Fréttir

23.7.2008 : Vegagerð, náttúran og markmið Vegagerðarinnar

Útsýni til suðurs á veglínu B, við stöð 14.160. Jökulsá í fjarska

Því fer fjarri að Vegagerðin ráðist í framkvæmdir “sama hvað tautar og raular” líkt og Bergur Sigurðsson framkvæmdastjóri Landverndar heldur fram í fjölmiðlum í dag.


Því síður hagar Vegagerðin sér eins og ríki í ríkinu, þvert á móti. Ákvarðanir um vegalagningu, til dæmis varðandi Dettifossveg, Lyngdalsheiðarveg og Vestfjarðaveg um Teigsskóg, eru ekki teknar að óathuguðu máli eins og stundum mætti ætla af umræðunni.


Í öllum þessum tilvikum hefur farið fram ítarlegt mat og skoðun á mögulegum veglínum. Vegagerðin leggur fram möguleikana og mælir gjarnan með einum umfram annan.


Lesa meira til að sjá kort og myndir

Lesa meira

22.7.2008 : Flutningsaðilar ánægðari með vegakerfið

konnun2008

Ánægja flutningsaðila með vegakerfið hefur aukist merkjanlega í nýrri viðhorfskönnun frá síðustu könnun sem gerð var í fyrra. Þeim fækkar sem eru óánægðir með vegakerfið, eigi að síður er þó rúmlega helmingur aðspurðra óánægður eða mjög óánægður með þennan þátt.


Líkt og í fyrri könnunum er borið við að vegirnir séu of mjóir og veikbyggðir fyrir stóra bíla, einkum vegna síaukinnar umferðar.


Ríflega þrír af hverjum fjórum verktökum er ánægður með samskiptin við starfsmenn Vegagerðarinnar en fleiri en áður gera athugasemdir við útboðsgögn.

Lesa meira

18.7.2008 : Framkvæmdir Vegagerðarinnar við Kerið í Grímsnesi

Vegagerðin hefur víða komið upp áningarstöðum við vegi landsins

Vegagerðin varði á árunum 2001 og 2002 a.m.k. 2,5 milljónun króna til uppbyggingar áningarstaðar við Kerið í Grímsnesi til viðbótar við bílastæði sem þar hafði áður verið lagt.


Vegagerðin hefur ekki tekið sérstaklega afstöðu til gjaldtöku við Kerið í Grímsnesi eða bann við því að langferðabifreiðar stöðvi á bílastæðinu. Hinsvegar hefur Vegagerðin almennt litið svo á að áningarstaðir Vegagerðarinnar og hvíldarstaðir séu öllum vegfarendum opnir þeim að kostnaðarlausu hvort sem áningarstaðirnir eru byggðir á einkalandi eða landi hins opinbera.

Lesa meira

14.7.2008 : Umferðarkönnun í Berufirði 17. og 19. júní

Berufjörður - Hringvegur - Öxi
Vegagerðin áætlar að standa fyrir umferðarkönnun á gatnamótum Hringvegar og Axarvegar í Berufirði, fimmtudaginn 17. júlí og laugardaginn 19. júlí n.k. Könnunin stendur yfir frá kl. 08:00 – 23:00 báða dagana.
Lesa meira

7.7.2008 : Norðausturvegur til Vopnafjarðar (85) - 1. áfangi

Framkvæmdir eru hafnar á fyrsta áfanga Norðausturvegar til Vopnafjarðar. Um er að ræða nýbyggingu frá Brunahvammshálsi að Bunguflóa þar sem nýr vegur tengist núverandi vegi. Lengd framkvæmdakakafla er um 11,2 km en heildarlengd fyrirhugaðs vegar til Vopnafjarðar er um 42 km.

Lesa meira

1.7.2008 : Þróun umferðar og hugsanleg áhrif bensínverðs - nýjar tölur

Breyting umferðar milli ára


Nýjustu tölur, frá 14 talningarstöðum, í júní 2008, benda eindregið til að umferðin á Íslandi sé að dragast saman.


Eins og sjá má í töflunni þá er umferðin að dragast saman á öllum talningarstöðum nema vestan Hvolsvallar.
Kann það að skýrast af umferð í tengslum við Landsmót hestamanna, sem haldið er á Hellu dagana 30. júní til 6. júlí.


Lesa meira



Útlit síðu: