Það er niðurstaða umhverfisráðuneytisins að fresta beri staðfestingu hluta aðalskipulags sveitarfélagsins Skagafjaðar hvað varðar legu Hringvegar á um 15 km kafla sem er nærri Varmahlíð.
Ráðuneytið tekur undir sjónarmið Skipulagsstofnunar og Vegagerðarinnar í þessu sambandi og beinir þeim tilmælum til sveitarfélagins og Vegagerðarinnar að leitað verði leiða til að finna lausn á því hvar vegurinn geti legið. En um er að ræða 6 km styttingu á Hringveginum og aukið umferðaröryggi en sveitarfélagið leggur áherslu á mikilvægi þjónustu og verslunar.
Lesa meira
Þann 19. júní sl. fagnaði Norræna vegasambandið 75 ára afmæli sínu. Það var stofnað í Stokkhólmi þann dag árið 1935. Stofnríkin voru Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð. Færeyjar urðu síðan fullgildur meðlimur árið 1975.
NVF er ekki sérlega vel þekkt utan fólks sem vinnur að vegagerð á Norðurlöndunum þrátt fyrir háan aldur sambandsins. Innan þess fer eigi að síður fram gífurlega mikið starf en sambandið er fyrst og fremst vettvangur fyrir norrænu ríkin til að skiptast á þekkingu.
Lesa meira
Markmiðið með breyttum leiðbeiningum er m.a. að undirbúningur verka hefjist áður en verk eru tekin inn á samgönguáætlun. Jafnframt að hönnunarferlið verði einsleitara á landsvísu.
Vegagerðin hefur tekið saman umferðartölur vegna Bíladaga sem haldnir voru á Akureyri helgina 19. - 20. júní. Í ljós kemur að umferðin í vikunni jókst um 8,5 prósent sé borið saman við sömu viku árið 2009.
Viðmiðunarstaður var Hringvegur í Kræklingahlíð, norðan við Akureyri.
Lesa meira
Ný stilling umferðarljósa á gatnamótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar verður virk miðvikudaginn 23. júní. Vinstri beygja frá Bústaðavegi inn á Reykjanesbraut verður bönnuð á álagstímum og er það gert til að draga úr myndun biðraða við gatnamótin.
Verst hefur ástandið verið síðdegis og teygja biðraðir sig þá langt eftir Sæbrautinni og einnig inn á Miklubraut með tilheyrandi töfum og slysahættu. Stilling umferðarljósanna byggir á umferðarmælingum á álagstímum.
Lesa meiraUmferðin á 16 völdum talningarstöðum á hringveginum er 3,5 prósentum minni í maí 2010 en hún var í sama mánuði í fyrra. Umferðin fyrstu fimm mánuði ársins hefur dregist saman um svipað eða 3,3 prósent.
Mest dregst umferðin saman á Suðurlandi og Austurlandi en minnst á Norðurlandi. Umferðin er nú farin að nálgast það sem hún var árin 2005 og 2006. Í fyrra tók umferðin mikinn kipp yfir sumarmánuðina og það á þá eftir að koma í ljós hvort það endurtaki sig í sumar.
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember