Fréttir

31.3.2009 : Vel gengur í göngum

Í Bolungarvíkurgöngum

Gröftur bæði Héðinsfjarðarganga og Bolungarvíkurganga hefur gengið vel að undanförnu. Nú er einungis eftir að sprengja um 90 m í Héðinsfjarðargöngum og því stutt í að menn slái í gegn í annað sinn í þeim göngum.


Fyrir vestan í Bolungarvíkurgöngum er nú búið að sprengja rétt ríflega helming leiðarinnar. Fylgjast má með verkframvindunni á vef Vegagerðarinnar.

Lesa meira

26.3.2009 : Raufarhafnarvegur (874), Hófaskarðsleið - Flugvöllur

Raufarhafnarvegur - Yfirlitsmynd

Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í byggingu Raufarhafnarvegar í Norðurþingi N.-Þingeyjarsýslu. Framkvæmdin er um 14,1 km löng og liggur frá Hófaskarðsleið að Raufarhafnarflugvelli.


Um nýbyggingu er að ræða og skal verkinu að fullu lokið fyrir 1. október 2010.

Lesa meira

25.3.2009 : Breikkun Suðurlandsvegar

Samgönguráðherra og vegamálastjóri hafa samþykkt tilhögun áætlunar um tvöföldun Suðurlandsvegar. Leiðin milli Reykjavíkur og Selfoss yrði 2+2 vegur að undanteknum kafla í Svinahrauni og á Hellisheiði sem yrði 2+1 vegur. Fyrsti hluti verkefnisins verður boðinn út síðar á árinu.


Heildarkostnaður við verkið er áætlaður kringum 15,9 milljarðar króna. Til ráðstöfunar á þessu ári verður kringum einn milljarður og verður fyrst boðinn út tvöföldun kaflans milli Lögbergsbrekku og Litlu kaffistofunnar og síðan kafli næst Vesturlandsvegi.

Lesa meira

25.3.2009 : Norðfjarðargöng - Matsskýrsla

Norðfjarðargöng - Yfirlitsmynd

Vegagerðin áformar að byggja ný jarðgöng, Norðfjarðargöng, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar í Fjarðabyggð í Suður-Múlasýslu.

 

Jarðgöngin verða 6,9-7,8 km löng og nýir vegir verða samtals 7,2-8,8 km langir beggja vegna gangamunna.


Í heild er um er að ræða 15,0-15,9 km langa framkvæmd sem verður hluti af Norðfjarðarvegi.

 

Lesa meira

24.3.2009 : Mörg lág tilboð í Vopnafjarðartengingu

Frá opnun tilboða, vegamálastjóri og samgönguráðherra voru viðstaddir.

Alls bárust 13 tilboð í lagningu Norðausturvegar (85), Bunguflóa - Vopnafjarðar eða tengingu Vopnafjarðar við Hringveginn. Einungis tvö tilboðanna voru hærri en áætlaður verktakakostnaður.

Hektar ehf í Reykjavík áttu lægsta tilboðið upp á rúmar 738 milljónir króna, en tilboð Háfells ehf í reykjavík var litlu hærra eða tæpar 740 milljónir króna. Áætlaður verktakakostnaður var rúmar 1.440 milljónir króna.


Þessi tilboð eru því 51,3 og 51,4 prósent af verktakakostnaði líkt og sjá má hér á vefnum.

Lesa meira

23.3.2009 : Aukin jákvæðni í garð Vegagerðarinnar

Flestir vilja auknar hálkuvarnir þegar spurt er um vetur

Heldur fleiri segjast nú vera jákvæðari gagnvart Vegagerðinni heldur en undanfarin fjögur ár. Tvisvar á ári spyr Capacent Gallup um viðhorf landsmanna til þjóðveganna, vetur og sumar. Nú segjast nærri 71 prósent vera frekar eða mjög jákvætt í garð Vegagerðarinnar og hefur meðaltalið farið úr 6,3 í fyrra í 6,8 núna.




Sem fyrr vill fólk fyrst og fremst auka hálkuvarnir en það nefna meira en helmingur svarenda, síðan vilja vegfarendur fjölga kantstikum.  Könnun Capacents Gallups.

Lesa meira

13.3.2009 : 367 milljónir króna til umferðaröryggisáætlunar

Undirritum samninga um umferðareftirlitið fór fram í Litlu kaffistofunni

Framlag til umferðaröryggisáætlunar verður í ár alls 367 milljónir króna. Stærstu liðir umferðaröryggisáætlunar eru sem fyrr aðgerðir á sviði öryggis vega og umhverfis þeirra. Verður veitt 110 milljónum króna til að eyða svartblettum í þjóðvegakerfinu, 100 milljónum til að lagfæra umhverfi vega og koma upp vegriðum og 10 milljónir fara í gerð hvíldarsvæða.


Samgönguráðherra kynnti áætlunina á miðvikudag og um leið var skrifað undir samninga um umferðareftirlit.

Lesa meira

9.3.2009 : Suðurlandsvegur - Tvöföldun frá Vesturlandsvegi að Hólmsá

Suðurlandsvegur við Rauðavatn

Tillaga að matsáætlun fyrir Suðurlandsveg frá Vesturlandsvegi að Hólmsá hefur verið lögð inn til málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnun skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum.
Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir. Hægt er að koma skriflegum athugasemdum við tillögu að matsáætlun til Skipulagsstofnunar. Frestur til athugasemda er til 25.03.2009

Lesa meira

6.3.2009 : Umferð eykst í upphafi árs

Umferðin 2005 - 2009

Umferðin á þjóðvegum landsins er heldur meiri í janúar og febrúar 2009 en hún var í sömu mánuðum árið 2008. Umferðin er eigi að síður minni en hún var 2007.


Á landinu eykst umferðin um 3,5 prósent í febrúar miðað við sama mánuði í fyrra. Miðað er við 16 talningarstaði á Hringveginum og því er ekki um að ræða umferð á höfuðborgarsvæðinu.

Lesa meira

2.3.2009 : Suðurlandsvegur frá Hólmsá ofan Reykjavíkur að Hveragerði

Sudurlandsvegur

Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um Suðurlandsveg frá Hólmsá ofan Reykjavíkur að Hveragerði.


Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 3. mars til 15. apríl 2009 og skulu athugasemdir berast eigi síðar en 15. apíl 2009 til Skipulagsstofnunar.


Lesa meira




Útlit síðu: