Beint í leiðarkerfi vefsins.
Enn dregur heldur úr umferðinni um helgar í nágrenni höfuðborgarinnar. Umferðin var ríflega 9 prósentum minni um síðustu helgi en helgina þar áður. Umferðin var um prósenti minni um helgina en sömu helgi í fyrra en nákvæmlega jafnmikil og fyrir tveimur árum, árið 2008.
Þetta er í samræmi við það sem gerst hefur undanfarin ár en þá dregur úr helgarumferðinni þegar líður á sumarið einsog sjá má á meðfylgjandi stöplariti.
Lesa meira
Landeyjahöfn var tekin í notkun í gær 20. júlí við hátíðlega athöfn. Það var samgönguráðherra Kristján L. Möller sem klippti á borða við landganginn að lokinni fyrstu siglingu Herjólfs frá Vestmannaeyjum til Landeyjahafnar.
Höfnin mun hafa gríðarlega miklar breytingar í för með sér bæði fyrir Eyjamenn og Rangæinga. Fjölbreyttir möguleikar opnast við það að sigling milli lands og Eyja styttist úr tæpum þremur tímum í um hálfa klukkustund. Fjölgun ferða úr tveimur á dag í allt að fimm reglulegar ferðir verður bylting fyrir samgöngur milli Vestmannaeyja og lands.
Lesa meiraUmferðin um nýliðna helgi reyndist nærri 5 prósentum meiri en helgarnar á undan. Umferðin var einnig lítillega minni en um sömu helgi árin 2008 oog 2009.
Rétt er þó að hafa í huga að sumarumferðin 2009 var met. Ekki er útlit fyrir að það verði slegið í sumar. Og hugsanlegt er miðað við þróunina liðin ár að helgin sem leið verði umferðarmesta helgi sumarsins, en það hefur dregið úr helgarumferð þær helgar sem eftir lifa sumars síðustu ár.
Lesa meiraSkipurit Vegagerðarinnar sem má finna hérna á vefnum er nú gagnvirkt. Í því felst að ef smellt er á einhvern af kössunum koma fram upplýsingar um viðkomandi svæði, svið eða deild. Fram kemur hver stýrir til dæmis sviði eða svæði og hvert verksviðið er.
Skipuritið má finna undir "Um Vegagerðina" hér fyrir ofana og velja síðan flipann "Skipulag" sem er vinstra megin og smella síðan á "skipurit".
Lesa meira
Áhugi á því að taka að sér áætlunarakstur án styrkja hefur reysnt nokkur. Ljóst er að áhugi er það mikill á mörgum leiðum að velja þarf á milli rekstraraðila. Lokafrestur til að taka þátt í samkeppni um þennan akstur án styrkja er því gefinn til 30. júlí nk.
Áhugasamir skili upplýsingum til hagdeildar Vegagerðarinnar. Ekki þarf að endurnýja áður innsendar upplýsingar.
Lesa meiraLandslagið þar sem unnið er að lagningu nýs Dettifossvegar vestan Jökulsár á Fjöllum er sérstakt. Það er eyðilegt og þurrt. Því er nauðsynlegt að umgangast svæðið af virðingu þannig að vegagerðin valdi sem minnstri röskun.
Nauðsynlegt er að hafa góða fláa á vegum til að auka öryggið og að sama skapi nauðsynlegt að hafa þá snyrtilega. Þegar ekki er hægt að sá grasfræi til að breiða yfir verkið þarf að fara aðrar leiðir og verktakinn Árni Helgaseon sem leggur veginn fann einfalda og góða lausn á málinu.
Lesa meiraMun minni umferð var um Hringveginn í nágrenni Reykjavíkur um helgina en var sömu helgi í fyrra, eða 7,2 prósentum minni umferð. Samdráttur er á nær öllum talningarstöðunum sex.
Athygli vekur að umferðin síðustu þrjár helgar hefur verið mjög svipuð en árin tvö þar á undan var umferðin miklu sveiflukenndari milli helga.
Lesa meira
Komi fólk að svæði á vegi þar sem orðið hefur grjóthrun er best að forða sér hið snarasta því þá má alltaf eiga von á meira hruni. Vegagerðarmenn voru á þriðjudag að hreinsa svæði á veginum í Veiðilyesukleif á Strandavegi (643) þegar meira grjót hrundi og olli skemmdum á þjónustubílnum.
Vegagerðarmennirnir höfðu líka af því áhyggjur að vegfarendur biðu á veginum við fyrsta stein sem hafði hrunið í stað þess að forða sér af svæðinu meðan það var hreinsað. Vegagerðin vill því beina þeim tilmælum til vegfarenda að forða sér, þarna er svæðið merkt með grjóthrunsmerkjum og best að koma sér út fyrir þau.
Lesa meira
Heldur minni umferð var í nágrenni höfuðborgarinnar síðustu helgina í júní miðað við sömu helgi fyrir ári síðan, umferðin fyrstu helgina í júlí var svipuð, sé tekið mið af sex talningarstöðum í nágrenni Reykjavíkur.
Fróðlegt verður að sjá hvort helgarumferðin í kringum höfuðborgarsvæðið muni hegða sér svipað og í fyrra, þ.e.a.s. haldist svipuð næstu tvær helgar og fari síðan minkandi.
Lesa meira
Í kjölfar úrskurðar kærunefndar útboðsmála frá 5. júli þar sem felld er úr gildi ákvörðun Vegagerðarinnar um að ganga til samninga við Vélaleigu AÞ ehf hefur verið ákveðið að kalla eftir frekari gögnum frá þremur verktökum til viðbótar eða þeim sem áttu fjórða til sjötta lægsta tilboð í verkið, Hringvegur (1), tvöföldun Fossvellir - Draugahlíðar.
Vonast er til að það verk geti gengið hratt fyrir sig og fljótlega verði hægt að semja við verktaka sem stenst kröfur útboðsins um verkið. Ekki er um að ræða að bjóða þurfi verkið út að nýju enda ekki gerð athugasemd við útboðið sem slíkt heldur mat á því hvernig reikna skuli ársveltu síðustu þriggja ára.
Lesa meiraUmferðin í júní 2010 á 16 völdum talningarstöðum dróst mikið saman miðað við sama mánuð fyrir ári síðan. Þannig er nærri 9 prósenta minni umferð núna í júni er fyrir ári og samdrátturinn í umferðinni þennan fyrri árshelming nemur 4,6 prósentum.
Umferðin minnkar á öllum talningarstöðunum 16 sem hefur ekki áður gerst á þessum árstíma. Útlit er því fyrir að umferðin í ár verði töluvert minni en í fyrra og svipuð eða jafnvel minni en hún var árið 2006.
Lesa meiraKærunefnd útboðsmála hefur með úrskurði fellt úr gildi þá ákvörðun Vegagerðarinnar að semja við Vélaleigu AÞ ehf. um tvöföldun Hringvegar (1), Fossvellir - Draugahliðar, eða frá Lögbergsbrekku að Litlu kaffistofunni. Það var Háfell ehf sem kærði ákvörðun Vegagerðarinnar.
Ljóst er að því mun enn tefjast að framkvæmdir við þessa tvöföldun hefjist en það er álit úrskurðarnefndarinnar að tilboð Háfells hafi heldur ekki verið gilt og að verktakinn "hafi ekki sýnt fram á raunhæfa möguleika á að verða fyrir valinu í útboði[nu]."
Ágreiningurinn snerist um hvort miða ætti meðaltal ársveltu síðustu þriggja ára við hvert ár fyrir sig eða meðaltal áranna þriggja.
Lesa meira
Markmið rannsóknarinnar samkvæmt verksamningi var að meta áhrif af tilkomu heilsársvegar yfir Dynjandisheiði á samfélag og byggð á því svæði sem rannsókn þessi tekur til. Kemur ekki á óvart að margvísleg samfélagsleg áhrif yrðu með tilkomu bættra samganga.
Gefin forsenda er að jarðgöng milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, svokölluð Dýrafjarðargöng séu samtímis til staðar. Þannig komast á heilsárs-samgöngur milli norðan- og sunnanverðra Vestfjarða.
Lesa meira
Mjög hefur dregið úr myndun raða við gatnamót Reyjanesbrautar og Bústaðavegar eftir að ný stilling umferðarljósa var virkjuð, en þar er nú vinstri beygja bönnuð frá Bústaðavegi á álagstímum.
Verst var ástandið síðdegis og teygðu biðraðir sig þá langt eftir Sæbrautinni og einnig inn á Miklubraut með tilheyrandi töfum og slysahættu.
Lesa meira
Nýlega auglýsti Vegagerðin og samgönguráðuneytið eftir upplýsingum um aðila sem hefðu áhuga á því að taka að sér reglubundinn áætlunarakstur á Íslandi án styrkja.
Nú hefur verið ákveðið að halda fund til að upplýsa um stöðu mála og einnig til skoðanaskipta með þeim rekstraraðilum sem kunna að hafa áhuga á slíkum akstri.
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember