Fréttir

29.10.2009 : Umferðarkönnun 29. og 31. október

Ólafsfjarðarvegur sunnan dalvíkur

Háskólinn á Akureyri, í samvinnu við Vegagerðina, mun standa fyrir umferðarkönnun á Ólafsfjarðarvegi, milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar og á Siglufjarðarvegi við Ketilás, fimmtudaginn 29. október og laugardaginn 31. október n.k. Könnunin stendur yfir frá kl. 08:00 – 23:00 báða dagana.


Um er að ræða hluta af rannsóknarverkefni um áhrif Héðinsfjarðarganga á samfélag og byggð.

Lesa meira

 

23.10.2009 : Göngubrýr fegurstar

Viðurkenning fagurt mannvirki

Vegagerðin veitti í dag í þriðja sinn viðurkenningu fyrir gerð og frágang mannvirkja. Fegurst mannvirkja byggð á árunum 2005-2007 þóttu göngubrýrnar yfir Hringbraut og Njarðargötu.


Áður hafa hlotið viðurkenningu Vatnaleiðin á Snæfellsnesi og norðausturvegur á Tjörnesi ásamt áningarstað á Teigsbjargi.

Lesa meira
 

22.10.2009 : Óheimilit að taka tillit til umferðaröryggis

Leid_B_2__afangi

Í dómi Hæstaréttar um úrskurð umhverfisráðherra vegna vegalagningar á Vestfjarðavegi (60), Bjarkalundur – Eyri í Reykhólasveit er ekki fallist á rök Héraðsdóms í málinu en tekið undir niðurstöðuna.


Samkvæmt niðurstöðu Hæstaréttar fellst rétturinn á það „að umhverfisráðherra hafi verið óheimilt í úrskurði sínum 5. janúar 2007 um mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðs vegar áfrýjanda [Vegagerðarinnar] að taka tillit til umferðaröryggis.“

Lesa meira
 

22.10.2009 : Tveir dómar í Hæstarétti

Frá Teigsskógi

Tveir dómar féllu í Hæstarétti í dag sem snerta Vegagerðina. Í báðum tilvikum staðfesti rétturinn niðurstöðu Héraðsdóms.


Annað málið sneri að Vestfjarðavegi (60) í gegnum Teigsskóg meðal annars. Dómurinn staðfestir þar með að felldur er úr gildi úrskurður umhverfisráðherra sem féllst á leið Vegagerðarinnar um veginn Bjarkalundur - Eyri í Reykhólasveit.


Hitt málið sneri að nýjum vegi yfir Hornarfjarðarfljót á Hringvegi. Hæstiréttur staðfesti dóm í hérað þess efni að framkvæmdaaðili, Vegagerðin, þurfi ekki að meta framkvæmdakosti þá sem aðrir höfðu lagt til að kannaðir yrðu einnig.

Lesa meira
 

22.10.2009 : Hófaskarðsleið í notkun næsta sumar

Nýjasta veglínan vestast á Hófaskarðsleið

Skipulagsstofnun hefur komist að þeirri niðurstöðu að ný útfærsla Vegagerðarinnar á veglínu vestast á Hófaskarðsleið sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum.


Komi ekki til þess að úrskurðurinn verði kærður og framkvæmdaleyfi fæst má reikna með því að hægt verði að ljúka vegalagningu á nýrri veglínu og því sem eftir var upp á heiðinni um mitt næsta sumar.

Lesa meira
 

22.10.2009 : Undirgöng við Grundarhverfi

Undirgöng við Grundarhverfi


Vegagerðin og Reykjavíkurborg hefja bráðlega byggingu undirganga fyrir gangandi vegfarendur, undir Vesturlandsveg, við Klébergsskóla.
Markmiðið með framkvæmdinni er að gera trygga gönguleið undir Vesturlandsveg og er þá sérstaklega verið að hugsa til skólabarna í Klébergsskóla.

Lesa meira
 

20.10.2009 : Varúð! Hreindýr framundan

Hreindýr á Austurlandi

Náttúrustofa Austurlands vill minna á að nú er sá tími kominn að árekstrar við hreindýr á vegum úti eru hvað algengastir.Vegagerðin hefur sett upp skiliti á hættulegum stöðum og eru ökumenn hvattir til að sýna aðgát.


Nóvember, desember og janúar eru hættulegustu mánuðirnir samkvæmt yfirliti sem Náttúrustofan hefur tekið saman.

Lesa meira
 

15.10.2009 : Arnkötludalur formlega opnaður

Arnkötludalur formlega opnaður

Samgönguráðherra og vegamálastjóri klipptu á borða 14. október og afhjúpuðu samtímis stein með skildi þar sem fram kemur að nú er hægt að aka á bundnu slitlagi milli Reykjavíkur og Ísafjarðar og reyndar áfram til Bolungarvíkur.


Nýi vegurinn er miklil samgöngubót og styttir þessa leið um 42 km. Með vegaframkvæmdum sem lauk fyrr í sumar í Djúpinu styttist vetrarleiðin einnig um 33 km eða alls um 75 km, auk þess sem malarvegir heyra sögunni til.

Lesa meira
 

13.10.2009 : Norðausturvegur um Hófaskarðsleið, viðbót vegna breytinga á veglínu um Borgarás

Norðausturvegur, Hófaskarðsleið um Borgarás


Þann 17. september 2009 tilkynnti Vegagerðin Skipulagsstofnun um breytingar á 1,8 km löngum kafla á nýrri veglínu Norðausturvegar, á kaflanum frá Klapparósi að Katastöðum. Ný lega vegarins var kölluð veglína 174 og er hún kynnt í greinargerð Vegagerðarinnar frá september 2009. Breytingar á veglínu Norðausturvegar eru .....

Lesa meira
 

8.10.2009 : Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2009

Rannsóknarráðstefna 2009


Þróunarsvið Vegagerðarinnar stendur fyrir árlegri rannsóknaráðstefnu sinni föstudaginn 6. nóvember 2009 á Reykjavik Hilton Nordica hóteli.

Þetta er í áttunda sinn sem rannsóknaráðstefnan er haldin. Kveðið var á í vegalögum að 1,5% af mörkuðum tekjum til vegamála skuli renna til rannsókna- og þróunarstarfs og er ráðstefnunni ætlað að endurspegla afrakstur hluta þess starfs.

Lesa meira
 

8.10.2009 : Fleiri vilja nú auka við bundna slitlagið

Af Kjalarnesi

Jákvæðni í garð Vegagerðarinnar minnkar lítillega í sumarkönnun Gallups um viðhorf almennings til þjóðveganna. Hinsvegar eru fleiri sem finnast þjóðvegirnir almennt vera góðir.


Flestir vilja líkt og undanfarin helst breikka vegina en þeim sem þetta vilja fækkar þó töluvert frá könnuninni síðasta vetur. Á móti fjölgar þeim töluvert núna sem vilja auka við bundna slitlagið.

Lesa meira
 

5.10.2009 : Dregur aftur úr umferð

Graf með þróun umferðar

Umferðin á 16 völdum talningarstöðum á Hringveginum í september var nánast sú sama og í fyrra. Undanfarna mánuði, eða í sumar, hefur umferðin hinsvegar verið meiri en hún var metárið 2007.


Þannig að það dregur töluvert mikið úr umferð nú í september, miðað við síðustu mánuði, því árið 2008 var fyrsta árið í mjög langan tíma sem umferð dróst saman.

Lesa meira
 


Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica