Göngubrýr yfir Njarðargötu og Hringbraut hlutu Steinsteypuverðlaunin í ár. Þau eru veitt af Steinsteypufélagi Íslands fyrir framúrskarandi steinsteypt mannvirki á síðustu fimm árum. Vegagerðin og Reykjavíkurborg fengu verðlaunin sem verkkaupi, einnig tóku við verðlaununum arkitektarnir frá Studio Granda, Efla fyrir verkfræðihönnun og verktakarnir Háfell og Eykt.
Vegagerðin hefur lagt grunn að samningi við Eimskip um siglingar á Landeyjahöfn frá og með 1. júlí næstkomandi. Nauðsynlegt er að gera nýjan samning en kostnaðarsamt hefði verið að segja upp núverandi samningi frá og með miðju sumri og fara í útboð til dæmis. Því var þessi leið fyrir valinu.
Litið er á þetta sem reynslusamning meðan menn eru að átta sig á rekstrinum á gjörbreyttri leið en samningurinn við Eimskip gildir einungis til 1. september 2011
Lesa meira
Þann 22. febrúar 2010 tilkynnti Vegagerðin fyrirhugaða breytingu á vegtengingum frá Dettifossvegi (862) að Hólmatungum og Vesturdal/Hljóðaklettum, Norðurþingi, til Skipulagsstofnunar.
Lesa meiraVegagerðin vinnur að því að fjölga vefmyndavélum á vegakerfinu. Nú er búið að taka í notkun þrjár nýjar vélar, allar eru þær á Vestfjörðum. Þær sýna hvernig færðin er á Mikladal milli Patreksfjarðar og Tálknafjarðar; á Hálfdán á milli Tálknafjarðar og Bíldudals og á Fossahlíð í Skötufirði.
Ný mynd kemur frá þessum vélum á fimm mínútna fresti og þær sýna þrjú sjónarhorn. Með þessum vélum eru komnar upp 28 vefmyndavélar sem sýna þá veður og færð á vegakerfinu.
Lesa meiraVetrarþjónustan á þjóðvegum, bæklingur fyrir árið 2010 er kominn út. Í bæklingnum er að finna upplýsingar um vetrarþjónustuna, snjómokstursreglur, þjónustuflokka, eða hvenær og hvar þjónustað er og hversu mikil þjónustan er.
Hægt er að nálgast bæklinginn hér á vefnum, á bensínstöðvum, hjá ferðaþjónustuaðilum og hjá Vegagerðinni. Einnig er hægt að senda tölvupóst á umferd@vegagerdin.is og óska eftir því að fá bæklinginn sendan í póst.
Lesa meiraFrestur til að sækja um fjárveitingu úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar fyrir árið 2010, rann út að kvöldi 3. febrúar 2010. Umsækjendur eiga að hafa fengið sendan tölvupóst til staðfestingar á móttöku umsókna.
Enn voru slegin met í upphæð umsókna og er heildarupphæð tæplegar fjórfalt hærri en sú upphæð sem til ráðstöfunar er úr sjóðnum.
Lesa meiraTalsvert minni umferð var í nýliðnum janúar en á sama tíma í fyrra. Umferðin á 16 talningarstöðum á Hringvegi var ríflega 3 prósentum minni.
Mest dróst umferðin saman á Suðurlandi en hún jókst hinsvegar á Norður- og Austurlandi. Umferðin í janúar í fyrra var meiri en hún var 2008 sem þá mældist með örlítið meiri umferð en árið 2007.
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember