Fréttir

30.8.2010 : Helgin 16.-18. júlí var umferðarmesta helgi sumarsins

Helgarumfeðin

Umferðin um nýliðna helgi varð mun minni en um helgina þar á undan eða sem nemur 4,4 prósentum. Óhætt er að lýsa því yfir að hinni eiginlegu sumarhelgarumferð er lokið. Helgarumferðin nú er komin undir það sem hún var í upphafi júní.

 

Helgin 16. - 18. júlí varð stærsta helgin árið 2010 eða um 3 prósentum stærri en sú næst stærsta, sem að þessu sinni var verslunarmannahelgin. Meðalhelgarumferðin sumarið 2010 varð 2,3 prósentum undir umferðinni árið 2009.

Lesa meira

24.8.2010 : Lítið eitt meiri umferð um nýliðna helgi

Helgarumferðin

Umferðin jókst lítið eitt á milli tveggja síðustu helga eða um 0,8 prósent. Líklegt verður að telja að aukningin hafi komið til vegna menningarnætur í Reykjavík, samanber síðustu umferðarfrétt Vegagerðarinnar.

 

Umferðin eykst einnig á milli ára um sömu helgi eða um 4,3 prósent.

Lesa meira

24.8.2010 : Veghönnunarreglur, yfirfarnar og lagfærðar

Veghönnunarreglur - Vegflokkar

Nýjar veghönnunarreglur voru kynntar með útgáfu 01.04.2009. Nú hefur sú útgáfa verið yfirfarin og gerðar ýmsar minniháttar lagfæringar.

 

Ein grundavallarbreyting er þó gerð en í kaflnum 1.2 Grunnatriði, vegtegundir er tekin upp sú nýjung að taka í auknum mæli tillit til umferðar að sumri (SDU) í stað meðaltalsumferðar allt árið (ÁDU) við ákvörðun á hönnunarumferð.

Lesa meira

20.8.2010 : Skrifað undir um áfanga við breikkun Suðurlandsvegar

Frá undirskriftinni

Skrifað var í dag 20. ágúst undir samning við Ingileif Jónsson ehf. um framkvæmdir við áfanga við breikkun Suðurlandsvegar, Hringvegur (1), Fossvellir - Draugahlíðar.

 

Áfanginn sem um ræðir er frá Lögbergsbrekku að Litlu kaffistofunni. Undirbúningur þess að hefja framkvæmdir er þegar farinn í gang og má búast við að þess sjái stað á verkstað eftir 2-3 vikur.

 

Lesa meira

17.8.2010 : Dregur hratt úr helgarumferðinni

Hlegarumferðin

Hratt dregur nú úr helgarumferðinni þegar sumri fer að halla sem er sama þróun og undanfarin ár. Umferðin um nýliðna helgi var sjö prósentum minni en um síðustu helgi.

 

En einnig var umferðin þessa helgi enn minni en umferðin um sömu helgi árið 2009 eða um 11 prósentum minni.

Lesa meira

13.8.2010 : Leiðbeiningar Vegagerðarinnar um ástandsúttekt vega

Hringvegur í Borgarfirði

Í leiðbeiningunum er að finna reglur um hvaða gögnum skal safnað til grundvallar fyrir ákvörðun að styrkingu, breikkun og styttingu Hringvegarins (og annarra vega).

Lesa meira

9.8.2010 : Samið á næstu dögum um Suðurlandsveg

DSC_1084

Kærunefnd útboðsmála hafnaði 9. ágúst kröfu Háfells ehf. um að stöðva samningsgerð vegna Suðurlandsvegar, kaflans milli Litlu kaffistofunnar og Lögbergsbrekku: Hringvegur (1), tvöföldun Fossvellir - Draugahlíðar.

Lesa meira

9.8.2010 : Minni umferð um helgina

Helgarumferðin

Umferðin um helgina var töluvert minni en um nýliðna Verslunarmannahelgi eða tæplega átta prósentum minni. Þetta er í samræmi við þróunina á helgarumferðinni síðastliðin sumur.

 

Umferðin nú var eigi að síður ríflega sex prósentum meiri en sömu helgi í fyrrasumar og er þetta önnur helgin í röð sem er umferðarmeiri en helgi sumarið 2009, en sumarumferðin hefur aldrei verið meiri en það ár og ekki útlit fyrir að það met verði slegið í ár.

Lesa meira

6.8.2010 : Sama umferð og undanfarin ár um Kjalveg

Umferðin á Kjalveg

Umferðin um Kjalveg undanfarin ár í júní- og júlímánuðum hefur verið svipuð ár eftir ár ef litið er framhjá árinu 2009. Umferðin jókst jafnt og þétt frá árinu 2000 til 2004 er hún náði hámarki á þessum fjallvegi.

 

Umferðin nú er sú sama og 2005 og minni en hún var árið 2003.

Lesa meira

6.8.2010 : Enn dregur úr umferð

Umferðin í júlí

Annan mánuðinn í röð dregst umferðin saman allsstaðar á landinu. Umferðin í júlí í ár er nærri sex prósentum minni en í sama mánuði í fyrra og frá áramótum hefur umferðin á 16 völdum talningarstöðum á Hringveginum dregist saman um nærri fimm prósent.

 

Umferðin í júlí reyndist minni en umferðin í sama mánuði árin 2007 og 2009 en lítillega meiri en 2008. Frá áramótum, fyrstu sjö mánuði ársins, er umferðin svipuð og hún var á milli áranna 2006 og 2007. 

Lesa meira

3.8.2010 : Meiri umferð um verslunarmannahelgina en í fyrra

Umferðin um verslunarmannahelgina

Umferðin um verslunarmannahelgina var nærri sjö prósentum meiri en síðustu helgina í júlí í ár og rúmum þremur prósentum meiri en um verslunarmannahelgina í fyrra.

 

Umferðin um verslunarmannahelgina reyndist þó ekki sú mesta í sumar því meiri umferð var á sex talningarstöðum í nágrenni höfuðborgarinnar helgina 16. - 18. júlí.

Lesa meira



Útlit síðu: