Á gamlársdag er stefnt að því að þjónustu á langleiðum ljúki kl 15:00. Öllum leiðum með 7 daga þjónustu verður sinnt á nýársdag en þó er miðað við að þjónustu á langleiðum ljúki um hádegi.
Frekari upplýsingar veitir umferðarþjónusta Vegagerðarinnar í síma 1777.
Vegagerðin óskar vegfarendum farsældar á komandi ári og þakkar árið sem er að líða.
Lesa meira
Allar leiðir sem hafa 7 daga þjónustu verða þjónustaðar á jóla- og nýársdag en þó er miðað við að þjónustu ljúki um hádegi á langleiðum. Á öðrum helgidögum um jól og áramót er stefnt að því að þjónustu ljúki eigi seinna en á kl 15:00 á langleiðum.
Frekari upplýsingar veittar í síma 1777 upplýsingaþjónustu Vegagerðarinnar.
Vegagerðin óskar vegfarendum gleðilegra jóla
Lesa meira
Ný vegaskrá er nú komin út, sú fyrsta eftir að ný vegalög tóku gildi 1. janúar 2008.
Töluvert miklar breytingar hafa orðið á vegaskránni vegna nýju laganna. Nú er vegum landsins skipt upp í stofnvegi, tengivegi, héraðsvegi og landsvegi.
Vegaskráin er gerð á tvenns konar formi, annars vegar er öllum vegum skipt í kafla og hins vegar er leiðum þeirra lýst. Sú leiðarlýsing fylgdi áður vegáætlun. Héraðsvegir eru þó ekki í þeirri skrá.
Yfirstjórn Norræna vegasambandsins hélt stjórnarfund sinn á Íslandi nýlega og við það tækifæri var Jón Rögnvaldsson fyrrverandi vegamálastjóri gerður að heiðursmeðlim í Norræna vegasambandinu.
Í yfirstjórn NVF (Norræna vegasamandið) sitja formenn, varaformenn og ritarar landsstjórna NVF. Formennirnir eru vegamálastjórar landanna og varaformenn eru oftast fulltrúar fyrirtækja úr einkageiranum. Ísland er leiðandi land í starfi NVF árin 2008 – 2012.
Lesa meiraUmferðin í nóvember 2008 var ríflega 6 prósentum minni en í nóvember í fyrra, sé tekið mið af 14 talningarstöðum á Hringvegi. Þetta er sama þróun og mátt hefur sjá mest allt þetta ár þótt umferðin í nóvember hafi ekki dregist jafnmikið saman og í október.
En þrátt fyrir þennan samdrátt í umferðinni er hún eigi að síður meiri en hún var í nóvember 2005 og 2006.
Sjá töflu, graf og stöplarit um hlutfallslega breytingu meðalumferðar á talningarstöðunum.
Lesa meira
Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu Norðfjarðarvegar (92) um Norðfjarðargöng, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar.
Frummatsskýrslan mun liggja frammi til kynningar til 22. janúar 2009. Frestur almennings til að skila athugasemdum við frummatsskýrsluna er til 22. janúar 2009.
CEDR (Conference of European Directors of Roads) eru samtök vegamálastjóra og aðstoðarvegamálastjóra 26 Evrópuríkja. Vegamálastjórarnir sitja í svokölluðu stjórnarráði (Governing Board) en aðstoðarvegamálastjórarnir í framkvæmdastjórn (Executive Board).
Reglulegur fundur í framkvæmdsstjórninni var haldinn í Reykjavík 4. og 5. desember og voru lagðar línurnar fyrir næstu verkefni. En CEDR er að ljúka fjögurra ára tímabili verkefna sem snúa að vegagerð og hefst nýtt tímabil 2009 og stendur til 2012. Verkefnin skiptast á þrjú svið, rekstur, nýframkvæmdir og þjónustu.
Lesa meira
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Vegagerðina af kröfu Péturs M. Jónassonar um að úrskurður umhverfisráðherra um mat á umhverfisáhrifum Gjábakkavegar (Lyngdalsheiðarvegar) yrði ógiltur. Einnig sýknaði Héraðsdómur vegna kröfu til vara um að úrskurðinn yrði ógiltur hvað varðaði leið 7.
Lesa meira
Ný útfærsla á leið 3 í mati á umhverfisáhrifum, leið 3b.
Vegagerðin kynnir hér með leið 3b út frá frummatsskýrslu sinni og hagsmunaraðilum er gefinn kostur á að gera athugasemdir við frummatsskýrslu Vegagerðarinnar innan tveggja vikna frá og með 4. desember 2008.
Nýr verktaki hefur tekið við snjómokstri og hálkuvörnum á Suðvestursvæði til næstu fimm ára. Vegagerðarmenn tóku á móti hópnum í síðustu viku og lögðu þeim línurnar.
GT verktakar buðu í og fengur snjómokstur, hálkuvörn og eftirlit á svæðinu sem telur umferðamestu vegi landsins. Verktakinn verður með 11 mokstursbíla og 2 eftirlitsbíla. Þeir hafa síðan fjárfest í 12 nýjum snjótönnum, 2 kastplógum og 10 saltkössum.
Lesa meiraStarfsmenn Vegagerðarinnarinn í Borgartúni 7 í Reykjavík urðu örlítið hvumsa við þegar þeir sáu torkennilegan hlut vafinn í svartan plastpoka sem hafði verið stungið inn um verkstæðisdyr í morgunsárið. Sjá mátti útlínur en útprent af mbl.is með frétt um stuld á umferðarljósum þar sem párað hafði verið fyrir neðan fréttina: "Sorry sé mjög eftir þessu"
Dagbjartur Sigurbrandsson verkefnisstjóri hjá Reykjavíkurborg var ánægður með að hafa endurheimt gripinn óskemmdan en hann gerir ekki ráð fyrir eftirmálum.
Lesa meira
Nýlega var lokið við að breikka veginn við nokkur vegamót á Suðurlandsvegi á milli Selfoss og Hveragerðis. Alls eru þetta tíu vasar á níu vegamótum. Þetta gerir ökumönnum kleift að aka framhjá ökutæki sem er að beygja af Suðurladnsvegi inná hliðarvegi.
Þessi mörgu vegamót á þessum kafla Hringvegarins hafa skapað mikla hættu og er þetta liður í auknu umferðaröryggi, biðleikur þar til vegurinn allur verður breikkaður og akstursstefnur aðsikildar. Á sama tíma voru fræstar vegrifflur á miðju vegarins sem einnig eykur umferðaröryggi. Vegrifflurnar vara ökumenn við ef þeir eru að fara inná rangan vegarhelming.
Lesa meira
Enn dregur til muna úr umferð á þeim 14 talningarstöðum sem bornir eru saman á Hringvegi. Meðalumferðin í október 2008 var 9,0% minni en á sama tíma árið 2007 og 4,4% minni en fyrir tveimur árum, eða árið 2006.
Lesa meira
Aldrei áður hafa jafn margir sótt árlega ráðstefnu Vegagerðarinnar um rannsóknir og nú í ár en 171 þátttakandi var skráður á þessa sjöundu ráðstefnu sem haldin var þann 7. nóvember síðastliðinn.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær í máli fjölda einstaklinga gegn íslenska ríkinu og Vegagerðinni þar sem þess var krafist að metnir yrðu fleiri kostir við vegalanginu í mati á umhverfisáhrifum en Vegagerðin mælti með. Vegalagningin er á Hringvegi um Hornafjarðarfljót með nýrri brú yfir fljótið. Héraðsdómur sýknaði ríkið og Vegagerðina og er það mat dómsins að "Vegagerðin, hafi forræði á að meta hvaða kostir þjóni því markmið sem að er stefnt með veglagningu þeirri sem mál þetta snýst um".
Í hinu málinu dæmdi Hæstaréttur í máli Reykjavíkurborgar og Rauðhóls ehf gegn Vegagerðinni þar sem krafist var skaðabóta vegna veghelgunarsvæðis við Norðlingaholt. Hæstiréttur staðfesti frávísunardóm Héraðsdóms þar sem "skorti verulega á skýrleika í málatilbúnaði sóknaraðila".
Lesa meiraSumarökuhraði hefur lækkað verulega á Hringveginum frá því á árinu 2004. Hann hefur lækkað jafnt og þétt að árinu 2006 undanskildu þegar hann hækkaði. Ekki er hægt að meta umferðarhraðann að vetrarlagi því hann er það háður veðurfari.
Á þessu tímabili hefur meðalökuhraðinn á tíu stöðum lækkað um einn km á klst á ári sem er mjög mikið og enn meira þegar miðað er við svokallaðann V85 hraða sem hefur lækkað um 1,5 km á klst á ári. V85 er sá hraði sem 85 prósent ökumanna halda sig innan við en 15 prósent aka hraðar. Á þessu fjögurra ára tímabili hefur V85 ökuhraðinn lækkað um 5,7 km á klst þ.e.a.s. úr 108,6 í 102,9.
Þetta eru ánægjulegar niðurstöður þar sem mjög mikil áhersla hefur verið lögð á aukið hraðaeftirlit undanfarin ár í tengslum við umferðaröryggisáætlun stjórnvalda, bæði hefðbundið eftirlit lögreglu og sjálfvirkt hraðaeftirlit.
Skúli Þórðarson hjá Vegsýn vann samantekt um þróun ökuhraða á þjóðvegum fyrir Vegagerðina.
Lesa meiraAf ýmsum og mismunandi ástæðum standast ekki allar áætlanir. Til stóð til dæmis að opna Djúpveg um brú yfir Mjóafjörð í haust en nú er ljóst að það tekst ekki. Einnig er óvíst hvort vegurinn um Arnkötludal verði opnaður fyrir umferð.
Þróunarsvið Vegagerðarinnar stendur fyrir árlegri rannsóknaráðstefnu sinni föstudaginn 7. nóvember 2008 á Reykjavik Hilton Nordica hóteli.
Skráning er nú opin.
Um nokkurt skeið nú hafa verið settir upp öryggisendar á vegrið þar sem þau byrja í stað þess að leiða vegriðin á ská ofan í jörðina. Þetta er gert þar sem endarnir eru öruggari en þeir eru töluvert dýrari lausn.
Á myndum sem fylgja má sjá hvernig þessir öryggisendar virka en í fyrsta snjónum um daginn rak snjóruðningstæki tönnina í einn endann á Reykjanesbrautinni með þeim afleiðingum að endinn gekk saman. Hann virkaði nákvæmlega einsog hann á að gera enda slapp bílstjórinn við öll meiðsl nema á sálinni kannski en tönnin skemmdist lítillega.
Lesa meira
Sunnudaginn 19. október opnaði samgönguráðherra Kristján L. Möller síðasta kaflann í tvöföldun Reykjanesbrautar við Stapahverfi í Reykjanesbæ og vígði þar með tvöfalda Reykjanesbraut frá Hafnarfirði til Njarðvíkur. Að vígslu lokinni var umferð hleypt á þennan síðasta kafla.
Eftir að Jarðvélar efh sögðu sig frá síðari hluta verksins í árslok 2007 var samið var við Ístak hf. um byggingu nýju akbrautarinnar en við Eykt ehf. um smíði brúa. Verkið hefur gengið vel sem sést á því að umferð var hleypt á báðar akreinar hálfum mánuði á undan áætlun.
Lesa meiraÞað er hjá Vegagerðinni líkt og öðrum í íslensku þjóðfélagi að starfsmenn hafa áhyggjur af vægast sagt óvissu efnahagsástandi. En undir því kjörorði að ekki megi láta deigan síga og fleira megi gera sér til dægrastyttingar en að tala um ástandið, var ákveðið að halda "upplyftingardag" hjá Vegagerðinni.
Starfsmenn komu sjálfir með bakkelsi í tíukaffið og hittust til að ræða skemmtileg mál, og þeir voru hvattir til að fara meira á milli deilda en venjulega og heilsa upp á samstarfsfólkið. Síðan var, þar sem því var komið við, haldið sérstakt "upplyftingarkaffi" síðdegis. Í Reykjavík mættu þeir KK og Hjörleifur Valsson fiðluleikari og skemmtu starfsmönnum, sem sjálfir bökuðu vöfflur í gríð og erg. Létt var yfir mannskapnum. Sverri Örvar Sverrisson starfsmaður Vegagerðarinnar spilaði síðan létt lög í anda stemmingarinnar.
Lesa meiraÚtlit er fyrir að umferð verði hleypt á ný mislæg gatnamót á Reykjanesbraut við Arnarnesveg 28. nóvember næstkomandi. Þetta er töluvert á undan áætlun því samkvæmt útboði átti verkinu að vera fullu lokið 10. júlí 2009.
Suðurverk hf og Skrauta ehf áttu lægsta tilboðið og hefur verkið gengið mjög vel. Unnið hefur verið að samningum um flýtifé um nokkurt skeið en skrifað var loks undir nú 16. október.
Lesa meira
Fyrirhugaðar eru framkvæmdir á Hringvegi í Skriðdal, á milli Litla Sandfells og Haugaár. Um er að ræða 10,9 km langan kafla með 7,1 km nýbyggingu og 3,8 km endurbyggingu á núverandi vegi.
Eitt af rannsóknarverkefnum sem fengið hefur styrk hjá Vegagerðinni er athugun á hagkvæmni rafknúinna hjóla til nota í styttri ferðir. Keypt hefur verið rafknúið hjól til að nota í athugunina.
Hjólið verður til láns á "bílaleigu" Vegagerðarinnar sem er fyrir starfsmenn hennar og er gert ráð fyrir að nota það í til dæmis sendiferðir, ferðir á fundi og jafnframt er gert ráð fyrir að hjólið verði lánað starfsmönnum til styttri einkaerinda sem þeir annars hefðu farið á eigin bíl. Fylgst verður með notkun hjólsins og hún tekin saman eftir eitt ár.
Árangur verkefnisins felst í minni bílanotkun Vegagerðarinnar til ferða, sem eru óhagkvæmar bæði hvað varðar rekstur bíla sem og mengunar sem bílaumferð veldur.
Lesa meiraMiðvikudaginn 8. október opnaði Hreinn Haraldsson vegamálastjóri formlega nýjan veg um Hrútafjarðarbotn. Samgönguráðherra Kristján L. Möller átti ekki heimangengt. Hreini til aðstoðar var Jón Rögnvaldsson fyrrverandi vegamálastjóri. Athöfnin fór fram á veginum við nýja brú yfir Hrútafjarðará.
Með nýja veginum og nýrri brú sem leysir af hólmi gamla einbreiða brú á Síká er Hringvegurinn milli Reykjavíkur og Akureyrar allur tveggja akreina. Síðasta einbreiða brúin er aflögð en á síðasta ári var tekinn í notkun nýr vegur um Norðurárdal í Skagafirði og þar með voru aflagðar fjórar einbreiðar brýr. Nýi vegurinn styttir Hringveginn lítið sem ekkert en hinsvegar styttist leiðin milli Vestfjarða og Norðurlands um tæpa níu kílómetra.
Lesa meira
Þróunarsvið Vegagerðarinnar stendur fyrir árlegri rannsóknaráðstefnu sinni föstudaginn 7. nóvember 2008 á Reykjavik Hilton Nordica hóteli.
Þetta er í sjöunda sinn sem rannsóknaráðstefnan er haldin.
Enn dregur úr umferð á 14 talningarstöðum á Hringvegi en þróunin í september 2008 er svipuð og undanfarna mánuði. Umferðin í september í ár var 4,38 prósentum minni en í september 2007. Sem er heldur meiri samdráttur en í ágúst og júlí þótt mest hafi umferðin dregist saman í júní.
Umferðin í september 2007 er sú sama og í september 2006, hingað til hefur heildarumferðin árið 2008 legið á milli árannar 2006 og 2007, sjá línurit. Umferðin hefur þannig verið meiri en árið 2006 en minni en árið 2007. Í september er umferðin á þessum 14 talningarstöðum hinsvegar sú sama og 2006.
Lesa meira
Þróunarsvið Vegagerðarinnar stendur fyrir árlegri rannsóknaráðstefnu sinni föstudaginn 7. nóvember 2008 á Reykjavik Hilton Nordica hóteli.
Þetta er í sjöunda sinn sem rannsóknaráðstefnan er haldin.
Tvisvar á ári gerir Gallup könnun um viðhorf landsmanna til þjóðveganna. Könnunin er gerð sumar og vetur.
Í könnuninni sumarið 2008 kemur í ljós að landsmenn eru jafn jákvæðir gagnvart Vegagerðinni og í fyrra en töluvert fleiri en í fyrra telja að þjóðvegir landsins séu almennt góðir. Mun fleiri eru ánægðri með kantstikur og yfirborðsmerkingar og einnig fjölgar þeim lítillega sem telja merkingar þar sem vinna fer fram fullnægjandi. Flestir vilja breiðari vegi og fækkar þeim stöðugt á móti sem leggja áherslu aukið bundið slitlag.
Mikil ánægja er með símsvörun Vegagerðarinnar á Ísafirði. Könnun Gallups.
Lesa meiraHéraðsdómur Reykjavíkur hefur þann 26. september fellt úr gildi þann hluta úrskurðar umhverfisráðherra þar sem fallist var á leið B í 2. áfanga Vestfjarðavegar, þar sem ráðherra hafði ekki með fullnægjandi hætti rannsakað umhverfisáhrif þverunar á lífríki í fjörðunum og þar með brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar.
Úrskurður ráðherra féll 5. janúar 2007 en úrskurðinn kærðu Olga Ingibjörg Pálsdóttir, Guðmundur Sveinsson, Fuglaverndarfélag Íslands, Náttúruverndarsamtök Íslands og Gunnlaugur Pétursson.
Niðurstaða dómsins er til skoðunar hjá Vegagerðinni og óljóst með framhaldið.
Lesa meiraÚrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála felldi þann úrskurð í síðustu viku að uppsetning hraðamyndavéla við stofnbrautir á vegum Vegagerðarinnar væru ekki byggingaleyfisskyldar samkvæmt skipulags- og byggingarlögum.
Forsaga málsins er sú að sveitarfélagið Hvalfjarðarsveit fór fram á það að tekin yrði afstaða til þess hvort uppsetning hraðamyndavéla við stofnbrautir væru háðar byggingaleyfi. Tvær vélar voru settar upp í Hvalfjarðarsveit sumarið 2007. Ekki var sótt um leyfi til skipulags- og bygginganefndar sveitarfélagsins og nú hefur verið úrskurðað að þess þarf ekki.
Stefnt er að því að setja upp að minnsta kosti sjö hraðamyndavélar á næsta ári til viðbótar þeim níu sem búið er að setja upp.
Lesa meira
Vegagerðarmenn höfðu í mörgu að snúast eftir vatnsveðrið sem gekk yfir landið aðfararnótt 17. september. Sýnu verst var ástandið á Vestfjörðum þar sem vegir lokuðust víða.
Enn er unnið að viðgerð á mörgum stöðum en hér neðar á vef Vegagerðarinnar má fylgjast með þróun mála, þar sem færðinni er líst. Einnig geta ferðalangar hringt í 1777.
Fleiri myndir af sunnanverðum Vestfjörðum fylgja þessari frétt. En skemmdir urðu á veginum upp á Kleifarheiði, á Örlygshafnarvegi út að Látrabjargi, í Arnarfirði víða, við Foss, Trostansfjörð og við Dynjandisá. Og einnig mynd af aurskriðunni sem lokaði Uxahryggjarvegi um tíma.
Lesa meiraÞað verður ekki framhjá því horft að mikill meirihluti starfsmanna Vegagerðarinnar eru karlar. Það er mikið verk óunnið í að breyta því. Þess vegna var það ánægjulegt þegar Vegagerðarkonur sátu fund um sérleyfismál að allir fundarmennirnir fimm voru konur.
Á fundinum var verið að ræða samning um einkaleyfi sveitarfélaganna Árborgar og Hveragerðisbæjar á sérleyfisleiðum.
Lesa meiraVegagerðin hefur sett upp hraðaskilti á Vesturlandsvegi, við Grundarhverfi þar sem er 70 km hámarkshraði. Uppsetning skilta sem þessara hefur orðið til þess að draga úr ökuhraða en það vakti óþægilega athygli vegagerðarmanna við uppsetninguna á skiltunum hversu margir óku hratt framhjá þeim, sá sem fór hraðast var á 110 km hraða samkvæmt radarmæli hraðaskiltisins.
Það verður aldrei of brýnt að aka varlega og á löglegum hraða.
Lesa meira
Lýðheilsustöð-slysavarnaráð og Umferðarráð standa fyrir morgunfundi 9. september um áhættuhegðun ungra ökumanna.
Tveir hollenskir sérfræðingar auk sérfræðings frá Umferðarstofu munu halda fyrirlestra og rými verður fyrir spurningar og umræður.
Slys í umferðinni eru ein helsta dánarorsök ungs fólks á aldrinum 17 til 24 ára í OECD-löndunum. Árið 2004 leiddi OECD saman ráðgjafanefnd sem ætlað var að kanna og skilja þá þætti sem hafa áhrif á slysatíðni ungra ökumanna og leita leiða til að draga úr þessum háa fórnarkostnaði.
Lesa meiraSamgönguráðherra Kristján L. Möller sprengdi fyrstu sprenginguna í Bolungarvíkurgöngum síðdegis 4. september að viðstöddu fjölmenni. Sprengingin tókst vel en sprengt var í þessari fyrstu sprengingu rúma tvö metra inn í fjallið Bolungarvíkurmegin.
Unnið hefur verið að forskeringum beggja vegna í sumar en í næstu viku hefst sprengivinna Hnífsdalsmegin. Búast má við að eftir u.þ.b. ár verði sprengivinnu lokið og að sumarið 2010 verði hægt að opna fyrir umferð en verklok eru áætluð 15. júlí.
Lesa meiraFyrirhuguð er vegaframkvæmd á Djúpadalsvegi (6087), frá væntanlegum Vestfjarðavegi á Hallsteinsnesi að núverandi Vestfjarðavegi undir Mýrlendisfjalli ásamt tengingum.
Lesa meiraUmferðin í ágúst 2008 er 3,48 prósentum minni en í ágúst 2007 þegar bornir eru saman 14 talningarstaðir um land allt. Í ágúst 2007 jókst hinsvegar umferðin um 7,81 prósent frá því í sama mánuði árið á undan eða árið 2006.
Þetta er fimmti mánuðurinn í röð þar sem dregur úr umferð á milli ára en nú langt skeið hefur umferð aukist stöðugt. Þó dró örlítið minna úr umferð í ágúst en í mánuðina á undan þegar umferðin dróst saman um allt að 5,56 prósent (júní) frá sama mánuði árið á undan. Hafa ber þó að hafa í huga að taka verður tilllit til umferðamagns milli árstíða. Eins og sést best á grafninu, er mest umferð er yfir sumarmánuðina. Þannig erum mismargir bílar á bak við hverja prósentu.
Sjá stöplarit, graf eða töflu frá talningarstöðunum 14 þessi þrjú ár.
Lesa meiraLaugardaginn 30. ágúst verður umferð flutt á mislæg vegamót við Grindavíkurveg. Einnig verður framhjáhlaup við Njarðvík tekið af. Vegfarendur mega búast við töfum á umferð á meðan unnið er að færslunni.
Byrjað verður á að taka framhjáhlaup við Njarðvík af um kl. 8 á laugardagsmorgun. Þá verður ekið á nyrðri akbraut Reykjanesbrautar með tvístefnu (1+1) yfir Grindavíkurgatnamót, en þó verður enn framhjáhlaup við vegamót að Stapahverfi.
Lesa meiraUmhverfi vega skiptir miklu máli komi til þess að slys verði og bíll hafni utan vegar. Samkvæmt umferðaröryggisáætlun stjórnvalda er unnið að því að bæta umhverfi vega. Það er meðal annars gert með því að fjarlægja stórgrýti, draga úr bratta fláa, færa eða fylla upp í skurði eða lengja ræsi.
Nýlega var unnið að útbótum á vegamótum Akrafjallsvegar og Innnessvegar og stuttu eftir lagfæringarnar ók bíll út af. Líklegt verður að teljast að mun verr hefði farið hefði ekki verið búið að lengja ræsið þar sem bílinn fór út af.
Lesa meiraVegagerðin stóð fyrir umferðarkönnun í Berufirði í síðast liðnum mánuði og gekk hún í alla staði vel. Könnunin fór fram á fimmtudegi og á laugardegi. Fyrri daginn fóru 718 bílar framhjá og svöruðu allir skilmerkilega utan þrír bílar sem ekki stöðvuðu og tveir sem neituðu að svara. Á laugardeginum fóru 526 bílar um veginn og einungis einn neitaði að svara.
Tilgangur með könnuninni er að kanna áhrif fyrirhugaðs Axarvegar á umferðarvenjur vegfarenda á Austurlandi. Einnig fást upplýsingar um umferð á milli einstakra staða og svæða, sem síðar nýtast við almenna áætlanagerð.
Nokkurn tíma tekur svo að vinna úr niðurstöðunum.
Lesa meira
Um leið og ákvörðun hafði verið tekin um tvöföldun Suðurlandsvegar var farið að ræða hvernig best væri að standa að verki þannig að framkvæmdir gætu hafist sem fyrst. Það var strax ljóst að undirbúningstími fyrir kaflann yfir Hellisheiði yrði mun styttri en fyrir kaflann milli Hveragerðis og Selfoss og fyrir kaflann næst Reykjavík.
Ákvörðun um að byrja á heiðinni byggist því eingöngu á því að stjórnvöld vilja koma verkinu sem fyrst í gang. Sú ákvörðun á ekki að hafa áhrif á hvenær unnt verður að hefja framkvæmdir á milli Hveragerðis og Selfoss. Þar ráða önnur atriði.
Í upphafi þessarar umræðu núna benti Vegagerðin á að þessi áfangaskipting hefði verið komið á vegna þess að skipulagsvinna á heiðinni væri lengra komin vegna þess meðan annars að flóknari skipulagsvinna fælist í kaflanum milli Hveragerðis og Selfoss
Lesa meiraAlls bárust 13 tilboð í Suðurstrandarveg kaflann milli Krýsuvíkurvegar og Þorlákshafnarvegar en tilboð voru opnuð í dag 12. ágúst að viðstöddum samgönguráðherra og vegamálastjóra.
KNH efh, Ísafirði, átti lægsta tilboðið og hljóðaði það upp á rétt ríflega 697 milljónir króna sem er 73,5 prósent af áætluðum verktakakostnaði. Öll tilboðin utan eitt voru undir áætluðum kostnaði Vegagerðarinnar.
Um er að ræða 33,6 km langan kafla ásamt 2,3 km löngum tengingum og smíði 12 m steyptrar brúar á Vogsós. Seinni hluti Suðurstrandavegar verður líklega boðinn út í næsta mánuði.
Fyrirhuguð er lagning nýs vegar og nýrra ganga á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar á Vestfjörðum. Vinnuheiti þessarar framkvæmdar er: Jarðgöng á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar.
Kannaðar hafa verið jarðfræðilegar aðstæður til gangagerðar á milli Dýrafjarðar og Borgarfjarðar í Arnarfirði. Einungis ein leið er talin koma til greina. Vegstæðið nær frá Mjólká í Arnarfirði að Dýrafjarðarbrú.
Tilgangur framkvæmdarinnar er að tryggja góðar og öruggar samgöngur á Vestfjarðavegi nr. 60 á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Það er skilyrði þess að heilsárs vegarsamband sé á milli Barðastrandarsýslna og Ísafjarðarsýslna.
Umferðin í júlí 2008 er 3,70 prósentum minni en í júlí 2007 þegar bornir eru saman 14 talningarstaðir um land allt. Í júlí 2007 jókst hinsvegar umferðin um 7,48 prósent frá sama mánuði árið áður. Þetta er fjórði mánuðurinn í röð þar sem dregur úr umferð á milli ára en nú langt skeið hefur umferð aukist stöðugt.
Þó dró minna úr umferð í júlí en í júní þegar umferðin dróst saman um 5,56 prósent frá sama mánuði árið á undan. Umferðin 2008 er minni en umferðin 2007 en eigi að síður meiri en 2006.
Lesa meira
Því fer fjarri að Vegagerðin ráðist í framkvæmdir “sama hvað tautar og raular” líkt og Bergur Sigurðsson framkvæmdastjóri Landverndar heldur fram í fjölmiðlum í dag.
Því síður hagar Vegagerðin sér eins og ríki í ríkinu, þvert á móti. Ákvarðanir um vegalagningu, til dæmis varðandi Dettifossveg, Lyngdalsheiðarveg og Vestfjarðaveg um Teigsskóg, eru ekki teknar að óathuguðu máli eins og stundum mætti ætla af umræðunni.
Í öllum þessum tilvikum hefur farið fram ítarlegt mat og skoðun á mögulegum veglínum. Vegagerðin leggur fram möguleikana og mælir gjarnan með einum umfram annan.
Lesa meira til að sjá kort og myndir
Lesa meiraÁnægja flutningsaðila með vegakerfið hefur aukist merkjanlega í nýrri viðhorfskönnun frá síðustu könnun sem gerð var í fyrra. Þeim fækkar sem eru óánægðir með vegakerfið, eigi að síður er þó rúmlega helmingur aðspurðra óánægður eða mjög óánægður með þennan þátt.
Líkt og í fyrri könnunum er borið við að vegirnir séu of mjóir og veikbyggðir fyrir stóra bíla, einkum vegna síaukinnar umferðar.
Ríflega þrír af hverjum fjórum verktökum er ánægður með samskiptin við starfsmenn Vegagerðarinnar en fleiri en áður gera athugasemdir við útboðsgögn.
Lesa meira
Vegagerðin varði á árunum 2001 og 2002 a.m.k. 2,5 milljónun króna til uppbyggingar áningarstaðar við Kerið í Grímsnesi til viðbótar við bílastæði sem þar hafði áður verið lagt.
Vegagerðin hefur ekki tekið sérstaklega afstöðu til gjaldtöku við Kerið í Grímsnesi eða bann við því að langferðabifreiðar stöðvi á bílastæðinu. Hinsvegar hefur Vegagerðin almennt litið svo á að áningarstaðir Vegagerðarinnar og hvíldarstaðir séu öllum vegfarendum opnir þeim að kostnaðarlausu hvort sem áningarstaðirnir eru byggðir á einkalandi eða landi hins opinbera.
Framkvæmdir eru hafnar á fyrsta áfanga Norðausturvegar til Vopnafjarðar. Um er að ræða nýbyggingu frá Brunahvammshálsi að Bunguflóa þar sem nýr vegur tengist núverandi vegi. Lengd framkvæmdakakafla er um 11,2 km en heildarlengd fyrirhugaðs vegar til Vopnafjarðar er um 42 km.
Lesa meira
Nýjustu tölur, frá 14 talningarstöðum, í júní 2008, benda eindregið til að umferðin á Íslandi sé að dragast saman.
Eins og sjá má í töflunni þá er umferðin að dragast saman á öllum talningarstöðum nema vestan Hvolsvallar.
Kann það að skýrast af umferð í tengslum við Landsmót hestamanna, sem haldið er á Hellu dagana 30. júní til 6. júlí.
Nýja Þjórsárbrúin gerði sér lítið fyrir og sló út sjálfa Eyrarsundsbrúna og fleiri norræn stórverkefni í brúarsmíði og jarðgangagerð í samkeppni Norræna vegasambandsins, NVF.
Formaður nefndarinnar, Lars Pettersson frá Skánska benti á að Þjórsárbrúin hefði orðið fyrir valinu meðal annars á þeim forsendum að hún hefði verið hönnuð með það að markmiði að þola stóra jarðskjálfta án þess að það kæmi niður á burðarþoli hennar eða útliti. Brúin hefði verið hönnuð til að falla inn í náttúruna, fjöldi nýrra byggingarlausna væri að finna í hönnuninni auk hugmyndaríkra lausna sem notaðar voru við smíði brúarinnar. Brúadeild Vegagerðarinnar hannaði brúna og það var Einar Hafliðason forstöðumaður hennar sem tók á móti viðurkenningunni.
Yfir Örnólfsdalsá í Borgarfirði stendur enn hengibrú sem var byggð árið 1899 og er því elsta uppistandandi hengibrú landsins. Hún hefur lítið viðhald fengið en nýtur þess að þjóðleiðin norður í land færðist frá henni.
Nú hefur verið ákveðið að varðveita brúna í þessari mynd fyrir minjasafn Vegagerðarinnar og þarf að endurnýja hana að miklu leyti í því skyni. Þann 2. júni var auglýst útboð á stálsmíði vegna brúarinnar, útboðið verður opnað 18. júní.
Frá því að umferð var opnuð á Óseyrarbrúna í gær hefur hún verið opin allri umferð, einnig umferð þungra flutningabíla. Þrátt fyrir nokkrar skemmdir á brúnni er burðarvirkið í góðu lagi, það stóðst hið mikla álag í skjálftanum í gær.
Ölfusárbrúin við Selfoss er einnig opin allri umferð.
Unnið er að því að meta skemmdirnar á vegakerfinu eftir skjálftann og lagfæra þær.
Lesa meira
Fimmtudaginn 29. maí voru fjórar hraðamyndavélar á Reykjanesi teknar í notkun, en þær eru staðsettar á Garðskagavegi og Sandgerðisvegi.
Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og er tilgangurinn sá að draga úr ökuhraða á þjóðvegum og fækka umferðarslysum.
Ekki er tekin mynd nema um brot sé að ræða.
Vegna þeirra miklu hækkana sem orðið hafa á olíuverði og verðþróunar það sem af er árinu 2008 hefur Vegagerðin ákveðið að tímabundið verði öll jarðvinnu- og byggingarverk verðbætt eftir sömu reglum og hafa gilt fyrir verk sem unnin hafa verið á lengri tíma en 12 mánuðum. Þannig verða styttri verk verðbætt þ.e.a.s verk sem hingað til hafa ekki verið verðbætt.
Einnig hefur Vegagerðin ákveðið að verðbæta tímabundið alla þjónustusamninga sína í almenningssamgöngum, þ.á m. vegna sérleyfisaksturs, reksturs ferja og styrkts áætlunarflugs.
Ákvörðunin gildir út árið 2008 og verður þá endurskoðuð. Svipuð leið var farin árið 2001 af sömu ástæðum. Lesa meira
Jakob Hálfdánarson minjavörður hjá Vegagerðinni frumsýndi áður ósýndar myndir frá árinu 1968 við opnun sýningar í húsakynnum Vegagerðarinnar í tilefni 40 ára afmælis H-dagsins. Þennan dag fyrir 40 árum var skipt úr vinstri umferð í hægri umferð.
Sú framkvæmd heppnaðist svo vel að hún féll nánast í gleymsku fyrir vikið, en á það benti Jón Birgir Jónsson við opnun sýningarinnar en hann kom að þessum viðmiklu breytingum fyrir hönd Vegagerðarinnar fyrir 40 árum. Þau voru ansi mörg skiltin sem þurfti að færa nóttina fyrir 26. maí 1968.
Á sýningunni sem er á stigagangi Borgartúns 7 má m.a. sjá myndina. Hún er tekin á nokkrum stöðum með sama sjónarhorn í vinstri og hægri umferð árið 1968 og sama sjónarhorn í dag. Sýningin verður opin til áramóta.
Lesa meiraVegagerðin fyrirhugar að endurbyggja um 9,4 km langan vegarkafla Illugastaðavegar (833), sem hefst við slitlagsenda sunnan vegamóta Vaglaskógarvegar (836) og endar skammt sunnan Illugastaðakirkjuvegar (8632) í Fnjóskadal.
Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í fyrri áfanga Dettifossvegar(F862), frá Hringvegi að Dettifossi. Fyrirhugað framkvæmdasvæði er í Skútustaðahreppi í S.-Þingeyjarsýslu og Norðurþingi í Norður-Þingeyjarsýslu.
Framkvæmdin felst í nýbyggingu Dettifossvegar á þessum kafla, nýbyggingu tenginga að Dettifossi og Hafragilsfossi, auk byggingar eins áningarstaðar við Dettifossveg og tveggja útskota. Í framkvæmdinni felst einnig gerð bílastæða við Hafragilsfoss og Dettifoss.
Tillaga að matsáætlun fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar frá Hólmsá ofan Reykjavíkur og að Hveragerði hefur verið lögð inn til Skipulagsstofnunar til málsmeðferðar skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum. Verkfræðistofan Línuhönnun verkstýrir mati á umhverfisáhrifum fyrir hönd framkvæmdaraðila.
Hægt er að nálgast eintak af tillögu að matsáætlun hér hjá Vegagerðinni og á vefum Skipulagsstofnunar og Línuhönnunar.
Lesa meira
Föstudaginn 9. maí áætlar Ístak að loka núverandi aðrein Hafnarfjarðarvegar (40) vegna breytinga sem verið er að vinna í tengslum við framkvæmdir á Nýbýlavegi.
Umferð verður á færð í tveimur áföngum yfir á nýjan hluta Nýbýlavegar sem unnið hefur verið við að undanförnu. Fyrri áfanganum er lýst í fréttinni: Smella á "Lesa meira"
Þetta eru viðamiklar breytingar og eru vegfarendur hvattir til að kynna sér þær og aka varlega. Lesa meira
Ríflega 100 manns sóttu kynningarfund um Sundabrautina í Ráðhúsinu 7. maí. Tilgangur fundarins var að upplýsa borgarbúa og annað áhugafólk um samgöngur um fyrirhugaða Sundabraut, mögulega útfærslu hennar og kostnað.
Jónas Snæbjörnsson svæðisstjóri hjá Vegagerðinni fór yfir það sem gert hefur verið og sérstaklega þá tvo kosti sem helst eru í umræðunni núna, Sundagöng og Eyjalausn. Fundinn ávörpuðu einnig Kristján Möller samgönguráðherra, Hreinn Haraldsson vegamálastjóri og borgarfulltrúarnir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Dagur B. Eggertsson. Umræður fóru fram að því loknu.
Lesa meira
Samgönguráðherra efnir miðvikudagskvöldið 7. maí til opins fundar um Sundabraut.
Fundurinn verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og hefst klukkan 20.
Tilgangur fundarins er að upplýsa borgarbúa og annað áhugafólk um samgöngur um fyrirhugaða Sundabraut, mögulega útfærslu hennar og kostnað.
Lesa meiraGreinargerð Vegagerðarinnar um kaup og endurnýjun á Grímseyjarferjunni Sæfara var afhent samgönguráðherra, ríkisendurskoðanda og samgöngunefnd Alþingis í apríllok.
Helstu niðurstöður eru þær að upphafleg meginmarkmið náðust en kostnaður varð meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Betra hefði verið að skipa í upphafi verkefnisstjórn, skoða skipið betur, hanna það nákvæmar endurbætur og gera meiri kröfur til verktaka.
Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í annan áfanga Norðausturvegar, Hófaskarðsleiðar. Um er að ræða nýbyggingu frá núverandi Norðausturvegi á Fremri-Hálsi að slitlagsenda við Sævarland. Lengd útboðskaflans er 8,3 km.
Lesa meiraÍ dag, 2. maí, var skrifað undir samning milli Vegagerðarinnar og Ístaks hf um tvöföldun Reykjanesbrautarinnar (41), Strandarheiði – Njarðvík eftir endurútboð.
Tilboð Ístaks í verkið hljóðaði upp á ríflega 807 milljónir króna.
Undirverktaki vegna malbikunar verður Hlaðbær – Colas malbikunarstöð og eftirlit verður í höndum Mannvits hf. Ístak hyggst hefjast handa mánudaginn 5. maí.
Áætlað er að þann 16. október verði unnt að aka útboðskaflann á fjórum akreinum.
Kristján L. Möller, samgönguráðherra, hefur sett Hrein Haraldsson í embætti vegamálastjóra til eins árs, frá 1.maí.
Hreinn er jarðfræðingur að mennt og kom til starfa hjá Vegagerðinni árið 1981. Hann hefur undanfarið gegnt þar starfi framkvæmdastjóra þróunarsviðs.
Tíu umsækjendur voru um stöðuna Lesa meira
Nokkur umræða hefur orðið að undanfönu um fækkun niðurgreiddra ferða Breiðafjarðarferjunar Baldurs.
Rétt er í því sambandi að minna á að samningur var gerður við Sæferðir um ferjusiglingarnar árið 2005 og í þeim samningi er skýrt kveðið á um fækkun styrktra ferða þar til þær leggjast af eftir árið 2010.
Vegagerðin má samkvæmt lögum styrkja ferjuferðir sem komi í stað vegasambands um stofnveg eða tengiveg. Með aukinni þjónustu á vegakerfinu hverfur sú forsenda auk þess sem fækkun ferða Baldurs miðast við í byrjun að hætta að niðurgreiða ferðir yfir sumartímann þegar vegir eru allir greiðfærir.
Lesa meiraVegagerðin áformar að tvöfalda Suðurlandsveg frá Hólmsá ofan Reykjavíkur að vegamótum við Hveragerði. Byggður verður 2 + 2 vegur með mislægum vegamótum á allt að 7 stöðum. Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi, lækka slysatíðni og tryggja greiðari umferð um Suðurlandsveg.
Drög að tillögu að matsáætlun vegna Suðurlandsvegar er nú kynnt almenningi, hagsmunaaðilum og lögbundnum umsagnaraðilum um tveggja vikna skeið, frá 20. apríl til 7. maí 2008, í samræmi við 14. gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum.
Lesa meiraUm 120 manns sóttu íbúafund á vegum Reykjavíkurborgar, Vegagerðarinnar og Hverfisráðs Hlíða um gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar og Miklabraut í stokk. Fundurinn var haldinn miðvikudaginn 16. apríl.
Fram kom að stofnaður verður samráðshópur borgaryfirvalda, Vegagerðarinnar og íbúasamtakanna. fjölmargar fyrirspurnir og athugasemdir komu fram á fundinum um þær hugmyndir sem nú er uppi en jafnframt bent á að engar endanlegar ákvarðanir um útfærslu hafa verið teknar.
Sjá umfjöllun um gatnamótin sem verða á þremur hæðum og stokk Miklubrautarinnar í Framkvæmdafréttum.
Lesa meira
Samgönguráð efnir til sjötta fundar í fundaröð sinni um stefnumótun í samgöngum. Fundarefnið að þessu sinni er: Samgöngur og byggðaþróun
Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 17. apríl 2008 kl. 14:30 – 17:00 á Hótel Sögu Reykjavík í salnum Harvard II. Fundurinn verður jafnframt sýndur á vefslóðinni: www.straumur.hotelsaga.is – að því búnu er valið: Samgönguráð.
Aðgangur er ókeypis.
Vegagerðin fyrirhugar að endurbæta um 4,6 km langan kafla á Borgarfjarðarvegi (94) milli Lagarfossvegar og Sands á Fljótsdalshéraði. Núverandi vegur er mjór malarvegur og miða endurbætur að því að styrkja hann og leggja á hann bundið slitlag auk .....
Miðvikudaginn 16. apríl verður haldinn opinn íbúafundur á vegum Reykjavíkurborgar, Vegagerðarinnar og Hverfisráðs Hlíða um gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar og Miklabraut í stokk. Fundurinn verður haldinn í Skriðu í Kennaraháskólanum og hefst hann kl. 17.00 - 19.00. Allir velkomnir.
Nýi Sæfari fór sína fyrstu ferð til Grímseyjar frá Dalvík á föstudag kl 10:30
Ferðin gekk framar vonum þrátt fyrir skítabrælu, norðaustan og 3,8 m ölduhæð. Sæfari hinn nýi var þrjá tíma og fjórðung betur á leiðinni en skipstjórinn Sigurjón Herbertsson taldi að gamli Sæfari hefði verið fjóra til fjóra og hálfan tíma í ferðinni. Skipið lét mjög vel í ferðinni og tóku Grímseyingar vel á móti því á byrggjunni með fánum, lúðrablæstri og tilbúnu hlaðborði. Grímseyingar vænta þess að hin nýja ferja geri þeim kleift að styrkja ferðamannaþjónustuna í Grímsey
Vegagerðin fyrirhugar að endurbæta um 0,8 km langan kafla á Knarrarbergsvegi (8490) milli Veigastaðavegar og Leifsstaðavegar í Eyjafjarðarsveit. Núverandi vegur er mjór malarvegur og miða endurbætur að því að styrkja hann og leggja á hann bundið slitlag.
Lesa meira
Vinna við að setja upp gátskildi á milli akreina á Reykjanesbrautinni á framkvæmdasvæðinu hófst í gær. Settir voru upp skildir á 2 km kafla og verður haldið áfram jafn hratt og kostur er. Panta þarf gátskildi til viðbótar. Einnig voru í gær miðvikudag sett upp stærri skilti til aðvörunar.
Vegagerðin ítrekar þau tilmæli til vegfarenda að aka varlega á framkvæmdasvæðum og aka ætíð í samræmi við aðstæður.
Vegagerðin hefur ákveðið að aðskilja aksturstefnur í framhjáhlaupum á Reykjanesbrautinni á framkvæmdasvæðinu, það verk mun hefjast á allra næstu dögum. Fyrir helgina verða sett upp stærri skilti með aðvörunum um að ekið sé á tvístefnuakbraut.
Tilboð í áframhaldandi vinnu við tvöföldunina voru opnuð í gær. Nú þegar hefst athugun á og viðræður við lægstbjóðanda sem er Adakris uab og Toppverktakar ehf.
Lesa meiraÍ umræðu síðustu daga hefur því hvað eftir annað verið haldið fram að flutningabílstjórar gætu lent í því að verða að stöðva á Holtavörðuheiðinni og bíða í 45 mínútur. Þetta gengur ekki upp og er rangt.
Samkvæmt aksturs- og hvíldartímareglunum, sem hafa verið í gildi í nánast óbreyttar í átta ár, verður ökumaður að taka 45 mínútna hvíld fyrir hverja 4,5 klst sem hann ekur. Einungis er miðað við akstur en ekki þegar verið er að lesta bílinn, svo dæmi sé tekið. Það dugir því gott betur en til að komast yfir Holtavörðuheiðina.
Nú er fært í Héðinsfjörð í gegnum Héðinsfjarðargöngin. Samgönguráðherra sprengdi á fimmtudag málamynda sprengingu í tilefni þess að fyrir stuttu komst verktakinn Háfell og Metrostav í gegn styttri hluta ganganna Siglufjarðarmegin.
Héðinsfjörður tók á móti fólki með snjófjúki eftir "sprenginguna" en með í för samgönguráðherra voru tveir fyrrverandi samgönguráðherrar. Smellið á "meira" til að sjá nokkrar myndir frá athöfninni.
Sjá einnig hér á vef Vegagerðarinnar allt um framkvæmdina. En nú er búið að slá í gegn Siglufjarðarmegin en sá hluti ganganna er 3,7 km en Ólafsfjarðarmegin eru göngin tæpir 7 km. Búið er að sprengja 2,7 km þeim megin.
Lesa meiraSamgönguráðherra Kristján L. Möller setti þriðju vetrarráðstefnu Vegagerðarinnar, Vetur 2008, á Akureyri í dag 2. apríl. Ráðstefnan stendur til 4. apríl og eru haldin fjölda erinda.
Horft er til framtíðar á ráðstefnunni, hvert skuli stefna þegar kemur að því að þjónusta vegakerfið á veturnar. Kröfur vegfarenda eru um ekki eingöngu að vegir séu alltaf ruddir og færir heldur líka að þeir séu hálkuvarðir.
Á síðastliðnum 30 árum hefur þjónustan sjöfaldast meðan að fjármagn til hennar hefur ekki nema um það bil tvöfaldast. Ekki eru ýkjamörg ár síðan að mokstursdögum á Holtavörðuheiði var fjölgað úr 2 í 3, en það var árið 1991, líkt og ráðherra benti á þegar hann setti ráðstefnuna í Sjallanum.
Lesa meiraÝmsar fullyrðingar hafa verið settar fram í umræðu undanfarinna daga vegna mótmæla flutningabílstjóra. Það er eðlilegt að eitt og annað sé sagt og stundum vill bregða við að rangar staðhæfingar séu settar fram. Sumar þeirra snúa að Vegagerðinni og því er rétt að árétta nokkra hluti sem að Vegagerðinni snúa.
Eitt hlutverka Vegagerðarinnar er umferðareftirlit og í því felst að hafa eftirlit með stærð, heildarþyngd og ásþunga ökutækja, hleðslu, frágangi og merkingu farms, ökumælum, ökuritum, olíugjaldi og kílómetragjaldi, leyfisskyldri starfsemi sem varðar fólksflutninga og farmflutninga á landi, akstri leigubíla og aksturs- og hvíldartíma ökumanna.
Umræða um of háar sektir, áningastaði, akstur- og hvíldartíma eiga ekki allar við rök að styðjast.
Lesa meira
Vegagerðin í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands stendur fyrir málþingi um upptöku Evrópustaðla fyrir malbik. Erindi flytja nefndarmenn í CEN/TC 227/ WG1 (Road materials – bituminous mixtures).
Málþingið fer fram á Radisson SAS Hótel Sögu þann 18. apríl 2008
Stangaveiðimenn eru ánægðir með brúarflokk Guðmundar Sigurðssonar sem byggði brú yfir Hítará og fjarlægði gömlu brúna. Allt var þetta gert á veiðitíma og tókst vel til, en áður en framkvæmdir hófust var farið yfir allt verkið með veiðiréttarhöfum og skipst á skoðunum um hvernig best væri staðið að málum til að trufla veiðarnar sem minns.
Vegagerðin og Siglingastofnun kynna hér frummatsskýrslu fyrir byggingu Bakkafjöruhafnar, vegtengingar að höfninni og efnistöku vegna framkvæmda á Seljalandsheiði og úr Markarfljótsaurum.
Vegagerðin fyrirhugar að endurbæta um 4,5 km langan vegarkafla á Dagverðareyrarvegi (816) milli Hringvegar og Hellulands í Hörgárbyggð í Eyjafirði. Núverandi vegur er burðarlítill malarvegur og miða endurbæturnar að því að styrkja hann og leggja á hann bundið slitlag.
Vegagerðin í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands stendur fyrir málþingi um upptöku Evrópustaðla fyrir malbik þann 18. apríl næstkomandi, á Radisson SAS Hótel Sögu kl. 8:30 - 12:00
Vegagerðin áformar breikkun Reykjanesbrautar um Hafnarfjörð, frá Strandgötu (áður Ásbraut) að Bikhellu, breytingar á mislægum vegamótum Reykjanesbrautar og Strandgötu og gerð mislægra vegamóta Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar.
Umferðarráð hvetur í ályktun veghaldara og verktaka við framkvæmdir á götum, vegum og gangstígum fyrir almenna umferð í þéttbýli og dreifbýli til að tryggja að ýtrustu merkingar og öryggisráðstafanir séu alltaf viðhafðar á framkvæmdasvæðum.
Nauðsynlegt er að góð umferðarmerki og skilti séu til staðar, sem gefa skýrt til kynna með góðum fyrirvara hvað er framundan og hvernig beri að aka.
Vegagerðin og Eykt ehf skrifuðu undir samning í dag föstudag 29. febrúar þess að efnis að Eykt ljúki smíði brúa vegna mislægra gatnamóta á Reykjanesbrautinni.
Verkið mun hefjast um miðjan mars. Tvær brýr eru eftir á þeim níu km kafla sem bíður tvöföldunar. Brýrnar eru við mislæg gatnamót við Stapahverfi og Njarðvík. Reiknað er með að fyrri brúarsmíðinni ljúki 5. júlí og þeirri seinni í september/október. Eykt tekur einnig að sér frágang þeirra brúa sem þegar er búið að steypa upp.
Aðrir þættir verksins, jarðvinna og lagning bundins slitlags verða boðið út á næstu dögum.
Lesa meiraFyrirhugað er að endurbyggja, styrkja og leggja bundið slitlag á 8,6 km kafla sem hefst um 0,4 km vestan Ólafsfjarðarvegar í Arnarneshreppi og endar skammt sunnan Skriðu í Hörgárdal. Veglínan mun að mestu fylgja núverandi vegi .....
Vegagerðin og VSÓ ráðgjöf kynntu niðurstöður frummatsskýrslu um Hringveg um Hornafjörð á fjölsóttum fundi á mánudaginn var þann 25. febrúar. Um 100 manns sóttu fundinn og var kom fram fjöldi athugasemda.
Um er að ræða 11-18 km vegalagningu og nýja brú yfir Hornafjarðarfljót. Þrjár leiðir eru metnar, leiðir 1, 2 og 3. Vegagerðin mælir með leið 1. En nær allir á kynningarfundinum á Höfn gagnrýndu leiðarvalið og töldu leið 3 besta. Áfram er unnið að málinu og verður tekið tillit til athugasemdanna í matsskýrslunni. Athugasemdafrestur er til 7. mars og skal skila þeim inn til Skipulagsstofnunar á netfangið skipulag@skipulag.is
Lesa meiraÞar sem verið er að gera endurbætur á Hringveginum þar sem hann liggur í gegnum Borgarnes verður vegurinn lokaður en vel merktar hjáleiðir hafa verið opnaðar. Framkvæmdirnar munu standa í um það bil þrjá mánuði en hluti vegarins verður þó opnaður fyrr.
Veginum var lokað nú í hádeginu í dag 26. febrúar.
Lesa meira
Tveir dómar Hæstaréttar féllu í gær fimmtudag um bætur fyrir efni sem kemur úr jarðgöngum. Matsnefnd eignarnámsbóta hafði gert Vegagerðinni að greiða bætur vegna efnis sem félli til við jarðgangagerð, bæði í Fáskrúðsfjarðargöngum og í göngunum undir Almannaskarð.
Vegagerðin undi því ekki og fór með málin fyir dómstóla. Héraðsdómur dæmdi landeigendum í vil en Hæstiréttur sneri þeim dómi við og felldi niður málskostnað.
Lesa meiraVegstikur geta ekki bara nýst með venjulegum hætti heldur eru þær einnig mjög hentugar sem spelkur. Þessu fengu Vegagerðarmenn að kynnast á skyndihjálparnámskeiði á dögunum.
Stikurnar eru léttar, mjúkar og íhvolfar þannig að þær meiða ekki sjúklinginn og svo er hægt að stilla á þeim lengdina með því að nota 2 stikur sem eru límdar saman með límbandi og svo settar á sjúklinginn.
Lesa meiraNÝTT
Reiknað er með að vinnu við viðgerðina á Hringvegi við Svignaskarð ljúki um níu leitið í kvöld og að þá verði hægt að hleypa umferð um hann að nýju.
Snúið reyndist að koma ræsinu fyrir á sínum stað vegna vatnsflaums en þegar því verki var lokið tók við að keyra efni í veginn, sú vinna gengur hratt og örugglega fyrir sig og sem fyrr segir ætti að vera lokið í kvöld.
Lesa meiraÍ síðasta ofsaveðri, sl. föstudaginn, voru svo mikil læti í veðrinu á Suðurnesjunum að klæðing flettist af Ísólfsskálavegi. Á tveimur stöðum, um 70 - 90 fm á hvorum stað.
Fleiri myndir fylgja ef lesið er meira, en ekki er vitað til þess að óhöpp hafi orðið vegna þessa. Óvíst er hvernær mögulegt verður að gera við skemmdirnar en það fer eftir veðri og hitastigi.
Lesa meiraFrá því að mannskæðar snjóflóðahrinur gengu yfir landið árið 1995 hefur áhersla verið lögð á rannsóknir og þróun á sviði snjóflóðamála og markvissar aðgerðir til þess að draga úr snjóflóðahættu. Aðgerðirnar hafa falist í hættumati, uppbyggingu varnarvirkja og flutningi byggðar af ákveðnum hættusvæðum þar sem erfitt er að koma við vörnum. Eftir þessu hefur verið tekið víða um lönd.
Verkfræðingafélag Íslands og Tæknifræðingafélag Íslands í samstarfi við Umhverfisráðuneytið, Vegagerðina, Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnun, Landsnet og Samband íslenskra sveitarfélaga munu standa fyrir alþjóðlegri ráðstefnu á Egilsstöðum dagana 11. -14. mars n.k. um málefni snjóflóðavarna, mannvirkjagerðar, umhverfis og samfélags.
Megin þemu þessarar ráðstefnu eru þrjú; snjóflóðavarnir, umhverfi og samfélag.
Lýðheilsustöð og slysavarnaráð gengust fyrir morgunverðarfundi þar sem til umræðu voru 2+2 vegir og 2+1 vegur. Sérstaklega var horft til málsins út frá sjónarhorni umferðaröryggis. Heilbrigðisráðherra ávarpaði fundinn í upphafi hans.
Erindi héldu þeir Haraldur Sigþórsson, verkfræðingur hjá Línuhönnun, Ágúst Mogensen, forstöðumannur rannsóknarnefndar umferðarslysa og Steinþór Jónsson, formaður Samstöðu.
Á vef Lýðheilsustöðvar er að finna ítarlega umfjöllum um fundinn og þar er einnig að finna erindin sem flutt voru.
Vegagerðin vinnur nú að því að leggja 2+2 veg austur á Selfoss, unnið er að skipulágsmálum ásamt því að veglínur eru skoðaðar. Veghönnun er í gangi en ljóst er að framkvæmdin fer í mat á umhverfisáhrifum.
Samgönguráð efnir til fimmta fundar í fundaröð sinni um stefnumótun í samgöngum, fimmtudaginn 7. febrúar kl. 15-17.
Fundarefnið að þessu sinni er: Almenningssamgöngur
Sporvagnakerfið í Stuttgart – tekist á við áskoranir 21. aldarinnar
Samþætt svæðis- og samgönguskipulag með almenningssamgöngur sem burðarás
Drög að skýrslu um almenningssamgöngur sveitarfélaga
Lesa meira
Ráðstefna Vegagerðarinnar um vetrarþjónustu "VETUR 2008" verður haldin á Akureyri dagana 2. - 4. apríl. Fundarstaður: Nýja bíó Akureyri. Viðfangsefni ráðstefnunnar er almenn þjónusta og öryggi sem tengist akstri að vetrarlagi.
Skráningarfrestur er til 20. febrúar Lesa meira
Minnt er á að umsóknarfrestur rennur út að kvöldi 4. febrúar 2008. Aðilar innan og utan Vegagerðarinnar geta sótt um fjárframlög. Rannsóknarnefnd stofnunarinnar sér um úthlutun.
Gert er ráð fyrir að hluta fjármagns sem til ráðstöfunar er, verði varið til verkefna sem stofnunin lætur vinna að eigin frumkvæði, eins og fram kemur í áherslusviðum vegna rannsókna 2008.
Fulltrúar Vegagerðarinnar og Suðurverks hf og Skrautu ehf skrifuðu undir verksamning um byggingu mislægra gatnamóta Reykjanesbrautar og Arnarnesvegar föstudaginn 25. janúar. Samningurinn hljóðar upp á tæpar 670 milljónir króna.
Gatnamótin verða þau fyrstu hér á landi með hringtorgi að ofanverðu. Það er að segja um er að ræða tvær brýr sem mynda hringtorg. Verkinu skal að fullu lokið í júlí 2009 en reiknað er með að stærstur hluti þess verði kláraður í haust.
Lesa meiraVegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um Hringveg um Hornafjörð. Tillagan liggur frammi til kynningar frá 24. janúar til 7. mars 2008.
Vegagerðin mun kynna frummatsskýrslu vegarins með opnu húsi í Nýheimum á höfn fimmtudaginn 7. febrúar kl. 20 - 22. Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdirnar og leggja fram athugasemdir. Þær þurfa að vera skriflega og berast til Skipulagsstofnunar eigi síðar en 7. mars 2008.
Frummatsskýrslan og fylgiskjöl er að finna á vef Vegagerðarinnar og vef VSÓ ráðgjafa.
Lesa meiraÞriðjudaginn 22. janúar tóku samgönguráðherra og borgarstjóri formlega við nýju miðlægu kerfi umferðarljósa í Reykjavík. Um er að ræða í fyrsta áfanga 36 gatnamót af 116 þar sem umferðarljós er að finna.
Miðlæga kerfið aðlagar ljósin að umferðinni hverju sinni, velur hagkvæmustu stýringuna og lágmarkar þannig biðtíma vegfarenda. Þannig er til dæmis búin til græn bylgja með sterkustu umferðarstraumunum og leitast við að sem mest af umferðinni komist á milli staða án þess að þurfa að stöðva á rauðu ljósi.
Verkefnið er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar.
Íslenskir aðalverktakar og Marti Contractors áttu lægsta tilboðið í gerð Bolungarvíkurganga, tilboð þeirra hljóðaði uppá 3.479.000.000.- kr eða tæpa þrjá og hálfan milljarð króna.
Tilboð í Bolungarvíkurgöng (Óshlíðargöng) voru opnuð hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7 í Reykjavík í dag 22. janúar
Áætlaður verktakakostnaður var 3.950.000.000,- og var lægsta tilboð því tæp 88 % af áætluðum kostnaði.
Lesa meira
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna fyrir árið 2008.
Umsóknir um styrki og/eða fjármögnun einstakra verkefna þurfa að berast í seinasta lagi að kvöldi 4. febrúar 2008.
Aðilar innan og utan Vegagerðarinnar geta sótt um fjárframlög. Rannsóknarráð stofnunarinnar sér um úthlutun.
Lesa meiraFöstudaginn 18. janúar verða hraðamyndavélar í Fáskrúðsfjarðargöngum teknar í notkun. Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og tilgangurinn að draga úr ökuhraða á þjóðvegum og fækka umferðarslysum. Umferðaröryggisáætlun er hluti samgönguáætlunar.
Samgönguráðuneytið, ríkislögreglustjóri, Umferðarstofa og Vegagerðin vinna að uppsetningu hraðamyndavélanna og á næstu vikum munu fleiri vélar bætast við á þjóðvegum landsins. Um er að ræða stafræna myndatöku þar sem upplýsingar um hraðabrot eru sendar samstundis til lögreglunnar.
Lesa meiraFerð Grímseyjarferjunnar Sæfara úr Hafnarfjarðarhöfn til Akureyrar gekk vel þrátt fyrir að einungis væri notast við aðra vélina af tveimur. Fljótlega eftir að sigling hófst kom í ljós að lega á ás frá annarri vélinni kældist illa og var ákveðið að sigla á hinni vélinni eingöngu í öryggisskyni.
Að sögn skipstjórans í ferðinni gekk ferðin mjög vel að öðru leiti, skipið telur hann nokkuð betra sjóskip en áður en bæði skipstjóri og stýrimaður höfðu siglt ferjunni frá Írlandi á sínum tíma. Miklar breytingar hafa verið gerða á Sæfara.
Lokaendurbætur taka nú við í Slippnum Akureyri og mun þeim ljúka á næstu 3-4 vikum.
Lesa meiraSkýrsla sem Reykjavíkurborg og Vegagerðin létu gera um Sundagöng felur í sér kostnaðarmat og áhættugreiningu. Niðurstaðan er að göng með vegtengingum upp á Geldinganes myndu kosta 24 milljarða króna.
Lesa meira
Sundabraut sem hefur verið í undirbúningi lengi hefur verið í umræðunni síðustu daga. Sérstaklega hugmyndir um jarðgöng. Tölur um kostnað hafa verið á reiki og eins hefur verið kallað eftir afstöðu Vegagerðarinnar.
Afstaða Vegagerðarinnar er skýr og hefur verið það. Innri leið, svo kölluð Eyjalausn, er tæknilega, fjárhagslega og umferðarlega mun betri kostur en jarðgangaleiðin og gefur miklu meiri arðsemi af því fjármagni sem til framkvæmdanna er varið. Það er því alveg ljóst að Vegagerðin getur ekki mælt með að jarðgangalausn verði valin.
Eigi að síður þótti rétt að skoða þá lausn líkt og margar aðrar. Athugun er nú að fullu lokið og ljóst að jarðgangagerðin er tæknilega möguleg en kostnaður er hinsvegar mun meiri en áður var eða um 24 milljarðar króna með vegtengingum. Jarðgangalausnin er þannig um 9 milljörðum króna dýrari kostur en eyjalausnin.
Fyrir þennan mismun upp á 9 milljarða mætti gera mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, leggja Miklubraut í stokk vestur fyrir Lönguhlíð og Kringlumýrarbraut í stokk suður fyrir Listabraut.
Lesa meira
Þriðjudaginn 8. janúar var skrifað undir samning við Slippinn Akureyri um lokaendurbætur á Grímseyjarferjunni Sæfara.
Samningsupphæðin er 12.966.300,- kr samkvæmt tilboði Slippsins Akureyri sem átti lægsta tilboðið.
Reiknað er með að vinna hefjist á Akureyri 15. janúar og að skipinu verði siglt norður föstudaginn 11. janúar. Miðað er við að vinna verkið á þremur vikum. Fljótlega að því loknu ætti hinn nýi Sæfari að geta hafið reglulegar siglingar milli Grímseyjar og Dalvíkur.
Lesa meira
Vegagerðin kynnir hér með drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Axarvegi, milli Skriðdals í Fljótsdalshéraði og Berufjarðar í Djúpavogshreppi í Suður-Múlasýslu. Byggja á nýjan 18 km langan veg sem nær frá vegamótum við Hringveg um 5 km sunnan við enda Skriðuvatns í Skriðdal, að Hringvegi í botni Berufjarðar.
Opnuð voru tilboð í lokaendurbætur janúar Sæfara í húsakynnum Vegagerðarinnar föstudaginn 4. janúar. Um var að ræða óformlegt lokað útboð eða verðkönnun.
Slippurinn Akureyri átti lægsta tilboðið sem hljóðaði upp á tæpar 13 milljónir króna. Næst lægsta tilboðið átti Skipasmíðastöð Njarðvíkur uppá 22,4 milljónir króna.
Gengið verður til samninga við Slippinn Akureyri en reiknað er með að vinna geti hafist þar 15. janúar.
Lesa meira
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna fyrir árið 2008.
Umsóknir um styrki og/eða fjármögnun einstakra verkefna þurfa að berast fyrir 4. febrúar 2008.
Aðilar innan og utan Vegagerðarinnar geta sótt um fjárframlög. Rannsóknarráð stofnunarinnar sér um úthlutun.
Tilboð í lokaendurbætur á Grímseyjarferjunni Sæfara verða opnuð á föstudag 4. janúar.
Um er að ræða nokkra verkþætti svo sem inngang og neyðarútgang á síðum skipsins, útskipti á stáli í byrðingi, kælingu í lest og salerni fyrir fatlaða, auk nokkurra smærri verka.
Vegna umræðunnar lét Vegagerðin kanna hvað myndi kosta að smíða nýtt skip í líkingu við Grímseyjarferju og var niðurstaða þeirrar könnunar að það myndi kosta að minnsta kosti 900 milljónir króna miðað við verðlag í dag.
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember