Fréttir

30.12.2009 : Vetrarþjónusta Vegagerðarinnar um áramót

Jól 2009


Á öllum leiðum sem hafa 7 daga þjónustu verður þjónusta á nýársdag, en stefnt er að því að þá verði þessar leiðir almennt færar fyrir kl. 10:00.
Vakin er athygli á því að 1. janúar 2010 taka gildi nýjar reglur um vetrarþjónustu sem m.a. fela í sér að á vissum leiðum er þjónustudögum fækkað úr 7 í 5 eða 6 daga í viku og á þessum leiðum verður því engin þjónusta á Nýársdag.

Lesa meira

29.12.2009 : Umræða um vegrið

Uppsetning vegriðs í Jökuldal

Eitt af meginmarkmiðum Vegagerðarinnar er að umferðaröryggi sé á við það sem best gerist. Í stefnu Vegagerðarinnar um umferðaröryggismál kemur fram að „við hönnun, byggingu, viðhald og þjónustu vega mun Vegagerðin hafa öryggi vegfarenda í fyrirrúmi“.


Ein áhrifamesta aðgerðin í umferðaröryggismálum er að aðskilja akstursstefnur.

Lesa meira

22.12.2009 : Kærunefnd útboðsmála vísar máli Heflunar ehf. frá

Skilti Vegagerðarinnar

Klæðning ehf. óskaði í sumar eftir heimild Vegagerðarinnar til að verktakafyrirtækið Vélaleiga A.Þ. ehf. tæki yfir lagningu Lyngdalsheiðarvegar með liðstyrk undirverktaka og var gerður viðauki þar að lútandi við verksamning 21. júlí.


Þetta kærði Heflun ehf. og vildi stöðva samningsgerðina en því hafnaði kærunefndin í september og nú í desember var málinu vísað frá "enda hafði samningnum ekki verið rift. Því hafi útboðsskylda ekki stofnast."

Lesa meira

22.12.2009 : Þjónusta Vegagerðarinnar um jól og áramót

Jól 2009

Einungis á þeim leiðum sem hafa 7 daga þjónustu verður þjónusta á jóla- og nýársdag, en stefnt er að því að þá verði þessar leiðir almennt færar fyrir kl. 10:00.


Á aðfangadag, gamlársdag og annan í jólum ......

Lesa meira

16.12.2009 : Hvað á vegurinn að heita?

Arnkötludalur formlega opnaður

Nafngiftir á hinni nýju leið og breyttum Djúpvegi (61) hafa nokkuð verið til umræðu, jafnt innan Vegagerðarinnar sem utan og eru ekki allir á einu máli, svo sem vænta má. Málið er ekki endanlega útkljáð.


Vegagerðin hefur að undanfönu nefnt hinn nýja veg Djúpveg um Arnkötludal og einnig Djúpveg um Þröskulda en svo heitir hæsti hluti vegarins og sá sem helst þarfnast þjónustu að vetri til. Arnkötludalurinn liggur norðan Þröskulda en Gautsdalur að sunnanverðu á þessari leið.

Lesa meira

16.12.2009 : Citroën-Kegresse snjóbílar Vegagerðarinnar öðlast frægð

Citroen-Kegresse snjóbíll

Árið 1929 keypi Vegagerðin einn Citroën Kegresse snjóbíl en bíllinn var með beltum að aftan og skíðum að framan. Ári síðar voru þrír bílar til viðbótar keyptir. Tveir bílar stóðust tímans tönn þótt þeir gerðu það misjafnlega vel, annar þeirra endaði til að mynda á Fjarðarheiði.


Áhugi er nokkur á þessum bílum og er til sérstök vefsíða um þá og hafa aðstandendur hennar komið til Íslands til að skoða bílana, en annar er á safninu í Skógum, og til að kynna sér hvað um alla bílana varð.

Lesa meira

10.12.2009 : Tvöföldun Suðurlandsvegar frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss

Suðurlandsvegur -
Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um Suðurlandsveg frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 11. desember 2009 til 29. janúar 2010. Lesa meira

8.12.2009 : Vetrarakstur - hálka

Vegur og hálka

Nýjar reglur um vetrarþjónustuna taka gildi nú um áramótin og hægt er að kynna sér þær með því að smella á hnappinn hér til vinstri um Vetrarþjónustuna 2010.


Þrátt fyrir snjómokstur og hálkuvarnir geta vegfarendur búist við því að lenda í hálku sem getur verið mjög lúmsk. Það er því gott ráð að kynna sér við hvaða aðstæður megi búast við hálku og hvernig og afhverju hún myndast.

Lesa meira

4.12.2009 : Færri ferðir styrktar árið 2010

Grímseyjarferja

Vegna niðurskurðar á fjárveitingum og nokkurs hallareksturs er nauðsynlegt að draga saman og spara í styrkjum til almenningssamgangna sem nemur um 10 prósentum á næsta ári.


Í fjárlagafrumvarpinu fyrir 2010 nema fjárframlög til styrkja til almenningssamgangna 1.350 milljónum króna. Ætlunin að spara 130 – 140 milljónir króna.

Lesa meira

2.12.2009 : Vetrarakstur
- nokkur góð ráð

Vegur um vetur - snjór

Þjónustudeild Vegagerðarinnar gaf út fyrir nokkrum árum á vefnum leiðbeiningar um vetrarakstur sem eru enn í góðu gildi. Það er mikilvægt að ökumenn aki alltaf eftir aðstæðum því þrátt fyrir hálkuvarnir og snjómokstur má eiga á ýmsu von að vetri til.


Rétt er einnig að hafa í huga að reglur Vegagerðarinnar um vetrarþjónustu breytast um áramótin. Ökumenn eru hvattir til að kynna sér þessar breytingar með því að smella á hnappinn hér til hliðar um Vetrarþjónustuna 2010.

Lesa meira

1.12.2009 : Vestfjarðavegur (60) í umhverfismat skv. úrskurði ráðherra

Frá Vestfjarðavegi (60)

Umhverfisráðherra hefur staðfest ákvörðun Skipulagsstofnunar um að kaflinn á milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði á Vestfjarðavegi (60) skuli háður mati á umhverfisáhrifum.


Í niðurstöðu ráðherra segir m.a.: "Rétt er að benda á að ekki er nauðsynlegt að framkvæmdir muni hafa umtalsverð umhverfis-áhrif heldur er nægilegt að þær kunni að hafa þau. Hvað hugsan-leg umhverfisáhrif hinnar kærðu framkvæmdar áhrærir vísast sérstaklega til umfangs og stærðar framkvæmdanna,"

Lesa meira

30.11.2009 : Síðasta sprenging í Bolungarvíkurgöngum

Haft tekið úr kransakökugöngum

Stór áfangi kláraðist í Bolungarvíkurgöngum laugardaginn 28. nóvember þegar samgönguráðherra sprengdi síðustu sprenginguna að viðstöddu fjölmenni. Áður höfðu heimamenn haldið hátíð í Bolungarvík þar sem bæjarstjórar Ísafjarðar og Bolungarvíkur, samgönguráðherra og vegamálastjóri kipptu haftinu úr 4,53 m löngum kransakökugöngum.


Í máli vegamálastjóra við það tækifæri kom fram að stærsta áfanganum í byggingu ganganna væri þá lokið enda fælist alltaf mesta óvissan í því hvernig bergi myndi reynast.

Lesa meira

19.11.2009 : Nýjar snjómokstursreglur 2010

Snjómokstursreglur 2010

Reglur um vetrarþjónustu breytast á næsta ári. Tekist hefur með hagræðingu og betra skipulagi að halda óbreyttri þjónustu út árið 2009, en nauðsynlegt er að draga eitthvað úr vetrarþjónustunni árið 2010.


Áhersla er á það við þessar breytingar að tryggja umferðaröryggi sem best en þjónustan verður svipuð og hún var árið 2006. Þjónustudögum á fáförnustu leiðunum verður fækkað og þjónustutími á lægri þjónustuflokkum styttur, mest um helgar. Stefnt er að 200 milljóna króna sparnaði.

Lesa meira

18.11.2009 : Hjáleið um vinnusvæði á Kjalarnesi

Kjalarnes hjáleið á Hringvegi

Miðvikudaginn 18. nóvember kl. 13:00 verður umferð beint um stutta hjáleið fram hjá vinnusvæði við Grundarhverfi á Kjalarnesi þar sem verið er að byggja undirgöng undir Vesturlandsveg.


Búist er við að hjáleiðin verði í notkun fram að jólum en þá verður umferð færð tilbaka á Vesturlandsveg.

Lesa meira

13.11.2009 : Vaðlaheiðarvegur sem ferðamannavegur

Merki um Vaðlaheiðarveg sem ferðamannaveg

Rannsókna-og þróunarstarf hefur ávallt verið þáttur í starfsemi Vegagerðarinnar. Árlega eru veittir styrkir til rannsóknaverkefna. Nýbúið er að kynna hluta rannsóknarverkefna á Rannsóknarráðstefnu Vegagerðarinnar.


Eitt verkefnanna sem er styrkt snýr að ferðamannavegum að norskri fyrirmynd en þar hafa slíkir vegir slegið í gegn hjá ferðamönnum og almenningi öllum. Því er lýst hvernig Vaðlaheiðarvegur gæti orðið að sérstökum ferðmannavegi.

Lesa meira

10.11.2009 : Norðurslóðaáætlunin 2007-2013

Norðurslóðaáætlunin

Í tengslum við alþjóðlega ráðstefnu Norðurslóðaáætlunar 2007-2013 LAVA09 verða þau fjölbreyttu verkefni sem Ísland tekur þátt í kynnt í Ráðhúsi Reykjavíkur.


Opið 10. nóv. kl. 12:00 – 18:00 og 11. nóvember kl. 10:00 – 18:00 og er sýningin öllum opin.


Verkefnin eru af mjög fjölbreyttum toga en Vegagerðin kynnir ROADEX tæknilausnina.

Lesa meira

9.11.2009 : Vel heppnuð ráðstefna um rannsóknir Vegagerðarinnar 2009

Rannsóknarráðstefna 2009

Að þessu sinni voru 160 skráðir þáttakendur á hinni árlegu ráðstefnu um rannsóknir Vegagerðarinnar, sem nú var haldin í 8. sinn.




Búið er að setja ágrip af erindum á ráðstefnunni og glærur sem fyrirlesarar notuðu hér á vefinn.

Lesa meira

9.11.2009 : Umferðin í ár svipuð og 2007

Mánaðarumferð graf

Akstur á 16 völdum talningarstöðum á Hringvegi í október 2009 er örlítið meiri en í október í fyrra. Fyrstu tíu mánuði ársins hefur umferð aukist um 2,3 prósent miðað við sama tímabil 2008. Umferðin er þó nánast sú sama og 2007.


Umferðin jókst töluvert mikið í sumar en haustumferðin dregst saman ef eitthvað er.

Lesa meira

2.11.2009 : Jarðgöng á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar - Frummatsskýrsla

Göng milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar

Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar, frummatsskýrslu um lagningu nýs vegar og jarðganga á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar á Vestfjörðum.


Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 12. desember 2009 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.

Lesa meira

29.10.2009 : Umferðarkönnun 29. og 31. október

Ólafsfjarðarvegur sunnan dalvíkur

Háskólinn á Akureyri, í samvinnu við Vegagerðina, mun standa fyrir umferðarkönnun á Ólafsfjarðarvegi, milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar og á Siglufjarðarvegi við Ketilás, fimmtudaginn 29. október og laugardaginn 31. október n.k. Könnunin stendur yfir frá kl. 08:00 – 23:00 báða dagana.


Um er að ræða hluta af rannsóknarverkefni um áhrif Héðinsfjarðarganga á samfélag og byggð.

Lesa meira

23.10.2009 : Göngubrýr fegurstar

Viðurkenning fagurt mannvirki

Vegagerðin veitti í dag í þriðja sinn viðurkenningu fyrir gerð og frágang mannvirkja. Fegurst mannvirkja byggð á árunum 2005-2007 þóttu göngubrýrnar yfir Hringbraut og Njarðargötu.


Áður hafa hlotið viðurkenningu Vatnaleiðin á Snæfellsnesi og norðausturvegur á Tjörnesi ásamt áningarstað á Teigsbjargi.

Lesa meira

22.10.2009 : Óheimilit að taka tillit til umferðaröryggis

Leid_B_2__afangi

Í dómi Hæstaréttar um úrskurð umhverfisráðherra vegna vegalagningar á Vestfjarðavegi (60), Bjarkalundur – Eyri í Reykhólasveit er ekki fallist á rök Héraðsdóms í málinu en tekið undir niðurstöðuna.


Samkvæmt niðurstöðu Hæstaréttar fellst rétturinn á það „að umhverfisráðherra hafi verið óheimilt í úrskurði sínum 5. janúar 2007 um mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðs vegar áfrýjanda [Vegagerðarinnar] að taka tillit til umferðaröryggis.“

Lesa meira

22.10.2009 : Tveir dómar í Hæstarétti

Frá Teigsskógi

Tveir dómar féllu í Hæstarétti í dag sem snerta Vegagerðina. Í báðum tilvikum staðfesti rétturinn niðurstöðu Héraðsdóms.


Annað málið sneri að Vestfjarðavegi (60) í gegnum Teigsskóg meðal annars. Dómurinn staðfestir þar með að felldur er úr gildi úrskurður umhverfisráðherra sem féllst á leið Vegagerðarinnar um veginn Bjarkalundur - Eyri í Reykhólasveit.


Hitt málið sneri að nýjum vegi yfir Hornarfjarðarfljót á Hringvegi. Hæstiréttur staðfesti dóm í hérað þess efni að framkvæmdaaðili, Vegagerðin, þurfi ekki að meta framkvæmdakosti þá sem aðrir höfðu lagt til að kannaðir yrðu einnig.

Lesa meira

22.10.2009 : Hófaskarðsleið í notkun næsta sumar

Nýjasta veglínan vestast á Hófaskarðsleið

Skipulagsstofnun hefur komist að þeirri niðurstöðu að ný útfærsla Vegagerðarinnar á veglínu vestast á Hófaskarðsleið sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum.


Komi ekki til þess að úrskurðurinn verði kærður og framkvæmdaleyfi fæst má reikna með því að hægt verði að ljúka vegalagningu á nýrri veglínu og því sem eftir var upp á heiðinni um mitt næsta sumar.

Lesa meira

22.10.2009 : Undirgöng við Grundarhverfi

Undirgöng við Grundarhverfi


Vegagerðin og Reykjavíkurborg hefja bráðlega byggingu undirganga fyrir gangandi vegfarendur, undir Vesturlandsveg, við Klébergsskóla.
Markmiðið með framkvæmdinni er að gera trygga gönguleið undir Vesturlandsveg og er þá sérstaklega verið að hugsa til skólabarna í Klébergsskóla.

Lesa meira

20.10.2009 : Varúð! Hreindýr framundan

Hreindýr á Austurlandi

Náttúrustofa Austurlands vill minna á að nú er sá tími kominn að árekstrar við hreindýr á vegum úti eru hvað algengastir.Vegagerðin hefur sett upp skiliti á hættulegum stöðum og eru ökumenn hvattir til að sýna aðgát.


Nóvember, desember og janúar eru hættulegustu mánuðirnir samkvæmt yfirliti sem Náttúrustofan hefur tekið saman.

Lesa meira

15.10.2009 : Arnkötludalur formlega opnaður

Arnkötludalur formlega opnaður

Samgönguráðherra og vegamálastjóri klipptu á borða 14. október og afhjúpuðu samtímis stein með skildi þar sem fram kemur að nú er hægt að aka á bundnu slitlagi milli Reykjavíkur og Ísafjarðar og reyndar áfram til Bolungarvíkur.


Nýi vegurinn er miklil samgöngubót og styttir þessa leið um 42 km. Með vegaframkvæmdum sem lauk fyrr í sumar í Djúpinu styttist vetrarleiðin einnig um 33 km eða alls um 75 km, auk þess sem malarvegir heyra sögunni til.

Lesa meira

13.10.2009 : Norðausturvegur um Hófaskarðsleið, viðbót vegna breytinga á veglínu um Borgarás

Norðausturvegur, Hófaskarðsleið um Borgarás


Þann 17. september 2009 tilkynnti Vegagerðin Skipulagsstofnun um breytingar á 1,8 km löngum kafla á nýrri veglínu Norðausturvegar, á kaflanum frá Klapparósi að Katastöðum. Ný lega vegarins var kölluð veglína 174 og er hún kynnt í greinargerð Vegagerðarinnar frá september 2009. Breytingar á veglínu Norðausturvegar eru .....

Lesa meira

8.10.2009 : Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2009

Rannsóknarráðstefna 2009


Þróunarsvið Vegagerðarinnar stendur fyrir árlegri rannsóknaráðstefnu sinni föstudaginn 6. nóvember 2009 á Reykjavik Hilton Nordica hóteli.

Þetta er í áttunda sinn sem rannsóknaráðstefnan er haldin. Kveðið var á í vegalögum að 1,5% af mörkuðum tekjum til vegamála skuli renna til rannsókna- og þróunarstarfs og er ráðstefnunni ætlað að endurspegla afrakstur hluta þess starfs.

Lesa meira

8.10.2009 : Fleiri vilja nú auka við bundna slitlagið

Af Kjalarnesi

Jákvæðni í garð Vegagerðarinnar minnkar lítillega í sumarkönnun Gallups um viðhorf almennings til þjóðveganna. Hinsvegar eru fleiri sem finnast þjóðvegirnir almennt vera góðir.


Flestir vilja líkt og undanfarin helst breikka vegina en þeim sem þetta vilja fækkar þó töluvert frá könnuninni síðasta vetur. Á móti fjölgar þeim töluvert núna sem vilja auka við bundna slitlagið.

Lesa meira

5.10.2009 : Dregur aftur úr umferð

Graf með þróun umferðar

Umferðin á 16 völdum talningarstöðum á Hringveginum í september var nánast sú sama og í fyrra. Undanfarna mánuði, eða í sumar, hefur umferðin hinsvegar verið meiri en hún var metárið 2007.


Þannig að það dregur töluvert mikið úr umferð nú í september, miðað við síðustu mánuði, því árið 2008 var fyrsta árið í mjög langan tíma sem umferð dróst saman.

Lesa meira

23.9.2009 : NVF áberandi á ITS í Stokkhólmi

Bás NVF á ITS sýningunni í Stokkhólmi

Dagana 21.-25. september er haldin stór ráðstefna í Stokkhólmi um snjallkerfi í umferð. Gert var ráð fyrir að um 5000 manns myndu sækja ráðstefnuna en í raun komu 6600 þátttakendur allsstaðar að úr heiminum.


Norræna vegasambandið (NVF) er áberandi á ráðstefnunni, og sýningunni sem tilheyrir, enda fjallar ein af 14 tækninefndum NVF um snjallkerfi í umferð eða ITS, sem stendur fyrir Intelligent Transport Systems and Services.

Lesa meira

22.9.2009 : Norðausturvegur, Hófaskarðsleið um Borgarás - breytingar á veglínu

Norðausturvegur, Hófaskarðsleið um Borgarás


Þann 3. júní 2009 tilkynnti Vegagerðin Skipulagsstofnun um fyrirhugaða breytingu á 1,7 km löngum kafla á veglínu Norðausturvegar (85), Hófaskarðaleið, við Klapparós og Katastaði, Norðurþingi. Kynntir voru tveir nýir kostir.....

Lesa meira

21.9.2009 : Umferðin eykst 2009 eftir minnkun 2008

Graf, umferðin 2005 - 2009

Vegagerðin hefur undanfaið birt mánaðalega tölur um umferð á 16 völdum talningarstöðum á Hringveginum. Árið 2008 bar svo við að umferð minnkaði í fyrsta sinn í mjög langan tíma. Framan af árinu 2009 var umferðin svipuð eða minni en 2007 en meiri en 2008 þar til í sumar að umferðin jókst til muna.


Nú er umferðin fyrstu átta mánuði ársins nokkuð meiri en í fyrra og einnig meiri en árið 2007 sem var met ár. Mest hefur aukningin orðið sumarmánuðina líkt og menn höfðu reyndar gert ráð fyrir.

Lesa meira

17.9.2009 : Baldur siglir á Eyjar

ferjan Baldur

Það verður ekki hjá því komist að Herjólfur fari endrum og eins í slipp. Þegar það gerist er nauðsynlegt að fá annað skip til að sigla á milli Vestmannaeyja og lands. Undanfarin ár hefur St. Ola sinnt því hlutverki en í ár var ekki hægt að leigja St. Ola til verksins.


Reynt er að skipuleggja slipptöku Herjólfs þannig að það valdi sem minnstri röskun. Því er Herjólfur ekki tekinn í slipp að sumri til þegar mest er umferð ferðamanna og heldur ekki seint á hausti einmitt vegna þess að þá fara veður að versna.

Lesa meira

15.9.2009 : Ánægja með vegakerfið eykst hjá flutningaðilum

Flutningabíll á þjóðvegi við Kjalarnes

Ánægja flutningaaðila með vegakerfið eykst merkjanlega samkvæmt nýrri viðhorfskönnun sem gerð var fyrir Vegagerðina. Verktakar eru svipað ánægðir með Vegagerðina og samskipti sín við starfsmenn Vegagerðarinnar og þeir hafa verið undanfarin ár samkvæmt sömu könnun.


Könnun þessi unnin af Lausnum fyrir Vegagerðina árlega en flutningsaðilar og verktakar eru spurðir mismunandi spurninga.

Lesa meira

14.9.2009 : Arnkötludalur lokaður

Arnkötludalur vegagerð

Vinnusvæðið í Arnkötludal er lokað allri almennri umferð meðan unnið er að því að ljúka framkvæmdum. Hætt er við því að óviðkomandi umferð tefji verkið og leiði jafnvel til skemmda.


Verði tíðarfar gott er reiknað með því að lokið verði við leggja klæðingu á kaflann öðru hvoru megin við næstu mánaðamót. Unnið er að því nú að leggja út efra burðarlag og klæðingu.

Lesa meira

10.9.2009 : Ráðstefna Vegasambands Eystrasaltsríkjanna

Vegamálastjóri ávarpar ráðstefnuna

Norræna vegasambandið (NVF) og samband Eystrasaltsríkjanna (BRA) hafa haft með sér samstarf síðan árið 1992. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri ávarpaði 27. alþjóðlegu ráðstefnu Vegasambands Eystrasaltsríkjanna fyrir hönd NVF í ágúst en Íslands stýrir NVF nú í fyrsta sinn í 75 ára sögu sambandsins.


Hreinn benti á að mikilvægasti þáttur samstarfsins væri miðlun þekkingar og kunnáttu á milli landanna og að vonandi og örugglega myndu menn líka læra af reynslunni af kreppunni sem nú ríður yfir löndin þótt í mismiklum mæli sé.

Lesa meira

4.9.2009 : Fagnað í Djúpinu

Klippt á borða, brú yfir Mjóafjörð

Fjölmenni var viðstatt þegar Kristján L. Möller samgönguráðherra og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri klipptu á borða á nýju bogabrúnni fyrir Mjóafjörð og opnuðu þar með brúna fyrir umferð.


Brúin ásamt tveimur öðrum og ríflega 28 km af nýjum vegi er mikil samgöngubót og þótt styttingin sé ekki mæld í kílómetrum að sumri er hún um 30 km að vetri og ferðatíminn styttist verulega árið um kring.

Lesa meira

2.9.2009 : Hnegg á heiði

Vestast á Hófaskarðsleið

Töluverð umræða hefur orðið um þau vandræði sem hafa skapast við vegagerð á Hófaskarðsleið sem rekja má til andstöðu landeigenda á einni jörð við að vegur fari um land þeirra. Ljóst er að vegurinn verður ekki tekinn í notkun í ár líkt og til stóð.


Á undanförnum árum hefur viðhorf landeiganda til vegagerðar breyst þannig að andstaða við vegalagningu hefur aukist töluvert. Allur undirbúningur vegagerðar hefur aukist og tíminn sem fer í undirbúning lengist sífellt.

Lesa meira

1.9.2009 : Umferðin 2009 meiri en 2007

Súlur í Ágúst 2009

Nýliðinn júlímánuður er umferðarmesti mánuður frá upphafi mælinga en mælt er á 16 völdum stöðum á Hringvegi og því er ekki umferðin á höfuðborgarsvæðinu nema að litlu leiti með í tölunum.


Í ágúst var umferðin svipuð og árið 2007 en eilítið meiri eigi að síður. Spár um aukna umferð á vegunum í sumar hafa því gengið eftir, sérstaklega í júlí.

Lesa meira

26.8.2009 : Mjög mikil aukning á umferð að norðan en samdráttur í umferð að austan

Helgarumferð á Hringvegi við Reykjavík 26. júní til 26. ágúst 2008 og 2009
Samdráttur var í umferð austan höfuðborgarinnar helgina 22. - 23.ágúst 2009 m.v. sömu helgi 2008. Mikil aukning var, aftur á móti, á öllum mælistöðvum norðan höfuðborgarinnar m.v. sama tíma árið 2008. Lesa meira

20.8.2009 : Skilti um utanvegaakstur og akstur á hálendinu

Skilti utanvegaakstur

Vegamálastjóri, fulltrúar tryggingarfélaganna og fulltrúar bílaleiganna skrifuðu 20. ágúst undir samstarfssamning um kostun, gerð og uppsetningu skilta er sem ætlað er upplýsa ökumenn um reglur þær og ástæður fyrir því að utanvegakstur á Íslandi er bannaður.


Skiltin verða sett upp við innkomur á helstu leiðir inn á hálendi landsins. Í fyrsta áfanga á þessu ári verða sett upp 10 skilti.

Lesa meira

17.8.2009 : Meiri umferð á öllum talningarstöðum

Umferð á Kjalarnesi

Samdrætti í umferð síðustu helgi virðist vera náð til baka og gott betur þ.e.a.s. að nú mælist talsvert meiri umferð á öllum 6 talningastöðunum miðað við sama tíma árið 2008. Er umferð þessa helgi svipuð og yfir verslunarmannahelgina, í ár.


Það fóru rúmlega 17 þús. bílar um teljara við Þjórsá um helgina borið saman við tæplega 11 þús. bíla árið 2008 en Töðugjöld voru á Hellu þessa helgina.

Lesa meira

10.8.2009 : Klakastífla í Jökulsá á Breiðamerkursandi

Jókulsárlón ísstífla
Það leit ekkert of vel út þegar stór ísstífla myndaðist undir brúnni yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi. Þetta gerðist við útfall úr Jökulsárlóninu í hádeginu 10. ágúst en stórir jakar festur á grjótþröskuldi undir brúnni og röðuðust þar margir saman. Vatnið komst þó í rennum sitt hvoru megin við stífluna en á tímabili fór mjög stór jaki undir miðja brúna og voru ekki nema einn og hálfur till tveir metrar eftir í brúargólfið. Lesa meira

10.8.2009 : Töluvert fleiri óku til Dalvíkur um Fiskidagshelgina í ár en í fyrra

Ólafsfjarðarvegur - lítil umferð

Fjórðungi fleiri virðast hafa lagt leið sína til Dalvíkur þessa Fiskidagshelgi en í fyrra ef tekið er mið af umferðinni á Hámundastaðahálsi sem er rétt austan Dalvíkur á leiðinni á Akureyri. Það fóru rúmlega 19 þúsund bílar yfir hálsinn núna um helgina borið saman við rúmlega 15 þúsund bíla árið 2008 um sömu helgi.


Umferð um helgina í nágrenni höfuðborgarinnar var hinsvegar minni en verið hefur að undanförnu.

Lesa meira

5.8.2009 : Akstur um 16 valda talningastaði á Hringvegi eykst um 7,3% í júlí 2009 m.v. júlí 2008

Suðurlandsvegur við Kögunarhól

Af samantektartöflu sést að umferðin eykst í öllum landshlutum milli júlí mánaða 2008 og 2009. Nemur heildaraukningin 7,3% milli mánaða og 2,7% frá áramótum.

Lesa meira

4.8.2009 : Umferð um verslunarmannahelgina

Helgarumferð á Hringvegi við Höfuðborgarsvæðið frá 26. júní til 2. ágúst 2009


Umferð, í austur, frá höfuðborginni var nokkuð meiri um verslunarmannahelgina 2009 en sömu helgi 2008.

Lesa meira

27.7.2009 : Fleiri fóru austurum en norður

Í Ártúnsbrekku

Umferð í austur frá höfuðborginni var nokkuð meiri um nýliðna helgi en sömu helgi í júlí 2008. Heldur færri fóru hinsvegar í norður frá Reykjavík en fyrir ári síðan.


Dæmið frá helginni 17. - 19. júlí snerist því við, því þá fóru fleiri í norður frá höfuðborginni en fóru austurum.

Lesa meira

21.7.2009 : Meiri umferð norðan Reykjavíkur en austan um síðustu helgi

Af Kjalarnesi

Umferðin í nágrenni Reykjavíkur um síðustu helgi 17. - 19. júlí var heldur meiri norðan Borgarinnar borið saman við sömu helgi árið 2008.


Hinsvegar var umferðin nokkuð minni austan Reykjavíkur.

Lesa meira

15.7.2009 : Aukin umferð í nágrenni höfuðborgarinnar

Suðurlandsvegur við Kögunarhól

Töluverð aukning mælist á umferð í nágrenni höfuðborgarsvæðisins helgina 10. - 12. júlí miðað við sömu helgi í fyrra.


Aukningin nemur allt að 28 prósentum mest á sunnudeginum en minnst aukninga á föstudegi.

Lesa meira

13.7.2009 : Skipulagsstofnun jákvæð gagnvart tvöföldun Suðurlandsvegar

Suðurlandsvegur fyrir ofan Litlu kaffistofuna

Það er niðurstaða Skipulagsstofnunar að óháð því hvaða kostur verður valinn við að tvöfalda og/eða aðskilja aksturstefnur á Suðurlandsvegi á milli Hólmsár og Hveragerðis, þá hafi þeir allir jákvæð áhrif á umferðaröryggi. Stofnunin telur sig hins vegar ekki hafa forsendur til að leggja mat á hver kostanna sé bestur m.t.t. umferðaröryggis.


Skipulagsstofnun gaf út álit sitt um mat á umhverfissáhrifum fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar frá Hólmsá ofan Reykjavíkur að Hveragerði 13. júlí.

Lesa meira

8.7.2009 : Sama umferð í ár og 2007

Umferðin janúar - júní 2009

Umferðin fyrstu sex mánuði ársins á Hringveginum (16 valdir talningarstaðir) er nákvæmlega sú sama og árið 2007. Umferðin í ár er þannig aðeins meiri en í fyrra. Fram til ársins í fyrra hafði orðið stöðug auking umferðar á þessum völdu talningarstöðum á Hringveginum.


Umferðin eykst allstaðar út á landi en dregst lítillega saman á Hringveginu við Höfuðborgarsvæðið. Samdráttur í atvinnuumferð á Geithálsi og við Úlfarsfell gæti verið skýring á þessu.

Lesa meira

7.7.2009 : Þverun Grunnafjarðar

Grunnafjörður, hugsanleg veglína Hringvegar

Vegagerðin er að endurskoða og meta mögulega framtíðarlegu Hringvegar á milli Hvalfjarganga og Borgarness m.a. með tilliti til umferðaröryggis, umferðarrýmdar, fjölda akreina og staðsetningu og útfærslu vegamóta. Ljóst er að þörf er á miklum endurbótum á Hringveginum á þessum kafla.


Einn kostur er að færa legu Hringvegar vestur fyrir Akrafjall og yfir Grunnafjörð. Sú útfærsla styttir leiðina á milli Akraness og Borgarness um rúma 7 km og Hringveginn um tæpan km.


Meginniðurstaða greinargerðarinnar er að brú breyti sjávarföllum óverulega, að nýr Hringvegur um Grunnafjörð sé raunhæfur kostur.

Lesa meira

2.7.2009 : Norðausturvegur, Hófaskarðsleið - breyting á veglínu

Hófaskarðsleið

Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu, vegna fyrirhugaðar breytingar á veglínu Norðausturvegar, Hófaskarðsleið, við Klapparós og Katastaði, liggur nú fyrir.

Lesa meira

1.7.2009 : Aukning á umferð í kringum höfuðborgarsvæðið

Suðurlandsvegur við Kögunarhól

Talsverð aukning var á umferð, síðustu helgina í júní 2009, á 5 stöðum á Hringvegi í kringum höfuðborgarsvæðið, borið saman við sömu helgi árið 2008.


Lesa meira

24.6.2009 : Skipulag vegna tvöföldunar Vesturlandsvegar er ekki tilbúið

Kjalarnes

Nauðsynlegt er að gera alvarlegar athugasemdir við staðhæfingar viðmælanda Morgunblaðsins í dag 24. júní í frétt með yfirskriftinni „Girðing fyrir Kjalnesinga á teikniborðinu“.

Lesa meira

22.6.2009 : Þórsmerkurvegur í hættu

Þórsmerkurvegur þar sem Markarfljót nagaði í veginn um helgina
Um helgina kroppaði Markarfljótið nokkuð duglega í Þórsmerkurveginn á stuttum kafla. Í dag, mánudag, hófst vinna við að leggja 300 m langa bakkavörn á þessum stað en það stóð til að gera þar sem færa þurfti veginn í fyrrasumar af þessum sömu sökum. Á myndum sem fylgja fréttinni sést vel hver staða mála var að kvöldi sunnudags. Umferð verður ekki fyrir frekara raski þar sem búið er að útbúa framhjáhlaup. Lesa meira

18.6.2009 : Heiðursmeðlimur og heiðursverðlaun NVF

Sten Balle tekur við Svaninum úr hendi formanns stjórnar NVF Hreins Haraldssonar vegamálastjóra

Á stjórnarfundi Norræna vegasambandsins sem haldinn var á Íslandi 11. júní var Henning Christiansen gerður að heiðursmeðlim í NVF og Sten Balle voru afhentur Svanurinn sem er viðurkenning vegasambandsins.


Ísland leiðir nú starf Norræna vegasambandsins í fyrsta sinn í nærri 75 ára sögu þess. Ísland stýrir sambandinu fram til ársins 2012 þegar núverandi fjögurra ára tímabili lýkur með ráðstefnu hér á landi.

Lesa meira

16.6.2009 : Hætt við útboð

Reykjabraut

Ákveðið hefur verið að fresta útboðum á Arnarnesvegi (411) Reykjanesbraut - Fífuhvammsvegur annars vegar og Reykjabraut (724) Hringvegur-Húnavellir hinsvegar. Opna átti tilboð þann 23. júní nk.


Hægt er að skila útboðsgögnum þar sem þau voru keypt og mun Vegagerðin endurgreiða gjald vegna útboðsgagna kr. 8.000,-. Berist umslög merkt sem tilboð í verkið fyrir þriðjudag, verða þau ekki opnuð heldur endursend til sendanda.

Lesa meira

9.6.2009 : Sniglar í umferðaröryggisátaki

Prófun vegamálastjóra á rafknúnu hjóli

Bifhjólasamtök Lýðveldisins, Sniglar hafa ákveðið að blása til sérstaks forvarnardags með skellinöðrukrökkum á höfuðborgarsvæðinu þar sem ný slysaskýrsla leiðir í ljós að algengstu mótórhjólaslysin eru hjá yngra fólki á skellinöðrum.


Vegagerðin hefur átt í samvinnu við Sniglana vegna umferðaröryggis. En það er ekki eingöngu ungt fólk sem notar skellinöðrur, hjá Vegagerðinni er rafskutla notuð til styttri ferða.

Lesa meira

2.6.2009 : Umferðin stendur í stað milli ára

Umferðin janúar - maí í 5 ár
Miðað við umferðartölur frá 16 völdum talningarstöðum á Hringvegi þá er umferðin fyrstu fimm mánuði ársins mjög svipuð og bæði í fyrra og árið 2007. Umferðin stendur þannig í stað. Þó er merkjanleg minni umferð á Suðuvesturhorni landsins þar sem hún dregst saman um nærri 5 prósent í maí, svo mikil lækkun hefur ekki mælst á þessum mælum síðan árið 2005. Lesa meira

27.5.2009 : Vegagerðin og Sniglarnir eiga mörg sameiginleg hagsmunamál

Frá fundi Sniglanna og Vegagerðarinnar
Sniglarnir, Bifhjólasamtök lýðveldisins og Vegagerðin eiga mörg sameiginleg hagsmunamál. Þessi mál voru rædd á fundi nú í maí að frumkvæði umferðarnefndar Sniglanna sem lætur sig varða umferðaröryggi og forvarnir sem og önnur hagsmunamál bifhjólamanna. Umferðaröryggi er einnig efst á lista Vegagerðarinnar. Til að fækka slysum eru menn sammála um að sameina kraftana til að ná sem bestum árangri. Lesa meira

20.5.2009 : Hringvegur (1), Litla-Sandfell - Haugaá

Litla-Sandfell - Haugaá - Yfirlitskort

Vegagerðin hefur opnað útboð í framkvæmd á Hringvegi (1) í Skriðdal, Fljótsdalshéraði S.-Múlasýslu. Til stendur að endur-og nýbyggja um 11 km langan kafla og byggja 3 nýjar brýr; yfir Þórisá, Eyrarteigsá og Jóku.

Lesa meira

20.5.2009 : Hringvegur (1), Brú á Ystu Rjúkandi

Ysta Rjúkandi - Yfirlitskort

Vegagerðin kynnir hér með framkvæmd á Hringvegi (1) í Jökuldal, Fljótsdalshéraði N.-Múlasýslu. Til stendur að byggja nýja og breiðari brú yfir Ystu Rjúkandi og aðlaga Hringveginn (1) beggja vegna hennar. Þá verður áningastaður byggður í tengslum við framkvæmdina.

Lesa meira

18.5.2009 : Ekki sama vegsvæði og veghelgunarsvæði

Hæstiréttur
Vegagerðin vann mál fyrir Hæstarétti í síðustu viku er sneri að bótum fyrir eignarnám. Stefnendur héldu því fram að ávallt ætti að taka eignarnámi að lágmarki 60 m breitt veghelgunarsvæði stofnvega en Vegagerðin taldi aðeins þörf á að taka 40 m breitt vegsvæði. Hæstiréttur hafnaði niðurstöðu matsnefnd eignanámsbóta sem taldi að bæta ætti allt veghelgunarsvæðið en ekki bara vegsvæðið. Lesa meira

6.5.2009 : Umferð svipuð fyrstu mánuði ársins og tvö síðustu ár

Umferðin fyrstu fjóra mánuði hvers árs

Umferðin í apríl 2009 er heldur meiri en hún var í apríl í fyrra en nánast sú sama og hún var í apríl 2007. Umferðin á 16 völdum stöðum á Hringveginum reyndist ríflega 6 prósentum meiri í apríl í ár. Hinsvegar er aukning fyrstu fjóra mánuðina aðeins 0,7 prósent og er umferðin í ár nánast alveg sú sama og hún var 2007.


Lesa meira

5.5.2009 : Ræktunarsamband Flóa og Skeiða með lægsta boð

Tilboð opnuð 5. maí 2009

Mikill áhugi var á útboði Vegagerðarinnar í lagningu Bræðratunguvegar (359), Flúðir - Tungufljót en verkið felst í lögn vegar á 7,2 km löngum kafla og 1,2 km löngum tengingum við hann. Verkið felur einnig í sér smíði 270 m langrar steyptar bitabrúar yfir Hvítá og gerð leiðigarða. Alls bárust 23 boð.


Lesa meira

5.5.2009 : Ódýrar aðgerðir á vegakerfi höfuðborgarsvæðisins

Ódýrar aðgerðir í Reykjavík


Vegagerðin og Reykjavíkurborg hafa gert með sér samkomulag um ódýrar aðgerðir til að draga úr umferðartöfum og/eða auka öryggi í umferðarkerfi Reykjavíkurborgar.

Lesa meira

30.4.2009 : Skíðdalsvegur, Skáldalækur-Brautarhóll, Hofsá-Ytra Hvarf

Skíðdalsvegur - Yfirlitskort


Vegagerðin kynnir hér með vegaframkvæmd á Skíðadalsvegi (807) í Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsýslu.
Fyrirhugað er að endurbyggja, styrkja og leggja bundið slitlag á tvo kafla Skíðadalsvegar. Annars vegar milli Skáldalækjar og Brautarhóls, hins vegar milli Hofsár og Ytra-Hvarfs.

Lesa meira

21.4.2009 : Unnið af krafti við Suðurstrandarveg

Unnið við Suðurstrandaveg í apríl 2009

Mjög vel hefur gengið við lagningu Suðurstrandarvegar (427) Krýsuvíkurvegur – Þorlákshafnarvegur í vetur. Verktakinn, KNH ehf. frá Ísafirði er langt á undan áætlun. Ef verkaefnastaða fyrirtækisins breytist ekki mikið reikna menn jafnvel með að vegarkaflinn verði tilbúinn í september í haust.


Samkvæmt útboði átti hluti vegarins að vera tilbúinn á næsta árið og verki að fullu lokið 2011. Þá er eftir að ljúka kaflanum frá Krýsuvíkurvegi til Grindavíkur en hugsanlega verður sá kafli boðinn út síðar á árinu.

Lesa meira

15.4.2009 : Klæðning ehf. átti lægsta boð í Raufarhafnarveg (874)

Frá opnun tilboða í Raufarhafnarveg

Tilboð Klæðningar ehf, Hafnarfirði, hljóðaði upp á 250 milljónir króna sléttar, áætlaður verktakakostnaður var rúmar 447 milljónir króna og er boðið því 55,9 prósent af áætluninni. Næstlægstir voru KNH ehf., Ísafirði og svo Hektar ehf., Reykjavík.


Alls buðu 10 verktakar í Raufarhafnarveg (874), Háfaskarðsleið – Flugvöllur en um er að ræða tengingu Raufarhafnar við Hófaskarðsleið og þar með Kópaskers. Tilboð voruð opnuð samtímis í Reykjavík, á Akurreyri og á Reyðarfirði. Einnig fylgdust menn með frá Sauðárkróki í gegnum fjarfundabúnað.

Lesa meira

9.4.2009 : Sprengt í gegn í Héðinsfjarðargöngum

Kristján L Möller sprengir síðasta haftið í Héðinsfjarðargöngum

Kristján L. Möller samgönguráðherra sprengdi síðasta haftið í Héðinsfjarðargöngum kl. 10:00 á Skírdagsmorgun. Vel hefur gengið að sprengja að undanförnu þrátt fyrir að mikill vatnsagi í Ólafsfjarðaleggnum hafi tafið verkið á fyrri stigum.


Þá er búið að sprengja alla 10,6 kílómetrana en Héðinsfjarðargöng verða um 11 km með vegskálum. Slegið var í gegn Siglufjarðarmegin fyrir ári síðan.

Lesa meira

8.4.2009 : Aukið umferðaröryggi og greiðari umferð

Undirskrift samkomulags

Hreinn Haraldsson vegamálastjóri og Hanna Birna Kristjánsdóttir undirrituðu í dag, 8. apríl, samkomulag um ýmis verkefni til að auka umferðaröryggi og greiða fyrir umferð í borginni. Áætlað er að framkvæma fyrir 460 milljónir króna í ár og er hlutur Vegagerðarinnar 320 milljónir króna.


Um mörg verk er að ræða svo sem að breyta umferðarljósastýringu úr 3 fösum í 4 á gatnamótum Kringlumýrarbrautar - Laugavegs - Suðurlandsbrautar og á gatnamótum Borgartúns og Kringlumýrarbrautar. rampar á Bústaðavegi og Kringlumýrarbraut verða lengdir og undiröng byggð. Einnig verða nokkrar framkvæmdir til að bæta aðstöðu strætó og auka forgang.

Lesa meira

8.4.2009 : Héðinsfjarðargöng eru lokað vinnusvæði og umferð um þau stranglega bönnuð!

Við Héðinsfjarðargöng

Vegna fréttaflutnings undanfarið vegna gegnumbrots á gangahluta á milli Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar vilja verktakar Héðinsfjarðarganga, Háfell og Metrostav koma á framfæri eftirfarandi tilkynningu.

Héðinsfjarðargöng eru enn í fullri vinnslu og eru þungavinnuvélar og önnur stórvirk og sérhæfð tæki enn að störfum við verkið. Verkinu lýkur ekki fyrr en sumarið 2010 og er öll óviðkomandi umferð á vinnusvæðinu stranglega bönnuð á verktímanum. Verktaki vill taka það skýrt fram að mjög varasamt getur verið fyrir óviðkomandi að fara inn í göngin

Lesa meira

7.4.2009 : Loftorka Reykjavík með lægsta boð í Álftanesveg

Frá opnun tilboða 7. apríl

Alls buðu 19 verktakar í byggingu Álftanesvegar (415), Hafnarfjarðarvegur – Bessastaðavegur. Loftorka Reykjavík ehf. í Garðabæ átti lægsta tilboðið uppá 561 milljón króna. Áætlaður verktakakostnaður var 825 milljónir króna. Næstir komu Ris ehf./Vélaleiga A.Þ. Reykjavík og Ásberg ehf./Nesvélar Mosfellsbæ.


Einnig voru opnuð tilboð í eftirlit með verkinu. Þá voru einnig opnuð tilboð í efnisvinnslu á Norðvestursvæði, Bitrufjörð og átti Króksverk ehf. Sauðarkróki lægsta boð.

Lesa meira

3.4.2009 : Mun minni umferð í mars 2009 en undanfarin ár

Þróun umferðar 2005 -2009

Umferðin á þjóðvegum landsins, mæld á 16 völdum talningarstöðum á Hringvegi, var mun minni í mars 2009 en í sama mánuði árin á undan. Umferðin á þessu stöðum er nærri 15 prósentum minni í mars í ár en í mars í fyrra. Hér gæti þó spilað inn í að páskar voru í fyrra í mars en eru í apríl núna. Umferðin í mars 2009 minnkar það mikið að hún er minni en hún var í mars 2005.


Fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 hefur umferð á þessum talningarstöðum dregist saman um 3,3 prósent. Betri samanburður ætti að fást að aprílmánuði liðnum.

Lesa meira

2.4.2009 : Hreinn Haraldsson skipaður vegamálastjóri

Kristján L Möller afhendir Hreini Haraldssyni skipunarbréfið

Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur skipað Hrein Haraldsson vegamálastjóra.


Skipað er í embættið til fimm ára. Embætti vegamálastjóra var auglýst laust til umsóknar í byrjun mars og rann umsóknarfrestur út 23. mars. Hreinn var eini umsækjandinn.

Lesa meira

31.3.2009 : Vel gengur í göngum

Í Bolungarvíkurgöngum

Gröftur bæði Héðinsfjarðarganga og Bolungarvíkurganga hefur gengið vel að undanförnu. Nú er einungis eftir að sprengja um 90 m í Héðinsfjarðargöngum og því stutt í að menn slái í gegn í annað sinn í þeim göngum.


Fyrir vestan í Bolungarvíkurgöngum er nú búið að sprengja rétt ríflega helming leiðarinnar. Fylgjast má með verkframvindunni á vef Vegagerðarinnar.

Lesa meira

26.3.2009 : Raufarhafnarvegur (874), Hófaskarðsleið - Flugvöllur

Raufarhafnarvegur - Yfirlitsmynd

Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í byggingu Raufarhafnarvegar í Norðurþingi N.-Þingeyjarsýslu. Framkvæmdin er um 14,1 km löng og liggur frá Hófaskarðsleið að Raufarhafnarflugvelli.


Um nýbyggingu er að ræða og skal verkinu að fullu lokið fyrir 1. október 2010.

Lesa meira

25.3.2009 : Breikkun Suðurlandsvegar

Samgönguráðherra og vegamálastjóri hafa samþykkt tilhögun áætlunar um tvöföldun Suðurlandsvegar. Leiðin milli Reykjavíkur og Selfoss yrði 2+2 vegur að undanteknum kafla í Svinahrauni og á Hellisheiði sem yrði 2+1 vegur. Fyrsti hluti verkefnisins verður boðinn út síðar á árinu.


Heildarkostnaður við verkið er áætlaður kringum 15,9 milljarðar króna. Til ráðstöfunar á þessu ári verður kringum einn milljarður og verður fyrst boðinn út tvöföldun kaflans milli Lögbergsbrekku og Litlu kaffistofunnar og síðan kafli næst Vesturlandsvegi.

Lesa meira

25.3.2009 : Norðfjarðargöng - Matsskýrsla

Norðfjarðargöng - Yfirlitsmynd

Vegagerðin áformar að byggja ný jarðgöng, Norðfjarðargöng, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar í Fjarðabyggð í Suður-Múlasýslu.

 

Jarðgöngin verða 6,9-7,8 km löng og nýir vegir verða samtals 7,2-8,8 km langir beggja vegna gangamunna.


Í heild er um er að ræða 15,0-15,9 km langa framkvæmd sem verður hluti af Norðfjarðarvegi.

 

Lesa meira

24.3.2009 : Mörg lág tilboð í Vopnafjarðartengingu

Frá opnun tilboða, vegamálastjóri og samgönguráðherra voru viðstaddir.

Alls bárust 13 tilboð í lagningu Norðausturvegar (85), Bunguflóa - Vopnafjarðar eða tengingu Vopnafjarðar við Hringveginn. Einungis tvö tilboðanna voru hærri en áætlaður verktakakostnaður.

Hektar ehf í Reykjavík áttu lægsta tilboðið upp á rúmar 738 milljónir króna, en tilboð Háfells ehf í reykjavík var litlu hærra eða tæpar 740 milljónir króna. Áætlaður verktakakostnaður var rúmar 1.440 milljónir króna.


Þessi tilboð eru því 51,3 og 51,4 prósent af verktakakostnaði líkt og sjá má hér á vefnum.

Lesa meira

23.3.2009 : Aukin jákvæðni í garð Vegagerðarinnar

Flestir vilja auknar hálkuvarnir þegar spurt er um vetur

Heldur fleiri segjast nú vera jákvæðari gagnvart Vegagerðinni heldur en undanfarin fjögur ár. Tvisvar á ári spyr Capacent Gallup um viðhorf landsmanna til þjóðveganna, vetur og sumar. Nú segjast nærri 71 prósent vera frekar eða mjög jákvætt í garð Vegagerðarinnar og hefur meðaltalið farið úr 6,3 í fyrra í 6,8 núna.




Sem fyrr vill fólk fyrst og fremst auka hálkuvarnir en það nefna meira en helmingur svarenda, síðan vilja vegfarendur fjölga kantstikum.  Könnun Capacents Gallups.

Lesa meira

13.3.2009 : 367 milljónir króna til umferðaröryggisáætlunar

Undirritum samninga um umferðareftirlitið fór fram í Litlu kaffistofunni

Framlag til umferðaröryggisáætlunar verður í ár alls 367 milljónir króna. Stærstu liðir umferðaröryggisáætlunar eru sem fyrr aðgerðir á sviði öryggis vega og umhverfis þeirra. Verður veitt 110 milljónum króna til að eyða svartblettum í þjóðvegakerfinu, 100 milljónum til að lagfæra umhverfi vega og koma upp vegriðum og 10 milljónir fara í gerð hvíldarsvæða.


Samgönguráðherra kynnti áætlunina á miðvikudag og um leið var skrifað undir samninga um umferðareftirlit.

Lesa meira

9.3.2009 : Suðurlandsvegur - Tvöföldun frá Vesturlandsvegi að Hólmsá

Suðurlandsvegur við Rauðavatn

Tillaga að matsáætlun fyrir Suðurlandsveg frá Vesturlandsvegi að Hólmsá hefur verið lögð inn til málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnun skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum.
Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir. Hægt er að koma skriflegum athugasemdum við tillögu að matsáætlun til Skipulagsstofnunar. Frestur til athugasemda er til 25.03.2009

Lesa meira

6.3.2009 : Umferð eykst í upphafi árs

Umferðin 2005 - 2009

Umferðin á þjóðvegum landsins er heldur meiri í janúar og febrúar 2009 en hún var í sömu mánuðum árið 2008. Umferðin er eigi að síður minni en hún var 2007.


Á landinu eykst umferðin um 3,5 prósent í febrúar miðað við sama mánuði í fyrra. Miðað er við 16 talningarstaði á Hringveginum og því er ekki um að ræða umferð á höfuðborgarsvæðinu.

Lesa meira

2.3.2009 : Suðurlandsvegur frá Hólmsá ofan Reykjavíkur að Hveragerði

Sudurlandsvegur

Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um Suðurlandsveg frá Hólmsá ofan Reykjavíkur að Hveragerði.


Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 3. mars til 15. apríl 2009 og skulu athugasemdir berast eigi síðar en 15. apíl 2009 til Skipulagsstofnunar.


Lesa meira

24.2.2009 : 19 tilboð í Vestfjarðaveg

Fjöldi verktaka mætti til að vera við opnun tilboðanna.

Tilboð í Vestfjarðaveg (60), Þverá - Þingmannaá voru opnuð í dag í húsakynnum Vegagerðarinnar í Reykjavík og á Ísafirði. Alls bárust 19 tilboð og átti Heflun ehf, Lyngholti lægsta boð sem hljóðaði uppá rúmar 341 milljón króna.


Áætlaður verktakakostnaður var rúmar 580 milljónir króna og því er lægsta boð tæp 60 prósent þess áætlaða kostnaðar. Ingileifur Jónsson ehf átti næst lægsta boð tæpar 385 milljónir króna.


Lesa meira

17.2.2009 : Suðurlandsvegur - Tvöföldun frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss

Suðurlandsvegur -

Tillaga að matsáætlun fyrir Suðurlandsveg frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss hefur verið lögð inn til málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnunar skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum.


Hægt er að koma skriflegum athugasemdum við tillögu að matsáætlun til Skipulagsstofnunar fyrir 4. mars 2009.

Lesa meira

13.2.2009 : Suðurlandsvegur - Tvöföldun frá Vesturlandsvegi að Hólmsá

Suðurlandsvegur við Rauðavatn

Drög að tillögu að matsáætlun eru nú til kynningar fyrir almenning í rúmar tvær vikur, til og með 2. mars 2009, áður en þeim verður skilað inn til formlegrar umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun.

Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir. Hægt er að koma ábendingum og athugasemdum við drög að tillögu að matsáætlun til verkfræðistofunnar Eflu á netfangið arni.bragason efla.is með fyrirsögninni "Suðurlandsvegur – tvöföldun – Vesturlandsvegur að Hólmsá.

Lesa meira

11.2.2009 : Heldur meiri umferð á þjóðvegunum í janúar 2009

Umferðin, samanburður á milli ára

Umferðin í janúar 2009 reyndist meiri á 15 talningarstöðum Vegagerðarinnar á Hringvegi en í janúar 2008. Nemur aukningin 4,3 prósentum. Umferðin eykst nema á Norðurlandi og sérstaklega á Austurlandi þar sem hún dregst saman um tæp 26 prósent.


Sé tekið mið af innbyrðis hlutfalli heildaraksturs í janúar árin 2005 til 2009 er umferðin 2009 svipuð og árið 2007 en eigi að síður lítillega meiri en þá. 

Lesa meira

10.2.2009 : Lægsta tilboð 62% af áætluðum verktakakostnaði

Frá útboðsopnuninni í Reykjavík

Þjótandi ehf á Hellu átti lægsta tilboðið en það hljóðaði upp á 48.479.045 krónur. Áberandi margir verktakar buðu í verkið eða 32 alls en ekki hefur verið haldið útboð á vegum Vegagerðarinnar síðan í haust þegar öllum útboðum var frestað vegna efnahagsástandsins.


Lesa meira

9.2.2009 : Vel gengur í Bolungarvíkurgöngum

Borað Bolungarvíkurmegin

Búið er að sprengja nærri 40 prósent af Bolungarvíkurgöngum, eða 1928 metra af 5156 metrum. Í síðustu viku voru sprengdir 55 metrar frá Hnífsdal og 39 metrar frá Bolungarvík.


Fylgjast má með framvindu verksins á vef Vegagerðarinnar. Einnig er brú yfir Ósá langt komin Bolungarvíkurmegin auk þess sem unnið er við vegagerð út frá göngunum Hnífsdalsmegin.

Lesa meira

9.2.2009 : Norðausturvegur til Vopnafjarðar(85) - 2. áfangi, Bunguflói - Vopnafjörður

Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í nýbyggingu Norðausturvegar (85) um Vesturárdal á milli Bunguflóa og Vopnafjarðar, nýbyggingu Hofsárdalsvegar (920) á milli Vesturárdals og Hofsárdals, endurbætur Skógavegar (914) frá Vesturárdalsvegi og um 200 m vestur fyrir tengingu við Torfastaðaveg (9120), auk nokkurra heimreiða.

Lesa meira

3.2.2009 : Umsóknafrestur runninn út

Rannsóknastyrkir

Frestur til að sækja um fjárveitingu úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar fyrir árið 2009, rann út að kvöldi 2. febrúar 2009.


Í þetta sinn voru slegin öll met í upphæð umsókna og er heildarupphæð um þrefalt hærri en sú upphæð sem til ráðstöfunar er úr sjóðnum.

Lesa meira

28.1.2009 : Ný vegaskrá í umræðunni

Á Melrakkasléttu

Ný vegaskrá kom út í desember síðastliðnum, í fyrsta sinn eftir að ný vegalög tóku gildi 1. janúar 2008. Samkvæmt lögunum færast um 200 km af vegum frá Vegagerðinni til sveitarfélaganna í landinu. Þar til samið hefur verið um þessa yfirfærslu við sveitarfélögin á hverjum stað sinnir Vegagerðin vegum með sama hætti og verið hefur.


Lesa meira

26.1.2009 : Útboð hafin á ný

Á Vestfjarðavegi

Í 1. tölublaði Framkvæmdafrétta 2009, er auglýst útboð um endurgerð á 7,4 km kafla á Rangárvallavegi (264). Vegna efnahagsaðstæðna var útboðinu frestað óákveðið en það var fyrst auglýst í október síðastliðnum.


Í næsta tölublaði framkvæmdafrétta, er síðan reiknað með að bjóða út tvö stór verk, þ.e.a.s. Vopnafjarðartengingu (Bungulækur – Vopnafjörður ásamt Hofsársdalsvegi) og kaflann Kjálkafjörður – Vatnsfjörður á Vestfjarðarvegi um Barðaströnd.


Á næstunni verða síðan einnig boðin út verk á suðvesturhorni landsins og víðar.

Lesa meira

21.1.2009 : Umferðin á þjóðvegum dregst saman um 3 % 2008

Umferðin á 15 talningarstöðum

Áætlað er að umferðin á þjóðvegum landsins hafi dregist saman um 3 prósent sé tekið mið af 15 talningarstöðum á Hringveginum. Rétt er þó að minna á að þetta eru 15 staðir en ekki mælingar á öllu þjóðvegakerfinu og því einungis ábending um umferðarþungan í heild.


Umferðin dróst saman í desember samanborið við desember 2007 níunda mánuðinn í röð. Umferðin er eigi að síður meiri árið 2007 en 2006. Mest dróst umferðin saman í október.

Lesa meira

19.1.2009 : Hallsvegur - Úlfarsfellsvegur og mislæg gatnamót við Vesturlandsveg

Hallsvegur - Úlfarfellsvegur - gatnamót við Vesturlandsveg

Lokið er gerð frummatsskýrslu vegna mats á umhverfisáhrifum fyrir framkvæmdir vegna Hallsvegar- Úlfarsfellsvegar og mislægra gatnamóta við Vesturlandsveg.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 4. mars 2009 og skal senda skriflega til Skipulagsstofnunar.

Lesa meira

19.1.2009 : Auglýst er eftir umsóknum um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna fyrir árið 2009

Rannsóknastyrkir

Umsóknir um styrki og/eða fjármögnun einstakra verkefna þurfa að berast fyrir lok 2. febrúar 2009.


Aðilar innan og utan Vegagerðarinnar geta sótt um fjárframlög. Rannsóknarráð stofnunarinnar sér um úthlutun.

Lesa meira

15.1.2009 : Opið hús um frummatsskýrslu Norðfjarðarganga

Norðfjarðargöng

Vegagerðin og Fjarðarbyggð stóðu fyrir kynningarfundum á mati á umhverfisáhrifum Norðfjarðarganga milli Eskifjarðar og Norðfjarðar. Vel á annað hundrað manns sóttu fundina.


Frestur til að gera athugasemdir við frummatsskýrsluna er til 22. janúar.

Lesa meira

13.1.2009 : Tvöföldun Suðurlandsvegar frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss

Tvöföldun Suðurlandsvegar

Vegagerðin hyggst tvöfalda Suðurlandsveg frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss. Markmið þessarar framkvæmdar er að byggja veg með tvær aðskildar akreinar í hvora átt og auka þannig umferðaröryggi, lækka slysatíðni og tryggja greiðari umferð um Suðurlandsveg. Gerð verða mislæg vegamót á allt að 4 stöðum og tengingum þannig fækkað og þær gerðar öruggari.


Drög að tillögu að matsáætlun eru nú til kynningar fyrir almenning í rúmar tvær vikur, til og með 29. janúar 2009.

Lesa meira

7.1.2009 : Framkvæmdir á árinu 2009

Verkefni í gangi 2008

Vegna fréttaflutnings um niðurskurð hjá Vegagerðinni er rétt að árétta að framlög til nýframkvæmda á næsta ári lækka um u.þ.b. 5 milljarða króna frá því sem fyrirhugað var á fjárlögum þegar þau voru fyrst lögð fram í haust.


Ekki stendur til að slá neinar framkvæmdir af heldur verður þeim frestað þar til fjármagn til þeirra fæst.


Hvaða framkvæmdum verður frestað og í hverjar verður farið á árinu 2009 kemur endanlega í ljós við endurgerð vegáætlunar sem nú er unnið að. Lesa meira

5.1.2009 : Auglýst er eftir umsóknum í rannsóknasjóð Vegagerðarinnar fyrir árið 2009.

Rannsóknastyrkir

Umsóknir um styrki og/eða fjármögnun einstakra verkefna þurfa að berast fyrir lok 2. febrúar 2009.

Aðilar innan og utan Vegagerðarinnar geta sótt um fjárframlög. Rannsóknarráð stofnunarinnar sér um úthlutun.

Lesa meira

2.1.2009 : Vetrarþjónusta Vegagerðarinnar

Reglur Vegagerðarinnar um snjómokstur

Hér á vef Vegagerðarinnar má lesa hvernig vetrarþjónustu Vegagerðarinnar er háttað. Meðal annars má lesa snjómokstursreglurnar sem gilda á hverjum stað en þær eru margar og mismunandi.


Undanfarin ár hefur snjólétt tíðarfar leitt til þess að reglurnar hafa verið túlkaðar nokkuð rúmt og mokað þar sem samkvæmt reglanna hljóðan ætti ekki að moka. Þannig hefur þjónustan smátt og smátt aukist umfram snjómokstursreglurnar.


Halli er á vetrarþjónustunni sem ekki var bættur á fjáraukalögum 2008. Í ljósi þess og almenns niðurskurðar ákvað yfirstjórn Vegagerðarinnar að nauðsynlegt væri að fara í öllu eftir snjómoksturreglunum og beita aðhaldi einsog kostur er.

Lesa meira



Útlit síðu: