við hana.

 

Nú í morgun voru öll okin komin upp og búið að leggja alla stálbita á þau utan tvær lengdir. Brúin verður 156 metra löng. Stutt er í að allir stálbitarnir verði komnir á sinn stað. Um 5o metrar af trégólfinu er komnir upp. Í lok dags verður allt trégólfið komið upp á brúna.

 

For English click "Lesa meira".

 

Lesa meira
 

13.7.2011 : Brúarsmíðinni fleygir fram

Múlakvísl

(Frétt kl 12:00) Brúarvinnuflokkar Vegagerðarinnar hafa látið hendur standa fram úr ermum síðustu daga og gengur brúarsmíðin vonum framar.

 

Reiknað er með að ljúka við uppsetningu okanna í dag og síðan verður haldið áfram þannig að annað kvöld eða aðfararnótt föstudagsins verði brúin tilbúin þannig að unnt verði að hleypa ánni undir hana, þótt nokkur vinna verði eftir við frágang. Þá verður eftir vinna við að hemja fljótið og stefna því undir brúna með byggingu grjótvarinna varnargarða. Í kjölfarið verður hægt að tengja veginn við brúna og koma umferð á.

 

For English click "Lesa meira".

 

Lesa meira
 

13.7.2011 : Myndasyrpa frá Múlakvísl

Múlakvísl

Viktor Arnar Ingólfsson útgáfustjóri Vegagerðarinnar var á ferð við Múlakvísl í gær og tók nokkrar myndir af brúarsmíðinni og fólksflutningum yfir fljótið.

 

Some pictures from Mulakvisl Tuesday 12th of July.

 

Lesa meira
 

13.7.2011 : Aukinn leyfilegur öxulþungi fyrir fólksflutningabifreiðar

Skilti Car Ferry Rauðavatn

(Frétt kl 11:10) Settur hefur verið 7 tonna leyfilegur hámarksöxulþungi á Dómadalsleið og á Fjallabak nyrðri.

 

Ákveðið hefur verið að gera undantekningu með fólksflutningabifreiðar og er heimilaður í þeirra tilviki 10 tonna öxulþungi.

 

For English click "Lesa meira".

 

Lesa meira
 

12.7.2011 : Flutningar yfir Múlakvísl hefjast aftur kl. 9:00 í fyrramálið (miðvikudag 13. júlí)

Múlakvísl

(Frétt kl. 18:10) Ákveðið hefur verið að hefja aftur fólks- og bílflutninga yfir Múlakvísl eftir að þeim var hætt tímabundið í dag þegar það óhapp varð að rútan með farþegum festist í fljótinu og bjarga þurfti farþegunum af þaki rútunnar.

 

Öflugri trukkur verður fenginn til fólksflutninganna og verður hann til staðar í fyrramálið þegar fólksflutningar hefjast kl. 09:00. Líkt og fyrr verða bílarnir fluttir á þremur vörubifreiðum.

 

For English click "Lesa meira".

 

Lesa meira
 

12.7.2011 : Myndir frá Múlakvísl

Múlakvísl

Vegagerðarmenn hafa staðið í ströngu síðustu daga við undirbúning og byggingu bráðbrigðabrúarinnar yfir Múlakvísl sem er farin að taka á sig mynd í dag. Þeir hafa sjaldnast tíma til að standa í myndatökum en þó hefur Bjarni Jón Finnsson yfirverkstjóri á þjónustustöð Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal náð að festa nokkur augnablik á filmu.

 

Afraksturinn er hér að finna.

 

Pictures from Mulakvisl, Sunday and Tuesday.

 

Lesa meira
 

12.7.2011 : Ákvörðun tekin á næstu 2-3 tímum

Múlakvísl JBF 9

(Frétt kl. 15:10) Ákvörðun um áframhald fólks- og bílflutninga verður tekin á næstu 2-3 tímum og á meðan verður ekki heimilt að aka yfir Múlakvísl.

 

Átján farþegar, auk bílstjórans, voru rútunni sem festist og var fólkinu bjargað af þaki hennar. Ekki urðu slys á fólki. Rútan mun ekki hafa oltið.

 

For English click "Lesa meira".

 

Lesa meira
 

12.7.2011 : Fólks- og bílflutningum hætt tímabundið

Múlakvísl

(Frétt 14:20) Flutningi á fólki og bílum yfir Múlakvísl hefur verið hætt a.m.k. tímabundið meðan ástandið er endurmetið.

Rútan sem hefur flutt fólk yfir Múlakvísl festist í ánni á öðrum tímanum í dag 12. júlí. Öllum farþegum var bjargað í land og verið er að vinna að því að koma rútunni á þurrt.

 

Engir flutningar eru því þessa stundina yfir Múlakvísl meðan ástandið er endurmetið og óljóst hvert framhaldið verður.

 

For English click "Lesa meira".

 

Lesa meira
 

12.7.2011 : Brúarsmíði gengur vel

Múlakvísl

(Frétt kl 11:45) Vel hefur gengið við brúarsmíðina við Múlakvísl í nótt. 12 staurar voru reknir niður í nótt en fyrsti staur var kominn niður klukkan hálf ellefu í gærkvöldi. Þannig eru komin upp þrjú svokölluð ok en stálbitar verða lagðir ofan á okin. Fjórða okið af alls tíu bætist við síðdegis. Reiknað er með að fyrstu stálbitar verði komnir upp síðdegis eða í kvöld.

 

Áætlun um að hægt verði að hleypa umferð á brúna uppúr miðri næstu viku stendur enn en hafa verður alla fyrirvara meðal annars með tilliti til vatnsmagns í ánni.

 

For English click "Lesa meira".

 

Lesa meira
 

12.7.2011 : Breytt skilti fyrir erlenda ferðamenn

Skilti

(Frétt kl 11:00) Skiltum fyrir erlenda ferðamenn sem verið er að koma upp í dag á sex stöðum hefur verið breytt í ljósi þess að nú er fólk og bílar ferjað yfir Múlakvísl.

 

Þannig stendur ekki lengur að vegurinn sé lokaður heldur að þar sé að finna bílferju eða bílflutning yfir ána. Sjá myndina.

 

Skiltin fara upp á sex stöðum, við Seyðisfjörð, 2 við Egilsstaði, við Kirkjubæjarklaustur, Landvegamót og Rauðavatn.

 

For English click "Lesa meira".

 

Lesa meira
 

11.7.2011 : Byrjað að reka niður staura

Múlakvísl

Undirbúningur vegna smíði bráðabrigðabrúar yfir Múlakvísl gengur vel. Á staðinn eru komnir 40 rafmagnsstaurar sem bíða þess að verða reknir niður. Samkvæmt áætlun verður hafist handa við niðurreksturinn í kvöld og unnið sleitulaust við það verk alla nóttina og áfram þar til allir eru komnir á sinn stað.

 

Nú er reiknað með að brúargerðin gæti tekið styttri tíma en fyrst var áætlað svo framarlega sem vel gengur og ekkert óvænt komi upp á. Þannig að vonast er til að bráðabrigðabrúin verði tilbúin upp úr miðri næstu viku eða undir þá helgi.

 

For English click "Lesa meira".

 

Lesa meira
 

11.7.2011 : Byrjað að ferja fólk yfir

Múlakvísl

(Frétt kl. 16:30) Farið er að ferja fólk yfir Múlakvísl en nokkur fjöldi fólks bíður eftir að komast yfir ána í rútur. Rúta og tveir trukkar eru fyrir austan til að ferja fólk og bíla yfir á vaði.

 

Útbúin hafa verið plön beggja vegna þar sem hægt er að aka bílum beint á vörubílspall. Bílaflutningar eru einnig að hefjast. Miðað er við að ferja yfir ána til að minnsta kosti 22:00 í kvöld og jafnvel til miðnættis,

 

Vörubílarnir geta tekið alla venjulega bíla. Fært er fyrir stærri fjórhjóladrifsbíla um Fjallabaksveg nyrðri.

 

For English click "Lesa meira".

 

Lesa meira
 

11.7.2011 : Skilti fyrir erlenda ferðamenn

Skilti Múlakvísl

(Frétt kl 15:10) Útbúin hafa verið snarhasti skilti til að upplýsa erlenda ferðamenn um lokun Hringvegarins vegna flóðsins sem hreif burt brúna af Múlakvísl. Sjá myndina.

 

Skiltin fara upp á sex stöðum, við Seyðisfjörð, 2 við Egilsstaði, við Klaustur, Landvegamót og Rauðavatn.

 

Skiltin verða komin upp á öllum þessum stöðum á morgun.

 

For English click "Lesa meira".

 

Lesa meira
 

11.7.2011 : Unnið af fullum krafti

Múlakvísl

(Frétt kl. 13:00) Unnið er af fullum krafti við byggingu bráðabrigðabrúar yfir Múlakvísl. Unnið er í jarðvinnu á svæðinu, m.a. fyllingu svo hægt sé að vinna á svæðinu og losun á grjóti í rofvarnir.

 

Allt efni sem þarf til byggingar brúarinnar er til þ.e.a.s. stálbitar og timbur og er unnið að flutningi þess á staðinn. Báðir brúarvinnuflokkar Vegagerðarinnar koma á staðinn í dag með lið sitt og búnað.

 

Stjórnvöld hafa heimilað Vegagerðinni að flytja megi fólk yfir vað á Múlakvísl á vörubifreið eða sérútbúinni rútu og einnig að flytja bíla yfir með vörubifreiðum. Þessir flutningar hefjast svo fljótt sem kostur er.

 

For shorter version in English click "Lesa meira" below. 

Lesa meira
 

7.7.2011 : Reykjanesbraut - Undirgöng við Straumsvík

Undirgöng við Sraumsvík

Vegna mikillar umferðar á Reykjanesbraut er þörf á að koma fyrir undirgöngum norðaustan við núverandi innkeyrslu að Álverinu í Straumsvík.
Byggð verða undirgöng undir Reykjanesbraut ásamt tilheyrandi vegtengingum og mun framkvæmdin auka umferðaröryggi til muna, þar sem ekki þarf lengur að þvera aðra umferð til og frá svæðinu.

Lesa meira
 

4.7.2011 : Nýjustu tölur af helgarumferð

Heildarumferð á 6 talningarstöðum

Heldur minni umferð mældist nú um ný afstaðna helgi, sem var fyrsta helgin í júlí, m.v. sömu helgi árið 2010 í sex mælipunktum á Hringvegi út frá Höfuðborgarsvæðinu.  Nam samdrátturinn samanlagt um 11%.   
Umferðin dróst saman um  tæp 18% austur fyrir fjall en mun minna í norður eða rétt rúmlega 2%.

Lesa meira
 

1.7.2011 : Er umferðin á Hringvegi að rétta úr kútnum?

Umferðin i juni

 

Samdrátturinn í umferðinni minnkar mikið því á 16 mælipunktum á Hringvegi varð aðeins 0,4 prósentum minni umferð í júní 2011 miðað við sama mánuð árið 2010. Þetta er lang minnsti samdráttur sem mælst hefur á þessu ári, milli einstakra mánaða.

 

Þegar árið er hálfnað, hefur umferðin í 16 mælipunktum á Hringvegi, dregist saman um 7 prósent, miðað við árið 2010.

Lesa meira
 

30.6.2011 : Ökufær? - Leiðbeiningar til ökumanna um áhrif heilsu á akstur og umferðaröryggi

Ökufær? - forsíða

Áhrif heilsu og veikinda á akstur og umferðaröryggi  hefur lengi verið áhyggjuefni í umræðu um umferðaröryggi.  Þar spila inn í sjúkdómar, aldur, lyfjanotkun og aðrir þættir.

Margir þessara þátta hafa verið rannsakaðir og birtir í vísindaritum og á öðrum vettvangi, en niðurstöðurnar ná sjaldan sjónum almennra ökumanna og er meðfylgjandi kynningarriti ætlað að bæta úr því.

Lesa meira
 

29.6.2011 : Vegagerðin sýknuð af kröfu ÍAV vegna útboðs Héðinsfjarðarganga

Héðinsfjörður

Vegagerðin (Íslenska ríkið) var 29. júní sýknuð af kröfu Íslenskra aðalverktaka hf og NCC International as um skaðbætur vegna þess að hætt var við fyrra útboð Héðinsfjarðaganga, árið 2003. 

 

Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að ÍAV og NCC hefðu ekki sýnt fram á að um tjón hefði verið að ræða. Dómurinn hafnaði útreikningum þess efnis og einnig lægri útreikningum matsnefndar þar sem þeir útreikningar hefðu byggst á sömu forsendum og upplýsingum og útreikningar ÍAV. Kröfunni var því hafnað. 

Lesa meira
 

29.6.2011 : Leiðbeiningar um mælingar í vegagerð

Mælingar

Út er komið leiðbeiningarit hjá Vegagerðinni um mælingar í vegagerð. Ritið er hugsað til að samræma vinnulag og mæliaðferðir og er það von höfunda að þessar leiðbeinandi vinnulýsingar verði til að samræma vinnulag og vinnuaðferðir mælingamanna Vegagerðarinnar og þeirra sem sinna slíkum verkefnum fyrir stofnunina.

 

Ritið er hér að finna. Leiðbeiningarnar voru unnar fyrir fé úr Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.

 

Lesa meira
 

28.6.2011 : Vegagerðin sýknuð af kröfu Ósafls sf

Bolungarvíkurgöng við opnun

Vegagerðin var í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku sýknuð af kröfu Ósafls sf. upp á ríflega 50 milljónir króna auk dráttarvaxta vegna vinnu við gerð Bolungarvíkurganga. Krafan var byggð á því að verðbætur hefðu orðið þetta minni en ella vegna lagabreytinga sem höfðu áhrif á byggingavísitöluna.

 

Kröfunum var hafnað og Ósafl sf auk þess dæmt til að greiða málskostnað. 

 

Lesa meira
 

27.6.2011 : Djúpvegur (61) um Seljalandsós og Seljalandsá í Álftafjarðarbotni

Djúpvegur um Seljalandsós

Vegagerðin kynnir með skýrslu þessari fyrirhugaðar endurbætur á 0,6 km kafla á Djúpvegi (61) um Seljalandsós og Seljalandsá í Álftafjarðarbotni í Súðavíkurhreppi.

Ríkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum á Ísafirði þann 5. apríl 2011 að veita 350 m.kr. til vegagerðar á Vestfjörðum, umfram þær fjárveitingar sem eru á samgönguáætlun. Vegagerðinni er falið faglegt val á verkefnum.

Lesa meira
 

27.6.2011 : Helgarumferðin þyngist

Helgarumferðin

Umferðin á sex völdum talningarstöðum út frá höfuðborginni um helgina sem var að líða reyndist töluvert meiri en um helgina fyrir viku en var eigi að síður nokkuð minni en um sömu helgi í júní í fyrra. Umferðin austur fyrir fjall var sú sama og í fyrra en töluvert minni umferð reyndist á norðurleiðinni.

 

Helgarumferðin í júní, allar helgar á þessum sex talningarstöðum, reyndist 6,3 prósentum minni en í júní í fyrra. Samkvæmt reynslu má búast við að næstu 3-4 fjórar helgar verði svipaðar varðandi umferðina en líklegt má telja að veðrið hafi nokkuð að segja um þróunina.

Lesa meira
 

24.6.2011 : Tilraun með vörn fyrir bifhjólafólk

Vegrið tilraunaverkefni

Vegfarendur um Hafnarfjarðarveginn sunnan Kópavogs hafa tekið eftir viðbótum á vegriðunum, gulum og gráum. Um er að ræða undirakstursvarnir og eru þær fyrst og fremst hugsaðar vegna bifhjólafólks. Verið er að skoða tvær tegundir með tilliti til íslenskra aðstæðna.

 

Sniglarnir og Vegagerðin vinna að þessari könnun saman en til hennar fékkst styrkur úr Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar. 

 

Lesa meira
 

24.6.2011 : Upphéraðsvegur (931), Skeggjastaðir-Teigaból

Upphéraðsvegur - Yfirlitskort

Vegagerðin undirbýr lagfæringar á Upphéraðsvegi á milli Skeggjastaða og Teigabóls. Um er að ræða styrkingu á núverandi vegi og lagningu bundins slitlags á um 3 km löngum kafla.


Einnig verða vegfláar lagfærðir, ræsi lengd og tveir skurðir grafnir meðfram veginum, samtals 640 m.

Lesa meira
 

22.6.2011 : Mikil umferð um nýju göngin

Héðinsfjörður meðalumferð

Þrátt fyrir almennan samdrátt í umferðinni stendur umferð um Bolungarvíkurgöng og Héðinsfjarðargöng undir þeim væntingum sem til þeirra voru gerðar.

 

Umferðin það sem af er ári var um 6 prósentum meiri um Bolungarvíkurgöng en um Óshlíðina á sama tímabili í fyrra.

Þá fóru að meðaltali um 470 bílar á sólarhring um Héðinsfjarðargöng á fyrri hluta árs en meðalumferðarspá Vegagerðarinnar, á sínum tíma, gerði ráð fyrir um 350 bílum/sólarhring, við opnun ganganna. Ekki þótti ástæða til að breyta þeirri spá þótt opnun ganganna hefði tafist.

Lesa meira
 

21.6.2011 : Meiri snjór á hálendinu

Á Bláfellshálsi á Kjalvegi

Ástæða þess að fjallvegir á hálendinu opnast seinna í ár en undanfarin ár er fyrst og fremst sú að það er meiri snjór á hálendinu en venjulega. Þrátt fyrir það hefur verið mokaður snjór á fjallvegum í ár og í sumum tilvikum eins og á Kjalvegi nokkuð meira en gert hefur verið síðastliðin ár.

 

Mokað hefur verið í gegnum nokkur höft undanfarnar vikur. Reiknað er með að Kjalvegur og Fjallabaksleið nyrðri opnist um miðja næstu viku.

Lesa meira
 

21.6.2011 : Framkvæmt fyrir 6 milljarða 2011

Framkvæmdir 2011

Athygli hefur vakið hversu lítið hefur verið auglýst af útboðum hjá Vegagerðinni að undanförnu. Ástæðan er fyrst og fremst sú að stór hluti þeirrar upphæðar sem er til ráðstöfunar í ár til nýframkvæmda, tæpir 6 milljarðar króna, fer til verkefna sem boðin voru út á síðasta ári eða jafnvel fyrr.

 

Það er frekar regla en undantekning að öll stærri vegagerðarverk eru unnin á tveimur og jafnvel þremur árum.

Lesa meira
 

20.6.2011 : Ekkert lát á minnkun umferðar

Helgarumferðin

Umferðin um nýliðna helgi reyndist um 12 prósentum minni en um sömu helgi fyrir ári síðan. Umferðin var einnig um 5,5 prósentum minni en um helgina fyrir, Hvítasunnuhelgina. Tölurnar miðast vi sex valda talningarstaði á Hringvegi út frá höfuðborginni 

 

Meira dró úr umferðinni austur fyrir fjall en norður í land að þessu sinni. hafa ber í huga að fyrir ári síðan bar 17. júní upp á fimmtudag.

 

Lesa meira
 

14.6.2011 : Umferðin um Hvítasunnuhelgina

Umferð á Suðurlandsvegi

Umferðin um helgina síðustu var töluvert meiri en um sömu helgi í júní árið 2010, en hinsvegar var hún minni en um Hvítasunnuhelgina fyrir ári síðan þótt helgin sú væri fyrr á árinu eða 22. - 24. maí.

 

Erfitt er að bera saman umferðina á þennan hátt milli ára enda helgarnar mjög misjafnar og ber að hafa á þann fyrirvara. Umferðin á föstudegi, laugardegi og sunnudegi er borin saman. Til að auka á óvissuna var teljari á Hellisheiði bilaður um helgina.

 

Lesa meira
 

10.6.2011 : Minna dregur úr akstri innan höfuðborgarsvæðisins

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu

Heldur dró minna úr akstri innan höfuðborgarsvæðsins í maí mánuði en spá Vegagerðarinnar gerði ráð fyrir. Eigi að síður var ekið 3,7 prósentum minna í maí í ár en í sama mánuði í fyrra á þremur völdum mælipunktum á höfuðborgarsvæðinu.

 

Spá Vegagerðarinnar gerir ráð fyrir að samdráttur verði einnig í júní en þó minni eða 2,6 prósent.

Lesa meira
 

9.6.2011 : Lítil umferð fyrstu sumarhelgina

Helgarumferðin júní

Helgarumferðin um síðustu helgi var nærri 14 prósentum minni en hún var í fyrra. Meiri samdráttur er í norður frá höfuðborginni en í austur.

 

Vegagerðin hefur síðan 2008 birt tölur um helgarumferðina út frá Reykjavík og miðað við sex valda talningarstaði. Fyrsta helgin í júní í ár reynist umferðarminnsta helgin til þessa.

 

Lesa meira
 

1.6.2011 : Enn dregur úr umferð á Hringvegi

Umferðin í maí og spá út árið

Umferðin í maí 2011 á 16 völdum talningarstöðum á Hringvegi var 10 prósentum minni en í sama mánuði í fyrra. Frá áramótum nemur samdrátturinn tæpum 9 prósentum. Þetta er gífurlega mikill samdráttur í sögulegu samhengi.

 

Umferðin dregst mest saman á Suðurlandi en minnst í grennd við höfuðborgina. Miðað við spá Vegagerðarinnar stefnir í samdrátt á árinu sem nemur 8-9 prósentum. Það er metsamdráttur síðan 1975 og er þrisvar sinnum meiri samdráttur en hann hefur orðið mestur áður.

Lesa meira
 

31.5.2011 : Snjóflóðavarnir á Ólafsfjarðarvegi við Sauðanes

Snjóflóðavarnir á Ólafsfjarðarvegi við Sauðanes

 

Vegagerðin fyrirhugar að koma upp snjóflóðavörnum á Ólafsfjarðarvegi við Sauðanes.

 

Gerðir verða þrír svokallaðir snjóflóðaskápar ofan við veginn og sett upp stálþil framan við skápana. Verður þetta gert í þremur giljum þar sem snjóflóð eru mjög algeng.

 

Lesa meira
 

31.5.2011 : Norrænu brúarverðlaunin 2012

Merki NVF

Norrænu brúarverðlaunin eru veitt fjórða hvert ár og eru kynnt af Norræna vegasambandinu (NVF) og brúatækninefndum NVF.  Þau eru veitt fyrir framúrskarandi framlag á sviði brúarverkfræði, með sérstöku tilliti til notagildis þeirra á Norðurlöndum.

 

Verðlaunin eru veitt eiganda brúarinnar, eða fulltrúa hans við hátíðlega athöfn á Via Nordica 2012 ráðstefnunni,  sem haldin verður í Reykjavík 11. – 13.  júní 2012.

Lesa meira
 

30.5.2011 : Hraðamyndavélar teknar í notkun á Hringvegi á Kjalarnesi

Hringvegur á Kjalarnesi við Árvelli

Þann 1. júní  næstkomandi verða tvær hraðamyndavélar á Hringvegi á Kjalarnesi við Árvelli teknar í notkun.

 

Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og er tilgangurinn sá að draga úr ökuhraða á þjóðvegum og fækka umferðarslysum. Umferðaröryggisáætlun er hluti samgönguáætlunar.

 

Lesa meira
 

27.5.2011 : Hæstiréttur dæmir Vegagerðinni í hag

Norðausturvegur

Hæstiréttur sýknaði þann 26. maí Vegagerðina af kröfu Ístaks hf sem krafðist ríflega 234 milljóna króna þar sem kostnaður við vinnslu í bergi hefði reynst mum meiri en vænta mátti af útboðsgögnum við vegagerð á Tjörnesi. Vegagerðin hélt því fram alls ekki hefði mátt gera ráð fyrir því að berg væri í öllum skeringum auðsprengjanlegt með venjulegum aðferðum. Þvert á móti mátti hann ráða af lestri útboðsgagna að búast mætti við erfiðleikum við sprengingar eins og raunin varð.

 

Sýknað var á grundvelli þess hversu seint Ístak hf gerði fyrirvara um þetta og hefði því fyrirgert rétti sínum til frekari greiðslna.

Lesa meira
 

25.5.2011 : 30 milljónir aukalega í malarvegi á Vestfjörðum

Unnð við malarveg.

Vegamálastjóri ákvað nýlega að veita aukalega 30 milljónum króna til viðhalds á malarvegum á sunnanverðum Vestfjörðum. Með því er vænst að vegirnir verði í heldur betra ástandi í sumar en verið hefur undanfarin ár þótt rétt sé að taka fram að þetta veldur engri byltingu en bætir ástandið nokkuð.

 

Féð verður notað á Dynjandisheiði, Vestfjarðavegi, Ketildalavegi, Örlygshafnarvegi og víðar.

 

Lesa meira
 

20.5.2011 : Samgönguþing 2011

Samgönguþing

Samgönguþing sem haldið var 19. maí sl. fjallaði meðal annars um drög Samgönguráðs að stefnumótun fyrir samgönguáætlun 2011 - 2022. Unnið verður áfram með áætlunina í sumar er ráðgert er að leggja hana fyrir Alþingi í haust.

 

Í stefnumótuninni er að finna markmið um helstu þætti samgöngáætlunar þ.e.a.s. um greiðar samgöngur, um umhverfislega sjálfbærar samgöngur, um hagkvæmar samgöngur, um öryggi í samgöngum og um jákvæða byggðaþróun.

 

Lesa meira
 

12.5.2011 : Bundið slitlag á umferðarlitla vegi - reglur

Dæmi um umferðarlítinn veg

Vegagerðin hefur gefið út viðbótarreglur varðandi lagningu bundins slitlangs á umferðarlitla tengi- og héraðsvegi. Um er að ræða breytingu á stefnu um notkun nýrra veghönnunarreglna.

 

Markmiðið er að nota reglurnar við lágmarksaðgerðir við styrkingu vega og lagningu bundins slitlags þegar ekki er unnt að endurgera veginn samkvæmt fyllstu reglum um fyrirsjáanlega framtíð. Alls eru 380 milljónir króna settar í þetta verkefni á fjárlögum 2011. Ef vel gengur hefur Vegagerðin hug á að halda þessu áfram og auka á næstu árum.

 

Lesa meira
 

11.5.2011 : Áratug aðgerða hleypt af stokkunum

Áratugur aðgerða

Markmið átaksins "Áratugur aðgerða - herferð um umferðaröryggismál" er að draga úr banaslysum og alvarlegum slysum í umferðinni á heimsvísu næstu 10 árin og er hvert og eitt aðildarland Sameinuðu þjóðanna hvatt til að setja fram áætlun um aðgerðir í þeim efnum. 

 

Innanríkisráðherra hleypti verkefninu af stokkunum, að viðstöddum forseta Íslands og velferðarráðherra í dag miðvikudaginn 11. maí,  að því loknu sleppti nemendahópur úr Laugarnesskóla 201 blöðru í loftið sem táknræna minningu um þá sem létust í umferðarslysum árin 2001 til 2010.

 

Lesa meira
 

10.5.2011 : Framkvæmdir við Suðurlandsveg hafnar aftur

Framkvæmdir við Suðurlandsveg

Um mánaðamótin apríl/maí hófst vinna við tvöföldun Suðurlandsvegar að nýju eftir vetrarhlé. Verktaki vinnur nú að því að fjarlægja farg sem sett var á hluta vegarins.

 

Fljótlega verður einnig hafist handa við gerð reiðganga við Litlu Kaffistofuna og einnig verður hafist handa við breikkun brúar yfir Fóelluvötn.

Lesa meira
 

5.5.2011 : Reykjanesbraut - Undirgöng við Grænás

Undirgöng við Grænás - Yfirlitsmynd

Verkið felst í byggingu undirganga norðan hringtorgsins við Grænás, gerð framhjáhlaups í Reykjanesbraut vegna framkvæmdarinnar ásamt lagningu aðliggjandi göngu-, hjól- og reiðstíga.


Framkvæmdin innifelur einnig að annast flutning / endurnýjun kaldavatnslagnar austan Reykjanesbrautar næst undirgöngunum í samráði við HS Veitur.

Lesa meira
 

4.5.2011 : A.m.k sex óska eftir að gera tilboð í Vaðlaheiðargöng

Forval Vaðlaheiðarganga

Alls hafa sex aðilar skilað inn gögnum vegna forvals Vaðlaheiðarganga, hugsanlega berast gögn frá fleiri þátttakendum þar sem gögn með póststimpli fyrir klukkan 16:00 3. maí eru gild.

 

Þeir sem hafa óskað eftir að fá að gera tilboð í Vaðlaheiðargöng eru IAV/Marti, Ístak hf., Metrostav-Suðurverk, Norðurverk, Per Aarsleff-JPK JV og Leonhard Nilsen & Sønner AS.

Lesa meira
 

4.5.2011 : Fjórar einbreiðar brýr hverfi

Brú yfir Hrísnesá

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum á Ísafirði 5. apríl að ráðast í verkefni í vegagerð á Vestfjörðum fyrir 350 milljónir króna til viðbótar við verkefni á samgönguáætlun.

 

Vegagerðin hefur gert tillögu um að fjórar einbreiðar brýr á Djúpvegi og Barðastrandavegi verði breikkaðar þ.e.a.s. byggðar verði nýjar brýr á Seljalandsós og Seljalandsá á Djúpvegi (61), ný brú verði byggð á Raknadalsá á Barðastrandarvegi (62) og að ræsi komi í stað einbreiðrar brúar á Hrísnesá sem einnig er á Barðastrandarvegi (62)

Lesa meira
 

3.5.2011 : Meiri umferð í höfuðborginni í apríl

Umferðin í höfuðborginni

Umferð jókst um 0,5% á milli aprílmánaða 2011 og 2010 í þremur mælisniðum innan höfuðborgarsvæðisins. Er þetta í fyrst sinn á þessu ári sem umferð eykst á milli samanburðarmánaða 2011 og 2010.

 

Ástæða aukningar nú kann að vera sú að borgarbúar hafi farið minna út á land yfir páskana nú en oft áður, sem skýrir að hluta til mikinn samdrátt á Hringvegi og þessa aukningu innan borgarmarka, í apríl.

Lesa meira
 

2.5.2011 : Minni umferð í apríl

Umferðin í apríl - graf

Í apríl reyndist umferðin á 16 völdum talningarstöðum á Hringvegi tæpum sex prósentum minni en í sama mánuði í fyrra. Eldgosin í Fimmvörðuhálsi og Eyjafjallajökli hafa áhrif í þá veru að umferð dregst verulega saman í apríl mánuði 2011 á Suðurlandi. Hinsvegar eykst umferð í apríl á Norðurlandi og Austurlandi.

 

Eigi að síður litur út fyrir með sama áframhaldi að samdráttur verði mjög miikill í umferðinni í ár og gæti orðið ríflega átta prósenta samdráttur. Umferðin í sumar mun þó mestu ráða um það.

Lesa meira
 

2.5.2011 : Langflestir vilja breikka vegi

Viðhorfskönnun

Langflestir aðspurðra vilja breikka vegi í nýrri viðhorfskönnun sem Maskína vann fyrir Vegagerðina um þjóðvegi landsins. Þetta er mikil breyting frá sambærilegri könnun fyrir ári síðan þegar langflestir vildu auka hálkuvarnir sem nú er í þriðja sæti. Næst helst vill fólk bæta vegina eða slitlagið.

 

Um 52 prósent eru mjög eða frekar jákvæð í garð Vegagerðarinnar, um 37 prósent hvorki né en ríflega tíundi hver er frekar eða mjög neikvæður í garð Vegagerðarinnar. Fjölgar örlítið í þeim hópi frá síðustu könnun.

Lesa meira
 

20.4.2011 : Axarvegur og Berufjarðarbotn: Verulega neikvæð áhrif

Axarvegur - Yfirlitsmynd

Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum Axarvegar og Hringvegar um Skriðdal og Berufjarðarbotn.

 

Helstu niðurstöður Skipulagsstofnunar eru að fyrirhugaðar framkvæmdir muni hafa verulega neikvæð áhrif á stórbrotið og tilkomumikið landslag á 6-7 km kafla í Berufjarðardal. Þá telur Skipulagsstofnun að veglagning um Berufjarðarbotn sem mun raska leirum muni hafa verulega neikvæð og óafturkræf áhrif á fugla og leirur sem njóta sérstakrar verndar skv. lögum um náttúruvernd.

Lesa meira
 

19.4.2011 : Mótorhjólin mæta á göturnar!

Mótorhjól í Hvalfirði

Einn af okkar ágætu vorboðum eru mótorhjólin. Reikna má með verulegri aukningu mótorhjóla á götum og vegum landsins á næstu dögum og vikum.

 

Vegagerðin vill benda mótorhjólafólki á að víða er lausmöl og sandur á vegum eftir veturinn og þess vegna þarf að gæta sérstakrar varúðar. Þá getur einnig verið steinlos á nýklæðingum yfirlögnum sem lagðar voru í fyrrahaust og þá sérstaklega í vegköntum.

 

Lesa meira
 

14.4.2011 : Framkvæmdir hafnar aftur í Mosfellsbæ

Seinni áfangi framkvæmda

Framkvæmdir við seinni hluta tvöföldunar Hringvegar ( Vesturlandsvegar ) um Mosfellsbæ milli Hafravatnsvegar og Þingvallavegar hófust í lok mars. Nú er unnið við kaflann frá Álafossvegi að Þingvallavegi.

 

Endanleg verklok eru áætluð í lok september 2011. Á framkvæmdatímanum verður reynt sem kostur er að takmarka truflanir á umferð. Verkið er í sameiginlegri forsjá Vegagerðarinnar og Mosfellsbæjar og verktaki er ÍAV hf.

 

Lesa meira
 

13.4.2011 : Tíu milljarðar á 10 árum

Fundur um almenningssamgöngur

Innanríkisráðherra Ögmundur Jónasson kynnti á morgunverðarfundi um almenningssamgöngur að samgönguráð legði til að ríkið setti tíu milljarða króna á tíu árum í tilraunverkefni á mót framlagi sveitarfélaga. Þannig rynni einn milljarður króna frá ríkinu árlega til verkefnisins sem yrði síðan endurmetið á tveggja ára fresti.

 

Um er að ræða almenningssamgöngur í þéttbýli. Ríkið hefur lítið sem ekkert komið að þeim þætti en hinsvegar hefur verið veittur styrkur til almenningssamgangna á landsbyggðinni, til ferja, vegna sérleyfa og til flugs eða sem nemur um 10 prósentum af fé til vegamála.

 

Lesa meira
 

12.4.2011 : Herjólfur siglir á Þorlákshöfn fram yfir páska

Herjólfur

Í frétt frá Siglingastofnun 11.4. sl. kemur fram að framundan séu miklir umhleypingar og miðað við ölduspá verði ölduhæðin yfir 2 m fram til 20. apríl . Jafnframt segir að það þurfi fáeina daga við góðar aðstæður til að opna höfnina eftir að veður gengur niður.


Mikilvægt er að vissu og öryggis gæti í samgöngum á milli lands og Eyja, ekki síst á dögunum í kringum páska þegar margir landsmenn eru á faraldsfæti. Brýnt er, að farþegar hafi vissu fyrir því hvert verður siglt og hvenær. Því þykir nauðsynlegt að tilkynna, að Þorlákshöfn muni þjóna Herjólfi þangað til Landeyjahöfn verður nothæf. Ekki er nú útlit fyrir, að það verði fyrr en eftir páska og munu bókanir í skipið taka mið af því.

Lesa meira
 

12.4.2011 : Undanþága vegna ökurita framlengd

Umferðareftirlitið að störfum

Innanríkisráðherra hefur skrifað undir breytingu á reglugerð um aksturs- og hvíldatíma ökumanna þess efnis að framlengd verði ótímabundið undanþága frá því að setja ökurita í hópbifreiðir til farþegaflutninga í atvinnuskyni sem skráðar eru fyrir 10 til 17 manns með ökumanni.

 

Áskilið er hins vegar að hópbifreiðar fyrir 10 til 17 manns að ökumanni meðtöldum sem fluttar verða inn eftir 1. júlí næstkomandi séu búnar ökurita.

 

Þetta kemur fram á vef innanríkisráðuneytisins.

Lesa meira
 

8.4.2011 : Kærleiksvika á Þórshöfn

Kærleiksvika á Þórshöfn

Um þessar mundir stendur yfir kærleiksvika í Grunnskólanum á Þórshöfn. Vegagerðarmenn á Þórshöfn voru fyrstir þorpsbúa til að taka við kærleiksknúsi frá hópi skólabarna og kennara.

 

Það kom okkar mönnunum mikið á óvart þegar hópurinn mætti til þeirra í morgun og kallaði þá út til knúss.

Eins og meðfylgjandi myndir bera með sér voru það margir sem þurfti að knúsa og eru starfsmennirnir enn að jafna sig.

Lesa meira
 

7.4.2011 : Vefmyndavél Vegagerðarinnar til hjálpar

Frétt á visi.is

Ökumaður sem festi bíl sinn í snjó á Öxnadalsheiði í nótt hringdi í lögregluna til að fá aðstoð en átti erfitt með að átta sig á því hvar hann var. Lögreglan fann út úr því með því að líta á vefmyndavélar Vegagerðarinnar.

 

Áður en til þess kom að senda hjálp á staðinn kom flutningabíll að og aðstoðaði manninn. Sagt var frá þessu á Bylgjunni í morgun og á visi.is

Lesa meira
 

6.4.2011 : Ríflega 6% minni umferð á höfuðborgarsvæðinu í mars

Umferðin í mars

Umferð um Höfuðborgarsvæðið dregst saman um 6,3% að meðaltali milli marsmánaða 2010 og 2011, miðað við þrjú mælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu.

 

Mest dregst umferð saman á Hafnarfjarðarvegi eða rúmlega 8%.  Frá áramótum hefur umferðin dregist saman um 4,4%, sé tekið mið af þessum þremur mælisniðum.

 

Lesa meira
 

5.4.2011 : Framkvæmdir Vegagerðarinnar

Útboðsþing

Samtök iðnaðarins halda árlega útboðsþing þar sem kynntar eru verklegar framkvæmdir ársins. Á þinginu í ár voru kynntar opinberar framkvæmdir fyrir 51 milljarð króna. Vegagerðin var á meðal þeirra sem kynntu framkvæmdir ársins 2011.

 

Fjárveitingar til nýframkvæmda nema um 6 milljörðum króna hjá Vegagerðinni en hluti þess fjár fer til verka sem þegar hafa hafist svo sem Suðurstrandavegar, Vopnafjarðartengingar og Suðurlandsvegar. Fé til nýrra verka nemur 3,1 milljarði króna.

Lesa meira
 

1.4.2011 : Mikill samdráttur í mars

Umferðin í mars

Umferðin í mars dróst saman um 15,5 prósent samanborið við sama mánuð fyrir ári síðan. Samdráttur er á öllum 16 völdu talningarstöðum Vegagerðarinnar. Alltaf eru miklar sveiflur í umferðinni þessa mánuði vegna rysjótts veðurfars og eftir því hvenær páskarnir eru hverju sinni.

 

Gosið í Eyjafjallajökli leiðir til þess að á Suðurlandi mælist samdráttur meiri en ella enda jókst umferðin í mars í fyrra mjög mikið. Verulegum samdrætti er spáð út árið haldi þessi þróun áfram.

Lesa meira
 

30.3.2011 : Meiri umferð um Héðinsfjörð en reiknað var með

Umferð um Héðinsfjarðargöng

Meðalumferð um Héðinsfjarðargöng í vetur hefur verið 382 bílar á sólarhring. Þetta er ríflega það sem hönnunarforsendur gerðu ráð fyrir varðandi meðalumferð alls ársins. Meðalumferð að vetri er að öllu jöfnu minni en meðalumferð ársins. Reiknað var með 350 bíla umferð á dag að meðaltali allt árið (ÁDU) en miðað við spá fyrir árið má reikna með að umferðin gæti orðið 450 ÁDU árið 2011.

 

Umferð um Múlagöng jókst um 20 prósent í nóvember og desember í fyrra.

Lesa meira
 

29.3.2011 : 185 umsóknir um rannsóknastyrk bárust

Rannóknarradstefna 2010

Alls voru 89 rannsóknaverkefni af 185 sem sóttu um í rannsóknasjóð Vegagerðarinnar fyrir árið 2011 styrkt að þessu sinni. Sótt var um fyrir nærri 370 milljónir króna en einungis voru 128 milljónir króna til ráðstöfunar.

 

Styrkir voru frá 140 þúsund krónum upp í 4 milljónir. Af þessum 89 verkefnum eru tæplega helmingur (42) ný, en hitt eru flest framhaldsverkefni frá fyrra ári.

 

Lesa meira
 

29.3.2011 : Fundur samgöngunefndar um Vaðlaheiðargöng

Fundur samgöngunefnd Alþingis

Samgöngunefnd Alþingis  hélt í síðustu viku opinn fund um Vaðlaheiðargöng. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, Hreinn Haraldsson vegamálastjóri, Kristín H. Sigurbjörnsdóttir framkvæmdastjóri stjórnarformaður Vaðlaheiðarganga hf, Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB og Jón Þorvaldur Heiðarsson, sérfræðingur við Háskólann á Akureyri.

 

Sjá hér upptöku frá fundinum.

 

Lesa meira
 

25.3.2011 : Brú og virkjun í Ölfusá

Undirritun viljayfirlýsingar

Vegagerðin og sveitarfélagið Árborg undirrituðu í dag 25. mars viljayfirlýsingu um að gera könnun á hagkvæmni sameiginlegs brúar- og virkjunarmannvirkis í Ölfusá vegna undirbúnings færslu Hringvegar 1 framhjá Selfossi í samræmi við samgönguáætlun.

 

Í þessu felst að Vegagerðin og Árborg hyggjast nýta tækifærið vegna brúarsmíðar yfir Ölfusá að kanna mögulegt hagræði af þeirri framkvæmd. Vegagerðin samþykkir að sameiginlegt mannvirki verði metið sem valkostur við gerð brúar yfir Ölfus á. Fyrirvari er um tímasetningar fjárveitingar og niðurstöður umhverfismats.

Lesa meira
 

25.3.2011 : Fjölsóttur fundur um Norðfjarðargöng

Fundur um Norðfjarðargöng

Innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, sagði á íbúafundi í Neskaupsstað 23. mars að ekki væri hægt að lofa því hvað yrði á fjárlögum næsta árs varðandi Norðfjarðargöng. 

 

Hreinn Haraldsson vegamálastjóri kynnti framkvæmdina og benti einnig á að jarðgöng síðustu tíu ára hefðu verið fjármögnuð með beinu framlagi úr ríkissjóði en ekki af almennu vegafé eða mörkuðum tekjum. Fram kom hjá honum að miðað við fjárveitingar yfirstandi árs til nýframkvæmda tækju Norðfjarðargöng helming þeirrar upphæðar á hverju ári til framkvæmda.

Lesa meira
 

21.3.2011 : Veggjöld með skilyrðum

Breikkun Suðurlandsvegar fundur

Samtök sveitarfélaga á Suðurlandi (SASS) héldu í síðustu viku fund með innanríkisráðherra, vegamálastjóra og þingmönnum kjördæmisins um breikkun Suðurlandsvegar. Á fundinum lögðu fulltrúar SASS fram tvær tillögur varðandi málið og er í annarri þeirra fallist á veggjöld með skilyrðum.

 

Fundurinn var haldinn í kjölfar fundar um sama mál í innanríkisráðuneytinu í byrjun árs. Sjá líka frétt innanríkisráðuneytisins um fundinn en hann var haldinn á Selfossi.

Lesa meira
 

14.3.2011 : Kostnaður við Héðinsfjarðargöng

Héðinsfjarðargöng

Í umræðu um Héðinsfjarðargöng hafa komið upp villandi upplýsingar um kostnað við göngin og samanburð á upphaflegri áætlun og endanlegri útkomu.

 

Uppreiknuð upphafleg áætlun er 12,1 milljarðar króna en uppreiknaður heildarkostnaður nam 14,2 milljörðurm króna.

Lesa meira
 

14.3.2011 : Undanþáguákvæði um ökurita falla úr gildi 15. apríl

Umferðareftirlit

Þann 15. apríl næstkomandi falla úr gildi undanþáguákvæði í reglugerð um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit frá 6. júlí 2010. Undanþága fyrir 9-17 manna hópbíla frá því að nota ökurita fellur úr gildi. Einnig falla þá úr gildi undanþágur í greinum 7. og 9. í reglugerðinni um aksturstíma og hlé frá akstri.

 

Vakin er athygli á þessu.

 

Lesa meira
 

10.3.2011 : Nýframkvæmdir á árinu 2011

Framkvæmdir við Hófaskarðsleið 2010

Á samgönguáætlun 2009- 2012 sem samþykkt var sumarið 2010 var áætlað að 7,5 milljarðar króna færu til nýframkvæmda (stofnkostnaðar) á árinu 2011. Á fjárlögum sem samþykkt voru nú fyrir áramótin var hinsvegar dregið úr því og settir tæpir 6 milljarðar króna í nýframkvæmdir ársins.

 

Stór hluti þess fjár fer til verka sem þegar eru hafin. Má nefna Suðurlandsveg, Suðurstrandaveg, Vopnafjarðatengingu, Bræðratunguveg um Hvítá og Vestfjarðaveg.

 

Lesa meira
 

10.3.2011 : Axarvegur, Hringvegur í Skriðdal og Hringvegur um Berufjarðarbotn - Matsskýrsla

Axarvegur - Yfirlitsmynd

Vegagerðin hefur lagt fram matsskýrslu fyrir Axarveg, Hringveg í Skriðdal og Hringveg um Berufjarðarbotn sem unnin er á grundvelli frummatsskýrslu. Framkvæmdin ber heitið Axarvegur (939), Hringvegur (1) í Skriðdal og Hringvegur (1) um Berufjarðarbotn.

Í skýrslunni er gerð grein fyrir framkomnum athugasemdum og umsögnum við frummatsskýrslu og tekin afstaða til þeirra.

Lesa meira
 

9.3.2011 : Stofnfundur Vaðlaheiðarganga hf.

Vaðlaheiðargöng hf. undirskrift

Stofnfundur Vaðlaheiðarganga hf. var haldinn á Akureyri í dag 9. mars. Félagið mun annast gerð Vaðlaheiðarganga og er í eigu Vegagerðarinnar  sem fer með 51 prósents hlut og Greiðrar leiðar ehf. sem fer fyrir 49 prósentum.

 

Forvalsgögn eru nánast tilbúin og verða send út fljótlega. Áætlað er að bjóða út verkið í vor. Reiknað er með að framkvæmdir geti hafist í haust og að þeim ljúki og göngin opni fyrir árslok 2014.

 

Lesa meira
 

4.3.2011 : Mesti samdrátturinn til þessa

Umferðin með spá fyrir 2011

Sláandi mikill samdráttur er í umferð um Hringveg á 16 mælipunktum Vegagerðarinnar tvo fyrstu mánuði ársins borið saman við sama tíma árið 2010. Um er að ræða mesta samdrátt á viðmiðunartímabilinu til þessa.

 

Samdrátturinn nemur ríflega sex prósentum samanlagt í janúar og febrúar og nemur 5,2 prósentum í febrúar. Vegagerðin birtir nú spá um þróun umferðar út árið 2011 miðað við þessar tölur og samkvæmt því stefnir í að umferðin í ár verði ívið minni en hún var árið 2006.

 

Lesa meira
 

1.3.2011 : Svipuð umferð á höfuð- borgarsvæðinu og árið 2006

Samanlagður akstur í höfuðborginni

Umferðin á þremur viðmiðunarstöðum á höfuðborgarsvæðinu var minni í febrúar 2011 en í febrúar 2010. Samdrátturinn í febrúar er þó töluvert minni en samdrátturinn í janúar. Umferðin í byrjun árs á þessu svæði er svipuð og hún var árið 2006.

 

Spá Vegagerðarinnar út frá þessum tölum um umferðina út allt árið, með öllum fyrirvörum, hljóðar upp á samdrátt sem næmi u.þ.b. 2,5 prósentum. Margt getur þó breytt þessu, þróun bensínverðs og veðurfar til dæmis.

Lesa meira
 

21.2.2011 : Samið við KNH um Skálanes

Skrifað undir við KNH

Samið hefur verið við KNH ehf., Ísafirði um ný- og endurlögn um 2,6 kílómetra kafla á Vestafjarðavegi (60) um Skálanes í Gufudalssveit. KNH áttu lægsta boðið í verkið og hljóðaði það upp á tæplega 116 milljónir króna og nam 68 prósentum af áætluðum verktakakostnaði.

 

Samkvæmt verkáætlun hefst verkið þann 1. apríl og og lýkur í haust eða snemma vetrar nema hvað seinna lag klæðningar verður lagt sumarið 2012.  

 

Lesa meira
 

16.2.2011 : Vestfjarðavegur (60) milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði, tillaga að matsáætlun

Eiði - Þverá

Tillaga að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum Vestfjarðarvegar (60) milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði, Reykhólahreppi og Vesturbyggð, hefur verið lögð inn til málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnun skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum.
 
Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.  Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 9. mars 2011 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.  

Lesa meira
 

16.2.2011 : Vaðlaheiðargöng tefja ekki aðrar framkvæmdir

Í Víkurskarði

Hreinn Haraldsson vegamálastjóri segir að Vaðlaheiðargöng séu flýtiframkvæmd sem ekki verði að veruleika nema menn séu tilbúnir að greiða fyrir verkið með veggjöldum. Hann bætir við að forsenda þess að taka upp veggjöld með þessum hætti sé að framkvæmdin sé arðbær og að fjárfestingin skili sér til baka. Þetta kom fram í Fréttablaðinu á mánudag.

 

Ekki er andastaða við þetta meðal heimamanna fyrir norðan. Alþingi hefur einnig samþykkt lög sem gera það kleift að fara veggjaldaleiðina við breikkun Suðurlandsvegar, Vesturlandsvegar og til að ljúka tvöföldun Reykjanesbrautarinnar.

 

Lesa meira
 

15.2.2011 : Févíti séu vinnusvæðamerkingar í ólagi

Vinnusvæðamerkingar

Vegagerðin hefur á undanförnum misserum unnið að því að bæta vinnusvæðamerkingar. Gerðar eru meiri kröfur til merkinga en áður hefur verið og á það sér stoð í reglugerð sem sett var árið 2009.

 

Nú ættu verktökum og öðrum sem koma að þessum málum vera ljóst hvernig standa skuli að vinnusvæðamerkingunum. Það má segja að aðlögunartímabili sé nú lokið, og því mun Vegagerðin frá og með 1. mars 2011 framfylgja reglugerðinni að fullu og beita févítum í samræmi við útboðs- og samningsgögn í þeim verkum þar sem nýjar reglur gilda.

 

Lesa meira
 

8.2.2011 : Líka minna keyrt á höfuðborgarsvæðinu

Umferð höfuðborgarsvæðið

Sé tekið mið af þremur talningarstöðum á höfuðborgarsvæðinu (þjóðvegir í þéttbýli) kemur í ljós að annað árið í röð varð samdráttur í umferð árið 2010, eða um 1,1 prósent. Umferðin árið áður dróst saman um 3,1 prósent.

 

Í janúar 2011 dróst umferðin enn meira saman eða um 3,9 prósent, en sá samdráttur er fyrst og fremst tilkominn vegna samdráttar á einum talningarstað af þessum þremur. Vegagerðin spáir nú fyrir um umferðina í ár og miðað við þessar tölur og með öllum fyrirvörum hljóðar sú spá upp á 2,7 prósenta samdrátt árið 2011.

Lesa meira
 

2.2.2011 : Mikill samdráttur umferðar í janúar

Umferðin í janúar

Umferðin í janúar dróst saman um tæplega átta prósent borin saman við umferðina í janúar 2010 - á 16 völdum talningarstöðum á Hringvegi. Þetta er gífurlegur samdráttur en í ljós verður að koma hvort hann eigi einungis við um janúarmánuð eða muni halda áfram eftir því sem á árið líður.

 

Búið er að rýna gögn fyrir árið 2010 og kom í ljós að mælitæki var bilað og sýndi kerfisbundið minni umferð. Því er niðurstaða ársins að umferðin á þessum 16 völdu talningarstöðum dróst saman um 1,8 prósent sem er nokkuð minni samdráttur en órýndu tölurnar bentu til.

Lesa meira
 

2.2.2011 : Öskufok skemmir skilti og glit

Skilti undir Eyjafjöllum 31. janúar

Náttúruöflin minna enn á sig undir Eyjafjöllum og víðar í nágrenninu. Vegagerðarmenn berjast við öskufokið sem eyðileggur umferðaskilti og glit (endurkast) á stikum og merkjum. Búið er að endurnýja glit á stikum þrisvar sinnum að undanförnu en öskufok eyðir glitinu jafnóðum Skiltin, einsog sést hér á myndinni, fá líka sinn skerf af völdum vinds og ösku.

 

Stöðugt hefur svo þurft að moka upp úr Svaðbælisánni, en varnargarðar hafa nú verið hækkaðir og breikkaðir þannig að vonandi dugi um sinn.

Lesa meira
 

24.1.2011 : Skýrslan um Héðinsfjarðargöngin á vefnum

Héðinsfjarðargöng skýrsla

Bókin, eða skýrslan, Fjallabyggð fyrir Héðinsfjarðargöng: Samgöngur, samfélag og byggðaþróun, er nú aðgengileg hér á vef Vegagarðarinnar. Skýrslan var rædd á ráðstefnu í Fjallabyggð um síðustu helgi. Skýrslan er unnin með styrk frá Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.

 

Síðastliðin þrjú ár hefur hópur fræðimanna við Háskólann á Akureyri unnið að rannsókn á stöðu Fjallabyggðar fyrir göng og mun hópurinn fylgjast með samfélagsþróuninni næstu árin og er von á annari bók að því loknu.

Lesa meira
 

24.1.2011 : Krapaflóð í Fnjóská (Myndir)

Krapaflóð í Fnjóská

Mikið krapaflóð fór niður Fnjóská rétt fyrir hádegi 23. janúar, Fnjóskadalsvegur vestri lokaðist á að minnsta kosti tveimur stöðum, milli Böðvarsnes og Ytri Hóls einnig neðan við Skarð, þá var Nesvegur í Grýtubakkahrepp ófær eftir þetta krapaflóð.

 

Strax klukkan 14 .00 var búið að fá verktaka til að hreinsa vegina.

 

Lesa meira
 

21.1.2011 : Endanleg ákvörðun er skipstjórans

Herjólfur

Að gefnu tilefni ítrekar Vegagerðin, sem umsjónaraðili styrktra ferjusiglinga, að endanleg ákvörðun um hvort siglt sé til Landeyjahafnar eða Þorlákshafnar er alfarið í höndum skipstjóra Herjólfs hverju sinni.

 

Skipstjórinn ber ábyrgð á skipi, farþegum, áhöfn og farmi og það er ekki raunhæft að farið sé fram á að tekin sé nokkur áhætta vegna siglinga milli lands og Eyja þar sem öryggi farþega og áhafnar er mikilvægast.

 

 

Lesa meira
 

19.1.2011 : Áhrif Héðinsfjarðarganga á Fjallabyggð

Héðinsfjörður

Ráðstefna verður haldin í Menntaskólanum á Tröllaskaga 22. janúar í tilefni útgáfu bókarinnar "Fjallabyggð fyrir Héðinsfjarðargöng: Samgöngur, samfélag og byggðaþróun." Héðinsfjarðargöngin munu að líkindum gerbreyta samgöngum, búsetu, atvinnu, fasteignamarkaði, opinberri þjónustu og félagslegu lífi í Fjallabyggð.

 

Síðastliðin þrjú ár hefur hópur fræðimanna við Háskólann á Akureyri unnið að rannsókn á stöðu Fjallabyggðar fyrir göng með styrk frá Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.

 

Lesa meira
 

18.1.2011 : KNH með lægsta tilboð í veg um Skálanes

Tilboð opnuð í Skálanes

KNH ehf. á Ísafirði átti lægsta tilboðið í kaflann Kraká - Skálanes á Vestfjarðavegi (60). Tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni í Reykjavík og á Ísafirði 18. janúar. Næstlægsta boð kom frá Verktakafélaginu Glaumi í Garðabæ og þriðja lægsta frá Héraðsverki ehf. Egilsstöðum.

 

Um er að ræða 2,6 km kafla í Gufudalssveit í Reykhólahreppi, ný- og endurlögn. Verkinu á að vera að fullu lokið fyrir 1. nóvember 2011.

 

Lesa meira
 

10.1.2011 : Nú þegar stefnt á ódýrari lausnir

Framkvæmdir hefjast við breikkun Suðurlandsvegar

Þess misskilnings hefur gætt í umræðu um veggjöld á vegum útfrá höfuðborginni að val standi á milli þess að fara „dýra“ leið með vegtollum eða byggja ódýrari veg og sleppa vegtollum. Innanríkisráðherra hefur að undanförnu lagt áherslu á að valið stendur ekki á milli þess. Valið stendur á milli þess að fara í framkvæmdirnar og greiða með veggjöldum eða fara ekki í þær fyrr en þá eftir nokkur ár.

 

Nú þegar er unnið að því að notast við ódýrari lausnir, hluti vegarins milli Reykjavíkur og Selfoss verður 2+1 vegur, allur vegurinn að Hvalfjarðargöngum yrði þannig en sá hluti Reykjanesbrautar sem enn á eftir að ljúka yrði 2+2 vegur. Einnig er ráðgert að til að byrja með verði ekki byggð mislæg vegamót á Suðurlandsvegi en í því felst helsti verðmunurinn.

Lesa meira
 

7.1.2011 : Ekki framkvæmdir án veggjalda

Fundur um veggjöld

Skýrt kom fram hjá Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra í gær að ekki er mögulegt að fara í tugmilljarða króna framkvæmdir við breikkanir vega út frá höfuðborginni meðan ekkert fé er til í ríkissjóði, nema með veggjöldum. Þetta kom fram á fundi með sveitarstjórnarmönnum og þingmönnum vegna framkvæmda á suðvesturhorni landsins.

 

Ráðherra benti á að í heild myndu framkvæmdirnar kosta langleiðina í 30 milljarða króna sem væri mikið fé miðað við að ekki væru nema 6 milljarðar króna ætlaðir í nýframkvæmdir í vegagerð á landinu öllu í ár. Almenn andstaða var á fundinum við veggjöld en menn hinsvegar áfram um að farið yrði í framkvæmdirnar sem fyrst.

Lesa meira
 

6.1.2011 : 69 m/s í hviðum

Vindur mælingar

Á veðurmæli Vegagerðarinnar í Hamarsfirði sunnan Djúpavogs mældist mesti vindhraði í vindhviðu 69 metrar á sekúndu um kl 6 að morgni þriðjudagins 4. janúar. Í nokkra klukkutíma var vindhraðinn nálægt 30 m/s og lá þá umferð niðri. 69 m/s jafngildi vindhraðanum í fellibyl af fjórða styrkleika af fimm.

 

Veðurstöðin var sett upp í haust og hefur sannað gildi sitt en það var heimamaðurinn og Vegagerðarmaðurinn Reynir Gunnarsson sem valdi staðsetninguna í ljós þess hvar veður væru verst við þjóðveginn.

Lesa meira
 

5.1.2011 : Auglýst er eftir umsóknum um styrki til rannsóknaverkefna fyrir árið 2011

Fánaborg Vegagerðar

Vegagerðin veitir árlega styrki til rannsóknaverkefna, sem fjármagnaðir eru að mestu af svonefndu tilraunafé, en samkvæmt vegalögum er það 1,5% af mörkuðum tekjum stofnunarinnar.  Nú er auglýst eftir umsóknum um styrki og/eða fjármögnun einstakra verkefna fyrir árið 2011 og er umsóknarfrestur til 2. febrúar 2011.

 

Lesa meira
 


Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica