Fréttir

29.8.2008 : Framhjáhlaupum fækkar á Reykjanesbrautinni

Við Grindavikurveg

Laugardaginn 30. ágúst verður umferð flutt á mislæg vegamót við Grindavíkurveg. Einnig verður framhjáhlaup við Njarðvík tekið af. Vegfarendur mega búast við töfum á umferð á meðan unnið er að færslunni.


Byrjað verður á að taka framhjáhlaup við Njarðvík af um kl. 8 á laugardagsmorgun. Þá verður ekið á nyrðri akbraut Reykjanesbrautar með tvístefnu (1+1) yfir Grindavíkurgatnamót, en þó verður enn framhjáhlaup við vegamót að Stapahverfi.

Lesa meira
 

25.8.2008 : Bætt umhverfi vega eykur öryggi

För eftir útafaskstur

Umhverfi vega skiptir miklu máli komi til þess að slys verði og bíll hafni utan vegar. Samkvæmt umferðaröryggisáætlun stjórnvalda er unnið að því að bæta umhverfi vega. Það er meðal annars gert með því að fjarlægja stórgrýti, draga úr bratta fláa, færa eða fylla upp í skurði eða lengja ræsi.


Nýlega var unnið að útbótum á vegamótum Akrafjallsvegar og Innnessvegar og stuttu eftir lagfæringarnar ók bíll út af. Líklegt verður að teljast að mun verr hefði farið hefði ekki verið búið að lengja ræsið þar sem bílinn fór út af.

Lesa meira
 

20.8.2008 : Umferðarkönnun í Berufirði gekk vel

Umferðarkönnun í Berufirði

Vegagerðin stóð fyrir umferðarkönnun í Berufirði í síðast liðnum mánuði og gekk hún í alla staði vel. Könnunin fór fram á fimmtudegi og á laugardegi. Fyrri daginn fóru 718 bílar framhjá og svöruðu allir skilmerkilega utan þrír bílar sem ekki stöðvuðu og tveir sem neituðu að svara. Á laugardeginum fóru 526 bílar um veginn og einungis einn neitaði að svara.


Tilgangur með könnuninni er að kanna áhrif fyrirhugaðs Axarvegar á umferðarvenjur vegfarenda á Austurlandi. Einnig fást upplýsingar um umferð á milli einstakra staða og svæða, sem síðar nýtast við almenna áætlanagerð.


Nokkurn tíma tekur svo að vinna úr niðurstöðunum.

Lesa meira
 

13.8.2008 : Fréttatilkynning vegna Suðurlandsvegar

Suðurlandsvegur

Um leið og ákvörðun hafði verið tekin um tvöföldun Suðurlandsvegar var farið að ræða hvernig best væri að standa að verki þannig að framkvæmdir gætu hafist sem fyrst. Það var strax ljóst að undirbúningstími fyrir kaflann yfir Hellisheiði yrði mun styttri en fyrir kaflann milli Hveragerðis og Selfoss og fyrir kaflann næst Reykjavík.


Ákvörðun um að byrja á heiðinni byggist því eingöngu á því að stjórnvöld vilja koma verkinu sem fyrst í gang. Sú ákvörðun á ekki að hafa áhrif á hvenær unnt verður að hefja framkvæmdir á milli Hveragerðis og Selfoss. Þar ráða önnur atriði.


Í upphafi þessarar umræðu núna benti Vegagerðin á að þessi áfangaskipting hefði verið komið á vegna þess að skipulagsvinna á heiðinni væri lengra komin vegna þess meðan annars að flóknari skipulagsvinna fælist í kaflanum milli Hveragerðis og Selfoss

Lesa meira
 

12.8.2008 : KNH átti lægsta tilboðið í Suðurstrandaveg (427)

Opnun tilboða í Suðurstrandarveg

Alls bárust 13 tilboð í Suðurstrandarveg kaflann milli Krýsuvíkurvegar og Þorlákshafnarvegar en tilboð voru opnuð í dag 12. ágúst að viðstöddum samgönguráðherra og vegamálastjóra.


KNH efh, Ísafirði, átti lægsta tilboðið og hljóðaði það upp á rétt ríflega 697 milljónir króna sem er 73,5 prósent af áætluðum verktakakostnaði. Öll tilboðin utan eitt voru undir áætluðum kostnaði Vegagerðarinnar.


Um er að ræða 33,6 km langan kafla ásamt 2,3 km löngum tengingum og smíði 12 m steyptrar brúar á Vogsós. Seinni hluti Suðurstrandavegar verður líklega boðinn út í næsta mánuði.


Tilboðin 13 og frekari upplýsingar um verkið

Lesa meira

 

7.8.2008 : Jarðgöng á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar

Göng milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar

Fyrirhuguð er lagning nýs vegar og nýrra ganga á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar á Vestfjörðum. Vinnuheiti þessarar framkvæmdar er: Jarðgöng á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar.


Kannaðar hafa verið jarðfræðilegar aðstæður til gangagerðar á milli Dýrafjarðar og Borgarfjarðar í Arnarfirði. Einungis ein leið er talin koma til greina. Vegstæðið nær frá Mjólká í Arnarfirði að Dýrafjarðarbrú.


Tilgangur framkvæmdarinnar er að tryggja góðar og öruggar samgöngur á Vestfjarðavegi nr. 60 á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Það er skilyrði þess að heilsárs vegarsamband sé á milli Barðastrandarsýslna og Ísafjarðarsýslna.


Lesa meira
 

6.8.2008 : Þróun umferðar í júlí -- nýjar tölur

Umferðin 2006 - 2008 - stöplarit

Umferðin í júlí 2008 er 3,70 prósentum minni en í júlí 2007 þegar bornir eru saman 14 talningarstaðir um land allt. Í júlí 2007 jókst hinsvegar umferðin um 7,48 prósent frá sama mánuði árið áður. Þetta er fjórði mánuðurinn í röð þar sem dregur úr umferð á milli ára en nú langt skeið hefur umferð aukist stöðugt.


Þó dró minna úr umferð í júlí en í júní þegar umferðin dróst saman um 5,56 prósent frá sama mánuði árið á undan. Umferðin 2008 er minni en umferðin 2007 en eigi að síður meiri en 2006.

Lesa meira
 


Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica