Fréttir

30.11.2010 : Minni umferð um Héðinsfjarðargöng

Héðinsfjörður

Smá saman dregur úr umferð í Héðinsfjarðargöngum. Frá 28. október til 21. nóvember 2010, hafa að meðaltali farið um 381 bíll/sólarhr. um bæði göngin. En mikil umferð var um göngin fyrst eftir að þau opnuðu, sérstaklega fyrstu helgarnar.

 

Álag á Múlagöng virðist ekki vera að aukast svo mikið sé miðað við þessar nýjustu mælingar.

 

Lesa meira

18.11.2010 : Axarvegur, Hringvegur í Skriðdal og Hringvegur um Berufjarðarbotn - Frummatsskýrsla

Axarvegur - Yfirlitsmynd

Vegagerðinni hefur verið falið að endurbyggja Hringveg á kafla í Skriðdal, byggja nýjan veg um Öxi á milli Hringvegar í Skriðdal og Hringvegar í Berufirði og endurbyggja Hringveg um botn Berufjarðar auk þess að færa hann til á kafla og byggja þar nýja brú yfir Berufjarðará og nýjan Hringveg.

Athugasemdafrestur er til 7. janúar 2011 Lesa meira

16.11.2010 : Verðlaunamynd Viktors Arnars

Dagatal Roadex

Mynd Viktors Arnars Ingólfssonar af Grafningsvegi efri var valinn á forsíðu dagatals ROADEX verkefnisins. Myndir voru sendar frá fjölmörgum löndum og prýða sumar þeirra mánuði dagatalsins rétt eins og íslenska myndin.

 

Verðlaun voru ekki af verra taginu og tengjast umsjónarmanni verkefnisins sem er Skoti.

Lesa meira

8.11.2010 : Vel heppnuð rannsóknaráðstefna

Rannsóknaráðstefnan

Níunda rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar var haldin föstudaginn 5. nóvember og þótti heppnast vel. Flutt voru 21 erindi um rannsóknarverkefni sem styrkt eru af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar, hvert öðru áhugaverðara.

 

Samkvæmt vegalögum skal 1,5 prósent af mörkuðum tekjum til vegamála renna til rannsókna- og þróunarstarfs. Erindin á ráðstefnunni endurspegla hluta þess starfs.

 

Lesa meira

6.11.2010 : Hófaskarð opnað í snjókomu - MYNDIR

Hófaskarð opnun

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra Ögmundur Jónasson, ásamt vegamálastjóra Hreini Haraldssyni, opnaði 6 nóvember, formlega Hófaskarðsleið og Raufarhafnarveg. Mikill fjöldi heimamanna var við áningarstaðinn í Hófaskarði þegar ráðherra og vegamálastjóri opnuðu vegina með borðaklippingu svo sem hefð er fyrir.

 

Þessi vegaframkvæmd fólst í því að tengja saman Kópasker, Raufarhöfn og Þórshöfn með góðum heilsársvegi með bundnu slitlagi og koma þessum byggðum í betra vegasamband við aðra landshluta.

 

Lesa meira

4.11.2010 : Siglt til Landeyjahafnar

Vígsla Landeyjahafnar

Dýpkun Landeyjahafnar gengur ágætlega enda eru aðstæður góðar. Komi ekkert óvænt upp, þá verður áætlun föstudagsins 5. nóvember eftirfarandi:

 

Fyrsta ferð verður frá Vestmanneyjum kl. 07:30 til Þorlákshafnar og frá Þorlákshöfn kl. 11:15. Eftir þá ferð er ætlunin að hefja siglingar í Landeyjahöfn að nýju samkvæmt áætlun fyrir þá höfn og verður fyrsta ferð frá Vestmanneyjum kl. 17:00 og til baka frá Landeyjahöfn kl. 18:30 og síðan önnur um kvöldið eins og áætlun segir til um.

 

Lesa meira

2.11.2010 : Efniskröfur, hönnun, þungaálag, hrýfi, lífolía, fráreinar, hviður, votlendi, vistvænt, aðsemi, ferðavenjur í kreppu, jöklar og strengir Hörpunnar

Rannsóknaráðstefna

Það verður enginn skortur á áhugaverðum erindum á níundu rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar sem haldin verður að vanda fyrsta föstudag í nóvember, sem í ár ber upp á 5. dag mánaðarins. Ráðstefnan er haldin á Reykjavík Hilton Nordica.

 

Fyrirsögnin er tekin úr nokkrum þeirra á þriðja tug erinda sem flutt verða á ráðstefnunni sem er kynning á hluta þeirra rannsóknarverkefna sem unnin eru á vegum þróunarsviðs Vegagerðarinnar.

Lesa meira

1.11.2010 : Meiri umferð í október í ár en í fyrra

Graf október 2010

Umferðin á 16 völdum talningarstöðum á Hringveginum jókst um 3,3 prósent í október miðað við októbermánuð 2009. Það kemur töluvert á óvart að umferðin aukist þetta í október en það gerist allstaðar nema á Hellisheiði og þá Suðurlandi.

 

Ef til vill kann þetta að skýrast af góðu veðri í október því ef litið er til fyrstu tíu mánaða ársins er ljóst að umferð dregst mikið saman og er um mesta samdrátt að ræða síðan þessar mælingar hófust árið 2005.

Lesa meira



Útlit síðu: