Beint í leiðarkerfi vefsins.
Dagana 21.-25. september er haldin stór ráðstefna í Stokkhólmi um snjallkerfi í umferð. Gert var ráð fyrir að um 5000 manns myndu sækja ráðstefnuna en í raun komu 6600 þátttakendur allsstaðar að úr heiminum.
Norræna vegasambandið (NVF) er áberandi á ráðstefnunni, og sýningunni sem tilheyrir, enda fjallar ein af 14 tækninefndum NVF um snjallkerfi í umferð eða ITS, sem stendur fyrir Intelligent Transport Systems and Services.
Lesa meira
Þann 3. júní 2009 tilkynnti Vegagerðin Skipulagsstofnun um fyrirhugaða breytingu á 1,7 km löngum kafla á veglínu Norðausturvegar (85), Hófaskarðaleið, við Klapparós og Katastaði, Norðurþingi. Kynntir voru tveir nýir kostir.....
Vegagerðin hefur undanfaið birt mánaðalega tölur um umferð á 16 völdum talningarstöðum á Hringveginum. Árið 2008 bar svo við að umferð minnkaði í fyrsta sinn í mjög langan tíma. Framan af árinu 2009 var umferðin svipuð eða minni en 2007 en meiri en 2008 þar til í sumar að umferðin jókst til muna.
Nú er umferðin fyrstu átta mánuði ársins nokkuð meiri en í fyrra og einnig meiri en árið 2007 sem var met ár. Mest hefur aukningin orðið sumarmánuðina líkt og menn höfðu reyndar gert ráð fyrir.
Lesa meiraÞað verður ekki hjá því komist að Herjólfur fari endrum og eins í slipp. Þegar það gerist er nauðsynlegt að fá annað skip til að sigla á milli Vestmannaeyja og lands. Undanfarin ár hefur St. Ola sinnt því hlutverki en í ár var ekki hægt að leigja St. Ola til verksins.
Reynt er að skipuleggja slipptöku Herjólfs þannig að það valdi sem minnstri röskun. Því er Herjólfur ekki tekinn í slipp að sumri til þegar mest er umferð ferðamanna og heldur ekki seint á hausti einmitt vegna þess að þá fara veður að versna.
Lesa meiraÁnægja flutningaaðila með vegakerfið eykst merkjanlega samkvæmt nýrri viðhorfskönnun sem gerð var fyrir Vegagerðina. Verktakar eru svipað ánægðir með Vegagerðina og samskipti sín við starfsmenn Vegagerðarinnar og þeir hafa verið undanfarin ár samkvæmt sömu könnun.
Könnun þessi unnin af Lausnum fyrir Vegagerðina árlega en flutningsaðilar og verktakar eru spurðir mismunandi spurninga.
Lesa meiraVinnusvæðið í Arnkötludal er lokað allri almennri umferð meðan unnið er að því að ljúka framkvæmdum. Hætt er við því að óviðkomandi umferð tefji verkið og leiði jafnvel til skemmda.
Verði tíðarfar gott er reiknað með því að lokið verði við leggja klæðingu á kaflann öðru hvoru megin við næstu mánaðamót. Unnið er að því nú að leggja út efra burðarlag og klæðingu.
Lesa meiraNorræna vegasambandið (NVF) og samband Eystrasaltsríkjanna (BRA) hafa haft með sér samstarf síðan árið 1992. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri ávarpaði 27. alþjóðlegu ráðstefnu Vegasambands Eystrasaltsríkjanna fyrir hönd NVF í ágúst en Íslands stýrir NVF nú í fyrsta sinn í 75 ára sögu sambandsins.
Hreinn benti á að mikilvægasti þáttur samstarfsins væri miðlun þekkingar og kunnáttu á milli landanna og að vonandi og örugglega myndu menn líka læra af reynslunni af kreppunni sem nú ríður yfir löndin þótt í mismiklum mæli sé.
Lesa meiraFjölmenni var viðstatt þegar Kristján L. Möller samgönguráðherra og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri klipptu á borða á nýju bogabrúnni fyrir Mjóafjörð og opnuðu þar með brúna fyrir umferð.
Brúin ásamt tveimur öðrum og ríflega 28 km af nýjum vegi er mikil samgöngubót og þótt styttingin sé ekki mæld í kílómetrum að sumri er hún um 30 km að vetri og ferðatíminn styttist verulega árið um kring.
Lesa meiraTöluverð umræða hefur orðið um þau vandræði sem hafa skapast við vegagerð á Hófaskarðsleið sem rekja má til andstöðu landeigenda á einni jörð við að vegur fari um land þeirra. Ljóst er að vegurinn verður ekki tekinn í notkun í ár líkt og til stóð.
Á undanförnum árum hefur viðhorf landeiganda til vegagerðar breyst þannig að andstaða við vegalagningu hefur aukist töluvert. Allur undirbúningur vegagerðar hefur aukist og tíminn sem fer í undirbúning lengist sífellt.
Nýliðinn júlímánuður er umferðarmesti mánuður frá upphafi mælinga en mælt er á 16 völdum stöðum á Hringvegi og því er ekki umferðin á höfuðborgarsvæðinu nema að litlu leiti með í tölunum.
Í ágúst var umferðin svipuð og árið 2007 en eilítið meiri eigi að síður. Spár um aukna umferð á vegunum í sumar hafa því gengið eftir, sérstaklega í júlí.
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember