Með þessum leiðbeiningum setur Vegagerðin fram helstu forsendur og viðmið sem hafa skal að leiðarljósi við skipulag og hönnun þjóðvega í þéttbýli.
Leiðbeiningarnar eru grunnur að samræmdum vinnubrögðum innan Vegagerðarinnar og gerir samvinnu Vegagerðarinnar við sveitarfélög og ráðgjafa markvissari.
Lesa meiraBláskeggsárbrú í Hvalfirði var á sumardaginn fyrsta tekin í notkun á ný eftir að hafa verið færð í upprunanlegt horf. Brúin var byggð árið 1907 og á 100 ára afmælinu var hafist handa við endurgerðina sem nú er lokið.
Brúin er líkt og í upphafi eingöngu ætluð gangandi fólki og ríðandi því hún var byggð fyrir tíma bílsins á Íslandi, síðar var hún reyndar breikkuð og styrkt til að þola vélknúin ökutæki. Brúin er fyrir ofan Hvalstöðina og Þyril og hægt að aka að upplýsingaskilti þar sem stuttur spölur er að brúnni. Sjá myndir í fréttinni frá athöfninni þegar brúin var aftur tekin í notkun.
Lesa meiraAlls bárust 15 tilboð í áfanga að breikkun Suðurlandsvegar, tvöföldun og breikkun Hringvegar frá Fossvöllum í Lögbergsbrekku, ofan við Lækjarbotna, að Draugahlíðarbrekku austan við Litlu kaffistofuna.
Arnarverk ehf, Kópavogi átti lægsta boð rúmlega 606 milljónir króna sem er um 81 prósent af áætluðum verktakakostnaði. Næstlægst var Vélaleiga AÞ, ehf og síðan Háfell ehf.
Áætlaður verktakakostnaður er einungis hluti af kostnaði við verkið, við bætist til dæmis eftirlit og umsjón, malbik og víravegrið þannig að heildarkostnaður verður töluvert hærri.
Lesa meiraVegurinn inn í Þórsmörk er algerlega ófær af völdum flóðsins í Markarfljóti og vegna drullu og eðju sem komið hefur út Gígjölkinum. Ekki er að öðru leiti vitað nákvæmlega hversu miklar skemmdir eru á veginum.
Gert var við skemmdir sem urðu á veginum (Þórsmerkurvegi) við gömlu brúna yfir Markarfljót. Þannig að vegurinn er fær og í góðu lagi frá Hringveginum að gömlu brúnni, en fljótlega þar fyrir innan er hann ófær. Þetta er hættusvæði og öll umferð er óheimil.
Lesa meiraVegna breyttra aðstæðna (síðdegis mánudaginn 19. apríl) hefur verið ákveðið að opna veginn milli Markarfljóts og Skóga fyrir almenna umferð. Fólk er beðið um að fara varlega og vera alls ekki á ferð þarna að óþörfu.
Þótt búið sé að gera við veginn til bráðabrigða er nauðsynlegt að fara varlega og taka mið af því að umferðarhraði hefur verið tekinn niður, það er heldur ekki bundið slitlag á þeim köflum sem gert var við. Næstu daga verður unnið við að koma mannvirkjunum í upprunalegt horf.
Lesa meira
Viðgerð á Hringvegi við nýju brúna yfir Markarfljót lauk siðdegis í dag 18. apríl. Þótt því sé lokið verður ekki opnað fyrir almenna umferð fyrr en almannavarnir og lögregla heimila það, sem er háð hættuástandi og aðstæðum á hverjum tíma. Það er einnig i höndum vettvangstjórnar að færa neyðarumferðina af gömlu brúnni á þá nýju.
Ekki verður að sinni gengið endanlega frá yfirborði vegarins og akstur um þennan kafla þarfnast sérstakrar varúðar.
Með opnun Hringvegarins um Markarfljót verður aflétt þungatakmörkunum sem nú eru vegna gömlu brúarinnar, en ítrekað skal að allir flutningar verða eins og önnur umferð háð heimild vettvangsstjórnar á svæðinu.
Vinna síðustu daga við viðgerðina á veginum og varnargörðum hefur gengið vel og styttist í að hægt verði að flytja neyðarakstur af gömlu brúnni yfir á þá nýju og þar með um Hringveginn. Vonast er til að það geti orðið í kvöld, 18. apríl. Þótt það verði gert verður ekki opnað fyrir almenna umferð fyrr en almannavarnir og lögregla heimila það, sem er háð hættuástandi og aðstæðum á hverjum tíma. Ekki verður að sinni gengið endanlega frá yfirborði vegarins og akstur um þennan kafla þarfnast sérstakrar varúðar.
Með opnun Hringvegarins um Markarfljót verður aflétt þungatakmörkunum sem nú eru vegna gömlu brúarinnar, en ítrekað skal að allir flutningar verða eins og önnur umferð háð heimild vettvangsstjórnar á svæðinu .
Tilkynnt verður hér á heimasíðu Vegagerðarinnar þegar viðgerð er lokið og eins þegar að því kemur að opnað verður fyrir almenna umferð.
Lesa meiraFyrir hádegi í dag 17. apríl var búið að fylla upp í varnargarð austan við nýju brúna yfir Markarfljót á Hringvegi. Einnig er búið að fylla upp í veginn þar sem hann var rofinn næst brúnni. Þannig er búið að veita öllu vatni Markarfljóts undir brúna og því unnt að hefjast handa við lagfæringar á veginum við brúna yfir Seljalandsá austan Markarfljótsbrúarinnar.
Nauðsynlegt er að grjótverja varnargarðinn og hugsanlega líka veginn næst Markarfljótsbrúnni til þess að ágangurinn og hugsanleg flóð eyðileggi ekki það verk sem þegar er unnið. Óvíst er hvenær vegurinn verður opnaður, náttúran ræður þar miklu um, auk þess er vegurinn hvort eð er lokaður fyrir austan undir Eyjafjöllum vegna öskufalls.
Lesa meiraUm fimmleitið í dag, 16. apríl, var fyrsta grjóthlassinu sturtað í rofið á varnargarðinum austan við nýju brúna yfir Markarfljót.
Fyrsta skref í því að lagfæra Hringveginn er að loka varnargarðinum. Þegar búið er að loka honum og koma vatni af veginum austan við brúna verður hafist handa við að laga veginn.
Brúarsérfræðingar Vegagerðarinnar tóku út gömlu Markarfljótsbrúna og gáfu leyfi fyrir mjólkurflutningum.
Lesa meiraVegagerðin vinnur nú að því að lagfæra varnargarðinn fyrir austan nýju Markarfljótsbrúna, vestan við Seljalandsfoss, og leiðargarðinn austan við brúna. Ætlunin er að ná tökum á vatnsrennslinu og beina því undir brúna svo gera megi við veginn að austanverðu.
Ljóst er því að vegurinn verður ekki opnaður alveg á næstunni. Einnig er fylgst með frekari flóðum í ánni sem gætu tafið þetta verk. Gamla brúin yfir Markarfljót er fær minni bílum en er ekki opin fyrir almenna umferð. Sjá einnig í fréttinni kort með yfirliti yfir skemmdir af völdum flóðanna.
Lesa meiraLjóst er að Hringvegurinn við Markarfljót verður ekki opnaður á hádegi eins og stefnt var að. Vegna flóðanna í gærkvöldi og í nótt hafa skapast nýjar aðstæður. Vegagerðin er að kanna skemmdirnar og aðstæður á þessu svæði og skoða leiðir til að opna veginn. Einnig stöðu varnargarða en tryggja þarf að flóðavatn fari sem mest undir Markarfljótsbrúna í stað þess að berja á veginum austan brúarinnar.
Nánar verður að frétta af því á næstu klukkustundum. Lögð er áhersla á að halda opinni neyðarleið yfir gömlu Markafljótsbrúna.
Neyðarleiðin er nú opin (kl 9:30) en lokað er fyrir alla almenna umferð.
Lesa meiraLjóst er að Hringvegurinn við Markarfljót verður ekki opnaður í dag, verkið er töluvert umfangsmeira en fyrst var reiknað með. Unnið er að því hörðum höndum að gera veginn færan öllum bílum, einkabílum sem flutningabílum. Unnið verður fram á nótt eftir því sem aðstæður leyfa.
Staðan á verkinu verður tekin út í fyrramálið en vonast er til að unnt verði að opna veginn um hádegi. Þá er alveg óljóst hver staðan verður á öskufalli á þessu svæði og því ekki víst að það dugi til að opna veginn að hann verði orðinn akfær.
Neyðarakstur er mögulegur yfir gömlu brúna yfir Markarfljótið á léttum bílum með heimild lögreglu sem vaktar svæðið og lokar brúnni.
Hér fyrir neðan er að finna nýjustu upplýsingar um Suðurlandsveginn sem að morgni 15. apríl er enn lokaður. Verið er að meta aðstæður á staðnum, möguleika á frekari flóðspýjum. Líklegt er að farið verði fyrr en seinna í að fylla í skörðin sem Vegagerðin lét gera í veginn í gær og sem flóðið stækkuðu svo.
Hér í fréttinni má sjá nokkrar myndir frá í gær, 14. apríl meðal annars af göngubrúnni yfir Lónið við enda Gígjökuls sem flóðið hreif með sér. (15. apríl kl. 8:15)
Lesa meiraÍslenskir aðalverktakar áttu lægst tilboðið í tvöföldun Vesturlandsvegar Hringavegar (1), Hafravatnsvegur - Þingvallavegur. Boðið hljóðaði upp á tæpar 257 milljónir króna og var innan við 300 þúsund krónum lægra en næsta boð.
Boðið var tæplega 76 prósent af áætluðum verktakakostnaði en auk ÍAV buðu lægst Loftorka Reykjavík og Háfell.
Lesa meiraUmferðin einsog hún er mæld á 16 völdum veggarköflum á Hringvegi var nokkuð meiri í marsmánuði 2010 en hún var í mars í fyrra. Sú aukning dugir þó ekki til að breyta því að umferðin fyrstu þrjá mánuði ársins er nokkuð minni en fyrstu þrjá mánuði ársins 2009.
Páskar skekkja samabburðin á milli ára fyrri hluta árs en telja má að til dæmis hafi umferð aukist vegna gossins á Fimmvörðuhálsi.
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember