Fréttir

29.10.2008 : Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2008

Rannsóknarráðstefna 2008


Þróunarsvið Vegagerðarinnar stendur fyrir árlegri rannsóknaráðstefnu sinni föstudaginn 7. nóvember 2008 á Reykjavik Hilton Nordica hóteli.


Skráning er nú opin.


Lesa meira

24.10.2008 : Öryggisendar sem svínvirka

Oryggisendi

Um nokkurt skeið nú hafa verið settir upp öryggisendar á vegrið þar sem þau byrja í stað þess að leiða vegriðin á ská ofan í jörðina. Þetta er gert þar sem endarnir eru öruggari en þeir eru töluvert dýrari lausn.


Á myndum sem fylgja má sjá hvernig þessir öryggisendar virka en í fyrsta snjónum um daginn rak snjóruðningstæki tönnina í einn endann á Reykjanesbrautinni með þeim afleiðingum að endinn gekk saman. Hann virkaði nákvæmlega einsog hann á að gera enda slapp bílstjórinn við öll meiðsl nema á sálinni kannski en tönnin skemmdist lítillega.

Lesa meira

20.10.2008 : Tvöföld Reykjanesbraut vígð

Hreinn Haraldsson vegamálstjóri fylgist með þegar Krisján Möller samgönguráðherra fær skæri hjá Karen Elizabeth Jóhannsdóttur

Sunnudaginn 19. október opnaði samgönguráðherra Kristján L. Möller síðasta kaflann í tvöföldun Reykjanesbrautar við Stapahverfi í Reykjanesbæ og vígði þar með tvöfalda Reykjanesbraut frá Hafnarfirði til Njarðvíkur. Að vígslu lokinni var umferð hleypt á þennan síðasta kafla.


Eftir að Jarðvélar efh sögðu sig frá síðari hluta verksins í árslok 2007 var samið var við Ístak hf. um byggingu nýju akbrautarinnar en við Eykt ehf. um smíði brúa. Verkið hefur gengið vel sem sést á því að umferð var hleypt á báðar akreinar hálfum mánuði á undan áætlun.

Lesa meira

17.10.2008 : Vel heppnaður dagur til upplyftingar

Hlustað á KK og vöflur snæddar

Það er hjá Vegagerðinni líkt og öðrum í íslensku þjóðfélagi að starfsmenn hafa áhyggjur af vægast sagt óvissu efnahagsástandi. En undir því kjörorði að ekki megi láta deigan síga og fleira megi gera sér til dægrastyttingar en að tala um ástandið, var ákveðið að halda "upplyftingardag" hjá Vegagerðinni.


Starfsmenn komu sjálfir með bakkelsi í tíukaffið og hittust til að ræða skemmtileg mál, og þeir voru hvattir til að fara meira á milli deilda en venjulega og heilsa upp á samstarfsfólkið. Síðan var, þar sem því var komið við, haldið sérstakt "upplyftingarkaffi" síðdegis. Í Reykjavík mættu þeir KK og Hjörleifur Valsson fiðluleikari og skemmtu starfsmönnum, sem sjálfir bökuðu vöfflur í gríð og erg. Létt var yfir mannskapnum. Sverri Örvar Sverrisson starfsmaður Vegagerðarinnar spilaði síðan létt lög í anda stemmingarinnar.

Lesa meira

16.10.2008 : Flýtifé vegna mislægra gatnamóta við Arnarnesveg

Frá undirskriftinni

Útlit er fyrir að umferð verði hleypt á ný mislæg gatnamót á Reykjanesbraut við Arnarnesveg 28. nóvember næstkomandi. Þetta er töluvert á undan áætlun því samkvæmt útboði átti verkinu að vera fullu lokið 10. júlí 2009.


Suðurverk hf og Skrauta ehf áttu lægsta tilboðið og hefur verkið gengið mjög vel. Unnið hefur verið að samningum um flýtifé um nokkurt skeið en skrifað var loks undir nú 16. október.

Lesa meira

15.10.2008 : Hringvegur í Skriðdal, Litla Sandfell - Haugaá

Kynning framkvæmda


Fyrirhugaðar eru framkvæmdir á Hringvegi í Skriðdal, á milli Litla Sandfells og Haugaár. Um er að ræða 10,9 km langan kafla með 7,1 km nýbyggingu og 3,8 km endurbyggingu á núverandi vegi.


Lesa meira

14.10.2008 : Rafknúið hjól til sendiferða hjá Vegagerðinni

Rafknúið hjól

Eitt af rannsóknarverkefnum sem fengið hefur styrk hjá Vegagerðinni er athugun á hagkvæmni rafknúinna hjóla til nota í styttri ferðir. Keypt hefur verið rafknúið hjól til að nota í athugunina.


Hjólið verður til láns á "bílaleigu" Vegagerðarinnar sem er fyrir starfsmenn hennar og er gert ráð fyrir að nota það í til dæmis sendiferðir, ferðir á fundi og jafnframt er gert ráð fyrir að hjólið verði lánað starfsmönnum til styttri einkaerinda sem þeir annars hefðu farið á eigin bíl. Fylgst verður með notkun hjólsins og hún tekin saman eftir eitt ár.


Árangur verkefnisins felst í minni bílanotkun Vegagerðarinnar til ferða, sem eru óhagkvæmar bæði hvað varðar rekstur bíla sem og mengunar sem bílaumferð veldur.

Lesa meira

10.10.2008 : Vígsla nýs vegar um Hrútafjarðarbotn

Klipping

Miðvikudaginn 8. október opnaði Hreinn Haraldsson vegamálastjóri formlega nýjan veg um Hrútafjarðarbotn. Samgönguráðherra Kristján L. Möller átti ekki heimangengt. Hreini til aðstoðar var Jón Rögnvaldsson fyrrverandi vegamálastjóri. Athöfnin fór fram á veginum við nýja brú yfir Hrútafjarðará.


Með nýja veginum og nýrri brú sem leysir af hólmi gamla einbreiða brú á Síká er Hringvegurinn milli Reykjavíkur og Akureyrar allur tveggja akreina. Síðasta einbreiða brúin er aflögð en á síðasta ári var tekinn í notkun nýr vegur um Norðurárdal í Skagafirði og þar með voru aflagðar fjórar einbreiðar brýr. Nýi vegurinn styttir Hringveginn lítið sem ekkert en hinsvegar styttist leiðin milli Vestfjarða og Norðurlands um tæpa níu kílómetra.

Lesa meira

8.10.2008 : Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2008

Rannsóknarráðstefna 2008


Þróunarsvið Vegagerðarinnar stendur fyrir árlegri rannsóknaráðstefnu sinni föstudaginn 7. nóvember 2008 á Reykjavik Hilton Nordica hóteli.


Þetta er í sjöunda sinn sem rannsóknaráðstefnan er haldin.


Lesa meira

7.10.2008 : Sama umferð í september í ár og fyrir tveimur árum

Umferðin 2006 - 2008 - línurit

Enn dregur úr umferð á 14 talningarstöðum á Hringvegi en þróunin í september 2008 er svipuð og undanfarna mánuði. Umferðin í september í ár var 4,38 prósentum minni en í september 2007. Sem er heldur meiri samdráttur en í ágúst og júlí þótt mest hafi umferðin dregist saman í júní.


Umferðin í september 2007 er sú sama og í september 2006, hingað til hefur heildarumferðin árið 2008 legið á milli árannar 2006 og 2007, sjá línurit. Umferðin hefur þannig verið meiri en árið 2006 en minni en árið 2007. Í september er umferðin á þessum 14 talningarstöðum hinsvegar sú sama og 2006.

Lesa meira

3.10.2008 : Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2008 auglýst

Rannsóknarráðstefna 2008


Þróunarsvið Vegagerðarinnar stendur fyrir árlegri rannsóknaráðstefnu sinni föstudaginn 7. nóvember 2008 á Reykjavik Hilton Nordica hóteli.


Þetta er í sjöunda sinn sem rannsóknaráðstefnan er haldin.


Lesa meira




Útlit síðu: