Fréttir

30.12.2009 : Vetrarþjónusta Vegagerðarinnar um áramót

Jól 2009


Á öllum leiðum sem hafa 7 daga þjónustu verður þjónusta á nýársdag, en stefnt er að því að þá verði þessar leiðir almennt færar fyrir kl. 10:00.
Vakin er athygli á því að 1. janúar 2010 taka gildi nýjar reglur um vetrarþjónustu sem m.a. fela í sér að á vissum leiðum er þjónustudögum fækkað úr 7 í 5 eða 6 daga í viku og á þessum leiðum verður því engin þjónusta á Nýársdag.

Lesa meira

29.12.2009 : Umræða um vegrið

Uppsetning vegriðs í Jökuldal

Eitt af meginmarkmiðum Vegagerðarinnar er að umferðaröryggi sé á við það sem best gerist. Í stefnu Vegagerðarinnar um umferðaröryggismál kemur fram að „við hönnun, byggingu, viðhald og þjónustu vega mun Vegagerðin hafa öryggi vegfarenda í fyrirrúmi“.


Ein áhrifamesta aðgerðin í umferðaröryggismálum er að aðskilja akstursstefnur.

Lesa meira

22.12.2009 : Kærunefnd útboðsmála vísar máli Heflunar ehf. frá

Skilti Vegagerðarinnar

Klæðning ehf. óskaði í sumar eftir heimild Vegagerðarinnar til að verktakafyrirtækið Vélaleiga A.Þ. ehf. tæki yfir lagningu Lyngdalsheiðarvegar með liðstyrk undirverktaka og var gerður viðauki þar að lútandi við verksamning 21. júlí.


Þetta kærði Heflun ehf. og vildi stöðva samningsgerðina en því hafnaði kærunefndin í september og nú í desember var málinu vísað frá "enda hafði samningnum ekki verið rift. Því hafi útboðsskylda ekki stofnast."

Lesa meira

22.12.2009 : Þjónusta Vegagerðarinnar um jól og áramót

Jól 2009

Einungis á þeim leiðum sem hafa 7 daga þjónustu verður þjónusta á jóla- og nýársdag, en stefnt er að því að þá verði þessar leiðir almennt færar fyrir kl. 10:00.


Á aðfangadag, gamlársdag og annan í jólum ......

Lesa meira

16.12.2009 : Hvað á vegurinn að heita?

Arnkötludalur formlega opnaður

Nafngiftir á hinni nýju leið og breyttum Djúpvegi (61) hafa nokkuð verið til umræðu, jafnt innan Vegagerðarinnar sem utan og eru ekki allir á einu máli, svo sem vænta má. Málið er ekki endanlega útkljáð.


Vegagerðin hefur að undanfönu nefnt hinn nýja veg Djúpveg um Arnkötludal og einnig Djúpveg um Þröskulda en svo heitir hæsti hluti vegarins og sá sem helst þarfnast þjónustu að vetri til. Arnkötludalurinn liggur norðan Þröskulda en Gautsdalur að sunnanverðu á þessari leið.

Lesa meira

16.12.2009 : Citroën-Kegresse snjóbílar Vegagerðarinnar öðlast frægð

Citroen-Kegresse snjóbíll

Árið 1929 keypi Vegagerðin einn Citroën Kegresse snjóbíl en bíllinn var með beltum að aftan og skíðum að framan. Ári síðar voru þrír bílar til viðbótar keyptir. Tveir bílar stóðust tímans tönn þótt þeir gerðu það misjafnlega vel, annar þeirra endaði til að mynda á Fjarðarheiði.


Áhugi er nokkur á þessum bílum og er til sérstök vefsíða um þá og hafa aðstandendur hennar komið til Íslands til að skoða bílana, en annar er á safninu í Skógum, og til að kynna sér hvað um alla bílana varð.

Lesa meira

10.12.2009 : Tvöföldun Suðurlandsvegar frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss

Suðurlandsvegur -
Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um Suðurlandsveg frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 11. desember 2009 til 29. janúar 2010. Lesa meira

8.12.2009 : Vetrarakstur - hálka

Vegur og hálka

Nýjar reglur um vetrarþjónustuna taka gildi nú um áramótin og hægt er að kynna sér þær með því að smella á hnappinn hér til vinstri um Vetrarþjónustuna 2010.


Þrátt fyrir snjómokstur og hálkuvarnir geta vegfarendur búist við því að lenda í hálku sem getur verið mjög lúmsk. Það er því gott ráð að kynna sér við hvaða aðstæður megi búast við hálku og hvernig og afhverju hún myndast.

Lesa meira

4.12.2009 : Færri ferðir styrktar árið 2010

Grímseyjarferja

Vegna niðurskurðar á fjárveitingum og nokkurs hallareksturs er nauðsynlegt að draga saman og spara í styrkjum til almenningssamgangna sem nemur um 10 prósentum á næsta ári.


Í fjárlagafrumvarpinu fyrir 2010 nema fjárframlög til styrkja til almenningssamgangna 1.350 milljónum króna. Ætlunin að spara 130 – 140 milljónir króna.

Lesa meira

2.12.2009 : Vetrarakstur
- nokkur góð ráð

Vegur um vetur - snjór

Þjónustudeild Vegagerðarinnar gaf út fyrir nokkrum árum á vefnum leiðbeiningar um vetrarakstur sem eru enn í góðu gildi. Það er mikilvægt að ökumenn aki alltaf eftir aðstæðum því þrátt fyrir hálkuvarnir og snjómokstur má eiga á ýmsu von að vetri til.


Rétt er einnig að hafa í huga að reglur Vegagerðarinnar um vetrarþjónustu breytast um áramótin. Ökumenn eru hvattir til að kynna sér þessar breytingar með því að smella á hnappinn hér til hliðar um Vetrarþjónustuna 2010.

Lesa meira

1.12.2009 : Vestfjarðavegur (60) í umhverfismat skv. úrskurði ráðherra

Frá Vestfjarðavegi (60)

Umhverfisráðherra hefur staðfest ákvörðun Skipulagsstofnunar um að kaflinn á milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði á Vestfjarðavegi (60) skuli háður mati á umhverfisáhrifum.


Í niðurstöðu ráðherra segir m.a.: "Rétt er að benda á að ekki er nauðsynlegt að framkvæmdir muni hafa umtalsverð umhverfis-áhrif heldur er nægilegt að þær kunni að hafa þau. Hvað hugsan-leg umhverfisáhrif hinnar kærðu framkvæmdar áhrærir vísast sérstaklega til umfangs og stærðar framkvæmdanna,"

Lesa meira




Útlit síðu: