Beint í leiðarkerfi vefsins.
Þriðjungur flutningsaðila er ánægður eða mjög ánægður með vegakerfið sem er svipað og í fyrri könnunum sem Lausnir ehf. hafa unnið fyrir Vegagerðina. Þeim fækkar hinsvegar verulega sem eru óánægðir með vegakerfið en hlutlausum fjölgar að sama skapi.
Um þrír af hverjum í hópi verktaka eru ánægðir eða mjög ánægðir með viðskipti sín við starfsmenn Vegagerðarinnar, sem er svipað og í fyrri könnun. Verktakar eru líka ánægðir með útboðsgögn en telja Vegagerðina núna ekki standa sig jafnvel og aðrir verkkaupar.
Lesa meiraLandeyjahöfn var lokað í morgun 28. september. Eftir morgunferð Herjólfs var ljóst að höfnin væri ófær þar sem aukið efni hefur borist í mynni hafnarinnar. Dýpkunarskipið Perlan er til viðgerðar í Reykjavík og væntanlegt úr slipp í næstu viku. Ölduspá er ekki hagstæð og því ljóst að höfnin verður lokuð um sinn. Sjá vef Siglingastofnunar.
Herjólfur siglir í Þorlákshöfn þar til Landeyjahöfn verður opnuð á ný. Sjá áætlun Herjólfs.
Lesa meira
Heimamenn beggja vegna Bolungarvíkurganga fögnuðu ákaft við opnun ganganna laugardaginn 25. september ásamt forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni. Ögmundur Jónasson samgönguráðherra klippti á borðann ástamt vegamálastjóra Hreini Haraldssyni og þótti Ögmundi rétt að fá einnig aðstoð Kristjáns L. Möllers forvera síns í starfi.
Vígsla Bolungarganga markar þau tímamót að verktakinn Ósafl ehf. afhendir Vegagerðinni mannvirkið sem síðan opnar mannvirkið til notkunar fyrir almennig.
Lesa meira
Laugardaginn 25. september mun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra Ögmundur Jónasson ásamt vegamálastjóra Hreini Haraldssyni opna Bolungarvíkurgöng fyrir almennri umferð.
Athöfnin fer fram á við gangamunnann Bolungarvíkurmegin kl. 13:30. Að henni lokinni verður ekið í gegnum göngin en Hnífsdalsmegin mætast bæjarstjórar Ísafjarðarbæjar og Bolungarvíkur. Þeir ásamt ráðherra og vegamálastjóra opna síðan fyrir umferð í báðar áttir.
Vefmyndavélar verða gangsettar að morgni 25. september sjá vefmyndavélar á Vestfjörðum
Lesa meira
Ögmundur Jónasson samgönguráðherra sturtaði fyrsta hlassinu fyrir nýja akbraut vegna tvöföldunar Suðurlandsvegar í dag 22. september. Áður hafði Hannses Kristmundsson fært honum skóflu sem Ögmundur tók fyrstu skóflustunguna með og mun hann varðveita skófluna til hvatningar um að halda verkinu áfram.
Leyfilegur ökuhraði hefur verið lækkaður niður í 70 km á svæðinu þar sem stór ökutæki þurfa að þvera Suðurlandsveginn við afleggjarann við Bolaöldu. Vegfarendur eru beðnir um að aka með varúð og virða hraðatakmarkanir.
Lesa meira
Þemahópur Norræna vegasambandsins (NVF) heldur málþing um aðgengismál í borgum, Universell utformning, í Reykjavík 30. september næstkomandi.
Fjallað verður um aðgengi fyrir alla, aðgengi að almenningssamgöngum, sameiginleg svæði og margt fleira. Allir velkomnir. Sjá einnig á heimasíðu NVF.
Lesa meira
Eftir dýptarmælingar í Landeyjahöfn síðdegis hefur verið ákveðið að siglingar hefjist þangað aftur samkvæmt útgefinni áætlun, laugardaginn 18. september. Fyrsta brottför frá Vestmannaeyjum verður kl. 09:00 og frá Landeyjahöfn kl. 10:30.
Siglingar í Landeyjahöfn hafa gengið vel.
Lesa meira
Ögmundur Jónasson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur að undanförnu heimsótt stofnanir ráðuneytisins og í dag föstudaginn 17. september ræddi hann við starfsfólk Vegagerðinnar bæði í Reykjavík og eins út um allt land með hjálp fjarfundabúnaðar.
Fram kom í máli ráðherra að hann ætti eftir að setja sig vel inn í fjölda mála þegar kemur að samgöngumálum en að hann hefði sérstakan áhuga á því að kynna sér hvernig ákvarðanir um framkvæmdir eru teknar og hvort og hvernig er hlustað á sérfræðiþekkingu vegagerðarfólks.
Lesa meiraJákvæðni í garð Vegagerðarinnar minnkar lítillega samkvæmt nýrri könnun Capacents Gallups um þjóðvegi landsins sem unnin er reglulega fyrir Vegagerðina. Almennt telja fleiri núna en fyrir 3 - 5 árum að þjóðvegir landsins séu góðir.
Flestir vilja helst breikka vegi þegar þeir eru spurðir um hvað megi helst bæta á þjóðvegunum. Þeim hefur farið fækkandi síðastliðin tvö ár en aftur er farið að fjölga þeim sem vilja auka við bundna slitlagið.
Lesa meira
Dýpkunarskipið Perlan lagði af stað til Landaeyjahafnar frá Reykjavík fyrir hádegi í dag og reiknað er með að það hefjist handa við dýpkun um leið og það kemur í Landeyjahöfn undir miðnætti.
Í vetur verður Landeyjahöfn áfram aðalhöfn Herjólfs og áætlun miðast við siglingar þangað. Ef þær aðstæður skapast að dýpi verður ekki nægjanlegt mun skipið sigla í Þorlákshöfn en með ölduspám og tíðum dýptarmælingum mun gefast að minnsta kosti tveggja sólarhringa ráðrúm til breytinga á áætlun.
Lesa meira
Vegagerðin hefur haft áhuga á því að nýta Þorlákshöfn sem neyðarhöfn vegna siglinga Herjólfs milli Vestmannaeyja og hinnar nýju Landeyjahafnar, a.m.k. meðan reynsla er að fást af nýju höfninni.
Síðastliðið vor var rætt var við sveitarfélagið Ölfuss um möguleika á þessu fram til næstu áramóta til að byrja með. Vegagerðin gat þá ekki gengið að kröfu Þorlákshafnar um hafnargjöld til jafns við það að Herjólfur sigldi sem áður, þ.e.a.s. tvær ferðir á dag hvort sem nota þyrfti aðstöðuna eða ekki.
Lesa meiraÞar til Landeyjahöfn opnast siglir Herjólfur til Þorlákshafnar.
Farnar verða tvær ferðir á dag og áætlun verður sem hér segir:
Frá Vestmannaeyjum kl. 07:30 og kl. 15:15
Frá Þorlákshöfn kl. 11:15 og kl. 18:45
Lesa meira
Að mati Siglingastofnunar verður ekki hægt að opna Landeyjahöfn næstu daga vegna gosefnanna sem borist hafa með þrálátri austanátt í mynni nýju hafnarinnar. Svo óheppilega vill til að bilanir hafa tafið dæluskip sem liggur í höfn í Reykjavík en ráðgert er að það sigli í Landeyjahöfn á föstudag.
Ákveðið hefur verið að Herjólfur sigli því næstu daga til Þorlákshafnar eða þar til Landeyjahöfn opnar. Unnið er að áætlun fyrir næstu daga og verður hún birt í fyrramálið en farnar verða tvær ferðir á dag.
Lesa meira
Lífeyrissjóðunum voru á þriðjudag kynnt nokkur stórverkefni í vegagerð sem rætt hefur verið um að lífeyrissjóðirnir fjármagni. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri kynnti þessar framkvæmdir.
Ögmundur Jónasson samgönguráðherra sagði á kynningarfundinum að hann hefði haft efasemdir um einkaframkvæmd en að en að hann telji eðlilegt að nota fjármagn lífeyrissjóða til uppbyggingu í velferðarkerfi og samgöngum -- yfirvöld væru hér á réttri leið.
Lesa meiraÁkveðið hefur verið að vegna veðurútlits á morgun sigli Herjólfur frá Vestmannaeyjum kl 06:00 í fyrramálið 8. september. Og strax til baka frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja kl. 10:00. Þá tekur við bráðabrigðaáætlun ferjunnar sem sjá má hér á vefnum um siglingar milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar.
Áætlunin, þá sem hingað til, tekur síðan mið af veðrinu og öðrum aðstæðum og ekki er loku fyrir það skotið að aftur verði siglt til Þorlákshafnar.
Lesa meiraNæstu daga mun Herjólfur sigla milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar eftir sjávarföllum og áætlun sem unnin er í samráði við Siglingastofnun. Gosefni úr Eyjafjallajökli hægðu á siglingu Herjólfs inn í Landeyjahöfn í gær. Ekki verður siglt til Þorlákshafnar.
Viðvarandi óhagstæðar vindáttir hafa leitt til þess að gosefni hafa safnast saman fyrir framan höfnina. Skarðið í rifið fyrir utan innsiglinguna í höfnina er hinsvegar vel opið. Dýpkunarskip býður færis í Reykjavík og gæti verið komið í Landeyjahöfn á fimmtudag.
Áætlunin næstu daga ekki er siglt í dag.
Lesa meira
Það er óhætt að segja að efnahagshrunið hafi haft víðtæk áhrif á Íslandi. Fyrir hrun var nokkuð augljóst að almenningsálitið í landinu var á því að varla nokkuð annað kæmi til greina en að leggja 2+2 veg alla leið frá Reykjavík og austur fyrir Selfoss. Fljótlega eftir hrun var þó ákveðið að breyta þessu og fara blandaða leið.
Vegagerðin fagnar því að nú virðist sem margir hafi tekið 2+1 vegformið í sátt en það hefur verið notað víða erlendis með góðum árangri og eru Svíar þar fremstir í flokki.
Lesa meira
Jarðganganefnd Norræna vegasambandsins hélt fund sinn hér á landi í vikunni. Í tengslum við fundinn var haldin kynning hjá Vegagerðinni á yfirstandandi vinnu Norðmanna við endurskoðun á hönnun jarðganga.
Meginbreytingin sem verið er að skoða er sú að miða við 100 ára líftíma ganga í stað 50 ára.
Lesa meiraÚtlit er fyrir að umferðin í ár geti orðið litlu meiri en hún var árið 2006 en fram til 2008 jókst umferðin nánast stöðugt á milli ára. Umferðin var mjög mikil í fyrrasumar, og hafði ekki áður verið meiri sumarmánuðina, en það endurtekur sig ekki núna í sumar.
Landeyjahöfn virðist hafa skilað aukinni umferð í nágrenni Hvolsvallar í ágúst.
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember