Fréttir

27.7.2010 : Minni umferð um síðustu helgi

Helgarumferðin

Enn dregur heldur úr umferðinni um helgar í nágrenni höfuðborgarinnar. Umferðin var ríflega 9 prósentum minni um síðustu helgi en helgina þar áður. Umferðin var um prósenti minni um helgina en sömu helgi í fyrra en nákvæmlega jafnmikil og fyrir tveimur árum, árið 2008.

 

Þetta er í samræmi við það sem gerst hefur undanfarin ár en þá dregur úr helgarumferðinni þegar líður á sumarið einsog sjá má á meðfylgjandi stöplariti.

Lesa meira
 

21.7.2010 : Landeyjahöfn tekin í notkun

Ráðherra klippir á borða

Landeyjahöfn var tekin í notkun í gær 20. júlí við hátíðlega athöfn. Það var samgönguráðherra Kristján L. Möller sem klippti á borða við landganginn að lokinni fyrstu siglingu Herjólfs frá Vestmannaeyjum til Landeyjahafnar.

 

Höfnin mun hafa gríðarlega miklar breytingar í för með sér bæði fyrir Eyjamenn og Rangæinga. Fjölbreyttir möguleikar opnast við það að sigling milli lands og Eyja styttist úr tæpum þremur tímum í um hálfa klukkustund. Fjölgun ferða úr tveimur á dag í allt að fimm reglulegar ferðir verður bylting fyrir samgöngur milli Vestmannaeyja og lands.

Lesa meira
 

20.7.2010 : Umferðin heldur meiri um helgina

Umferðin um helgina

Umferðin um nýliðna helgi reyndist nærri 5 prósentum meiri en helgarnar á undan. Umferðin var einnig lítillega minni en um sömu helgi árin 2008 oog 2009.

 

Rétt er þó að hafa í huga að sumarumferðin 2009 var met. Ekki er útlit fyrir að það verði slegið í sumar. Og hugsanlegt er miðað við þróunina liðin ár að helgin sem leið verði umferðarmesta helgi sumarsins, en það hefur dregið úr helgarumferð þær helgar sem eftir lifa sumars síðustu ár.

Lesa meira
 

16.7.2010 : Gagnvirkt skipurit Vegagerðarinnar

Skipurit Vegagerðarinnar

Skipurit Vegagerðarinnar sem má finna hérna á vefnum er nú gagnvirkt. Í því felst að ef smellt er á einhvern af kössunum koma fram upplýsingar um viðkomandi svæði, svið eða deild. Fram kemur hver stýrir til dæmis sviði eða svæði og hvert verksviðið er.

 

Skipuritið má finna undir "Um Vegagerðina" hér fyrir ofana og velja síðan flipann "Skipulag" sem er vinstra megin og smella síðan á "skipurit".

Lesa meira
 

15.7.2010 : Áhugi á áætlunarakstri án styrkja

Langferðabifreið

Áhugi á því að taka að sér áætlunarakstur án styrkja hefur reysnt nokkur. Ljóst er að áhugi er það mikill á mörgum leiðum að velja þarf á milli rekstraraðila. Lokafrestur til að taka þátt í samkeppni um þennan akstur án styrkja er því gefinn til 30. júlí nk.

 

Áhugasamir skili upplýsingum til hagdeildar Vegagerðarinnar. Ekki þarf að endurnýja áður innsendar upplýsingar. 

Lesa meira
 

13.7.2010 : Einfaldar lausnir bestar

Á Dettifossvegi 4

Landslagið þar sem unnið er að lagningu nýs Dettifossvegar vestan Jökulsár á Fjöllum er sérstakt. Það er eyðilegt og þurrt. Því er nauðsynlegt að umgangast svæðið af virðingu þannig að vegagerðin valdi sem minnstri röskun.

 

Nauðsynlegt er að hafa góða fláa á vegum til að auka öryggið og að sama skapi nauðsynlegt að hafa þá snyrtilega. Þegar ekki er hægt að sá grasfræi til að breiða yfir verkið þarf að fara aðrar leiðir og verktakinn Árni Helgaseon sem leggur veginn fann einfalda og góða lausn á málinu.

Lesa meira
 

12.7.2010 : Jafnari en minni umferð um helgar

Helgarumferðin 9. - 11. júlí

Mun minni umferð var um Hringveginn í nágrenni Reykjavíkur um helgina en var sömu helgi í fyrra, eða 7,2 prósentum minni umferð. Samdráttur er á nær öllum talningarstöðunum sex.

 

Athygli vekur að umferðin síðustu þrjár helgar hefur verið mjög svipuð en árin tvö þar á undan var umferðin miklu sveiflukenndari milli helga.

Lesa meira
 

7.7.2010 : Grjóthrun á Ströndum

Á Strandavegi (&$#)

Komi fólk að svæði á vegi þar sem orðið hefur grjóthrun er best að forða sér hið snarasta því þá má alltaf eiga von á meira hruni. Vegagerðarmenn voru á þriðjudag að hreinsa svæði á veginum í Veiðilyesukleif á Strandavegi (643) þegar meira grjót hrundi og olli skemmdum á þjónustubílnum.

 

Vegagerðarmennirnir höfðu líka af því áhyggjur að vegfarendur biðu á veginum við fyrsta stein sem hafði hrunið í stað þess að forða sér af svæðinu meðan það var hreinsað. Vegagerðin vill því beina þeim tilmælum til vegfarenda að forða sér, þarna er svæðið merkt með grjóthrunsmerkjum og best að koma sér út fyrir þau.

 

Lesa meira
 

7.7.2010 : Svipuð helgarumferð í nágrenni Reykjavíkur

Helgarumferðin

Heldur minni umferð var í nágrenni höfuðborgarinnar síðustu helgina í júní miðað við sömu helgi fyrir ári síðan, umferðin fyrstu helgina í júlí var svipuð, sé tekið mið af sex talningarstöðum í nágrenni Reykjavíkur.

 

Fróðlegt verður að sjá hvort helgarumferðin í kringum höfuðborgarsvæðið muni hegða sér svipað og í fyrra, þ.e.a.s. haldist svipuð næstu tvær helgar og fari síðan minkandi.

 

Lesa meira
 

6.7.2010 : Útboðið í lagi: Kallað eftir gögnum frá fleiri verktökum

Litla kaffistofan

Í kjölfar úrskurðar kærunefndar útboðsmála frá 5. júli þar sem felld er úr gildi ákvörðun Vegagerðarinnar um að ganga til samninga við Vélaleigu AÞ ehf hefur verið ákveðið að kalla eftir frekari gögnum frá þremur verktökum til viðbótar eða þeim sem áttu fjórða til sjötta lægsta tilboð í verkið, Hringvegur (1), tvöföldun Fossvellir - Draugahlíðar.

 

Vonast er til að það verk geti gengið hratt fyrir sig og fljótlega verði hægt að semja við verktaka sem stenst kröfur útboðsins um verkið. Ekki er um að ræða að bjóða þurfi verkið út að nýju enda ekki gerð athugasemd við útboðið sem slíkt heldur mat á því hvernig reikna skuli ársveltu síðustu þriggja ára.

Lesa meira
 

6.7.2010 : Stórfelldur samdráttur í umferð í júní

Graf um umferð

Umferðin í júní 2010 á 16 völdum talningarstöðum dróst mikið saman miðað við sama mánuð fyrir ári síðan. Þannig er nærri 9 prósenta minni umferð núna í júni er fyrir ári og samdrátturinn í umferðinni þennan fyrri árshelming nemur 4,6 prósentum.

 

Umferðin minnkar á öllum talningarstöðunum 16 sem hefur ekki áður gerst á þessum árstíma. Útlit er því fyrir að umferðin í ár verði töluvert minni en í fyrra og svipuð eða jafnvel minni en hún var árið 2006.

Lesa meira
 

5.7.2010 : Enn seinkun á breikkun Suðurlandsvegar, 1. áfanga

Suðurlandsvegur breikkun 1. áfangi

Kærunefnd útboðsmála hefur með úrskurði fellt úr gildi þá ákvörðun Vegagerðarinnar að semja við Vélaleigu AÞ ehf. um tvöföldun Hringvegar (1), Fossvellir - Draugahliðar, eða frá Lögbergsbrekku að Litlu kaffistofunni. Það var Háfell ehf sem kærði ákvörðun Vegagerðarinnar.

 

Ljóst er að því mun enn tefjast að framkvæmdir við þessa tvöföldun hefjist en það er álit úrskurðarnefndarinnar að tilboð Háfells hafi heldur ekki verið gilt og að verktakinn "hafi ekki sýnt fram á raunhæfa möguleika á að verða fyrir valinu í útboði[nu]."

 

Ágreiningurinn snerist um hvort miða ætti meðaltal ársveltu síðustu þriggja ára við hvert ár fyrir sig eða meðaltal áranna þriggja.

Lesa meira
 

2.7.2010 : Mat á samfélagsáhrifum nýs vegar um Dynjandisheiði

Dynjandisheiði

Markmið rannsóknarinnar samkvæmt verksamningi var að meta áhrif af tilkomu heilsársvegar yfir Dynjandisheiði á samfélag og byggð á því svæði sem rannsókn þessi tekur til. Kemur ekki á óvart að margvísleg samfélagsleg áhrif yrðu með tilkomu bættra samganga.

 

Gefin forsenda er að jarðgöng milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, svokölluð Dýrafjarðargöng séu samtímis til staðar. Þannig komast á heilsárs-samgöngur milli norðan- og sunnanverðra Vestfjarða.

 

Lesa meira
 

2.7.2010 : Góður árangur af breyttri stýringu umferðarljósa

Breytt stýring ljósa

Mjög hefur dregið úr myndun raða við gatnamót Reyjanesbrautar og Bústaðavegar eftir að ný stilling umferðarljósa var virkjuð, en þar er nú vinstri beygja bönnuð frá Bústaðavegi á álagstímum.  

 

Verst var ástandið síðdegis og teygðu biðraðir sig þá langt eftir Sæbrautinni og einnig inn á Miklubraut með tilheyrandi töfum og slysahættu.

Lesa meira
 

1.7.2010 : Áætlunarakstur án styrkja - fundur

Rúta á ferð

Nýlega auglýsti Vegagerðin og samgönguráðuneytið eftir upplýsingum um aðila sem hefðu áhuga á því að taka að sér reglubundinn áætlunarakstur á Íslandi án styrkja.

 

Nú hefur verið ákveðið að halda fund til að upplýsa um stöðu mála og einnig til skoðanaskipta með þeim rekstraraðilum sem kunna að hafa áhuga á slíkum akstri.

Lesa meira
 

28.6.2010 : Ráðuneytið úrskurðar um frestum

Varmahlíð

Það er niðurstaða umhverfisráðuneytisins að fresta beri staðfestingu hluta aðalskipulags sveitarfélagsins Skagafjaðar hvað varðar legu Hringvegar á um 15 km kafla sem er nærri Varmahlíð.

 

Ráðuneytið tekur undir sjónarmið Skipulagsstofnunar og Vegagerðarinnar í þessu sambandi og beinir þeim tilmælum til sveitarfélagins og Vegagerðarinnar að leitað verði leiða til að finna lausn á því hvar vegurinn geti legið. En um er að ræða 6 km styttingu á Hringveginum og aukið umferðaröryggi en sveitarfélagið leggur áherslu á mikilvægi þjónustu og verslunar.

Lesa meira
 

25.6.2010 : Norræna vegasambandið 75 ára

NVF 75 ára

Þann 19. júní sl. fagnaði Norræna vegasambandið 75 ára afmæli sínu. Það var stofnað í Stokkhólmi þann dag árið 1935. Stofnríkin voru Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð. Færeyjar urðu síðan fullgildur meðlimur árið 1975.

 

NVF er ekki sérlega vel þekkt utan fólks sem vinnur að vegagerð á Norðurlöndunum þrátt fyrir háan aldur sambandsins. Innan þess fer eigi að síður fram gífurlega mikið starf en sambandið er fyrst og fremst vettvangur fyrir norrænu ríkin til að skiptast á þekkingu.

Lesa meira
 

23.6.2010 : Leiðbeiningar um hönnun vega

Forsíða leiðbeininga um hönnun vega

Markmiðið með breyttum leiðbeiningum er m.a. að undirbúningur verka hefjist áður en verk eru tekin inn á samgönguáætlun. Jafnframt að hönnunarferlið verði einsleitara á landsvísu.

Lesa meira
 

23.6.2010 : Meiri umferð í kringum Bíladaga

Akureyri

Vegagerðin hefur tekið saman umferðartölur vegna Bíladaga sem haldnir voru á Akureyri helgina 19. - 20. júní. Í ljós kemur að umferðin í vikunni jókst um 8,5 prósent sé borið saman við sömu viku árið 2009.

 

Viðmiðunarstaður var Hringvegur í Kræklingahlíð, norðan við Akureyri.

Lesa meira
 

21.6.2010 : Nýjung á ljósum við Bústaðaveg og Reykjanesbraut

Nýtt skiltil

Ný stilling umferðarljósa á gatnamótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar verður virk miðvikudaginn 23. júní. Vinstri beygja frá Bústaðavegi inn á Reykjanesbraut verður bönnuð á álagstímum og er það gert til að draga úr myndun biðraða við gatnamótin.

 

Verst hefur  ástandið verið síðdegis og teygja biðraðir sig þá langt eftir Sæbrautinni og einnig inn á Miklubraut með tilheyrandi töfum og slysahættu. Stilling umferðarljósanna byggir á umferðarmælingum á álagstímum.

Lesa meira
 

4.6.2010 : Enn dregur úr umferð

Umferðin í maí - Graf

Umferðin á 16 völdum talningarstöðum á hringveginum er 3,5 prósentum minni í maí 2010 en hún var í sama mánuði í fyrra. Umferðin fyrstu fimm mánuði ársins hefur dregist saman um svipað eða 3,3 prósent.

 

Mest dregst umferðin saman á Suðurlandi og Austurlandi en minnst á Norðurlandi. Umferðin er nú farin að nálgast það sem hún var árin 2005 og 2006. Í fyrra tók umferðin mikinn kipp yfir sumarmánuðina og það á þá eftir að koma í ljós hvort það endurtaki sig í sumar.

Lesa meira
 

27.5.2010 : Minna viðhald, minni þjónusta árið 2010

Heflun á Ströndum

Þar sem fjármagn til viðhalds og þjónustu vegakerfisins verður töluvert minna en á síðustu árum er óhjákvæmilegt annað en að draga úr viðhaldi og sumarþjónustu í ár. Miðað við þær upphæðir sem er að finna í samgönguáætlun, sem er enn í meðförum Alþingis, verða framlög til viðhalds og þjónustu í ár um 10% lægri í krónum talið en í fyrra. Fjárveitingar höfðu þá lækkað bæði árin 2008 og 2009.


Á malarvegum verður því minna heflað í sumar, rykbinding og mölburður verður minni. Í viðhaldi bundinna slitlaga verður í meira mæli gert við hluta vegar, (hjólfarafyllingar, blettaviðgerðir og kantlagfæringar), í stað heilla yfirlagninga svo dæmi séu tekin.

Lesa meira
 

26.5.2010 : Vestfjarðavegur (60) milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði, drög að tillögu að matsáætlun

Eiði - Þverá


Vegagerðin auglýsir hér með drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Vestfjarðavegi (60) milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði í sveitarfélögunum Reykhólahreppi og Vesturbyggð.


Almenningur getur gert athugasemdir við áætlunina og er athugasemdafrestur í 2 vikur eða til 7. júní 2010.

Lesa meira

 

25.5.2010 : Vegurinn inn í Þórsmörk lagfærður í vikunni

Unnið við Svaðbælisá

Lagfæringar á veginum inn í Þórsmörk hefjast í vikunni og reiknað er með að fært verði inn í Mörk um næstu helgi. Það er eigi að síður í valdi almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra hvort umferð verði leyfð á svæðinu.


Vinna við endurbætur á varnargörðum við Svaðbælisá eru hafnar og heldur sú vinna áfram næstu vikur.

Lesa meira
 

21.5.2010 : Skrifað undir við ÍAV um Ullarnesbrekkuna

Skrifað undir

Vegagerðin og Mosfellsbær skrifuðu í dag undir samning við ÍAV hf um tvöföldun Vesturlandsvegar milli Hafravatnsvegar og Þingvallavegar, Ullarnesbrekkuna svo kölluðu. ÍAV var lægstbjóðandi. Þetta er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Mosfellsbæjar og var einnig skrifað undir samning um það.


Verktakinn er þegar farinn að koma sér fyrir en verkið verður unnið í tveimur hlutum, í ár og á næsta ári.

Lesa meira
 

20.5.2010 : Hringvegur, vegur að námu í Húsaborg í Húnaþingi vestra, kynning framkvæmda vegna könnunar á matsskyldu

Vegur að námu í Húsaborg


Vegagerðin fyrirhugar að opna nýja efnisnámu fyrir klæðingarefni í Húsaborg í landi Auðunarstaða í sveitarfélaginu Húnaþingi vestra í Vestur-Húnavatnssýslu. Í tengslum við námuvinnsluna þarf að leggja nýjan, um 1,1 km langan, námuveg.

Lesa meira

 

11.5.2010 : NVF heiðrar félaga

Verðlaunaafhendingin

Á fundi slitlagsnefndar Norræna vegasambandsins (NVF) sem haldinn var í Reykjavík 26. apríl voru þeim Sigursteini Hjartarsyni og Vali Guðmundssyni afhentir svanir, heiðursverðlaun sambandsins.


Sigursteinn og Valur hafa báðir starfað árum saman í nefndinni og á tímabili leiddu þeir starf hennar og brydduðu upp á ýmsum nýjungum, meðal annars útgáfu Grænbókar um malbik.

Lesa meira
 

7.5.2010 : 100 ára varnargarðar við Markarfljót

Varnargarðar 100 ára

Fyrstu varnargarðarnir við Markarfljót eru 100 ára og þann 6. maí var haldið upp á það um leið og upplýsingaskilti um varnargarðana og flóðin í kjölfar gossins í Eyjafjallajökli voru afhjúpuð.


Þann 6. maí 1910 hófst bygging fyrsta varnargarðsins að frumkvæði heimamanna, en hann var við Seljalandsmúla og var 700 m langur.

Lesa meira
 

6.5.2010 : Líklega auðvelt að gera jeppaakfæran veg í Þórsmörk

Þórsmerkurvegur

Vegagerðarmenn hafa kannað veginn inn í Þórsmörk svo sem möguleg er og talið er að það verði ekki stórmál að gera veginn akfæran jeppum og stærri bílum eftir að gosi lýkur. Aðstæður voru skoðaðar 4. maí.


Ítrekað er að vegurinn er lokaður allri umferð þótt hann sé orðinn akfær allt að Langanesi.

Lesa meira
 

5.5.2010 : Verulega minni umferð

Umferðin í nokkur ár

Umferðin fyrstu fjóra mánuði ársins dróst verulega saman á 16 völdum talningarstöðum á Hringveginum eða um 3,2%. Þetta er mesti samdráttur í langan tíma.


Athygli vekur að fyrstu fjóra mánuði ársins 2008 stóð umferðin í stað eftir að hafa aukist mjög mikið árin á undan eða um 8-14%. Örlítil aukning varð fyrstu fjóra mánuðina í fyrra.

Lesa meira
 

4.5.2010 : Austurleið (F923) um Hrafnkelsdal, tillaga að matsáætlun

Austurleið (F923)

Tillaga að matsáætlun fyrir Austurleið (F923) um Hrafnkelsdal hefur verið lögð inn til málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnun skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum.
Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir. Hægt er að koma skriflegum athugasemdum við tillögu að matsáætlun til Skipulagsstofnunar. Frestur til athugasemda er til 18.05.2010.

Lesa meira

 

28.4.2010 : Þjóðvegir í þéttbýli - Leiðbeiningar

Þjóðvegir í þéttbýli

Með þessum leiðbeiningum setur Vegagerðin fram helstu forsendur og viðmið sem hafa skal að leiðarljósi við skipulag og hönnun þjóðvega í þéttbýli.


Leiðbeiningarnar eru grunnur að samræmdum vinnubrögðum innan Vegagerðarinnar og gerir samvinnu Vegagerðarinnar við sveitarfélög og ráðgjafa markvissari.

Lesa meira
 

23.4.2010 : Bláskeggsárbrú endurgerð

Bláskeggsárbrú

Bláskeggsárbrú í Hvalfirði var á sumardaginn fyrsta tekin í notkun á ný eftir að hafa verið færð í upprunanlegt horf. Brúin var byggð árið 1907 og á 100 ára afmælinu var hafist handa við endurgerðina sem nú er lokið.


Brúin er líkt og í upphafi eingöngu ætluð gangandi fólki og ríðandi því hún var byggð fyrir tíma bílsins á Íslandi, síðar var hún reyndar breikkuð og styrkt til að þola vélknúin ökutæki. Brúin er fyrir ofan Hvalstöðina og Þyril og hægt að aka að upplýsingaskilti þar sem stuttur spölur er að brúnni. Sjá myndir í fréttinni frá athöfninni þegar brúin var aftur tekin í notkun.

Lesa meira
 

20.4.2010 : Arnarverk ehf með lægsta tilboð

Opnun tilboða í Suðurlandsveg

Alls bárust 15 tilboð í áfanga að breikkun Suðurlandsvegar, tvöföldun og breikkun Hringvegar frá Fossvöllum í Lögbergsbrekku, ofan við Lækjarbotna, að Draugahlíðarbrekku austan við Litlu kaffistofuna.


Arnarverk ehf, Kópavogi átti lægsta boð rúmlega 606 milljónir króna sem er um 81 prósent af áætluðum verktakakostnaði. Næstlægst var Vélaleiga AÞ, ehf og síðan Háfell ehf.


Áætlaður verktakakostnaður er einungis hluti af kostnaði við verkið, við bætist til dæmis eftirlit og umsjón, malbik og víravegrið þannig að heildarkostnaður verður töluvert hærri.

Lesa meira
 

20.4.2010 : Vegurinn í Þórsmörk ófær

Markarfljót 19. apríl

Vegurinn inn í Þórsmörk er algerlega ófær af völdum flóðsins í Markarfljóti og vegna drullu og eðju sem komið hefur út Gígjölkinum. Ekki er að öðru leiti vitað nákvæmlega hversu miklar skemmdir eru á veginum.


Gert var við skemmdir sem urðu á veginum (Þórsmerkurvegi) við gömlu brúna yfir Markarfljót. Þannig að vegurinn er fær og í góðu lagi frá Hringveginum að gömlu brúnni, en fljótlega þar fyrir innan er hann ófær. Þetta er hættusvæði og öll umferð er óheimil.

Lesa meira
 

19.4.2010 : Búið að opna veginn um Markarfljót fyrir almennri umferð

Markarfljót 19. apríl

Vegna breyttra aðstæðna (síðdegis mánudaginn 19. apríl) hefur verið ákveðið að opna veginn milli Markarfljóts og Skóga fyrir almenna umferð. Fólk er beðið um að fara varlega og vera alls ekki á ferð þarna að óþörfu.


Þótt búið sé að gera við veginn til bráðabrigða er nauðsynlegt að fara varlega og taka mið af því að umferðarhraði hefur verið tekinn niður, það er heldur ekki bundið slitlag á þeim köflum sem gert var við. Næstu daga verður unnið við að koma mannvirkjunum í upprunalegt horf.

Lesa meira
 

18.4.2010 : Viðgerð á Hringvegi við Markarfljót lokið

Markarfljot 16. april

Viðgerð á Hringvegi við nýju brúna yfir Markarfljót lauk siðdegis í dag 18. apríl. Þótt því sé lokið verður ekki opnað fyrir almenna umferð fyrr en almannavarnir og lögregla heimila það, sem er háð hættuástandi og aðstæðum á hverjum tíma. Það er einnig i höndum vettvangstjórnar að færa neyðarumferðina af gömlu brúnni á þá nýju.


Ekki verður að sinni gengið endanlega frá yfirborði vegarins og akstur um þennan kafla þarfnast sérstakrar varúðar.


Með opnun Hringvegarins um Markarfljót verður aflétt þungatakmörkunum sem nú eru vegna gömlu brúarinnar, en ítrekað skal að allir flutningar verða eins og önnur umferð háð heimild vettvangsstjórnar á svæðinu.

Lesa meira
 

18.4.2010 : Vinna við viðgerð á Hringveginum við Markarfljót langt komin

markarfljót loftmynd 14. apríl

Vinna síðustu daga við viðgerðina á veginum og varnargörðum hefur gengið vel og styttist í að hægt verði að flytja neyðarakstur af gömlu brúnni yfir á þá nýju og þar með um Hringveginn. Vonast er til að það geti orðið í kvöld, 18. apríl. Þótt það verði gert verður ekki opnað fyrir almenna umferð fyrr en almannavarnir og lögregla heimila það, sem er háð hættuástandi og aðstæðum á hverjum tíma. Ekki verður að sinni gengið endanlega frá yfirborði vegarins og akstur um þennan kafla þarfnast sérstakrar varúðar.


Með opnun Hringvegarins um Markarfljót verður aflétt þungatakmörkunum sem nú eru vegna gömlu brúarinnar, en ítrekað skal að allir flutningar verða eins og önnur umferð háð heimild vettvangsstjórnar á svæðinu .


Tilkynnt verður hér á heimasíðu Vegagerðarinnar þegar viðgerð er lokið og eins þegar að því kemur að opnað verður fyrir almenna umferð.

Lesa meira
 

17.4.2010 : Búið að fylla í varnargarð og loka rofi í vegi

Markarfljót 16. apríl

Fyrir hádegi í dag 17. apríl var búið að fylla upp í varnargarð austan við nýju brúna yfir Markarfljót á Hringvegi. Einnig er búið að fylla upp í veginn þar sem hann var rofinn næst brúnni. Þannig er búið að veita öllu vatni Markarfljóts undir brúna og því unnt að hefjast handa við lagfæringar á veginum við brúna yfir Seljalandsá austan Markarfljótsbrúarinnar.


Nauðsynlegt er að grjótverja varnargarðinn og hugsanlega líka veginn næst Markarfljótsbrúnni til þess að ágangurinn og hugsanleg flóð eyðileggi ekki það verk sem þegar er unnið. Óvíst er hvenær vegurinn verður opnaður, náttúran ræður þar miklu um, auk þess er vegurinn hvort eð er lokaður fyrir austan undir Eyjafjöllum vegna öskufalls.

Lesa meira
 

16.4.2010 : Fyrsta grjótið farið í varnargarðinn

Markarfljót 15. apríl

Um fimmleitið í dag, 16. apríl, var fyrsta grjóthlassinu sturtað í rofið á varnargarðinum austan við nýju brúna yfir Markarfljót.

Fyrsta skref í því að lagfæra Hringveginn er að loka varnargarðinum. Þegar búið er að loka honum og koma vatni af veginum austan við brúna verður hafist handa við að laga veginn.

 


Brúarsérfræðingar Vegagerðarinnar tóku út gömlu Markarfljótsbrúna og gáfu leyfi fyrir mjólkurflutningum.

Lesa meira
 

16.4.2010 : Unnið að viðgerðum á varnagörðum

Markarfljót 15. apríl

Vegagerðin vinnur nú að því að lagfæra varnargarðinn fyrir austan nýju Markarfljótsbrúna, vestan við Seljalandsfoss, og leiðargarðinn austan við brúna. Ætlunin er að ná tökum á vatnsrennslinu og beina því undir brúna svo gera megi við veginn að austanverðu.


Ljóst er því að vegurinn verður ekki opnaður alveg á næstunni. Einnig er fylgst með frekari flóðum í ánni sem gætu tafið þetta verk. Gamla brúin yfir Markarfljót er fær minni bílum en er ekki opin fyrir almenna umferð. Sjá einnig í fréttinni kort með yfirliti yfir skemmdir af völdum flóðanna. 

Lesa meira
 

16.4.2010 : Suðurlandsvegur ekki opnaður á hádegi

Markarfljót 15. apríl

Ljóst er að Hringvegurinn við Markarfljót verður ekki opnaður á hádegi eins og stefnt var að. Vegna flóðanna í gærkvöldi og í nótt hafa skapast nýjar aðstæður. Vegagerðin er að kanna skemmdirnar og aðstæður á þessu svæði og skoða leiðir til að opna veginn. Einnig stöðu varnargarða en tryggja þarf að flóðavatn fari sem mest undir Markarfljótsbrúna í stað þess að berja á veginum austan brúarinnar.


Nánar verður að frétta af því á næstu klukkustundum. Lögð er áhersla á að halda opinni neyðarleið yfir gömlu Markafljótsbrúna.

Neyðarleiðin er nú opin (kl 9:30) en lokað er fyrir alla almenna umferð.

Lesa meira
 

15.4.2010 : Opnað á morgun - myndir

DSC_0539Minni

Ljóst er að Hringvegurinn við Markarfljót verður ekki opnaður í dag, verkið er töluvert umfangsmeira en fyrst var reiknað með. Unnið er að því hörðum höndum að gera veginn færan öllum bílum, einkabílum sem flutningabílum. Unnið verður fram á nótt eftir því sem aðstæður leyfa.


Staðan á verkinu verður tekin út í fyrramálið en vonast er til að unnt verði að opna veginn um hádegi. Þá er alveg óljóst hver staðan verður á öskufalli á þessu svæði og því ekki víst að það dugi til að opna veginn að hann verði orðinn akfær.


Neyðarakstur er mögulegur yfir gömlu brúna yfir Markarfljótið á léttum bílum með heimild lögreglu sem vaktar svæðið og lokar brúnni.

Lesa meira

 

15.4.2010 : Aðstæður metnar

Göngubrú á ferð

Hér fyrir neðan er að finna nýjustu upplýsingar um Suðurlandsveginn sem að morgni 15. apríl er enn lokaður. Verið er að meta aðstæður á staðnum, möguleika á frekari flóðspýjum. Líklegt er að farið verði fyrr en seinna í að fylla í skörðin sem Vegagerðin lét gera í veginn í gær og sem flóðið stækkuðu svo.


Hér í fréttinni má sjá nokkrar myndir frá í gær, 14. apríl meðal annars af göngubrúnni yfir Lónið við enda Gígjökuls sem flóðið hreif með sér. (15. apríl kl. 8:15)

Lesa meira
 

7.4.2010 : ÍAV með lægsta boð í tvöföldun Vesturlandsvegar

Opnun tilboða í Vesturlandsveg

Íslenskir aðalverktakar áttu lægst tilboðið í tvöföldun Vesturlandsvegar Hringavegar (1), Hafravatnsvegur - Þingvallavegur. Boðið hljóðaði upp á tæpar 257 milljónir króna og var innan við 300 þúsund krónum lægra en næsta boð.


Boðið var tæplega 76 prósent af áætluðum verktakakostnaði en auk ÍAV buðu lægst Loftorka Reykjavík og Háfell.

Lesa meira
 

7.4.2010 : Minni umferð 2010 þrátt fyrir aukningu í mars

Umferðin jan-mars

Umferðin einsog hún er mæld á 16 völdum veggarköflum á Hringvegi var nokkuð meiri í marsmánuði 2010 en hún var í mars í fyrra. Sú aukning dugir þó ekki til að breyta því að umferðin fyrstu þrjá mánuði ársins er nokkuð minni en fyrstu þrjá mánuði ársins 2009.


Páskar skekkja samabburðin á milli ára fyrri hluta árs en telja má að til dæmis hafi umferð aukist vegna gossins á Fimmvörðuhálsi. 

Lesa meira
 

24.3.2010 : Austurleið (F923) um Hrafnkelsdal, drög að tillögu að matsáætlun

Austurleið (F923)

Vegagerðin auglýsir hér með drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Austurleið (F923) í Fljótsdalshéraði. Fyrirhugað er að byggja 9,7 km langan nýjan veg frá Aðgöngum 3 Kárahnjúkavirkjunar í Glúmsstaðadal niður að Aðalbóli í Hrafnkelsdal. Nýlagning er um 6,5 km en vegurinn fylgir núverandi Austurleið á rúmlega 3 km kafla.

Almenningur getur gert athugasemdir við áætlunina og er athugasemdafrestur í 2 vikur eða til 9. apríl 2010.

Lesa meira

 

24.3.2010 : Skoðun ehf með lægsta tilboð í rofvörn Jökulsár á Breiðamerkursandi

Jökulsá á Breiðamerkursandi

Tilboð í rofvörn í farvegi Jökulsár á Breiðamerkursandi voru opnuð hjá Vegagerðinni 23. mars. Skoðun ehf., Hafnarfirði átti lægsta tilboðið og nam það 50,6 prósentum af áætluðum verktakakostnaði.


Alls bárust 17 tilboð í verkið og fór ekkert þeirra yfir verktakakostnaðinn sem var áætlaður tæpar 42 milljónir króna. Næstlægsta tilboðið kom frá Myllunni ehf., Egilsstöðum og var ríflega 57 prósent af verktakakostnaði.

Lesa meira
 

22.3.2010 : Meiri jákvæðni gagnvart Vegagerðinni

Ánægja með Vegagerðina vetur 2010

Þeir eru heldur fleiri sem eru jákvæðir í garð Vegagerðarinnar núna en í fyrrasumar, samkvæmt viðhorfskönnun sem Capacent Gallup vinnur fyrir Vegagerðina tvisvar á ári.


Flestir vilja auka hálkuvarnir þótt þeim fækki verulega á milli vetrarkannana, fleiri vilja bæta málun á vegum. Þá fækkar þeim nokkuð sem segjast ánægðir með snjómoksturinn, það fjölgar þó ekki í hópi óánægðra heldur í þeim hópi sem svarar "hvorki né".

Lesa meira
 

19.3.2010 : Hrun í Hvalnesskriðum við Kambanes - myndir

Hrun í Hvalnesskriðum við Kambanes

Stór björg hrundu á og yfir veginn í Hvalnesskriðum við Kambanes 12. mars og aftur 17. mars. Fyrri daginn hrundi 40 tonna grjót sem fór yfir veginn og skemmdi hann og vegriðið. Minna grjót hafnaði á veginum en lokaði honum ekki.


Seinni daginn hrundi um 20 tonna bjarg á veginn og lokaði honum, þurfti að fleyga grjótið til að fjarlægja það. Ekki er talin hætta á frekara hruni þar sem ekki er að sjá að grjót sé laust í fjallinu þar sem hrunið átti upptök sín.

Lesa meira
 

15.3.2010 : Suðurlandsvegur, tvöföldun - frá Fossvöllum að Draugahlíðum

Tvöföldun Suðurlandsvegar frá Fossvöllum að Draugahlíðum

Kynning

Verkið felst í tvöföldun og breikkun Suðurlandsvegar frá Fossvöllum í Lögbergsbrekku ofan við Lækjarbotna og upp í Draugahlíðabrekku austan við Litlu kaffistofuna. Lengd útboðskafla er um 6,5 km.

Lesa meira
 

10.3.2010 : Vegagerðin tekur við Kárahnjúkavegi

Samningur handsalaður

Landsvirkjun og Vegagerðin hafa undirritað samning sín á milli um að forræði og umsjón með Kárahnjúkavegi, og að hluta á Hraunavegi, færist yfir til Vegagerðarinnar.


Með samningnum afhendir Landsvirkjun Vegagerðinni vegina, án greiðslna eða endurgjalds, en vegirnir voru lagðir af Landsvirkjun í tengslum við rannsóknir og framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun.

Lesa meira

 

2.3.2010 : Verulega minni umferð í janúar og febrúar

Umferðin í janúar og febrúar

Umferðin eins og hún er mæld á 16 völdum talningarstöðum á Hringvegi hefur dregist mikið saman miðað við fyrstu tvo mánuði ársins. Fara þarf aftur til ársins 2006 til að finna minni akstur í janúar og febrúar mánuðum.


Umferðin í janúar og febrúar í ár er 4,3 prósentum minni en í sömu mánuðum 2009.

Lesa meira
 

1.3.2010 : Úthlutun úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar 2010

Fánaborg Vegagerðin

Nú er rannsóknaráð Vegagerðarinnar að leggja lokahönd á úthlutun rannsóknafjár fyrir árið 2010. Ráðinu er mikill vandi á höndum, þar sem alls bárust 228 umsóknir og var sótt um samtals 518 milljón krónur.


Hins vegar eru ekki nema 139 milljón krónur til úthlutunar, sem vegna niðurskurðar er reyndar nokkru lægri upphæð en vera ætti samkvæmt vegalögum.

Lesa meira
 

26.2.2010 : Göngubrýr fá Steinsteypuverðlaunin

Verðlaunaafhending

Göngubrýr yfir Njarðargötu og Hringbraut hlutu Steinsteypuverðlaunin í ár. Þau eru veitt af Steinsteypufélagi Íslands fyrir framúrskarandi steinsteypt mannvirki á síðustu fimm árum. Vegagerðin og Reykjavíkurborg fengu verðlaunin sem verkkaupi, einnig tóku við verðlaununum arkitektarnir frá Studio Granda, Efla fyrir verkfræðihönnun og verktakarnir Háfell og Eykt.


Áður hafi Vegagerðin verðlaunað verkið fyrir gerð og frágang mannvirkja. 

Lesa meira
 

25.2.2010 : Samið við Eimskip um siglingar Herjólfs

Herjólfur

Vegagerðin hefur lagt grunn að samningi við Eimskip um siglingar á Landeyjahöfn frá og með 1. júlí næstkomandi. Nauðsynlegt er að gera nýjan samning en kostnaðarsamt hefði verið að segja upp núverandi samningi frá og með miðju sumri og fara í útboð til dæmis. Því var þessi leið fyrir valinu.


Litið er á þetta sem reynslusamning meðan menn eru að átta sig á rekstrinum á gjörbreyttri leið en samningurinn við Eimskip gildir einungis til 1. september 2011

Lesa meira
 

23.2.2010 : Dettifossvegur, nýjar tengingar að Hólmatungum og Vesturdal/Hljóðaklettum

Dettifossvegur nýjar tengingar
Þann 22. febrúar 2010 tilkynnti Vegagerðin fyrirhugaða breytingu á vegtengingum frá Dettifossvegi (862) að Hólmatungum og Vesturdal/Hljóðaklettum, Norðurþingi, til Skipulagsstofnunar. Lesa meira
 

18.2.2010 : Þrjár nýjar vefmyndavélar

Nýjar vefmyndavélar

Vegagerðin vinnur að því að fjölga vefmyndavélum á vegakerfinu. Nú er búið að taka í notkun þrjár nýjar vélar, allar eru þær á Vestfjörðum. Þær sýna hvernig færðin er á Mikladal milli Patreksfjarðar og Tálknafjarðar; á Hálfdán á milli Tálknafjarðar og Bíldudals og á Fossahlíð í Skötufirði.


Ný mynd kemur frá þessum vélum á fimm mínútna fresti og þær sýna þrjú sjónarhorn. Með þessum vélum eru komnar upp 28 vefmyndavélar sem sýna þá veður og færð á vegakerfinu.

Lesa meira
 

15.2.2010 : Snjómokstursreglur og þjónustuflokkar

Snjómokstursreglur, forsíða bæklings

Vetrarþjónustan á þjóðvegum, bæklingur fyrir árið 2010 er kominn út. Í bæklingnum er að finna upplýsingar um vetrarþjónustuna, snjómokstursreglur, þjónustuflokka, eða hvenær og hvar þjónustað er og hversu mikil þjónustan er.


Hægt er að nálgast bæklinginn hér á vefnum, á bensínstöðvum, hjá ferðaþjónustuaðilum og hjá Vegagerðinni. Einnig er hægt að senda tölvupóst á umferd@vegagerdin.is og óska eftir því að fá bæklinginn sendan í póst.

Lesa meira
 

10.2.2010 : Umsóknafrestur runninn út

Fánaborg Vegagerðin

Frestur til að sækja um fjárveitingu úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar fyrir árið 2010, rann út að kvöldi 3. febrúar 2010. Umsækjendur eiga að hafa fengið sendan tölvupóst til staðfestingar á móttöku umsókna.


Enn voru slegin met í upphæð umsókna og er heildarupphæð tæplegar fjórfalt hærri en sú upphæð sem til ráðstöfunar er úr sjóðnum.

Lesa meira
 

2.2.2010 : Minni umferð í janúar 2010 en 2009

Umferðin í janúar 2005 - 2010

Talsvert minni umferð var í nýliðnum janúar en á sama tíma í fyrra. Umferðin á 16 talningarstöðum á Hringvegi var ríflega 3 prósentum minni.


Mest dróst umferðin saman á Suðurlandi en hún jókst hinsvegar á Norður- og Austurlandi. Umferðin í janúar í fyrra var meiri en hún var 2008 sem þá mældist með örlítið meiri umferð en árið 2007.

Lesa meira
 

28.1.2010 : Veggjöld mjög algeng í Noregi

Veggjöld

Norðmenn hafa langa reynslu af því að fjármagna vegagerð með veggjöldum, í fyrstu var aðallega um að ræða verkefni þegar brýr voru byggðar og ferjusiglingar aflagðar en á síðari árum eru veggjöld í auknum mæli notuð til að fjármagna venjulegar framkvæmdir.


Vegagerðin og samgöngu- og sveitastjórnaráðuneytið héldu málstofu um veggjöld í samvinnu við norsku Vegagerðina um reynslu þeirra af vegjöldum, þar sem þetta kom fram.

Lesa meira
 

27.1.2010 : Útboð á næstu vikum

Suðurlandsvegur breikkun 1. áfangi

Vegagerðin vinnur nú að því að undirbúa útboð vegna breikkunar Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar. Ríkisstjórnin hefur heimilað útboðin og framkvæmdir munu dreifast á tvö ár þ.e.a.s. árin 2010 og 2011.


Reiknað er með að útboðin verði tilbúin á allra næstu vikum og að framkvæmdir gætu hafist í báðum verkum í júní 2010.

Lesa meira
 

22.1.2010 : Vegagerðin sýknuð vegna vegagerðar á Tjörnesi

Tjornes

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Vegagerðina af um 234 milljóna króna kröfu Ístak um bætur vegna að þeirra áliti brostins verksamnings um vegagerð á Tjörnesi.


Ístak taldi að útboðslýsing Vegagerðarinnar hafi verið óskýr, villandi og í hana hafi vantað upplýsingar, ágreiningur var ástand bergs í skeringu. Héraðsdómur hafnaði kröfunni, sýknaði Vegagerðina og dæmdi Ístak til að greiða málskostnað upp á 3 milljónir króna.

Lesa meira
 

20.1.2010 : Leiðbeiningar um veglýsingu utan þéttbýlis

Veglýsing utan þéttbýlis


Vegagerðin hefur gefið út nýjar leiðbeiningar um veglýsingu utan þéttbýlis.


Samræmd stefna um veglýsingu er til þess fallin að auka einsleitni og að þegar lýst er sé það gert á fullnægjandi hátt bæði hvað varðar lýsingargæði og umferðaröryggi.

Lesa meira
 

19.1.2010 : Vetrarþjónustan - breyttar reglur

Ólafsfjarðarvegur sunnan dalvíkur

Nýjar reglur í vetrarþjónustu Vegagerðarinnar tóku gildi nú um áramótin. Breytingarnar má kynna sér með því að smella á hnapp á forsíðunni: Vetrarþjónustan 2010.


Þær helstu frá fyrri reglum er að nú er þjónustan á sumum fáfarnari vegum degi skemmri á viku en áður og styttist þjónustan mögulega einnig hina dagana. Einnig má kynna sér þessar breytingar sem og færð og ástand vega með því að hringja í þjónustusímann 1777.

Lesa meira

 

13.1.2010 : Af ferjumálum

Í Grímsey föstudag

Niðurskurður er á öllum þáttum í starfsemi Vegagerðarinnar svo sem kunnugt er. Einnig þegar kemur að styrkjum til almenningssamgangna svo sem styrktra ferða í ferjurekstri.


Rétt er, sem kemur fram í Morgunblaðinu í dag 13. janúar, að til skoðunar er innan Vegagerðarinnar að hliðra til þegar kemur að fækkun ferða með Grímseyjarferjunni Sæfara. Hinsvegar er það ekki rétt sem heimamenn halda fram í frétt um málið að niðurskurðinn sé 33% því í reynd er hann tæplega 14 prósent og svipaður og annarsstaðar.

Lesa meira
 

7.1.2010 : Umsóknir um styrki til rannsóknarverkefna 2010

Fánaborg Vegagerðin

Vegagerðin veitir árlega styrki til rannsóknaverkefna en samkvæmt vegalögum er það 1,5% af mörkuðum tekjum stofnunarinnar.


Nú er auglýst eftir umsóknum um styrki og/eða fjármögnun einstakra verkefna fyrir árið 2010. Umsóknir þurfa að berast á tilskildum eyðublöðum í seinasta lagi að kvöldi miðvikdagsins 3. febrúar 2010. Eyðublöðin má nálgast hér.

Lesa meira
 

6.1.2010 : Meira ekið 2009 en 2008

Umferðin eftir mánuðum

Umferðin á 16 völdum talningarstöðum á Hringvegi var 2,2 prósentum meiri á árinu 2009 en árinu 2008. Umferðin var hinsvegar minni en hún var metárið 2007 þótt ekki muni miklu.


Umferðin í nýliðnum desember var um 5 prósentum meiri en í sama mánuði árið 2008. Árið einkennist þó af mikilli umferð yfir sumarmánuðina og var umferðin þá töluvert meiri en metárið 2007.

Lesa meira
 

5.1.2010 : Vegagerðin á Facebook og Twitter

Facebook síða Vegagerðarinnar

Vegagerðina er nú að finna á samskiptavefjunum Facebook og Twitter. Fyrir áhugasama er hægt að skrá sig á þessar síður með því að smella á hlekki hér á heimasíðu Vegagerðarinnar.


Fyrst um sinn verða þessir miðlar fyrst og fremst nýttir til að koma á framfæri þeim fréttum sem birtast einmitt hér á þessum stað.

Lesa meira
 


Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica