Fréttir

24.11.2008 : Floti mokar snjó og saltar

Nýr verktaki tekur við

Nýr verktaki hefur tekið við snjómokstri og hálkuvörnum á Suðvestursvæði til næstu fimm ára. Vegagerðarmenn tóku á móti hópnum í síðustu viku og lögðu þeim línurnar.


GT verktakar buðu í og fengur snjómokstur, hálkuvörn og eftirlit á svæðinu sem telur umferðamestu vegi landsins. Verktakinn verður með 11 mokstursbíla og 2 eftirlitsbíla. Þeir hafa síðan fjárfest í 12 nýjum snjótönnum, 2 kastplógum og 10 saltkössum.

Lesa meira

19.11.2008 : Ljósaþjófur skilar feng sínum

Dagbjartur Sigurbrandsson hjá Framkvæmda- og eignasviði Borgarinnar með ljósin

Starfsmenn Vegagerðarinnarinn í Borgartúni 7 í Reykjavík urðu örlítið hvumsa við þegar þeir sáu torkennilegan hlut vafinn í svartan plastpoka sem hafði verið stungið inn um verkstæðisdyr í morgunsárið. Sjá mátti útlínur en útprent af mbl.is með frétt um stuld á umferðarljósum þar sem párað hafði verið fyrir neðan fréttina: "Sorry sé mjög eftir þessu"


Dagbjartur Sigurbrandsson verkefnisstjóri hjá Reykjavíkurborg var ánægður með að hafa endurheimt gripinn óskemmdan en hann gerir ekki ráð fyrir eftirmálum.

Lesa meira

18.11.2008 : Vasar á Suðurlandsvegi

Vasi við vegamót á Suðurlandsvegi

Nýlega var lokið við að breikka veginn við nokkur vegamót á Suðurlandsvegi á milli Selfoss og Hveragerðis. Alls eru þetta tíu vasar á níu vegamótum. Þetta gerir ökumönnum kleift að aka framhjá ökutæki sem er að beygja af Suðurladnsvegi inná hliðarvegi.

Þessi mörgu vegamót á þessum kafla Hringvegarins hafa skapað mikla hættu og er þetta liður í auknu umferðaröryggi, biðleikur þar til vegurinn allur verður breikkaður og akstursstefnur aðsikildar. Á sama tíma voru fræstar vegrifflur á miðju vegarins sem einnig eykur umferðaröryggi. Vegrifflurnar vara ökumenn við ef þeir eru að fara inná rangan vegarhelming.

Lesa meira

17.11.2008 : Þróun umferðar

Umferðin í október
9% samdráttur umferðar milli októbermánuða 2007 og 2008 !

Enn dregur til muna úr umferð á þeim 14 talningarstöðum sem bornir eru saman á Hringvegi. Meðalumferðin í október 2008 var 9,0% minni en á sama tíma árið 2007 og 4,4% minni en fyrir tveimur árum, eða árið 2006.

Lesa meira

13.11.2008 : Vel heppnuð ráðstefna um rannsóknir Vegagerðarinnar

Rannsóknarráðstefna 2008


Aldrei áður hafa jafn margir sótt árlega ráðstefnu Vegagerðarinnar um rannsóknir og nú í ár en 171 þátttakandi var skráður á þessa sjöundu ráðstefnu sem haldin var þann 7. nóvember síðastliðinn.

Lesa meira

12.11.2008 : Tveir dómar, báðir Vegagerðinni í hag

Hringvegur um Hornafjarðarfljót

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær í máli fjölda einstaklinga gegn íslenska ríkinu og Vegagerðinni þar sem þess var krafist að metnir yrðu fleiri kostir við vegalanginu í mati á umhverfisáhrifum en Vegagerðin mælti með. Vegalagningin er á Hringvegi um Hornafjarðarfljót með nýrri brú yfir fljótið. Héraðsdómur sýknaði ríkið og Vegagerðina og er það mat dómsins að "Vegagerðin, hafi forræði á að meta hvaða kostir þjóni því markmið sem að er stefnt með veglagningu þeirri sem mál þetta snýst um". 


Í hinu málinu dæmdi Hæstaréttur í máli Reykjavíkurborgar og Rauðhóls ehf gegn Vegagerðinni þar sem krafist var skaðabóta vegna veghelgunarsvæðis við Norðlingaholt. Hæstiréttur staðfesti frávísunardóm Héraðsdóms þar sem "skorti verulega á skýrleika í málatilbúnaði sóknaraðila". 

Lesa meira

11.11.2008 : Verulega dregur úr ökuhraða á þjóðvegunum

Sumarökuhraði á 10 stöðum á Hringveginum

Sumarökuhraði hefur lækkað verulega á Hringveginum frá því á árinu 2004. Hann hefur lækkað jafnt og þétt að árinu 2006 undanskildu þegar hann hækkaði. Ekki er hægt að meta umferðarhraðann að vetrarlagi því hann er það háður veðurfari.


Á þessu tímabili hefur meðalökuhraðinn á tíu stöðum lækkað um einn km á klst á ári sem er mjög mikið og enn meira þegar miðað er við svokallaðann V85 hraða sem hefur lækkað um 1,5 km á klst á ári. V85 er sá hraði sem 85 prósent ökumanna halda sig innan við en 15 prósent aka hraðar. Á þessu fjögurra ára tímabili hefur V85 ökuhraðinn lækkað um 5,7 km á klst þ.e.a.s. úr 108,6 í 102,9.


Þetta eru ánægjulegar niðurstöður þar sem mjög mikil áhersla hefur verið lögð á aukið hraðaeftirlit undanfarin ár í tengslum við umferðaröryggisáætlun stjórnvalda, bæði hefðbundið eftirlit lögreglu og sjálfvirkt hraðaeftirlit.


Skúli Þórðarson hjá Vegsýn vann samantekt um þróun ökuhraða á þjóðvegum fyrir Vegagerðina.

Lesa meira

6.11.2008 : Verk sem ekki næst að klára fyrir veturinn einsog fyrirhugað var

Arnkotludalur

Af ýmsum og mismunandi ástæðum standast ekki allar áætlanir. Til stóð til dæmis að opna Djúpveg um brú yfir Mjóafjörð í haust en nú er ljóst að það tekst ekki. Einnig er óvíst hvort vegurinn um Arnkötludal verði opnaður fyrir umferð.


Lesa meira

5.11.2008 : LOKUN í dag við vegamót Vífilsstaðarvegar og Reykjanesbrautar

Vifilsstadavegur_bru
Í dag, miðvikudaginn 5. nóvember, verður steypt brú yfir Reykjanesbraut við vegamót Vífilsstaðavegar. Reykjanesbrautinni verður því lokað þar klukkan þrjú síðdegis og til klukkan sjö morguninn eftir. Brautinni verður lokað annars vegar sunnan Smáralindar og hins vegar við Urriðaholtsbrú. Ökumenn eru beðnir að huga að öðrum akstursleiðum meðan vinna stendur yfir. Lesa meira



Útlit síðu: