Fréttir

18.6.2008 : Axarvegur (939), Hringvegur (1) í Skriðdal og Hringvegur (1) um Berufjarðarbotn

Axarvegur - Yfirlitsmynd
Í janúar 2008 kynnti Vegagerðin drög að tillögu að matsáætlun, vegna fyrirhugaðra vegaframkvæmda á Axarvegi milli Hringvegar í Skriðdal og Hringvegar í Berufirði. Við frekari undirbúning framkvæmdarinnar var ákveðið að meta saman umhverfisáhrif Axarvegar, Hringvegar í Skriðdal og Hringvegar um botn Berufjarðar. Ákvörðunin var tekin í samráði við Skipulagsstofnun. Lesa meira

13.6.2008 : Þjórsárbrú fær alþjóðlega viðurkenningu

Einar Hafliðason tekur við viðurkenningunni

Nýja Þjórsárbrúin gerði sér lítið fyrir og sló út sjálfa Eyrarsundsbrúna og fleiri norræn stórverkefni í brúarsmíði og jarðgangagerð í samkeppni Norræna vegasambandsins, NVF.


Formaður nefndarinnar, Lars Pettersson frá Skánska benti á að Þjórsárbrúin hefði orðið fyrir valinu meðal annars á þeim forsendum að hún hefði verið hönnuð með það að markmiði að þola stóra jarðskjálfta án þess að það kæmi niður á burðarþoli hennar eða útliti. Brúin hefði verið hönnuð til að falla inn í náttúruna, fjöldi nýrra byggingarlausna væri að finna í hönnuninni auk hugmyndaríkra lausna sem notaðar voru við smíði brúarinnar. Brúadeild Vegagerðarinnar hannaði brúna og það var Einar Hafliðason forstöðumaður hennar sem tók á móti viðurkenningunni.

Lesa meira

4.6.2008 : Vegagerðin varðveitir elstu hengibrú landsins

Nýleg mynd af Örnólfsdalsbrú

Yfir Örnólfsdalsá í Borgarfirði stendur enn hengibrú sem var byggð árið 1899 og er því elsta uppistandandi hengibrú landsins. Hún hefur lítið viðhald fengið en nýtur þess að þjóðleiðin norður í land færðist frá henni.


Nú hefur verið ákveðið að varðveita brúna í þessari mynd fyrir minjasafn Vegagerðarinnar og þarf að endurnýja hana að miklu leyti í því skyni. Þann 2. júni var auglýst útboð á stálsmíði vegna brúarinnar, útboðið verður opnað 18. júní.

Lesa meira




Útlit síðu: