Vegagerðin kynnir hér með vegaframkvæmd á Skíðadalsvegi (807) í Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsýslu.
Fyrirhugað er að endurbyggja, styrkja og leggja bundið slitlag á tvo kafla Skíðadalsvegar. Annars vegar milli Skáldalækjar og Brautarhóls, hins vegar milli Hofsár og Ytra-Hvarfs.
Mjög vel hefur gengið við lagningu Suðurstrandarvegar (427) Krýsuvíkurvegur – Þorlákshafnarvegur í vetur. Verktakinn, KNH ehf. frá Ísafirði er langt á undan áætlun. Ef verkaefnastaða fyrirtækisins breytist ekki mikið reikna menn jafnvel með að vegarkaflinn verði tilbúinn í september í haust.
Samkvæmt útboði átti hluti vegarins að vera tilbúinn á næsta árið og verki að fullu lokið 2011. Þá er eftir að ljúka kaflanum frá Krýsuvíkurvegi til Grindavíkur en hugsanlega verður sá kafli boðinn út síðar á árinu.
Lesa meiraTilboð Klæðningar ehf, Hafnarfirði, hljóðaði upp á 250 milljónir króna sléttar, áætlaður verktakakostnaður var rúmar 447 milljónir króna og er boðið því 55,9 prósent af áætluninni. Næstlægstir voru KNH ehf., Ísafirði og svo Hektar ehf., Reykjavík.
Alls buðu 10 verktakar í Raufarhafnarveg (874), Háfaskarðsleið – Flugvöllur en um er að ræða tengingu Raufarhafnar við Hófaskarðsleið og þar með Kópaskers. Tilboð voruð opnuð samtímis í Reykjavík, á Akurreyri og á Reyðarfirði. Einnig fylgdust menn með frá Sauðárkróki í gegnum fjarfundabúnað.
Lesa meiraKristján L. Möller samgönguráðherra sprengdi síðasta haftið í Héðinsfjarðargöngum kl. 10:00 á Skírdagsmorgun. Vel hefur gengið að sprengja að undanförnu þrátt fyrir að mikill vatnsagi í Ólafsfjarðaleggnum hafi tafið verkið á fyrri stigum.
Þá er búið að sprengja alla 10,6 kílómetrana en Héðinsfjarðargöng verða um 11 km með vegskálum. Slegið var í gegn Siglufjarðarmegin fyrir ári síðan.
Lesa meiraHreinn Haraldsson vegamálastjóri og Hanna Birna Kristjánsdóttir undirrituðu í dag, 8. apríl, samkomulag um ýmis verkefni til að auka umferðaröryggi og greiða fyrir umferð í borginni. Áætlað er að framkvæma fyrir 460 milljónir króna í ár og er hlutur Vegagerðarinnar 320 milljónir króna.
Um mörg verk er að ræða svo sem að breyta umferðarljósastýringu úr 3 fösum í 4 á gatnamótum Kringlumýrarbrautar - Laugavegs - Suðurlandsbrautar og á gatnamótum Borgartúns og Kringlumýrarbrautar. rampar á Bústaðavegi og Kringlumýrarbraut verða lengdir og undiröng byggð. Einnig verða nokkrar framkvæmdir til að bæta aðstöðu strætó og auka forgang.
Lesa meiraVegna fréttaflutnings undanfarið vegna gegnumbrots á gangahluta á milli Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar vilja verktakar Héðinsfjarðarganga, Háfell og Metrostav koma á framfæri eftirfarandi tilkynningu.
Héðinsfjarðargöng eru enn í fullri vinnslu og eru þungavinnuvélar og önnur stórvirk og sérhæfð tæki enn að störfum við verkið. Verkinu lýkur ekki fyrr en sumarið 2010 og er öll óviðkomandi umferð á vinnusvæðinu stranglega bönnuð á verktímanum. Verktaki vill taka það skýrt fram að mjög varasamt getur verið fyrir óviðkomandi að fara inn í göngin
Lesa meiraAlls buðu 19 verktakar í byggingu Álftanesvegar (415), Hafnarfjarðarvegur – Bessastaðavegur. Loftorka Reykjavík ehf. í Garðabæ átti lægsta tilboðið uppá 561 milljón króna. Áætlaður verktakakostnaður var 825 milljónir króna. Næstir komu Ris ehf./Vélaleiga A.Þ. Reykjavík og Ásberg ehf./Nesvélar Mosfellsbæ.
Einnig voru opnuð tilboð í eftirlit með verkinu. Þá voru einnig opnuð tilboð í efnisvinnslu á Norðvestursvæði, Bitrufjörð og átti Króksverk ehf. Sauðarkróki lægsta boð.
Lesa meiraUmferðin á þjóðvegum landsins, mæld á 16 völdum talningarstöðum á Hringvegi, var mun minni í mars 2009 en í sama mánuði árin á undan. Umferðin á þessu stöðum er nærri 15 prósentum minni í mars í ár en í mars í fyrra. Hér gæti þó spilað inn í að páskar voru í fyrra í mars en eru í apríl núna. Umferðin í mars 2009 minnkar það mikið að hún er minni en hún var í mars 2005.
Fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 hefur umferð á þessum talningarstöðum dregist saman um 3,3 prósent. Betri samanburður ætti að fást að aprílmánuði liðnum.
Lesa meiraKristján L. Möller samgönguráðherra hefur skipað Hrein Haraldsson vegamálastjóra.
Skipað er í embættið til fimm ára. Embætti vegamálastjóra var auglýst laust til umsóknar í byrjun mars og rann umsóknarfrestur út 23. mars. Hreinn var eini umsækjandinn.
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember