Stór áfangi kláraðist í Bolungarvíkurgöngum laugardaginn 28. nóvember þegar samgönguráðherra sprengdi síðustu sprenginguna að viðstöddu fjölmenni. Áður höfðu heimamenn haldið hátíð í Bolungarvík þar sem bæjarstjórar Ísafjarðar og Bolungarvíkur, samgönguráðherra og vegamálastjóri kipptu haftinu úr 4,53 m löngum kransakökugöngum.
Í máli vegamálastjóra við það tækifæri kom fram að stærsta áfanganum í byggingu ganganna væri þá lokið enda fælist alltaf mesta óvissan í því hvernig bergi myndi reynast.
Lesa meira
Reglur um vetrarþjónustu breytast á næsta ári. Tekist hefur með hagræðingu og betra skipulagi að halda óbreyttri þjónustu út árið 2009, en nauðsynlegt er að draga eitthvað úr vetrarþjónustunni árið 2010.
Áhersla er á það við þessar breytingar að tryggja umferðaröryggi sem best en þjónustan verður svipuð og hún var árið 2006. Þjónustudögum á fáförnustu leiðunum verður fækkað og þjónustutími á lægri þjónustuflokkum styttur, mest um helgar. Stefnt er að 200 milljóna króna sparnaði.
Lesa meiraMiðvikudaginn 18. nóvember kl. 13:00 verður umferð beint um stutta hjáleið fram hjá vinnusvæði við Grundarhverfi á Kjalarnesi þar sem verið er að byggja undirgöng undir Vesturlandsveg.
Búist er við að hjáleiðin verði í notkun fram að jólum en þá verður umferð færð tilbaka á Vesturlandsveg.
Rannsókna-og þróunarstarf hefur ávallt verið þáttur í starfsemi Vegagerðarinnar. Árlega eru veittir styrkir til rannsóknaverkefna. Nýbúið er að kynna hluta rannsóknarverkefna á Rannsóknarráðstefnu Vegagerðarinnar.
Eitt verkefnanna sem er styrkt snýr að ferðamannavegum að norskri fyrirmynd en þar hafa slíkir vegir slegið í gegn hjá ferðamönnum og almenningi öllum. Því er lýst hvernig Vaðlaheiðarvegur gæti orðið að sérstökum ferðmannavegi.
Lesa meiraÍ tengslum við alþjóðlega ráðstefnu Norðurslóðaáætlunar 2007-2013 LAVA09 verða þau fjölbreyttu verkefni sem Ísland tekur þátt í kynnt í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Opið 10. nóv. kl. 12:00 – 18:00 og 11. nóvember kl. 10:00 – 18:00 og er sýningin öllum opin.
Verkefnin eru af mjög fjölbreyttum toga en Vegagerðin kynnir ROADEX tæknilausnina.
Að þessu sinni voru 160 skráðir þáttakendur á hinni árlegu ráðstefnu um rannsóknir Vegagerðarinnar, sem nú var haldin í 8. sinn.
Búið er að setja ágrip af erindum á ráðstefnunni og glærur sem fyrirlesarar notuðu hér á vefinn.
Akstur á 16 völdum talningarstöðum á Hringvegi í október 2009 er örlítið meiri en í október í fyrra. Fyrstu tíu mánuði ársins hefur umferð aukist um 2,3 prósent miðað við sama tímabil 2008. Umferðin er þó nánast sú sama og 2007.
Umferðin jókst töluvert mikið í sumar en haustumferðin dregst saman ef eitthvað er.
Lesa meira
Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar, frummatsskýrslu um lagningu nýs vegar og jarðganga á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar á Vestfjörðum.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 12. desember 2009 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember