Fréttir

29.2.2008 : Eykt byggir brýr á Reykjnesbrautinni

Frá Reykjanesbrautinni 12. feb.

Vegagerðin og Eykt ehf skrifuðu undir samning í dag föstudag 29. febrúar þess að efnis að Eykt ljúki smíði brúa vegna mislægra gatnamóta á Reykjanesbrautinni.


Verkið mun hefjast um miðjan mars. Tvær brýr eru eftir á þeim níu km kafla sem bíður tvöföldunar. Brýrnar eru við mislæg gatnamót við Stapahverfi og Njarðvík. Reiknað er með að fyrri brúarsmíðinni ljúki 5. júlí og þeirri seinni í september/október. Eykt tekur einnig að sér frágang þeirra brúa sem þegar er búið að steypa upp.


Aðrir þættir verksins, jarðvinna og lagning bundins slitlags verða boðið út á næstu dögum.

Lesa meira

28.2.2008 : Hörgárdalsvegur, Skriða - Björg

Fyrirhugað er að endurbyggja, styrkja og leggja bundið slitlag á 8,6 km kafla sem hefst um 0,4 km vestan Ólafsfjarðarvegar í Arnarneshreppi og endar skammt sunnan Skriðu í Hörgárdal. Veglínan mun að mestu fylgja núverandi vegi .....

Lesa meira

27.2.2008 : Fjölsóttur fundur á Hornafirði

Í Nýheimum á Höfn

Vegagerðin og VSÓ ráðgjöf kynntu niðurstöður frummatsskýrslu um Hringveg um Hornafjörð á fjölsóttum fundi á mánudaginn var þann 25. febrúar. Um 100 manns sóttu fundinn og var kom fram fjöldi athugasemda.


Um er að ræða 11-18 km vegalagningu og nýja brú yfir Hornafjarðarfljót. Þrjár leiðir eru metnar, leiðir 1, 2 og 3. Vegagerðin mælir með leið 1. En nær allir á kynningarfundinum á Höfn gagnrýndu leiðarvalið og töldu leið 3 besta. Áfram er unnið að málinu og verður tekið tillit til athugasemdanna í matsskýrslunni. Athugasemdafrestur er til 7. mars og skal skila þeim inn til Skipulagsstofnunar á netfangið skipulag@skipulag.is

Lesa meira

26.2.2008 : Framkvæmdir á Hringvegi: Hjáleið um Borgarnes

Hjáleidin um Borgarnes

Þar sem verið er að gera endurbætur á Hringveginum þar sem hann liggur í gegnum Borgarnes verður vegurinn lokaður en vel merktar hjáleiðir hafa verið opnaðar. Framkvæmdirnar munu standa í um það bil þrjá mánuði en hluti vegarins verður þó opnaður fyrr.


Veginum var lokað nú í hádeginu í dag 26. febrúar.

Lesa meira

22.2.2008 : Hæstiréttur: Ekki bætur fyrir efni úr göngum

Frá Almannaskarðsgöngum

Tveir dómar Hæstaréttar féllu í gær fimmtudag um bætur fyrir efni sem kemur úr jarðgöngum. Matsnefnd eignarnámsbóta hafði gert Vegagerðinni að greiða bætur vegna efnis sem félli til við jarðgangagerð, bæði í Fáskrúðsfjarðargöngum og í göngunum undir Almannaskarð.


Vegagerðin undi því ekki og fór með málin fyir dómstóla. Héraðsdómur dæmdi landeigendum í vil en Hæstiréttur sneri þeim dómi við og felldi niður málskostnað.

Lesa meira

21.2.2008 : Stikurnar styðja -- eru spelkur góðar

Stikur styðja - frá skyndihjálparnámskeiði í Vík í Mýrdal

Vegstikur geta ekki bara nýst með venjulegum hætti heldur eru þær einnig mjög hentugar sem spelkur. Þessu fengu Vegagerðarmenn að kynnast á skyndihjálparnámskeiði á dögunum.


Stikurnar eru léttar, mjúkar og íhvolfar þannig að þær meiða ekki sjúklinginn og svo er hægt að stilla á þeim lengdina með því að nota 2 stikur sem eru límdar saman með límbandi og svo settar á sjúklinginn.

Lesa meira

20.2.2008 : Búið að opna Hringveginn -- 50 km hámarkshraði

Rasi_v._Danielslund-18.02.08_(11)
Búið er að opna Hringveginn þar sem hann fór í sundur við Daníelslund við Svignaskarð í Borgarfirði. Vegfarendur eru beðnir um að fara varlega því enn er unnið á svæðinu og hámarkshraði er 50 km á klst. Lesa meira

18.2.2008 : Hringvegurinn í sundur -- verður líklega opnaður kl 9 í kvöld

Skemmdin í veginum við Svignaskarð

NÝTT


Reiknað er með að vinnu við viðgerðina á Hringvegi við Svignaskarð ljúki um níu leitið í kvöld og að þá verði hægt að hleypa umferð um hann að nýju.


Snúið reyndist að koma ræsinu fyrir á sínum stað vegna vatnsflaums en þegar því verki var lokið tók við að keyra efni í veginn, sú vinna gengur hratt og örugglega fyrir sig og sem fyrr segir ætti að vera lokið í kvöld.

Lesa meira

13.2.2008 : Vegir verða fyrir barðinu á veðrinu

Klæðing hefur farið af hér á Ísólfsskálavegi

Í síðasta ofsaveðri, sl. föstudaginn,  voru svo mikil læti í veðrinu á Suðurnesjunum að klæðing flettist af Ísólfsskálavegi. Á tveimur stöðum, um 70 - 90 fm á hvorum stað.


Fleiri myndir fylgja ef lesið er meira, en ekki er vitað til þess að óhöpp hafi orðið vegna þessa. Óvíst er hvernær mögulegt verður að gera við skemmdirnar en það fer eftir veðri og hitastigi. 

Lesa meira

11.2.2008 : Ráðstefna um snjóflóðavarnir, skipulagsmál og samfélagsmál

Frá því að mannskæðar snjóflóðahrinur gengu yfir landið árið 1995 hefur áhersla verið lögð á rannsóknir og þróun á sviði snjóflóðamála og markvissar aðgerðir til þess að draga úr snjóflóðahættu. Aðgerðirnar hafa falist í hættumati, uppbyggingu varnarvirkja og flutningi byggðar af ákveðnum hættusvæðum þar sem erfitt er að koma við vörnum. Eftir þessu hefur verið tekið víða um lönd.


Verkfræðingafélag Íslands og Tæknifræðingafélag Íslands í samstarfi við Umhverfisráðuneytið, Vegagerðina, Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnun, Landsnet og Samband íslenskra sveitarfélaga munu standa fyrir alþjóðlegri ráðstefnu á Egilsstöðum dagana 11. -14. mars n.k. um málefni snjóflóðavarna, mannvirkjagerðar, umhverfis og samfélags.


Megin þemu þessarar ráðstefnu eru þrjú; snjóflóðavarnir, umhverfi og samfélag.

Lesa meira

7.2.2008 : Umræða um 2+2 og 2+1 vegi

2+1 vegurinn í Svínahrauni

Lýðheilsustöð og slysavarnaráð gengust fyrir morgunverðarfundi þar sem til umræðu voru 2+2 vegir og 2+1 vegur. Sérstaklega var horft til málsins út frá sjónarhorni umferðaröryggis. Heilbrigðisráðherra ávarpaði fundinn í upphafi hans.


Erindi héldu þeir Haraldur Sigþórsson, verkfræðingur hjá Línuhönnun, Ágúst Mogensen, forstöðumannur rannsóknarnefndar umferðarslysa og Steinþór Jónsson, formaður Samstöðu.


Á vef Lýðheilsustöðvar er að finna ítarlega umfjöllum um fundinn og þar er einnig að finna erindin sem flutt voru.


Vegagerðin vinnur nú að því að leggja 2+2 veg austur á Selfoss, unnið er að skipulágsmálum ásamt því að veglínur eru skoðaðar. Veghönnun er í gangi en ljóst er að framkvæmdin fer í mat á umhverfisáhrifum.

Lesa meira

5.2.2008 : Stefnumótun í samgöngum: Almenningssamgöngur

Sporvagn í Stuttgart

Samgönguráð efnir til fimmta fundar í fundaröð sinni um stefnumótun í samgöngum, fimmtudaginn 7. febrúar kl. 15-17.


Fundarefnið að þessu sinni er: Almenningssamgöngur


Sporvagnakerfið í Stuttgart – tekist á við áskoranir 21. aldarinnar


Samþætt svæðis- og samgönguskipulag með almenningssamgöngur sem burðarás


Drög að skýrslu um almenningssamgöngur sveitarfélaga

Lesa meira



Útlit síðu: