Líkan af Hvítárbrú var afhjúpað í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi nú fyrir jólin í tilefni þess að í ár eru 100 ár frá því að telja má að Vegagerðin opnaði starfsaðstöðu í Borgarnesi. Það var Guðjón Bachmann sem hóf störf í Borgarnesi árið 1910, brúarsmiður og verkstjóri.
Lesa meira
Vegagerðin óskar vegfarendum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla.
Allar leiðir sem hafa 7 daga þjónustu verða þjónustaðar jóla- og nýársdag, en á öðrum helgidögum um jól og áramót verður þjónusta samkvæmt snjómokstursreglum en þó má gera ráð fyrir styttri þjónustutíma. Frekari upplýsingar veittar í síma 1777.
Akið varlega.
Á árinu 2010 eru liðin 100 ár frá því að landsverkfræðingur ákvað að í Borgarnesi skyldi vera miðstöð vegabóta í Borgarfjarðarhéraði. Þá tók jafnframt til starfa, Guðjón Bachmann, fyrsti fastráðni starfsmaður embættisins með aðsetur í Borgarnesi.
Af þessu tilefni efnir Vegagerðin í Borgarnesi til smá athafnar í Safnahúsi Borgarfjarðar að Bjarnarbraut 4-6 í Borgarnesi, þriðjudaginn 21. desember kl. 16.
Verður þar til sýnis í fyrsta skipti nýtt og glæsilegt líkan af Hvítárbrúnni.
Lesa meira
Tilgangurinn með breikkun vega í nágrenni höfuðborgarinnar er margþættur. Lengi hefur verið barist fyrir aðskilnaði akstursstefna á Suðurlandsvegi, Vesturlandsvegi og á Reykjanesbrautinni. Í síðastnefnda tilvikinu var valið að leggja 2+2 veg með mislægum gatnamótum.
Sú verður ekki raunin með Suðurlandsveg og Vesturlandsveg, í fyrra tilvikinu verður farin blönduð leið með 2+1 vegi og 2+2 vegi og mislæg gatnamót hugsanlega látin bíða um sinn. Á Vesturlandsvegi verður lagður 2+1 vegur.
Innheimta veggjalda er alveg óútfærð enda hæfist hún ekki fyrr en að loknum framkvæmdum á árunum 2015 - 2016.
Lesa meiraFullyrt hefur verið í umræðunni að undanförnu að kostnaður við innheimtu veggjalda væri 28% af tekjum og vísað meðal annars til Hvalfjarðarganga. Þessi tala er úr lausu lofti gripin og er ekki í nokkrum takti við innheimtukostnað í Hvalfjarðargöngunum sem er um 13% af tekjum. Innheimtan í Hvalfjarðargöngunum er hálfsjálfvirk sem þýðir að bæði er unnt að greiða veggjaldið sjálfvirkt og einnig á handvirkan hátt í mannaðri gjaldstöð.
Innheimtuaðferðin í Hvalfirði er barn síns tíma og á sér sögulegar skýringar. Nútímagjaldstöðvar erlendis hafa verið að þokast í þá átt að innheimtan verði alsjálfvirk. Með því móti hefur tekist að koma innheimtukostnaðinum niður fyrir 10% og víða í 5-7% af tekjum.
Lesa meira
Í mars árið 2009, eftir að fjárveitingar til vegamála fóru að dragast mjög saman, var tekin ný ákvörðun um breikkun Suðurlandsvegar og horfið frá því að allur vegurinn yrði 2+2 vegur með mislægum vegamótum.
Niðurstaðan sem unnið hefur verið eftir síðan er blanda af 2+1 vegi og 2+2 vegi þannig að næst Reykjavík er 2+2 vegur, síðan tekur við 2+1 vegur yfir Hellisheiði að Kömbum. Milli Hveragerðis og Selfoss er miðað við 2+2 veg. Ekki hefur verið endanlega ákveðið hvort notað verði svokallað þröngt þversnið eða breitt á þeim kafla og ekki heldur hvort gatnamót verða strax mislæg eða með hringtorgi til að byrja með.
Lesa meiraÞrír af fjórum meðlimum krulluliðsins Garparnir vinna hjá Vegagerðinni og því má tala um vegagerðarsigur þegar Garparnir lögðu Fálkana 9-8 í ævintýranlegum úrslitaleik bikarmóti krulludeildarinnar.
Í úrslitaleiknum leit lengst af út fyrir að Fálkarnir myndu vinna örugglega en af harðfylgi náðu Garparnir að jafna og fara þurfti í aukaumferð þar sem okkar menn fengu eina stigið og höfðu þar með sigur.
Lesa meira
Það er niðurstaða Skipulagsstofnunar að lagning Strandavegar (643), Djúpvegur – Geirmundarstaðavegur, í Strandabyggð sé ekki líkleg til að hafa umtalsverð umhverfisáhrif í för með sér og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Framkvæmdasvæði er í Strandabyggð og nýir vegir liggja um lönd jarðanna Hrófbergs, Stakkaness og Grænaness. Stefnt er að því að framkvæmdir við verkið hefjist 2011 og að verklok verði 2012.
Lesa meira
Nú síðdegis, 9. desember, skrifuðu fulltrúar Vegagerðarinnar og Flugfélagsins Ernis undir samning sem tryggir áframhaldandi flug til Sauðárkróks út næsta ár án styrkja og flug til Bíldudals út árið 2012 og til Gjögurs út árið 2011.
Samningurinn felur í sér nokkra hækkun á styrk til Vestfjarðaflugsins, en Flugfélagið Ernir tekur þó á sig aukna áhættu í fjárhagslegri útkomu á þeim flugleiðum, auk þess að freista þess að halda áfram áætlunarflugi til Sauðárkróks án ríkisstyrks næsta ár.
Lesa meira
Íslenskir aðalverktakar hf. og NCC International AS höfðuðu skaðabótamál á hendur íslenska ríkinu vegna þess að hætt var við fyrra útboð Héðinsfjarðarganga og kröfðust nærri 500 milljóna króna bóta.
Með dómi Hæstaréttar árið 2005 var viðurkennd skaðabótaskylda Vegagerðarinnar við stefnendur vegna missis hagnaðar sem þeir kynnu að hafa notið, hefði ekki komið til ákvörðunar um að hafna tilboði þeirra í gerð Héðinsfjarðarganga. Í dóminum var þó engu slegið föstu um í hvaða mæli sú ákvörðun hefði leitt til tjóns fyrir stefnendur. Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag frá málinu sem höfðað var í kjölfar dómsins.
Lesa meira
Dagana 7. og 8. desember voru opin hús á Djúpavogi og Egilsstöðum til kynningar á mati á umhverfisáhrifum fyrir veg yfir Öxi og Hringveg um Skriðdal og botn Berufjarðar.
Heimamenn voru áhugasamir um fyrirhugaðar framkvæmdir og mættu um 40 manns á Djúpavogi og rúmlega 30 á Egilsstöðum.
Sjá myndir frá fundunum í fréttinni.
Lesa meira
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu, sé tekið mið af þremur völdum talningarstöðum, sýnir að umferðin hefur dregist saman um 4,5 prósent milli áranna 2008 og 2010. Vegagerðin hefur ekki áður birt þessar tölur en í framtíðinni verður framsetning þeirra svipuð og af umferðinni á Hringvegi.
Rétt er þó að hafa þann fyrirvara að um þrjá talningarstaði er að ræða og ekki víst að þeir sýni þróunina á öllu höfuðborgarsvæðinu þótt þeir gefi vísbendingu um hana.
Lesa meiraNú er hægt að fylgjast með umferðinni á fjórum stöðum á höfuðborgarsvæðinu í gegnum sjö vefmyndavélar Vegagerðarinnar sem uppfæra sig á 15 sekúndna fresti. Alls eru vefmyndavélar að finna á 48 stöðum á vegakerfinu og nýtast vel til að sýna veður og færð.
Aðrar vefmyndavélar en þessar sjö á höfuðborgarsvæðinu uppfæra sig á lengra tímabíli, gjarnarn fimm til fímmtán mínútna bili.
Lesa meira
Miðað við umferðina í nóvembermánuði á 16 völdum talningarstöðum á Hringveginum stefnir í mesta samdrátt í umferð á milli ár frá því heildarakstur var fyrst reiknaður árið 1975. Umferðin í nóvember dróst mjög mikið saman miðað við nóvembermánuð í fyrra og er umferðin nánast sú sama og hún var árið 2005.
Þrátt fyrir að umferðin í október hafi verið meiri en fyrir ári stefnir í að umferðin dragist saman um ríflega fjögur prósent, en hingað til hefur samdráttur verið mjög sjaldgjæfur á milli ára og langmestur 2,5 prósent á milli áranna 2007 og 2008.
Lesa meira
Vegagerðin mun standa fyrir opnum húsum þar sem framkvæmdin og mat á umhverfisáhrifum hennar verða kynnt á veggspjöldum og tekið verður við ábendingum og athugasemdum.
Opin hús verða á:
Hótel Framtíð á Djúpavogi þriðjudaginn 7. desember kl. 17:00-19:00
Hótel Héraði á Egilsstöðum miðvikudaginn 8. desember kl. 17:00-19:00
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember