Fréttir

27.12.2007 : Hvað er menntaskóli, hvenær er skólatími?

Snjómokstur á Hellisheiði

Að gefnu tilefni er áréttað að túlkun Vegagerðarinnar er sú að menntaskóli sé orð yfir framhaldsskóla, þ.e. næsta stig menntakerfis á eftir grunnskóla og eru þá meðtaldir fjölbrautaskólar, Verslunarskólinn, Kvennaskólinn, verkmenntaskólar og iðnskólar.


Einnig að grunnskólar og framhaldsskólar standa venjulega yfir frá lok ágústmánuðar og til loka maímánaðar og er átt við það tímabil og alla daga vikunnar en ekki einungis virka daga vikunnar á því tímabili.


Ástæða áréttingarinnar er athugasemd sem menntamálaráðuneytið fékk vegna framkvæmdar á samningi um sérleyfisakstur á Suðurlandi.

Lesa meira
 

22.12.2007 : Þjónusta um hátíðirnar

Vetrarfærð

Þjónusta Vegagerðarinnar yfir jólahátíðina verður sem hér segir:

Á öllum leiðum sem hafa 7 daga þjónustu verður þjónusta á jóla- og nýársdag, en stefnt er að því að þá verði þessar leiðir almennt færar fyrir kl. 10:00.

 

Á aðfangadag og gamlársdag er gert ráð fyrir þjónustu til kl 14:00 en ef þörf krefur til kl 17:00. Það á þó ekki við um lengstu leiðir svo sem á Mývatns- og Möðrudalsöræfum, á Djúpvegi frá Súðavík til Hólmavíkur og Vestfjarðarvegi austan Brjánslækjar. Þar hættir þjónusta í síðasta lagi kl. 14:00.

 

Á annan í jólum verður þjónusta á öllum leiðum samkvæmt almennum snjómokstursreglum.

 

Frekari upplýsingar eru veittar í síma 1777 hjá upplýsingaþjónustu Vegagerðarinnar.

 

Vegagerðin óskar landsmönnum gleðilegra jóla

Lesa meira
 

21.12.2007 : Mislæg gatnamót á Hringvegi við Leirvogstungu

Leirvogstunga

Vegagerðin, og landeigendurnir Leirvogstunga ehf. og Ístak ehf. hafa samið um þverun Hringvegarins (Vesturlandsvegar) með mislægum gatnamótum á milli Leirvogstungu og Tungumela og tengingar við Vesturlandsveginn.


Samningurinn felur það í sér að Vegagerðin samþykkir óskir landeigenda um tilteknar breytingar á Vesturlandsvegi og tengingar við hann. Vesturlandsvegi verður breytt á um 650 m kafla, og mislægt hringtorg byggt með að- og fráreinum sem tengjast munu gatnakerfi beggja vegna vegarins ásamt tveimur brúm yfir Hringveg.

Lesa meira

 

20.12.2007 : Starfsmenn Vegagerðarinnar styrkja SKB

Óskar Örn Guðbrandsson tekur við styrknum

Starfsmenn á stjórnsýslusviði Vegagerðarinnar tóku allir þátt í vinnustaðagreiningu Capacents Gallups og hlutu þess vegna 100 þúsund krónur í verðlaun rétt eins og starfsmenn þróunarsviðs. (Sjá eldri fréttir.) Starfsmennirnir ákváðu að gefa féð til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna.


Óskar Örn Guðbrandsson framkvæmdastjóri SKB tók við styrknum í húsakynnum Vegagerðarinnar í gær miðvikudag 19. desember. SKB var stofnað 2. september 1991 af foreldrum barna með krabbamein. Félagið er ekki rekið í ágóðaskyni en starfar fyrst og fremst sem sjálfshjálparhópur fjölskyldna barna sem fengið hafa krabbamein.

Lesa meira
 

18.12.2007 : Ótryggilega gengið frá farmi

Jarðvegsslóði á Hafravatnsvegi

Allt of algengt er að illa sé gengið frá farmi á vörubílum við framkvæmdir hvers konar. Brýnt er að menn taki sig á í þeim efnum.


Vegagerðarmaður var á ferð á dögunum á Hafravatnsvegi og fann langa slóð á veginum af efni sem betur hefði haldist á vörubílspallinum. Þetta er því miður ekkert einsdæmi. 

Lesa meira
 

17.12.2007 : Umhyggja fær 100 þúsund krónur

Framkvæmdastjóri Umhyggju tekur við styrknum

Á árlegum jólafundi þróunarsviðs Vegagerðarinnar færðu starfsmenn sviðsins Umhyggju, sem er félag til stuðnings langveikum börnum, 100 þúsund krónur. Þróunarsviðið hafði fengið þær krónur í vinning vegna góðrar þátttöku í vinnustaðagreiningu hjá Vegagerðinni.


Stjórnsýslusviðið hlaut samskonar vinning en Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna mun fljótlega fá hann afhentan.

Lesa meira
 

14.12.2007 : Reynslusigling gekk vel

Sæfari

Nú er að ljúka þeim endurbótum sem Vélsmiðja Orms og Víglundar hefur unnið að á Grímseyjarferjunni Sæfara. Einn lokahnykkurinn í því ferli er reynslusigling sem farin var í gær 13. desember.


Tilgangurinn með reynslusiglingunni er að prufukeyra vélar skipsins. Siglingin tókst vel í gær og ekkert óvænt kom uppá.


Skipið lætur vel að stjórn og er lipurt að mati Jóns B. Björgvinssonar skipstjóra í ferðinni.

Lesa meira
 

13.12.2007 : Greið umferð – örugg umferð

Gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar - Lausn með brú

Það eru til einfaldar lausnir til að leysa vanda í umferðinni og það eru til flóknar lausnir. Yfirleitt vita menn hvar vandamálin eru en sjá ekki alltaf lausnirnar í hendi sér. Eitt vandamál í Reykjavík er tiltölulega auðvelt að leysa en það er stíflan sem myndast við gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar.


Gatnamótin hafa nokkuð verið í umræðunni þar sem Reykjavíkurborg hefur hafnað þeim tillögum sem lagðar hafa verið fram. Til að greiða fyrir umferðinni á þessum stað eru mislæg gatnamót góð lausn og miðað við þær hugmyndir sem lagðar hafa verið fram er ekki um mikið inngrip að ræða.

Lesa meira
 

11.12.2007 : Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri lætur af störfum 1. mars

Jón Rögnvaldsson

Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri hefur ákveðið að láta af störfum 1. mars næstkomandi.


Þá lýkur fimm ára ráðningartímabili hans sem vegamálastjóra. Hann hefur þegar tilkynnt samgönguráðherra ákvörðun sína.


Jón telur heppilegt að láta af störfum á þessum tímapunkti, eftir ríflega 43 ára samfellt starf hjá Vegagerðinni. Jón verður þá orðinn 69 ára gamall.

Lesa meira
 

4.12.2007 : Leiðbeiningar Vegagerðarinnar: Vegir og skipulag

Vegir og skipulag - forsíða leiðbeinngarrits

Vegagerðin hefur nú gefið út nýjar leiðbeiningar sem bera nafnið: Vegir og skipulag - Leiðbeiningar Vegagerðarinnar fyrir sveitarfélög og skipulagshöfunda. Leiðbeiningarnar voru unnar af VSÓ Ráðgjöf í samvinnu við Vegagerðina.


Með leiðbeiningarriti fyrir skipulagshöfunda leggur Vegagerðin sitt af mörkum til að stuðla að skilvirku samráðsferli.

Lesa meira

 


Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica