Fréttir

29.10.2010 : 420 bílar á dag um Héðinsfjarðargöng

Héðinsfjarðargöng

Dagana 14. til 26. október sl. fóru um 420 bílar að meðaltali á sólarhring um Héðinsfjarðargöngin. Athygli vekur að á sama tíma hefur svipaður fjöldi farið um Múlagöngin eða um 443 bílar að meðaltali á sólarhring.

 

Ljóst virðist að mikil fylgni er á milli umferðarinnar um Héðinsfjarðargöng og Múlagöng.

 

Lesa meira

28.10.2010 : Námskeið um efnisrannsóknir og efniskröfur í vegagerð

Námskeið um efnisrannsóknir


Vegna mikillar aðsóknar hefur verið ákveðið að halda þriðja námskeiðið um efnisrannsóknir og efniskröfur í vegagerð, en fullt er á námskeiðin sem verða haldin 11. nóvember og 19. nóvember.

Auka námskeiðið verður haldið fimmtudaginn 2. desember frá kl. 09:00 - 16:30.

Lesa meira

19.10.2010 : Vegrið besta lausnin

Miklubraut

Þar sem Miklubrautin endar og Nýja Hringbrautin tekur við er hættulegur staður í umferðinni í Reykjavík. Vegagerðin vill setja upp vegrið frá því að beygja byrjar sunnan Rauðarárstígs og út fyrir göngubrú vestan Bústaðavegarbrúarinnar.

 

Málið var nýlega rætt hjá samráðshópi um umferðaröryggi þar sem fundarmenn voru sammála um að um hættulegan slysastað sé að ræða. Vegagerðin er með tilbúnar teikningar af tvöföldu vegriði og telur öryggi best tryggt með þeim hætti.

 

Lesa meira

18.10.2010 : "Vegagerðin er menningarstofnun"

Lyngdalsheiðarvegur

Föstudaginn 15. október opnaði samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra Ögmundur Jónasson formlega Lyngdalsheiðarveg fyrir umferð ásamt Hreini Haraldssyni vegamálastóra. Hann kallaði einnig sér til aðstoðar Ragnhildi Hjaltadóttur ráðuneytisstjóra þar sem skort hefði konur við klippingu á borða í Héðinsfirði, þar sem átta vegamálastjórar og samgönguráðherrar hefðu komið að verki. "Það var kallað herraklipping", sagði Ögmundur.

 

Í ræðu sinni í boði á Laugarvatni bætti ráðherra um betur og sagði að ræður vegamálastjóra við klippingar í haust hefðu opnað augu hans fyrir því að í raun væri Vegagerðin menningarstofnun.

Lesa meira

13.10.2010 : Minni umferð um Múlagöng um helgina en á Fiskidaginn mikla

Héðinsfjörður

Umferðin um nýliðna helgi um Múlagöngin var minni en hún var um göngin á Fiskidaginn mikla á Dalvík í ágúst. Umferð á Fiskidaginn mikla mældist 1770 bílar en á sunnudaginn 10. október sl. mældist umferðin 1438 bílar. Mesta umferð á klukkutíma var sú sama báðar helgar.

 

Miðað við umferðateljara í nágrenni Héðinsfjarðarganga má reikna út að um 8600 manns hafi gert sér sérstaka ferð í október til að skoða göngin.

Lesa meira

11.10.2010 : Strandavegur,  Djúpvegur - Geirmundarstaðavegur í Strandabyggð

Strandavegur - Yfirlitskort

Vegagerðin kynnir hér með 2,8 km langa vegaframkvæmd á Strandavegi, af Djúpvegi í botni Steingrímsfjarðar að Geirmundarstaðavegi í mynni Selárdals til að fá úrskurð Skipulagsstofnunar um hvort framkvæmdin skuli sæta mati á umhverfisáhrifum.
Jafnframt er fjallað um breytta legu Staðarvegar og Stakkanesvegar og tengingu Grænaness við Strandaveg.

Lesa meira

8.10.2010 : Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2010

Rannsóknarráðstefna 2010

Enn á ný gengst þróunarsvið Vegagerðarinnar fyrir ráðstefnu um rannsóknir Vegagerðarinnar.

Að venju verður ráðstefnan haldin á Reykjavík Hilton Nordica hóteli fyrsta föstudag í nóvember, sem þetta árið ber upp á 5. nóvember.

Lesa meira

7.10.2010 : Námskeið um efnisrannsóknir og efniskröfur í vegagerð

Námskeið um efnisrannsóknir


Vegagerðin og Nýsköpunarmiðstöð Íslands boða til námskeiðs um efnisrannsóknir og efniskröfur í vegagerð.


Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem koma að hönnun, framleiðslu, framkvæmd og eftirliti í vega- og gatnagerð.

Lesa meira

5.10.2010 : Háfell ehf. með langlægsta tilboðið í Suðurstrandarveg 

Opnun Suðurstrandarvegur

Háfell ehf. átti lægsta tilboðið í Suðurstrandaveg (427), seinni áfanga, kaflann frá Ísólfsskála í Krýsuvíkurveg. tilboðið hljóðaði upp á tæplega 179 milljónir króna.

 

Næstir komu Suðurverk hf. og Ingileifur Jónsson ehf. Áætlaður verktakakostnaður nam 433 milljónum króna er og tilboð Háfells 41,3 prósent af því. Sjá nánar hér.

 

Lesa meira

4.10.2010 : Norðausturvegur, breytt lega og ný tenging við þéttbýlið í Vopnafirði

Nordausturvegur

Þann 1. október 2010 tilkynnti Vegagerðin til Skipulagsstofnunar um fyrirhugaða breytingu á legu Norðausturvegar við þéttbýlið í Vopnafirði og nýja tengingu við þéttbýlið. Tilkynningin er í samræmi við 6. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.b. og lið 10.c í 2. viðauka laganna.

Lesa meira

3.10.2010 : Héðinsfjarðargöng opnuð

Borðaklipping í Héðinsfirði

Stærsta einstaka verk í sögu vegagerðar á Íslandi var afhent Vegagerðinni 2. október í Héðinsfirði til afnota. Verktakarnir Metrostav og Háfell skiluðu af sér vel unnu verki sem Vegagerðin síðan opnaði fyrir almenna umferð. Á sama tíma innsigluðu íbúar Fjallabyggðar sameiningu svæðisins en sitt hvoru megin ganganna er að finna Siglufjörð og Ólafsfjörð.

Ögmundur Jónasson samgönguráðherra klippti borðann sem markaði opnun ganganna ásamt Hreini Haraldssyni vegamálastjóra. Ögmundur fékk sér til aðstoðar fjóra fyrrverandi samgönguráðherra og tveir fyrrverandi vegamálastjórar aðstoðuðu Hrein.

Lesa meira

1.10.2010 : Miklu minni umferð í september

Graf, akstur í mánuði

Umferðin í nýliðnum septembermánuði var tæplega fjórum prósentum minni en í sama mánuði fyrir ári síðan. Ekki hefur verið ekið minna á 16 talningarstöðum Vegagerðarinnar á Hringveginum síðan árið 2005.

 

Frá áramótum hefur umferðin á þessum talningastöðum dregist sama um nærri fimm prósent. Umferðin dregst alls staða saman, mest á Suðurlandi eða um nærri níu prósent frá árinu 2009.

Lesa meira



Útlit síðu: